Morgunblaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 9
FRÉTTIR
LOKAÐ Í DAG
Útsalan byrjar á fimmtudag
Þriðjudagur 02.01
Spínatlasagna
Miðvikudagur 03.01
Afrískur pottréttur m/steiktum bönunum
Fimmtudagur 04.01
Hummus, buff & bakað grænmeti
Föstudagur 05.01
Linsubaunabollur & cashewkarrý
Helgin 06.01-07.01
Burritos m/ chillisósu & guacamole
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Nýjar vörur frá
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Útsalan
er hafin
St. 38-56
Útsalan er hafin
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
LOKSINS
FÁANLEG
AFTUR Á
ÍSLANDI
BÓKIN SEM BREYTT HEFUR
LÍFI MARGRA TIL HINS BETRA
Mjódd, sími 557 5900
Við sendum viðskiptavinum okkar bestu óskir um gleðilegt ár,
með þakklæti fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.
Verslunin er lokuð í dag 2. janúar
Útsalan hefst miðvikudaginn 3. janúar
Verið velkomnar Munið gjafabréfin
MAÐUR var stunginn með hnífi á
vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar á
nýársnótt. Vinnufélagi hans játaði
verknaðinn.
Atburðurinn átti sér stað í
vinnubúðum við Aðgöng 2 um
klukkan eitt á nýársnótt, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar
á Egilsstöðum sem sendi menn á
staðinn. Kínverskur maður stakk
portúgalskan mann þrisvar, tvisv-
ar í hendur og einu sinni í kvið.
Sárin voru þó ekki alvarleg, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu, og
gerði læknir að þeim á staðnum.
Lögreglan tók gerandann í sína
vörslu og játaði hann að hafa
stungið manninn. Í gær var unnið
að skýrslutöku en ekki var vitað
um ástæður verknaðarins. Maður-
inn er nú laus úr vörslu lögregl-
unnar.
Maður stunginn í
kvið við Kárahnjúka
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sæmdi fjórtán Íslend-
inga riddarakrossi, heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu, við há-
tíðlega athöfn á Bessastöðum á
nýársdag. Þeir sem orðuna hlutu
eru:
Baltasar Kormákur Baltas-
arsson, leikstjóri, Reykjavík, fyrir
framlag til leiklistar og kvik-
myndagerðar. Bragi Þórðarson,
bókaútgefandi, Akranesi, fyrir
störf að bókaútgáfu og æskulýðs-
málum. Einar Sigurðsson, fv.
landsbókavörður, Reykjavík, fyrir
framlag á vettvangi upplýsinga-
og safnamála. Einar Stefánsson,
prófessor, Reykjavík, fyrir störf í
þágu menntunar og læknavísinda.
Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi,
Selfossi, fyrir frumherjastörf í fé-
lagsráðgjöf og framlag til rétt-
indabaráttu. Guðfinna Dóra Ólafs-
dóttir, kórstjóri, Garðabæ, fyrir
störf í þágu tónlistar og kóra-
menningar. Helga Steffensen,
brúðuleikstjóri, Reykjavík, fyrir
framlag til leiklistar og barna-
menningar. Hermann Sigtryggs-
son, fv. æskulýðs- og íþrótta-
fulltrúi, Akureyri, fyrir störf að
æskulýðs- og íþróttamálum. Krist-
ín Ingólfsdóttir, háskólarektor,
Seltjarnarnesi, fyrir störf í þágu
menntunar og vísinda. Margrét
Indriðadóttir, fv. fréttastjóri,
Reykjavík, fyrir brautryðj-
endastörf í fjölmiðlun. Ólafur Jó-
hann Ólafsson, rithöfundur og at-
hafnamaður, Bandaríkjunum,
fyrir ritstörf og framlag til kynn-
ingar á íslenskum málefnum. Sig-
urður Einarsson, stjórnarformað-
ur, Bretlandi, fyrir forystu í útrás
íslenskrar fjármálastarfsemi. Sig-
urveig Hjaltested, söngkona,
Reykjavík, fyrir störf í þágu söng-
listar og menningar. Trausti
Magnússon, fv. skipstjóri, Seyð-
isfirði, fyrir sjósókn og störf í
sjávarútvegi.
Morgunblaðið/Kristinn
Forseti Íslands sæmdi
fjórtán riddarakrossi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni, borgarstjóra
Reykjavíkur:
„Vegna ummæla Páls Hreinsson-
ar, lagaprófessors og formanns
stjórnar Happdrættis Háskóla Ís-
lands, um að Happdrætti Háskóla
Íslands sé „ekki réttur viðmælandi
borgaryfirvalda á rekstri spilasalar
Háspennu í Mjódd“ vil ég koma eft-
irfarandi á framfæri:
Happdrætti Háskóla Íslands er
fyrirtæki í eigu Háskóla Íslands. Há-
skólinn tilnefnir í stjórn þess en til-
gangur fyrirtækisins er að afla fjár-
muna til reksturs Háskólans.
Formaður stjórnar er fyrrgreindur
Páll Hreinsson prófessor.
Nú hagar þannig til, lögum sam-
kvæmt, að tveir lögaðilar hafa einka-
leyfi til að reka peningahappdrætti
og er annar þeirra Happdrætti Há-
skóla Íslands. Aftur á móti er það
svo að Happdrætti Háskóla Íslands
hvorki á né rekur þá ógæfukassa
sem dreifðir eru víða um borgina.
Þessir kassar á vegum Happdrættis
Háskólans munu vera í eigu einhvers
fyrirtækis í Reno í Bandaríkjunum
þar sem rekstur spilavíta er land-
lægur. Þetta bandaríska fyrirtæki
leigir spilakassa til einkafyrirtækis
hér á landi sem heitir Háspenna og
er í eigu tveggja einstaklinga. Há-
spenna rekur síðan þessa spilakassa
á vegum Happdrættis Háskóla Ís-
lands samkvæmt lögum frá Alþingi.
Skipting ágóða milli þessara þriggja
aðila hefur ekki komið fram opinber-
lega svo ég viti til.
Þótt Happdrætti Háskólans sé
ekki lögformlegur eigandi að því
spilavíti sem til stendur að starf-
rækja í Mjóddinni er hins vegar ljóst
að Happdrættið og Háskólinn bera
fulla ábyrgð á því hvar þessir spila-
kassar eru niðurkomnir. Í þeim efn-
um er það afdráttarlaus skoðun
borgaryfirvalda að það sé með öllu
óforsvaranlegt að slíkri starfsemi sé
stungið niður í fjölförnum þjónustu-
kjarna fyrir fjölskyldur eins og raun
ber vitni.
Ég hef nú þegar óskað eftir fundi,
strax eftir áramót, með eigendum
Háspennu, stjórnar Happdrættis
Háskóla Íslands og rektor Háskóla
Íslands til að ræða fyrirkomulag
þessa reksturs.
Borgaryfirvöld hafa það í hendi
sér að skipuleggja hvar starfsemi af
þessu tagi fer fram með heildar
hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi.
Ég sem borgarstjóri mun beita
mér fyrir því.“
Yfirlýsing frá borgarstjóranum í Reykjavík
Feluleikur Háskóla Íslands