Morgunblaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir Köld slóð kl. 8 og 10 B.i. 12 ára Tenacious D in the Pick of Destiny kl. 8 og 10 B.i. 12 ára Artúr & Mínimóarnir kl. 6 Eragon kl. 6 B.i. 10 ára e Frábær fjölskyldu- og gamanmynd sem kemur öllum í gott jólaskap Aðeins 500 kr.Hinn ungi og og bráðefnilegi Freddie Highmore úr Charlie and the Chocolate Factory fer á kostum í hlutverki Artúrs. ÍSLENSKT TAL JÓLAMYNDIN 2006 FRÁBÆR ÆVINTÝRA- MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Mynd eftir Luc Besson Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók M e eee SV MBL 20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings ef greitt er með korti frá Kaupþingi ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ LEITA SANNLEIKANS - ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN... Köld slóð kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 B.i. 10 ára Köld slóð LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 Arthur & Mínimóarnir kl. 1.30, 3.40 og 5.50 Casino Royale kl. 8 og 10.50 B.i. 14 ára Borat kl. 10.20 B.i. 12 ára Eragon kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Eragon LÚXUS kl. 1 og 3.20 Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 1.30, 3.40 og 5.50 Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 1.30 Mýrin kl. 8 B.i. 12 ára eeee V.J.V. - Topp5.is staðurstund Á undanförnum árum hafaellimálaráð Reykjavíkur- prófastsdæma og kirkjurnar í prófastsdæmunum staðið fyrir sameiginlegri áramótaguðs- þjónustu sem er sérstaklega ætl- uð eldri borgurum og vinum þeirra. Að þessu sinni verður ára- mótaguðsþjónustan í Grensás- kirkju miðvikudaginn 3. janúar kl. 14.00. Prestar eru sr. Ólafur Jóhannsson sóknarprestur og sr. Hans Markús Hafsteinsson, prestur aldraðra. Furugerðiskórinn syngur og leiðir almenn- an söng undir stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur. Organisti er Árni Arin- bjarnarson. Eftir guðsþjónustuna eru kaffiveitingar í boði Grensássóknar. Allir eru velkomnir og eru eldri borgarar sérstaklega hvattir til að taka þátt í guðsþjónustunni þennan dag. Kirkjustarf Áramótaguðsþjónusta eldri borgara í Reykjavík Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Tónlist DOMO Bar | Nettettinn spilar á Domo, Þingholtsstræti 5, sunnudaginn 7. janúar og hefjast tónleikarnir um kl. 22. Aðgangs- eyrir er 500 kr. Funk, djass og fusion. Sigurdór á bassa, Ari Bragi á trompet, Kristján á hljómborð, Jón Óskar á tromm- ur og Andrés Þór á gítar. Sjá einnig: http://www.myspace.com- /nettettinn. Myndlist Art-Iceland.com, Skólavörðustíg 1a | , er með smámyndasýningu til 14. janúar 2007. Listamennirnir 20 og galleríið gefa 10% af sölu til Barnaheilla. Verkin á sýningunni eru mjög fjölbreytt og áhugaverð. Eftir jól er opið kl. 12.00–18.00 Allir velkomnir. Gerðuberg | Hugarheimar – Guðrún Bergs- dóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjarsinfónía fjölskrúðugra lita og for- ma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austur- löndum. Verk Guðrúnar vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hug- arheimi hennar. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skólabörnum í sam- starfi við Borgarbókasafnið. Sjá www.gerduberg.is. Gerðuberg á í safni sínu um 1000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starfræktar voru sumrin 1988–2004. Fyrirtæki og stofnanir geta fengið leigð verk úr safninu til lengri eða skemmri tíma. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Hrafnista, Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga. Elena fæddist 1984 í Úkraínu, hún byrjaði að teikna mjög ung. Hún flutti til Íslands 1999 og ári síðar hóf hún að nota olíuliti. Til 5. janúar. Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sig- urðardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson sýna í Kling & Bang galleríi, Laugavegi 23. Sýningin heitir Ljósaskipti – Jólasýning Kling og Bang og stendur til 28. janúar 2007. Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Musée des beaux-arts í Bordeaux í Frakk- landi, 52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verkum Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið 11–17 alla daga, lokað mánudaga. Ókeypis aðgangur. