Morgunblaðið - 13.01.2007, Page 20

Morgunblaðið - 13.01.2007, Page 20
20 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Ég hef alltaf haft áhuga á leiklist og þetta er dásamlegt áhugamál. Hér er hópur af fólki sem er með sama brennandi áhuga- málið og samkenndin sem myndast og gleðin sem fylgir því að skapa gefur manni mikið. Það fylgir þessu starfi líka mikil gleði og fólk kemur aftur og aftur inn í starfið með hléum á milli,“ sagði Guðfinna Gunnarsdóttir, formaður Leikfélags Selfoss. Félagið frumsýnir næst- komandi föstudag, 19. janúar, leik- ritið Hnerrann eftir Anton Tsjekov í leikgerð Michaels Frayn undir leikstjórn Harðar Sigurðarsonar sem þýddi verkið. Um frumflutning verksins í þessari leikgerð verður að ræða. „Það eru sjö þættir eða sögur sem mynda sýninguna og verkið er með gamansömum tón og sýnir óvenjulegar aðstæður sem koma upp hjá fólki,“ sagði Guðfinna. Stórafmæli framundan Níu leikarar koma fram í verkinu en alls koma um tuttugu manns að uppsetningunni. Guðfinna segir að það sé sama sagan nú og alltaf áð- ur að fólk sé tilbúið að leggja starf- inu lið og slíkt sé ómetanlegt. Það sé eins og einhver baktería fari af stað í bænum þegar kemur fram á vetur og æfingatími fer í hönd hjá félaginu. Það þurfi ekki annað en veifa litlafingri þá sé kominn hópur með uppbrettar ermar. Leikfélag Selfoss er á sínu 49. leikári og er formaðurinn og stjórn- in þegar farin að huga að 50. af- mælisárinu. „Í janúar 2008 verður stórafmæli hjá okkur og við ætlum að gera marga skemmtilega hluti,“ segir Guðfinna en fyrir liggur áætl- un um næstu uppfærslu félagsins sem verður framhald af verkinu „Með vífið í lúkunum“ eftir Ray Cooney. „Svo er auðvitað hin lands- fræga árshátíð okkar, en allir eru farnir að hlakka til hennar,“ segir Guðfinna og ennfremur að félagið vilji helst setja upp tvö verk á af- mælisárinu. „Við ætlum að vera vel áberandi á komandi afmælisári.“ Starfsvettvangur félagsins er í Litla leikhúsinu við Sigtún sem iðar af lífi hvert kvöld þegar félagarnir koma saman til æfinga og und- irbúnings. „Við vonum auðvitað að fólk komi á sýningarnar hjá okkur því án þess erum við ekkert, en við eigum mjög dygga áhorfendur á Selfossi og víðar,“ sagði Guðfinna Gunnarsdóttir leikfélagsformaður. „Það hefur alltaf verið mikil seigla í félaginu og drift. Núna er stigvaxandi kraftur í því og margir nýir sem hafa komið inn í starfið. Kambsránið er dæmi um þetta og sýnir hvað það er mikið afl í sam- félaginu hérna en við mætum mikl- um skilningi í þessu starfi hjá sveitarfélaginu Árborg. Það er nefnilega þannig að menningin, hún snýst alltaf um fólk og það sem það gerir,“ segir Guðfinna og þegar hún er spurð um það hvort að- staðan sé góð þá dásamar hún Gamla Iðnskólann við Sigtún þar sem leikhús félagsins og fé- lagsaðstaða er núna en segist eiga sér sinn draum. Fjölnota menningarhús „Hér þyrfti að vera til fjölnota menningarsalur, það er draumurinn að þannig salur verði til hérna þar sem hægt er að gera allt varðandi leiklist, tónlist, samkomur og fundi. Þetta þarf að vera salur sem er vel búinn tækjum og búnaði. Það er ekkert ómögulegt í þessum efnum og þetta þarf ekki að kosta svo mikið. Ég vil tala um fjölnota menningarsal alveg eins og það er talað um fjölnota íþróttahús. Kostn- aðurinn felst í tækjunum og tækni- búnaðinum sem þarf að vera til staðar svo hægt sé að breyta saln- um, færa til svið og áhorfendapalla eftir aðstæðum og því sem verið er að gera. Þetta er draumurinn. Svartur kassi er allt sem þarf. Við þurfum að fá svona fjölnota menn- ingarsal hér á Selfossi og þetta er raunhæfur kostur að skoða og ég skora á fólk að hugsa um þetta með mér,“ sagði Guðfinna Gunn- arsdóttir. Menningin snýst alltaf um fólk Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Skapandi Guðfinna Gunnarsdóttir, formaður Leikfélags Selfoss, hefur ánægju af skapandi störfum í leikhúsinu. Leikfélag Selfoss frumsýnir nýja leik- gerð af Hnerranum Í HNOTSKURN»Fólk er viljugt að starfafyrir leikfélagið. Um tutt- ugu manns koma að uppsetn- ingu Hnerrans. »Leikfélag Selfoss verðurfimmtugt í byrjun næsta árs og verður tímamótanna minnst með sýningum. ÁRBORGARSVÆÐIÐ ÁFRAM er unnið við niðurrif gömlu Sambandsverksmiðjanna á Gler- áreyrum vegna stækkunar versl- unarmiðstöðvarinnar Glerártorgs. Breytingin er mikil frá því sem var en uppbyggingin hefst væntanlega á nýjan leik í mars. Hvert húsið af öðru hefur horfið að undanförnu og í gær var verið að rífa niður ljós- brúna húsið fyrir miðri mynd, þar sem verkstæði byggingarfyrirtæk- isins Hyrnu var síðast til húsa. