Morgunblaðið - 13.01.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 13.01.2007, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MIKIL eftirvænting ríkti meðal viðstaddra þeg- ar fyrstu steypunni var rennt í mót í grunni Tón- listar- og ráðstefnuhússins við Austurhöfn í Reykjavík við hátíðlega athöfn í gær að við- stöddu fjölmenni. Þeir Björgólfur Guðmundsson, stjórn- arformaður Eignarhaldsfélagsins Portus hf., og Stefán Þórarinsson, formaður verkefnastjórnar, stýrðu steypunni í grunn að lyftustokki neðst í byggingunni. Þeim til aðstoðar voru Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík, Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, auk aðalverktaka hússins, ÍAV. Framkvæmdir við húsið hafa til þessa gengið mjög vel. Morgunblaðið/Golli Byrjað að steypa grunn Tónlistarhússins NOKKUR dæmi eru um að bíleig- endur sem glatað hafa bíllyklum sínum, en verið með dælulykil frá Atlantsolíu á lyklakippu sinni, hafi endurheimt lyklana eftir að finnendur hafi komið þeim til lög- reglu eða til Atlantsolíu. Þetta segir Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu. Hann nefnir dæmi um konu sem var í skartgripaverslun í Smáralind í ösinni fyrir jólin og varð fyrir því að bíllyklar hennar lentu í poka annars viðskiptavinar. Sá fann lyklana þeg- ar hann tók upp úr pokanum heima- við, sá að þar var dælulykill frá Atl- antsolíu og hafði samband við fyrirtækið. Atlantsolía gat fundið út úr því hver átti lyklana og varð eig- andinn afar sæll með að fá þá aftur í hendur. Hann bætir því við að það geti oft kostað fólk stórfé að end- urnýja bíl- og húslykla og því sé fólk ánægt með að endurheimta lyklana. Hugi segir að inni í dælulyklinum sé örgjörvi og inn á hann „er búið að skjóta dulkóða og númeraseríu en á henni eru hvorki kennitölur né kortanúmer. Við lesum svo af dælu- lyklinum“. Þá sjáist númeraröðin og þannig sé hægt að hafa uppi á eig- anda lykilsins. Lyklar í leitirnar vegna dælulykils Hvammstangi | Magnús Stefánsson fé- lagsmálaráðherra opnaði í gær að viðstöddu fjölmenni skrifstofu fæð- ingarorlofssjóðs á Hvammstanga. Sagði hann við þetta tækifæri að hin nýlegu lög um fæðingarorlof hefðu leitt af sér miklar breytingar í launaréttindum landsmanna. Þannig væri starfsemin, sem rekin yrði á Hvammstanga, hluti af ára- langri jafnréttisbaráttu. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, lýsti mikilli ánægju með staðsetningu sjóðsins á Hvammstanga. Minnti hann á að Vinnumálastofnun væri með starf- semi á átta stöðum á landinu, starf- semin tengdist innbyrðis og ynnu menn saman á mörgum sviðum. El- ín R. Líndal, oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra, flutti árnaðar- óskir til sjóðsins og ánægju sveit- arstjórnar yfir staðarvalinu. Sagði hún ákvörðun ráðherra djarfa en rökrétta í þeirri stefnu sjórnvalda að stuðla að fjölgun í opinberum störfum á landsbyggðinni. Karl Steinar Guðnason, forstjóri TR, sagði fæðingarorlofssjóð hafa sannað sig. Sjálfur hefði hann á sín- um tíma tekið þátt í því að leita eft- ir rétti launafólks til að taka sér einnar viku leyfi tengt barnsfæð- ingu. Leo Örn Þorleifsson, forstöðu- maður fæðingarorlofssjóðs, kvaðst fullur bjartsýni og eftirvæntingar um framtíð sjóðsins. Sagði hann að- stöðuna, starfsfólkið og viðmót fólks vera samkvæmt björtustu vonum. Hann þakkaði öllum sem áttu þátt í ákvörðun um staðsetn- ingu og framkvæmd við uppsetn- ingu aðstöðunnar. Mikilli ánægju lýst með staðsetninguna Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Opnun Fæðingarorlofssjóðs Leo Örn Þorleifsson, Magnús Stefánsson og Gissur Pétursson við