Fréttablaðið - 04.04.2009, Síða 72
75 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 egg
mjólk
salt
smjör
BLINIS AÐ HÆTTI RAGNHILDAR
Setjið þurrefnin í skál. Blandið eggjum út í og síðan mjólk, en
deigið á að vera ágætlega þykkt. Smyrjið steikarpönnu og mótið
munnbitsstórar pönnsur. Bætið smjöri við eftir þörfum.
Berið fram með hverju því sem hugurinn girnist. Til dæmis
sneiddum banönum, ferskum berjum, sýrðum rjóma með vanillu,
Royal-búðingi, sultu, sírópi eða súkkulaðisósu. Súkkulaðisósan
sem ég gerir spari er úr rjómasúkkulaði, rólóbitum og rjóma en
aðrar koma vel til greina.
Litríkt og lekkert að hætti húsfreyjunn-
ar sem hefur lagt sig fram við gerð
þessara gómsætu smárétta.
Nokkur tengsl eru milli páskahátíða gyðinga og
kristinna manna. Báðar eru þær haldnar til að fagna
frelsun. Gyðingarnir minntust frelsunarinnar undan
Egyptum en kristnir menn frelsunar undan synd og
sekt til lífs með Guði. Þá slátruðu gyðingar svokölluðu
páskalambi sem þeir neyttu á hátíðinni.
Sagan á bakvið þá hefð er sú að Guð lét hverja
pláguna á fætur annarri herja á Egyptaland, en sú
tíunda og síðasta var verst, því í henni gekk engill
dauðans um landið og tók „alla frumburði í Egypta-
landi [...] og alla frumburði fénaðarins“ (2M 12.29),
en Ísraelsmönnum var hlíft. Var það vegna þess að
hver fjölskylda tók samkvæmt boði Guðs um sólsetur
gallalaust hrútlamb, slátraði og bar nokkuð af blóði
páskalambsins á dyrastafi og dyratré þess hús sem
þess yrði neytt í. Þetta gerðu þeir svo að engill dauð-
ans gengi framhjá þeirra húsum.
Í kristninni var svo farið að tala um Krist sem hið
sanna páskalamb. Samkvæmt einu guðspjallanna er
jafnvel sagt að dauða Krists hafi borið upp á sömu
stundu og páskalömbunum var slátrað.
UPPRUNI PÁSKALAMBSINS
Ragnhildur Lára Finnsdóttir háskólanemi segir blini-pönnukökur gæddar þeim eiginleika að nýtast við ólík tækifæri, jafn vel
hátíðleg tilefni eins og um páskana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
S
Ragnhildur er ófeimin við að bera alls kyns góðgæti fram með pönnukökunum.
Sögu páskalambsins má rekja aftur til gyðinga sem neyttu
þess fyrstir um páskana, til að minnast frelsunar undan Egypt-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRAMHALD AF FORSÍÐU
Afgreiðsla ÍSAGA, Breiðhöfða 11,
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
Þú færð allar nánari upplýsingar
um AGA Gasol hylkin,
þrýstiminnkara, slöngur og
sérlausnir hjá umboðsmönnum
okkar og í þjónustuveri
ÍSAGA í síma 577 3000.
Þú
s
ér
ð
in
ni
ha
ld
ið
!
IS
A
-3
4
4
–
ÍD
E
A
g
rafísk h
ö
n
n
u
n