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Enn breytist ásýnd svæðisins á Gleráreyrum SIGURÐUR Gestsson stefnir að því að heilsu- ræktarmiðstöðin, sem hann hefur fengið leyfi til þess að byggja á lóð Sundlaugar Akureyrar, verði tekin í notkun fyrir lok þessa árs. Breyting á deiliskipulagi var samþykkt í bæj- arstjórn á þriðjudaginn og bæjarráð staðfesti á fimmtudaginn rammasamning, sem bæjarstjóri og Sigurður gerðu síðastliðið vor. Meðal skilmála í samningnum sem Sigurður gerði við bæinn á sínum tíma var að framkvæmdir stæðu ekki yfir á lóðinni yfir sumartímann, til þess að raska ekki starfsemi fjölskyldugarðsins sem þar er starfræktur. Sigurður sagði við Morgunblaðið í gær að vegna þess hve afgreiðsla málsins hefði taf- ist gríðarlega myndi hann fara fram á að breytingu hvað þetta varðar. Nú er unnið að endanlegri hönnun hússins og því hvaða starfsemi verður þar önnur, en stefnt er að því að þar verði hágreiðslu-, snyrti- og ljósastofa auk veitingasölu. Sigurður kveðst ósáttur við gagnrýni sem fram hefur komið, m.a. í bæjarstjórn, að einkaaðila sé færð svo dýrmæt lóð. „Ég er ekki hver sem er í bænum; mér finnst ég hafa unnið mér rétt umfram aðra. Ég hef verið með íþróttafélögin í bænum meira og minna inni á gafli hjá mér í 20 ár – að mestu leyti endurgjaldslaust – og mér finnst að forráðamenn þeirra hefðu átt að styðja mig í þessu máli. Þeir hafa þagað þunnu hljóði og ég er mjög ósáttur við þá,“ sagði Sigurður í gær. „Ég get full- yrt að ef íþróttafélög hér í bænum ætla að ala upp afreksmenn þarf þessa stöð sem ég ætla að byggja vegna þess að hinar stöðvarnar hafa aldrei lagt áherslu á afreksíþróttaþjálfun. Ég verð auðvitað áfram í almennri líkamsrækt en sinni afreksþjálf- uninni áfram af miklum krafti.“ Stefnir að því að taka heilsu- ræktarhúsið í notkun fyrir árslok Sigurður Gestsson óánægður með að fá ekki stuðning íþróttafélaga bæjarins Í HNOTSKURN »Sigurður Gestsson ætlar sér að opnanýju heilsuræktarmiðstöðina á lóð Sund- laugar Akureyrar fyrir lok ársins. »Sigurður er ósáttur við að forystumenníþróttafélaga bæjarins skuli ekki hafa stutt sig í baráttunni fyrir húsinu. VALGERÐUR Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra hefur ákveðið að opna útibú frá þýðingamiðstöð ut- anríkisráðuneytisins á Akureyri. Til að byrja með er gert er ráð fyrir fjórum starfsmönnum þar, sem starfa í fjarvinnslu frá þýð- ingamiðstöðinni sem er í Reykjavík. Áætlað er að starfsemin á Akureyri geti hafist í byrjun apríl. „Álag á þýðingamiðstöðina hefur aukist mjög á síðastliðnum árum og er opnun útibúsins liður í að styrkja starfsemina svo standa megi meðal annars við skuldbindingar Íslands gagnvart EES-samningnum,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Útibú frá þýð- ingamiðstöð ÞJÓFNAÐIR á fatnaði í Brekku- skóla hafa verið kærðir til lögreglu. „Í vetur hefur borið mikið á því að föt séu tekin ófrjálsri hendi hér í skólanum. Það sem af er vetri hafa horfið sjö flíkur. Þetta eru úlpur, snjóbuxur og gallabuxur, allt af bestu gerð og verðmikið. Þessi föt eru öll í unglingastærðum. Skólinn hefur nú kært þetta til lögreglu og er hún að rannsaka málin. Fólk er hvatt til að merkja allan fatnað og brýna fyrir börnum sínum að skilja ekki eftir verðmæti í vösum,“ segir í bréfi skólastjórans til foreldra. Fötum stolið í Brekkuskóla NOKKRAR myndlistarsýningar verða opnaðar á Akureyri í dag; í Listasafninu sýning á verkum Jóns Óskars og innsetning eftir banda- ríska listamanninn Adam Bateman kl. 15; Anna-Katharina Mields og Jóna Hlíf Halldórsdóttir á Café Karólínu kl. 14; Alex Gross í Galleri BOX kl. 14 og Þorsteinn Gíslason, Steini, í DaLí gallery kl. 14. Nokkrar sýn- ingar að hefjast

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.