Fréttablaðið - 04.04.2009, Page 88

Fréttablaðið - 04.04.2009, Page 88
68 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is > Ekki missa af fyrstu einleikstónleikum Matthíasar Philips Nardeau kl. 17 í dag í Salnum. Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur undir. Verkin eru öll einleiks- verk fyrir óbó, eftir Robert og Klöru Shuman og þá Amilcare Ponchielli og Antonio Pasculli. kl. 11 Næsta uppboð hjá Gallerí Fold er á mánudag kl. 18.15. Fjöldi góðra verka eftir gömlu meistarana verður boðinn upp, meðal annars verk eftir Kjarval, Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadóttur og Ásgrím Jónsson. Verkin verða sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg, í dag frá kl. 11-17 og á morgun frá 12-17. Uppboðsdaginn má skoða þau frá 10-17. Uppboðsskrá með myndum er á www.myndlist.is. Sýningin á töflum hóps alþjóðlegra listamanna sem staðið hefur um nokkurt skeið á Kjar- valsstöðum hefur vakið mikla athygli, enda eru þar á ferð margir af virtustu og flinkustu listamönnum okkar daga. Listasafnið hafði upp úr krafsinu tafl eftir Yoko Ono sem hún gaf safninu en þarna eru verk eftir ungu Bretana, Barböru Kruger og Yaoi Kusama svo nokkrir séu nefndir. Tveir Íslendingar eru í hópnum, Stein- grímur Eyfjörð og Bjarni Harðarson, og að auki taflmenn Jóns Gunnars. Ekki er þó í safninu tafl þeirra Spasskys og Fischers sem ætti heima í íslensku deildinni. Á morgun koma þau Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Helgi Ólafsson á fund Hafþórs Yngvasonar og ræða frammi fyrir gestum um fagur- fræði í samhengi við skáklistina. Hefst spjallið kl. 15. Þá er rétt að vekja athygli á glæsilegu ritverki um sýninguna sem komin er út. Það er ríkulega skreytt myndum frá sýningunni Skáklist og textinn er eftir sýningarstjórana Larry List og Mark Sanders. Sýningin stendur til 13. apríl. - pbb Skáksýning vel sótt Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona opnar í dag stóra sýningu í Hafnarborg á myndlist sinni af ýmsu tagi: innsetningu, hreyfi- myndum, tón/hljóðverki, gleri og málverkum. Sýn- ingin er fjölbreytt og opnar glugga inn í viðfangsefni listakonunnar: snjó í fjöll- um. Sýningin, sem Guðrún kallar Veður- skrift Veðurlag, er sett upp undir stjórn Birtu Guðjóns dóttur. Guð- rún þenur formið sem hún sækir mest í að túlka, fjalllendi með sjó- sköflum í þíðu, á margvíslegan máta. Hún stefnir saman rímna- kveðskap sem Steindór Andersen leggur rödd við blásin stef á bás- únu sem Hróðmar Sigurbjörnsson blæs. Þennan hljóðvegg leggur hún við myndbönd sem eru unnin og klippt. Þennan hluta sýningar- innar kallar hún Veðurlag. Á sýningunni stillir hún upp þremur vinnuskrifstofum í sam- ráði við dóttur sína Oddnýju Eir þar sem aðgreindir þættir vinnslu listakonunnar eru lagðir undir smásjá svo greina má drög hennar að stærri verkunum. Veður skrif- stofunnar eru forsmekkurinn af bókverki sem áætlað er að birtist á næsta ári. Guðrún Kristjánsdóttir (f. 1950) er á meðal þeirra listamanna sem leitað hafa markvisst í brunn íslenskrar náttúru og hafa verk hennar vakið athygli frá því hún kvaddi sér fyrst hljóðs á níunda áratugnum. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og víða erlendis. Guðrún hefur um langt skeið markað sér afar persónulegan stíl bæði með vali á myndefni og ekki síður úrvinnslunni. Sum mál- verk hennar virka í fjarska sem óregluleg mynstur í móðugu landi og daufri birtu. Hún vinnur alfarið með jarðliti og í öllu höfundar- verki hennar má finna endurreisn íslenska landslagsmálverksins sem svo lengi var forsmáð grein á myndlistarhríslunni íslensku, svo kræklótt og margstofna sem hún er. Sýning Guðrúnar stendur til 10. maí og er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og fimmtudaga kl. 11-21. Efnt verður til leiðsagnar um sýninguna og á morgun kl. 15 tekur Guðrún þátt í leiðsögninni. pbb@frettabladid.is Snjóyrjur í fjalli MYNDLIST Guðrún á sýningarsvæðinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Myndlistarkonan Bjargey Ólafsdóttir opnar í dag aðra sýningu sína í Reykjavík, en ljósmyndaverk hennar eru nú sýnd í sölum Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Í dag hefst sýning hennar á teikn- ingum í Ásmundarsal Listasafns ASÍ. Sýninguna kallar hún Stungið af til Suður-Ameríku. Bjargey á spjall við gesti á morgun kl. 15. Bjargey í Ásmundarsal MYNDLIST Bjargey Ólafsdóttir myndlistarkona. MYNDLIST Tafl eftir Alastair Mackie, Amorphous Organic, 2008. MYND LISTASAFN REYKJAVÍKUR www.forlagid.is TÍMAMÓTAVERK SVO MIKLU MEIRA EN HEFÐBUNDIN ORÐABÓK Bókin gerir rækilega grein fyrir notkun orða og orðasambanda í margvíslegu samhengi og birtir um leið skýra mynd af íslenskum orðaforða. Yfirgripsmikið verk sem veitir einstaka leiðsögn um orðaval í ræðu og riti. Rafræn útgáfa á geisladiski fylgir bókinni og veitir margvíslega leitarmöguleika og nýja innsýn í efnið. 4 10 4 0 0 0 | l an d sb an ki nn .is 135 / BÆJARHRAUN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.