opnun Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga í gær. Fæðingarorlofssjóð- ur á Hvammstanga SJÚKRABÍLAR SHS voru kallaðir út nærri 23 þúsund sinnum á síðasta ári, samkvæmt ársyfirliti SHS. Er þetta það mesta frá árinu 2000, eða frá því að slökkviliðin á höfuðborg- arsvæðinu voru sameinuð. Oft fara fleiri en einn bíll í hvert útkall og má áætla að sjúkrabílar séu kallaðir út í sjúkraflutninga um 53 sinnum á sól- arhring allan ársins hring. Er þetta heldur meira en árið 2005 þegar heildarfjöldi útkalla var 21.477. Annasömustu mánuðirnir á ný- liðnu ári, eins og svo oft áður, voru janúar og desember. Ástæðu þess má að einhverju leyti rekja til þess að margir sjúklingar fá að dvelja heima yfir jól og áramót hjá ætt- ingjum og vinum. Eins og áður eru útköll sjúkrabíla einkum vegna sjúkdóma og slysa af öllu tagi, s.s. í umferðinni, heima- húsum og á opinberum stöðum. Um er að ræða bæði neyðarflutninga og flutninga t.d. milli sjúkrastofnana á höfuðborgarsvæðinu, þegar sjúk- lingar eru að fara í skoðanir eða rannsóknir sem og flutninga út á land til og frá sjúkrastofnunum. Eldsútköll árið 2006 voru 1.440 talsins og hafa ekki verið fleiri frá sameiningu slökkviliðanna. Flest út- köllin voru í maí, eða 185, sem má að nokkru leyti skýra með miklum sinueldum á þeim tíma. Í marsmán- uði var talsvert um sinuelda á Kjal- arnesi, í Elliðaárdal, Grafarvogi, Kópavogi, Hafnarfirði og víðar. Þá má nefna hina gífurlegu sinuelda á Mýrum sem SHS aðstoðaði við að slökkva. Urðu eldsútköll 145 talsins í þessum eina mánuði hjá SHS. Útköll SHS aldrei fleiri en á árinu 2006 Annir Útköll vegna elda á höfuðborgarsvæðinu voru 1.440 á árinu 2006. GREINARGERÐ Ríkisendurskoð- unar um fjármál Byrgisins ses. verð- ur afhent viðkomandi stjórnvöldum næstkomandi mánudag, 15. janúar, að því er fram kemur í frétt frá Rík- isendurskoðun. Greinargerðin verð- ur send fjölmiðlum síðar þann sama dag. Byrgis- skýrsla á mánudag ♦♦♦ OLÍUFÉLAGIÐ ESSO lækkaði bensínverð í gærmorgun um 1,20 krónur hvern lítra. Eftir lækkunina var algengasta verð á 95 oktana bensíni hjá Olíufélaginu 111,50 krón- ur á lítra í sjálfsafgreiðslu. Skýring lækkunarinnar var sögð lækkandi heimsmarkaðsverð í tilkynningu frá Olíufélaginu. Skeljungur og Olís fylgdu í kjölfarið með verðlækkun á bílaeldsneyti. Algengt verð á bens- ínlítra í sjálfsafgreiðslu var 111,50 krónur hver lítri. Sjálfsafgreiðslustöðvarnar lækk- uðu einnig eldsneytisverðið. Á EGO- stöðvum kostaði bensínlítrinn 110 krónur, hjá Atlantsolíu 109,9 kr. og algengasta verð hjá ÓB var 109,90 og hjá Orkunni 109,80 kr. lítrinn. Ódýrast á Akranesi Þess má geta að dyggum við- skiptavinum býðst gjarnan aukaaf- sláttur með notkun tryggðarkorta og dælulykla. Þá eru ýmis sértilboð í gangi á einstökum sölustöðum. Á heimasíðu Félags íslenskra bifreiða- eigenda kom t.d. fram í gær að ódýr- asta bensínið fengist hjá ÓB á Akra- nesi þar sem bensínlítrinn kostaði 104,40 kr. og dísilolíulítrinn kr. 106,40. Bensínverð lækkaði RHnet, Rannsókna- og háskólanet Íslands, hefur samið við Símann um 100 mb/s samband um Farice. RHnetið mun þannig tryggja há- skólum, rannsóknastofnunum og Landspítalanum fjarskiptasamband við útlönd á meðan viðgerð stendur yfir á Cantat-3-sæstrengnum. Á miðnætti í nótt átti að stöðva alla umferð um sæstrenginn vegna viðgerðar en áætlað er að hún taki allt að tíu daga. RHnetið var ein- göngu tengt í gegnum Cantat-3. Samningurinn við Símann tryggir RHneti samband um Farice og getur starfsemin því haldið áfram án veru- legra truflana, segir í tilkynningu. RHnet semur við Símann ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.