Morgunblaðið - 13.01.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 13.01.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Yf i r l i t                                 ! " # $ %         &         '() * +,,,                     Í dag Sigmund 8 Umræðan 328/29 Staksteinar 8 Bréf 29 Veður 8 Kirkjustarf 37 Viðskipti 16 Minningar 30/36 Erlent 18 Myndasögur 44 Árborg 20 Dagbók 44/45 Akureyri 20 Víkverji 48 Suðurnes 21 Staðurstund 46/49 Daglegt líf 22/25 Velvakandi 48/49 Menning 19,41/44 Bíó 46/49 Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Flensan er komin til landsins. Engin ástæða er til að ætla að hún verði sérlega slæm í ár, enda hafa ekki borist neinar viðvaranir frá ná- grannalöndum okkar. » Forsíða  Landlæknir hefur skrifað LSH bréf þar sem óskað er eftir upplýs- ingum um mál Sigurlínar Margrétar Sigurðardóttur, varaþingmanns Frjálslynda flokksins. » Baksíða Erlent  Danska verslanakeðjan Irma, sem rekur 73 verslanir, hefur fjar- lægt úr hillum sínum hakk með meira en 12% fitu og vill banna eða skattleggja fitandi mat. Fulltrúar sumra stjórnmálaflokka taka vel í hugmyndina og einnig næring- arfræðingurinn Arne Astrup. En ráðherra neytendamála, Carina Christensen, segist ekki vilja ákveða hvað Danir setji í innkaupakörfuna. » Forsíða  Margir bandarískir þingmenn gagnrýna hart þá stefnu George W. Bush forseta að ætla að fjölga um lið- lega 20.000 manns í bandaríska her- liðinu í Írak. Kom þetta einkum fram þegar Condoleezza Rice utanrík- isráðherra kom fyrir hermálanefnd öldungadeildarinnar. Demókratinn Joe Biden sagði áætlun forsetans vera „hörmuleg mistök“ og repúblik- aninn Chuck Hagel sagði áætlunina vera „mesta utanríkismálaklúður“ frá dögum Víetnamstríðsins. » 18 Viðskipti  Verðbólgan á síðasta ári mældist 6,9% samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs í janúar hækkaði um 0,26% frá fyrra mánuði, sem er nokkuð yfir spám greining- ardeilda bankanna. Þær höfðu gert ráð fyrir 0,0–0,2% hækkun vísitöl- unnar. Þá spá þær því að tólf mánaða verðbólgan verði komin niður í um 4% í mars. » 16  Íslenskt atvinnulíf bíður eftir því að heyra hvort halda eigi áfram eða aftur á bak í skattamálum, að sögn Vilhjálms Egilssonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífs- ins. Hann sagði á skattadegi Deloitte í gær að atvinnulífið þyrfti að fá skýr skilaboð frá öllum stjórnmálaflokk- um um það hvert þeir ætluðu að stefna í skattamálum. » 16 GUÐNI Ágústs- son landbúnaðar- ráðherra segist sannfærður um að á næstu dög- um náist sam- komulag um sauðfjársamning sem verði góður samningur fyrir sauðfjárbændur og neytendur. „Ég vil ekki ræða einstök atriði sem eðlilega eru á trúnaðarstigi bænda og ríkisvalds. Ég get hins vegar vegna umfjöllunar Morgun- blaðsins í [gær] staðfest að útflutn- ingsskylda í höndum landbúnaðar er til umræðu í þessu samningaferli ásamt fleiri atriðum sem orka tví- mælis. Ég er sannfærður um að næstu daga næst samstaða um mjög góðan samning fyrir sauðfjárbænd- ur og neytendur í leiðinni,“ sagði Guðni. Útflutn- ingsskylda til umræðu Guðni Ágústsson Samningur í höfn á næstu dögum HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hefur dæmt rétt rúmlega tvítuga konu til níu mánaða fangelsisvistar, en þar af eru sjö mánuðir skilorðs- bundnir, fyrir rangar sakargiftir með því að hafa með rangri tilkynn- ingu og framburði fyrir lögreglu leitast við að karlmaður yrði sak- aður um kynferðisbrot. Henni er að auki gert að greiða 264 þúsund krónur til