Morgunblaðið - 18.01.2007, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
viðskiptifimmtudagur 18. 1. 2007 viðskipti mbl.is
Rúna í Bergís á tímamótum og segist ætla að lifa, njóta og brosa » 16
SAMRUNAR ALDREI MEIRI
Á SÍÐASTA ÁRI VAR SLEGIÐ MET Í SAMRUNUM OG YFIRTÖKUM
EN SKIPTAR SKOÐANIR ERU UM FRAMHALDIÐ >> 6
Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur
telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar
en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum Kaupflings e›a á www.kaupthing.is.
*Nafnávöxtun í ISK, EUR, USD og GBP á ársgrundvelli fyrir tímabili› 30/11/06-29/12/06.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
Kynntu flér kosti peningamarka›ssjó›a Kaupflings í ISK, USD, EUR og GBP. Haf›u samband vi› rá›gjafa okkar í síma 444 7000.
P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ I R
Ávaxta›u betur
– í fleirri mynt sem flér hentar 4,0%*
ávöxtun í evrum
6,2%*
ávöxtun í dollurum
13,8%*
ávöxtun í krónum
4,6%*
ávöxtun í pundum
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
EIGENDUR Bláa Lónsins hf. und-
irbúa nú stórsókn á erlenda markaði
með sérverslanir sínar og vöru-
merki. Um miðjan næsta mánuð
verður fyrsta verslunin opnuð í Ma-
gasin du Nord í Kaup-
mannahöfn og í lok
febrúar verður önnur
opnuð í stórri verslana-
miðstöð í Stokkhólmi.
Þaðan er stefnan sett á
Noreg, með dreifingu á
vörum fyrirtækisins í
huga og í byrjun sum-
ars verður verslun opn-
uð hjá Selfridges á Ox-
ford Street í London.
Að sögn Gríms Sæ-
mundsen, forstjóra
Bláa Lónsins, hefur
þetta verkefni verið í undirbúningi í
meira en ár. Um stórt skref sé að
ræða og sérstaklega sé opnun versl-
unar hjá Selfridges spennandi verk-
efni. Fáar verslanir í heiminum selji
meira af snyrtivörum og fróðlegt
verði að sjá viðbrögðin þar. Sérstakt
dótturfyrirtæki verður stofnað um
starfsemina í Bretlandi en litið er á
Selfridges sem stökkpall inn á þann
markað. Eigendur Bláa Lónsins
ætla ekki að láta Norðurlöndin og
Bretland duga í sínum útrásará-
formum. Eru Bandaríkin lengst á
veg komin af öðrum mörkuðum sem
eru til skoðunar. Undirbúningur
vestanhafs er í fullum gangi og verð-
ur unnin samfara útrásinni á Norð-
urlöndunum og Bret-
landi. „Þessi vinna er
öll unnin í samræmi við
stefnumótun frá árinu
2005 og áætlun um al-
þjóðlegan vöxt sem við
lögðum fyrir eigendur
okkar í janúar 2006. Ef
fyrstu viðbrögðin á
markaðnum verða okk-
ur hagfelld er hægt að
halda áfram af krafti,
en til slíks vaxtar mun
þurfa mikið fjármagn,“
segir Grímur í umfjöll-
un um útrás fyrirtækisins í miðopnu
blaðsins í dag.
Bláa Lónið er að stærstum hluta í
eigu lykilstjórnenda fyrirtækisins og
Hitaveitu Suðurnesja. Starfsmenn
eru allt frá 150 til 200, mismargir eft-
ir árstíðum. Auk heilsulindar við
Svartsengi eru þrjár verslanir rekn-
ar hér á landi; í Leifsstöð, á Lauga-
vegi 15 og í Bláa Lóninu. » 8–9
Bláa Lónið í er-
lenda stórsókn
Sérverslanir opnaðar hjá Selfridges á
Oxford Street og í Magasin du Nord
Grímur Sæmundsen
HÉRAÐSDÓMSTÓLL í Amst-
erdam hefur úrskurðað að sjóð-
urinn Stichting Stork geti ekki
nýtt sér atkvæðisrétt vegna hluta-
fjáraukningar til að hindra hlut-
hafafund í að fara fram á afsögn
stjórnar Stork en fundurinn verð-
ur í dag. Marel hefur lýst áhuga á
að kaupa hluta Stork, Stork Food
Systems, og stórir hluthafar hafa
viljað selja rekstrarhluta sem ekki
snúa að kjarnastarfsemi sem er
flugiðnaður en stjórnin hefur stað-
ið gegn því.
„Þetta eru tvímælalaust jákvæð-
ar fréttir fyrir Marel. Fyrirtækið
hefur haft áhuga á að kaupa eitt
af dótturfélögum Stork og sjóð-
irnir tveir sem höfðu betur í
dómsmálinu vilja að Stork selji
þetta dótturfélag sitt. Það er því
óhætt að segja að Marel hafi færst
nær þessu markmiði sínu, þó að
enn sé vissulega óvíst hvernig
fer,“ segir Haraldur Johannessen
hjá greiningardeild Landsbankans.