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Lokað í janúar Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóðminjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingi- mundar og Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga anda jólanna á sjöunda áratugnum. Margt í þeim ætti að koma börnum í jólaskap og fullorðna fólkið þekk- ir þar vafalaust hina sönnu jólastemningu bernsku sinnar. Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Myndirnar tók hann við störf og ferðalög á tímabilinu 1946–1960. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýning á útsaumuðum handverkum list- fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggir á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Myndefni útsaumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna og kynjadýraveröld fortíð- arinnar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend- ur yfir á Bókatorgi í Grófarhúsi, Tryggva- götu 15, 1. hæð, sýningin „… hér er hlið himinsins“ sem Borgarskjalasafn Reykja- víkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan. Gljúfrasteinn – hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands – háskólabóka- safn | Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir bera vott um. Sýningin spannar æviferil Jónasar. www.landsbokasafn.is. Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð- deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög- um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar á heimasíðunni www.landsboka- safn.is. Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáldpresturinn lét eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýningin stendur yfir til 31. desember. Sjá heimasíðu safnsins, www.landsbokasafn.is. Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalín- um frá níu merkjum eða hönnuðum í sam- hengi við íslenska náttúru; Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi rit- höfunda og myndlistarmanna frá Berlín; Fyrirheitna landið og Handritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er ævin- týralegt ferðalag gegnum 1200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar, fræðsla og leikir fyr- ir alla fjölskylduna. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihús. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Dans Iðnó | Fyrsta tangóball ársins. Byrjenda- kennsla í argentínskum tangó kl. 20–21. Dansað við ekta argentínskan tangó af diskum frá kl. 21 til 23. Allir velkomnir. Að- gangseyrir er 500 kr. og kennslan innifalin. Meira á idno.is og tango.is. Fyrirlestrar og fundir Oddi – Háskóla Íslands | 3. janúar 2007 kl. 10 í stofu 201 efnir Viðskiptafræði- stofnun til umræðufundar um útrás ís- lenskra fyrirtækja. Þar verða nokkrir ein- staklingar með stutta framsögu og í kjölfarið verða umræður. Aðgangur er ókeypis og er fundurinn öllum opinn. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni www.ibr.hi.is. Tungutæknisetur | Arnar Þór Jensson: Fyrirlestur 3. jan. kl. 12 í stofu 201 í Háskól- anum í Reykjavík sem fjallar um gerð ís- lensks talgreinikerfis sem fyrirlesari bjó til og rannsóknir sem gerðar hafa verið á því. Sérstaklega verður fjallað um hvernig hægt er að smíða talgreinikerfi þegar tak- markaðar upplýsingar liggja fyrir til þjálf- unar. Frístundir og námskeið Lesblindusetrið | Hraðlestur fyrir börn (9– 13 ára). Sérsniðið hraðlestrarnámskeið fyrir börn og unglinga. Kolbeinn Sigur- jónsson, Davis ráðgjafi hjá Lesblindusetr- inu. kolbeinn@lesblindusetrid.is. Sími 566 6664. Börn Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sér- kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla- hús og ýmislegt sem tengist jólasvein- unum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börnunum að skilja hin skrýtnu nöfn jóla- sveinanna. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Viðskiptafræðistofnun efnir tilumræðufundar um útrás ís- lenskra fyrirtækja á morgun, 3. janúar kl. 10, í stofu 201 í Odda, Há- skóla Íslands. Þar verða nokkrir einstaklingar með stutta framsögu og í kjölfarið verða umræður. Aðgangur er ókeypis og er fundur- inn öllum opinn. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á vefsíðunni www.ibr.hi.is. Fundir Útrás íslenskra fyrirtækja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.