skipaðs verjanda síns. Konan tilkynnti lögreglu á Vopnafirði að sér hefði verið nauðg- að um borð í skipi sem lá við höfn í nóvember 2005. Við tilkynninguna hélt lögregla af stað frá Egilsstöð- um auk þess sem stúlkan var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem teymi var til staðar til að taka við henni og annast réttar- læknisfræðilega skoðun. Skipverj- inn var handtekinn og færður í fangaklefa á Egilsstöðum en hann neitaði ávallt staðfastlega. Bar þeim hins vegar saman um hvað gerst hefði um kvöldið, þ.e. að þau hefðu hist á krá á Vopnafirði og farið sam- an í káetu mannsins síðar um kvöld- ið. Þau höfðu engin samskipti haft fyrir umrætt kvöld. Á við geðræn vandamál að stríða Í desember sama ár gaf stúlkan skýrslu hjá lögreglu og sagðist þá hafa tilkynnt ranglega um nauðg- unina. Sagðist hún hafa átt erfitt uppdráttar og átt við andlega erf- iðleika að stríða um langa hríð. Fyr- ir dómi var lagt fram vottorð frá lækni sem staðfesti að stúlkan ætti við geðræn vandamál að stríða og væri á biðlista vegna vistar á áfangaheimili. Ragnheiður Bragadóttir dóm- stjóri kvað upp dóminn. Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari sótti málið af hálfu ákæruvaldsins en Eva Dís Pálmadóttir hdl. varði konuna. Ranglega sakað- ur um nauðgun Kona dæmd til níu mánaða fangels- isvistar fyrir rangar sakargiftir Ljósmynd/Ellert Grétarsson Eftir Andra Karl andri@mbl.is UM ÁTTATÍU manns sóttu opinn kynningarfund um fyrirhugað álver í Helguvík sem samtökin Sól á Suð- urnesjum héldu í Svarta pakkhúsinu í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Að sögn forsvarsmanna samtakanna var mik- ill einhugur í mönnum og andstaða við álverið greinileg. „Þetta er í raun byrjunin því það hefur engin umræða verið í sam- félaginu um fyrirhugað álver í Helguvík og við vitum ekki hvernig staðan er eða hvort íbúar á Suður- nesjum séu almennt fylgjandi eða andvígir stóriðjuáformum,“ segir Elvar Sævarsson, einn forsvars- manna Sólar á Suðurnesjum. „Þetta hefur allt farið fram fyrir luktum dyrum og umræðan er ekki sýnileg. Það sem við viljum gera er að koma af stað umræðu.“ Eftir að fundi lauk var samþykkt yfirlýsing þar sem þess er krafist að fallið verði frá áformum um álver í Helguvík og virkjanir á Reykjanes- skaga þar til vilji íbúa hefur verið kannaður með kosningu. „Hafnfirð- ingar einir fá að kjósa um hugsan- lega stækkun álvers í Straumsvík jafnvel þótt virkjanir vegna stækk- unarinnar verði í öðrum landshluta. Öll mannvirki vegna stóriðjuáforma í Helguvík verða hins vegar á Reykja- nesskaganum og því er réttur Suð- urnesjamanna augljós,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. Samræmist ekki ferðaþjónustu Elvar segir að virkjanir, með til- heyrandi umhverfisraski, muni rísa í landi Grindavíkur, Voga og Hafnar- fjarðar og háspennulínur fara um þessi sömu sveitarfélög og þar að auki um Stafnes og Ósabotna í landi Sandgerðis. Slíkar framkvæmdir samræmist ekki langtímaáformum ferðaþjónustunnar þar sem fjöl- margar fornar þjóðleiðir liggi um skagann og þar eru gríðarleg tæki- færi til útivistar. „Áform um álver snerta íbúa allra sveitarfélaga á Suðurnesjum og ótækt væri af stjórnvöldum að fallast á framkvæmdir nema að undan- gengnum kosningum,“ segir Elvar og bætir við að sér hafi komið veru- lega á óvart að sveitarfélögin Reykjanesbær og Garður skuli hafa samþykkt samkomulag um legu lóð- ar álvers í Helguvík. Elvar tekur einnig fram að atvinnuástand á Suð- urnesjum sé gott og ekki nauðsyn að fá þangað um þúsund ný störf. Vilja að íbúar á Suður- nesjum fái að kjósa Opinn fundur var haldinn í Svarta pakkhúsinu í gærkvöldi þar sem rætt var um fyrirhugað álver sem rísa á í Helguvík laugardagur 13. 1. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Fimmtán badmintonlandslið á leiðinni til Íslands >> 4 LOKAPRÓF GEGN TÉKKUM ALFREÐ GÍSLASON SEGIR AÐ STÖÐUGLEIKA VANTI Í ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Í HANDKNATTLEIK >> 2–3 ftir Sigmund Ó. Steinarsson os@mbl.is latini, 51 árs, fyrrverandi leikmað- r St Etienne og Juventus – og fyr- rliði og þjálfari franska landsliðsins, efur fyrir löngu tilkynnt að hann ætlaði sér í framboð eftir að Joh- nsson ákvað að hætta og reiknaði ann með að kosið yrði á milli hans g Þjóðverjans Franz Beckenbauer, em Johansson sagðist ætla að tyðja. Þegar Beckenbauer, sem margir egja að ætli sér forsetastarfið hjá lþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, í framtíðinni, ákvað að gefa kki kost á sér sem formaður UEFA, tilkynnti Johansson, 77 ára, llum á óvart, að hann ætlaði að gefa ost á sér á ný sem formaður. Platini sagði að ákvörðun Johans- son hefði komið flatt upp á hann. „Ég hreinlega átta mig ekki á því hvers vegna hann tók þessa ákvörð- un – að fara í kosningu gegn mér. Hann var búinn að segja öllum að hann myndi hætta. Johansson fór að leita að eftirmanni sínum og þegar hann fann engan til að fara gegn mér, ákvað hann að gera það sjálfur. Það var ljóst að hann ætlaði sér að Franz Beckenbauer tæki við starfi hans og þess vegna var ákveðið að halda ársþingið í Düsseldorf í Þýskalandi, þar sem átti að krýna keisarann. Ég skil ekki í vinnubrögðum Jo- hannsson. Ég er ákveðinn í að láta hann ekki slá mig út af laginu – fer óhræddur í kosningu gegn honum,“ sagði Platini, sem var kjörinn knatt- spyrnumaður Evrópu þrjú ár í röð á sínum tíma. Hann er vanur harðri baráttu og hefur verið sigursæll. Fulltrúar frá 52 þjóðum senda menn til leiks í Düsseldorf og er beð- ið með mikilli spennu eftir kosning- um sem verða tvísýnar. Það verða 52 atkvæði í sjóðandi pottinum. Johansson hefur verið forseti UEFA í sautján ár og telja margir sparkfræðingar að það sé kominn tími til að yngri maður taki við skút- unni. Alþjóðleg samtök atvinnuknatt- spyrnumanna, FIFPro, hafa sent út stuðningsyfirlýsingu við Platini, þar sem sagt er að UEFA þurfi á kraft- miklum formanni að halda, en ekki manni úr fortíðinni. Sepp Blatter, forseti alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sagði í gær að framkoma Johansson væri einkennileg. „Hann var búinn að segja að það væri kominn tími á að nýr maður með nýjar hugmyndir tæki við af honum. Hann var búinn að leggja spilin á borðið. Þess vegna er ákvörðun hans vægast sagt furðu- leg,“ sagði Blatter. Reuters Félagar Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Frakkinn Michel Platini íbyggnir á svip á sundi hjá UEFA. Platini ekki sáttur við Johansson RANSKI knattspyrnukappinn yrrverandi, Michel Platini, sem íður sig fram sem forseta Knatt- pyrnusambands Evrópu, UEFA, á rsþingi sambandsins í Düsseldorf 6. janúar, hefur deilt harðlega á orseta UEFA, Lennart Johansson fyrir að hafa ákveðið að gefa kost sér á ný til endurkjörs, eftir að ann hafi tilkynnt að hann ætlaði kki að gefa kost á sér aftur. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA MEIÐSLI Guðjóns Vals Sig- urðssonar, landsliðsmanns í handknattleik og íþrótta- manns ársins 2006, reyndust minniháttar. Hann fór í óm- skoðun í gær eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu lands- liðsins á miðvikudaginn. Þar kom ekkert alvarlegt í ljós. Guðjón Valur æfði með landsliðinu í gærkvöldi og Guðjón Valur í góðu lagi Í GÆR voru stofnuð samtök stuðningsmanna hand- boltalandsliðsins en heimsmeistaramótið í handbolta hefst í Þýskalandi 19. janúar. Í heiðursstjórn stuðnings- samtakanna Í blíðu og stríðu er m.a. Geir H. Haarde forsætisráðherra og var hann viðstaddur formlega stofnun samtakanna í Laugardalshöll í gær ásamt ís- lenska landsliðinu. Skráningum í samtökin er safnað á vef þeirra, www.ibliduogstridu.is, og með skráningu er viðkom- andi að skuldbinda sig til að styðja landslið Íslands í handbolta, í blíðu og stríðu – ekki bara þegar vel geng- Á þriðja þús- und skráningar laugardagur 13. 1. 2007 börn STAFIR Í RUGLI Í VERÐLAUNALEIK VIKUNNAR KOMA SNIÐUGIR KRAKKAR REGLU Á ÓPRÚTTNA STAFI >> 2 „Reykingar drepa.“ Kannski vill hann bara deyja. » 3  Hvað er það sem flýgur í skamma stund og er þá lítið og rautt? Um leið og það fellur er það dautt.  Hann verður gráðugri eftir því sem hann fær meira. Þegar hann hefur hám- að allt í sig deyr hann. Hver er hann?  Hvað er hægt að sjá greinilega í myrkri?  Hvað heyrir allt en segir ekkert?  Þú ert skipstjóri á sjóræningjaskipi. Þar er einn gargandi páfagaukur, 15 dimm- raddaðir hásetar, einn einfættur stýri- maður og tveir skíthræddir laumufar- þegar. Hvað er skipstjórinn gamall?  Ég lagði út net en fékk ekki einn einasta fisk í það. Samt var ég mjög ánægð með árangurinn. Hver er ég?  Tveir feður og tveir synir fóru út að veiða. Þeir skutu hver sinn fugl, samt komu þeir bara með þrjá fugla heim. Hvernig getur staðið á þessu?  Hvaða höfuð hafa hvorki munn, eyru, augu eða nef? Hvað er líkt með Englendingum og bý- flugum? Hvaða ungi er fjaðralaus? Hvaða viska er best? Glúrnar gátur Nú boðar Barnablaðið til samkeppni um: besta ljóðið Þema er kærleikur, vinátta eða fjölskylda. Allir krakkar eru hvattir til þátttöku. Sestu nú nið- ur, semdu eða dragðu út skúffuna sem geymir ljóðin þín og sendu í keppnina. Í verðlaun eru veglegar bókagjafir. Þú hefur tvær vikur til að senda afrakst- urinn en síðasti skiladagur er 27. janúar. Mundu að merkja vel það sem þú sendir. born@mbl.is eða Samkeppni – Barnablaðið Morgunblaðið Hád i ó 2 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hvers vegna er sjórinn saltur? Ríkt hugarflug Arndís Lóa Magnúsdóttir hefur þrisvar unnið til verðlauna í sögukeppni Barnablaðsins. Hún er mjög frjó og hef- ur gaman af að skapa sérstaka hugarheima. Hún segir að fatl- aðir séu oft misskildir. Ókunnir komi stundum fram við hana eins og hún sé andlega fötluð en hún býr við líkamlega fötlun. Samkeppni lesbók Laugardagur 13. 1. 200 81. ár TÍMAMÓTASÝNINGAR LR FJÓRAR SKYNDIMYNDIR ÚR SÖGU LEIKFÉLAGS REYKJAVÍKUR Í TILEFNI AF 110 ÁRA AFMÆLI FÉLAGSINS Í VIKUNNI » 4-5 ámur og Skrámur í sjöunda himni ein skemmtilegasta íslenska platan » 13 Frelsun litarins Margir afbragðsmálarar eru nú á sýningu Listasafns Íslands, meðal annarra Henri Mat- isse og þetta verk hans, Portrett af Bevilacqua (1905, olía á striga, ©Erfingjar Matisse). » 8-9 efnislausar typpasýningar, hvort sem mur piss úr typpinu eða ekki, hafa nefni- a ekkert með list að gera,“ segir Trausti afsson leiklistarfræðingur í grein í Lesbók ag þar sem hann svarar skrifum Magnúsar rs Þorbergssonar í Lesbók fyrir skömmu íslenska leiklist og leiklistargagnrýni. efni skrifa Magnúsar Þórs var meðal