Marel færist nær
Stork Food
ÚRVALSVÍSITALA aðallista
Kauphallarinnar, OMX á Íslandi,
lækkaði um 0,6% í gær og er loka-
gildi hennar 6.845 stig.
Af þeim 15 félögum sem eru í Úr-
valsvísitölunni þá varð lækkun á
gengi átta þeirra, hækkun á gengi
fjögurra en þrjú stóðu í stað. Mest
lækkun varð á bréfum Landsbank-
ans, 2,7%, og þá lækkuðu bréf 365
hf. um 2,1%. Mest hækkun varð hins
vegar á bréfum FL Group, 0,7%, og
Atlantic Petroleum, 0,5%.
Úrvalsvísitalan
lækkaði í gær
Reuters
Airbus Louis Gallois, forstjóri Airbus, var í þungum þönkum á blaða-
mannafundi í París í gær, er fjallað var um metframleiðslu síðasta árs en
þrátt fyrir það varð tap vegna tafa á afhendingu A380 ofurþotunnar. » 4
fimmtudagur 18. 1. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Capello opnar fyrir endurkomu Beckhams >> 3
TÆPT HJÁ FULHAM
BIRMINGHAM SKELLTI NEWCASTLE Á ST.JAMES PARK
Í 3. UMFERÐ ENSKU BIKARKEPPNINNAR » 2
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Setning Evrópukeppni B-þjóða í badminton var sett í Laugardalshöll í gær. Alls taka 16 þjóðir taka þátt í mótinu og er þetta stærsta alþjóðlega mótið í badminton sem haldið hefur verið
hér á landi. Íslendingar hófu mótið með glæsibrag en þeir lögðu Króata, 4:1, í 1. umferðinni en næsti leikur íslenska landsliðsins er gegn Ítalíu á morgun kl. 18:00. » 4
„Hann er spennandi leikmaður
með góða eiginleika en ég veit ekki
hvort það er mögulegt að losa
hann frá Leeds núna. Það yrði
kannski auðveldara þegar tíma-
bilinu lýkur í Englandi. Tore hefur
hrósað honum mikið,“ sagði Flo
við Drammens Tidende í gær.
Bróðir hans, hinn gamalkunni
Tore Andre Flo, leikur með Leeds
um þessar mundir.
Strömsgodset,
sem er frá
Drammen, vann
1. deildina á
sannfærandi
hátt í fyrra og er
spáð góðu gengi
í norsku úrvals-
deildinni á kom-
andi tímabili.
Gylfi sagði við
Morgunblaðið í gær að hann væri
með allt önnur markmið. „Núna
stefni ég fyrst og fremst að því að
komast í leikform eftir langvar-
andi meiðsli og reyna að komast í
lið Leeds. Umboðsmaðurinn minn
er norskur og hefur sagt mér af
áhuga norskra liða en ég hef eig-
inlega bara áhuga á að spila með
Leeds í augnablikinu og einbeiti
mér að því. Það eru alltaf ein-
hverjar svona vangaveltur í gangi.
Ég er Leeds-leikmaður og á eitt ár
eftir í viðbót af mínum samningi,
en auðvitað er alltaf gaman að vita
til þess að einhverjir fylgist með
manni,“ sagði Gylfi.
Hann er að búa sig undir leik
gegn WBA í ensku 1. deildinni um
helgina og vonast til að verða í
leikmannahópnum í fyrsta skipti í
langan tíma. „Ég er allavega loks-
ins kominn í hóp þeirra sem koma
til greina og það er fyrsta skrefið,“
sagði Gylfi Einarsson.
„Ég hef bara áhuga á Leeds“
JOSTEIN Flo, framkvæmdastjóri norska knattspyrnuliðsins Strömsgodset,
hefur mikinn áhuga á að fá Gylfa Einarsson, leikmann Leeds í Englandi, í
sínar raðir fyrir komandi tímabil. Gylfi er aftur á móti ekki sérlega spenntur
fyrir því að snúa aftur til Noregs þar sem hann lék með Lilleström í fjögur ár.