ann- þvaglátsgjörningur nemenda við leiklist- deild Listaháskóla Íslands síðastliðið haust Trausti telur að sá atburður hefði betur ið í þagnargildi. „Vonandi hefur enginn beðið neinn var- egan skaða af þessum þvaglátagjörningi klistarnema, en ég dreg það í efa að nokk- hafi vaxið af honum, hvort heldur sem amaður eða manneskja,“ segir Trausti og tir við að hann leyfi sér að efast um að ta tiltæki nema í leiklist verði til þess að ka út leiklistarumræðuna á Íslandi eins og agnús Þór virðist gera sér vonir um. „Í grunninn sýnist mér nefnilega að allt m ég hef heyrt og lesið um margnefnd aglát bendi til þess að þau hafi borið að í afti ungæðislegs húmors sem fór úr bönd- um. Með öðrum orðum virðist hafa verið einhvern barnaskap að ræða. Þannig rður gjörningi leiklistarnemanna best lýst af stillingu fjallað um þetta atvik. Í hlut- rki gagnrýnanda sem slær um sig með ryrðum yrði dómurinn hins vegar að rna hafi ótrúlega hallærisleg lágkúra átt stað,“ segir Trausti sem telur hins vegar æðu til þess að efla fræðilega umfjöllun leiklist í landinu. þeirri viðleitni telur hann affarasælast að a til rótanna, að treysta þær og rækta. nn vitnar til orða Grotowskys um að við num geta fært listina inn í hátækniöldina þess að missa sjónar á grundvallargildum nnar og tilgangi með því að þekkja og rðveita rætur hennar. » 6-7 Tilefnislausar yppasýning- ar ekki list eilt um hlandgjörning og iklistina í landinu Ísland er mikilvægt sögusvið í nýrri skáldsögu bandaríska rithöf undarins Thomasar Pynchons, Against the Day. Annar hluti bók arinnar gerist að hluta til á Ísa- firði en aðallega í höfuðborginni. Ljóst er af skrifum Pynchons að hann hefur kynnt sér staðhætti v ásamt sögu landsins. Hjá Rithöf- undasambandi Íslands hafði þó ekki frést af komu hans hingað. Í grein Björns Þórs Vilhjálms- sonar bókmenntagagnrýnanda segir að Pynchon fari mikinn í um fjöllun sinni um Ísland sem hann segir hafa verið numið af vík- ingum á flótta undan norsku ofrík en sé byggt í samtímanum af þjóð sem lifi í nánu samneyti við huldu fólk. Norræn goðafræði vekur sér- stakan áhuga Pynchons, ekki síst hið sögufræga ginnungagap en þv lýsir Pynchon meðal annars sem svartholi þaðan sem ljós eigi sér engrar undankomu auðið. Annar hluti bókarinnar, af fimm, heitir „Iceland Spar“, sem er litlaus tegund af kristölluðu kalsíti sem landið er ríkt af og er eftirsótt í sögunni. » 2 og 11 Pynchon um Ísland Against the Day Pynchon fer mik inn í umfjöllun sinni um Ísland. Ég var að ræða um hugarástand sem aðmínu mati er andbókmenntalegt,“ segirEinar Már Guðmundsson rithöfundur í sbók í dag en hann svarar skrifum Ástráðs steinssonar prófessors í seinasta blaði. Upphaf skrifa þeirra er viðtal við Einar Má í éttablaðinu fyrir jól þar sem hann hélt því m að Ástráður hefði gert atlögu að sér sem höfundi og hann sé annar tveggja andlegra verið fram í umræddu viðtali. „Þess í stað reynir hann að sálgreina mig, mótlætisþörf mína,“ en þar beiti Ástráður „vasabókarsálfræði af ódýr- ari gerðinni“. Einar Már segist ekki kvarta yfir viðtökum við verkum sínum í viðtalinu, enda væri það út í hött. Hann sé að ræða andbókmenntalegt hug- arástand, „til dæmis að það sé röksemd gegn sögu hvar hún gerist og ef því er að skipta um dóm í Morgunblaðinu um nýjustu skáldsögu sína Bítlaávarpið sem hafi orðið „uppspretta allsherjar fagnaðarláta“ á vef bókaforlagsins Bjarts, síðum Fréttablaðsins og DV. „Þarna er það sem menn kalla tossabandalagið að verki o þegar ég tala um Ástráð og Helgu sem andlega arkitekta „þeirrar múgsefjunar sem stundum er kallað tossabandalagið“ á ég nákvæmlega vi þetta hliðstæðuna á milli síðdegisblaðamental Andbókmenntalegt hugarástand laugardagur 13. 1. 2007 íþróttir mbl.is                         ! "#$%"$$& ALLT Á FULLU LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 12.45 Watford-Liverpool 15.00 Man Utd-Aston Villa 15.00 Chelsea-Wigan S2 15.00 West Ham-Fulham S3 15.00 Bolton-Man City S4 15.00 Charlton-Middlesbrough S5 17.15 Blackburn-Arsenal 19.30 Torino-Inter Milan Í BEINNI Á SKJÁSPORTI UM HELGINA enski boltinn korar Heiðar Helguson fyrir stjórnarmenn KSÍ? >> 2 RONALDO SÁ BESTI PAUL SCHOLES SEGIR AÐ RONALDO SÉ BESTI KNATTSPYRNUMAÐUR HEIMS UM ÞESSAR MUNDIR >> 2 Í fyrradag sakaði Mourinho forráða- menn Chelsea um að styðja ekki við bakið á sér með því að láta fé af hendi rakna til leikmannakaupa nú í janúar. „Ég hef sett saman lista með nöfnum leikmanna sem ég vil fá í þessum mánuði. Því miður kemur enginn þeirra til okkar núna. Það er ekki ákvörðun mín heldur stjórnenda fé- lagsins að þannig sé í pottinn búið,“ sagði Mourinho og greinilegt virðist að heldur er farið að kólna á milli hans og Abramovich sem hingað til hefur ekki verið spar á peninga til leikmannakaupa. Þykir þetta renna frekari stoðum undir þær kenningar að starfsdögum Portúgalans á Stam- ford Bridge fari fækkandi hver sem uppskeran verður í lok keppnistíma- bilsins. Leitar að húsnæði í Mílanó Cesar Peixoto, sem lék undir stjórn Mourinho hjá Porto en leikur nú með Espanyol, segir í viðtali við fjölmiðla í Barcelona í gær að Mour- inho sé að leita að húsnæði í Mílanó en Mourinho hefur sterklega verið orðaður við Inter Mílanó og eins Real Madríd Spáni. Enskir fjölmiðlar, sem eyddu miklu plássi í umfjöllun um Chelsea og Mourinho í gær, segja að Portú- galinn sé afar ósáttur við hversu miklu Frank Arnesen er farinn að ráða, en Arnesen, sem er titlaður yf- irmaður knattspyrnumála hjá félag- inu, gekk manna lengst fram í að selja William Gallas til Arsenal í septem- ber sem féll Mourinho afar illa í geð. Þrátt fyrir að Mourinho láti oft vaða á súðum í viðtölum við breska fjölmiðla vill hann opinberlega ekkert gefa út á hvort dagar hans hjá Chelsea séu brátt taldir. „Staða mín hjá félaginu skiptir ekki meginmáli um þessar mundir. Það sem öllu máli skiptir er hvernig Chelsea vegnar á knattspyrnuvellinum á næstu vikum og mánuðum,“ sagði Joes Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea. Eru dagar Jose Mourinho á Stam- ford Bridge taldir? Er ósáttur við að fá ekki peninga til leikmannakaupa Reuters áttur Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, þungur á brún. FORRÁÐAMENN Chelsea neita að tjá sig um ummæli sem höfð eru eftir knattspyrnustjóranum Jose Mour- inho í bresku blöðunum í gær. Í þeim er greint frá því að Mourinho hafi tjáð nánum vini sínum að hann ætli að hætta hjá Chelsea eftir tímabilið. Fjölmiðlar greindu frá því á dög- unum að ósætti væri á milli Mour- inho og eigandans Romans Abramo- vich og einnig framkvæmdastjórans Peters Kenyon og gerðu fjölmiðlar því skóna að Portúgalinn myndi yf- irgefa Englandsmeistarana í sumar og Hollendingurinn Guus Hiddink landsliðsþjálfari Rússa tæki við starfi hans. Gegn álveri Um áttatíu manns mættu á kynningarfund Sólar á Suðurnesjum og sáu m.a. Ómar Ragnarsson sýna myndskeið þar sem sjá má spjöll sem orðið hafa á náttúrunni vegna jarðhitarannsókna á Trölladyngjusvæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.