Jostein Flo hjá Strömsgodset vill fá landsliðsmanninn Gylfa Einarsson til liðs við sig
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Gylfi Einarsson
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 28/31
Staksteinar 8 Bréf 31
Veður 8 Minningar 32/38
Úr verinu 13 Menning 41/43
Erlent 14/16 Leikhús 42
Menning 16/17 Myndasögur 44
Höfuðborgin 18 Dægradvöl 45
Akureyri 18 Bíó 46/47
Austurland 19 Staður og stund 46
Landið 19 Víkverji 48
Daglegt líf 20/25 Velvakandi 48
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Nái tillaga stjórnarskrárnefndar
fram að ganga verða þjóðaratkvæða-
greiðslur um stjórnarskrárbreyt-
ingar mögulegar. Fyrst þyrftu þó 2⁄3
hlutar þingmanna að samþykkja til-
lögu þess efnis. Um er að ræða
breytingu á 79. gr. stjórnarskrár-
innar sem kveður á um að tvö þing,
með kosningum á milli, þurfi að sam-
þykkja allar breytingar sem gerðar
eru á stjórnarskrá. » Forsíða
Heimilt verður að flytja árlega til
landsins tæplega 900 tonn af land-
búnaðarvörum, þar af 650 tonn af
kjötvörum, samkvæmt samkomulagi
sem Ísland og Evrópusambandið
hafa náð um viðskipti með landbún-
aðarvörur. Jafnframt fær Ísland að
flytja út tollfrjálst til ESB 850 tonn
af skyri, smjöri og pylsum og 1.350
tonn af lambakjöti. » Forsíða
Umræður um breytt rekstr-
arform Ríkisútvarpsins hafa nú þeg-
ar tekið 100 klst. frá því að frumvarp
þess efnis var fyrst lagt fram í mars
2005. » 10
Margrét Sverrisdóttir lýsir von-
brigðum sínum með afdráttarlausan
stuðning Guðjóns A. Kristjánssonar
við Magnús Þór Hafsteinsson sem
varaformann Frjálslynda flokksins.
Segist hún hafa talið eðlilegast að
Guðjón væri hlutlaus í baráttunni og
leyfði þeim Margréti og Magnúsi að
takast á sem jafningjar. Segist hún
þurfa að endurmeta stöðu sína og
útilokar ekki að hún bjóði sig fram
til formanns flokksins.
» Baksíða
Erlent
Hillary Rodham Clinton, öld-
ungadeildarþingmaður og líklegt
forsetaefni demókrata í Bandaríkj-
unum 2008, vill að fjölgað verði í
herliðinu í Afganistan. Hins vegar
er hún andvíg áætlun George W.
Bush forseta um að senda fleiri her-
menn til Íraks. Segir hún að stefna
forsetans í málum Íraks sé „stefna
ósigurs“. » Forsíða
Fréttaskýrendur í Ísrael segja
líklegt að Amir Peretz varn-
armálaráðherra muni senn segja af
sér embætti en Dan Halutz, forseti
herráðsins, sagði af sér í gær vegna
gagnrýni á styrjaldarreksturinn í
Líbanon í fyrra. Einnig stendur
Ehud Olmert forsætisráðherra
höllum fæti vegna ásakana um spill-
ingu. Fær hann aðeins stuðning
14% kjósenda í skoðanakönnunum
og 85% telja að ríkisstjórn hans sé
spillt. » 14
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Handbók HM í Þýskalandi.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
DANSKI herinn hefur boðist til að
gefa Landhelgisgæslunni töluvert
magn af herrifflum og vélbyssum
sem herinn er að skipta út fyrir
nýrri og fullkomnari vopn. Dóms-
málaráðuneytið hefur ákveðið að
taka boðinu en vopnin eru þó ekki
komin til landsins þar sem eftir er
að ganga frá ýmsum formsatriðum.
Þetta hefur Morgunblaðið eftir
áreiðanlegum heimildum.
Eiga vopn af ýmsum gerðum
Í gær fengust hvorki upplýsingar
um gerð rifflanna og vélbyssanna
né magn. Vopnin verða væntanlega
til taks í varðskipum Landhelgis-
gæslunnar og víðar.
Þetta mun ekki vera í fyrsta
skipti sem Danir aðstoða Landhelg-
isgæsluna við að útvega vopn og
skotfæri. Einnig hefur Gæslan
fengið sprengjueyðingarbíla og ró-
bóta sem þeim fylgja frá danska
hernum.
Georg Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, vildi í gær ekkert
segja um hvort slíkt boð hefði borist
eða hvort því hefði verið tekið.
Hann sagði einungis að Landhelg-
isgæslan ætti vopn af ýmsum gerð-
um, bæði nýleg sem eldri.
Í nýjum lögum um Landhelgis-
gæslu Íslands, sem tóku gildi 1. júlí
2006, segir að starfsmenn Land-
helgisgæslunnar, sem hafi lögreglu-
vald og starfi við löggæslu, þ.m.t.
siglingavernd og sprengjueyðingu,
hafi heimild til að beita skotvopnum
við störf sín samkvæmt reglum sem
dómsmálaráðherra setur. Í nýju
lögunum voru tekin af öll tvímæli
um að starfsmenn Gæslunnar hefðu
heimild til að beita skotvopnum við
störf sín. Lögum samkvæmt ættu
þeir að geta tekist á við smyglara,
hryðjuverkamenn, mengunarvalda
og veiðiþjófa og yrðu því að vera
vopnum búnir. Þá hefði Gæslan að
sjálfsögðu heimild til að grípa til
annarra vopna en skotvopna til að
ná árangri við störf sín, t.d. hafi
togvíraklippum verið beitt með góð-
um árangri í landhelgisdeilum.
Landhelgisgæslunni
gefin dönsk vopn
Eiga lögum samkvæmt að geta tekist á við smyglara,
hryðjuverkamenn, mengunarvalda og veiðiþjófa
EINBEITINGIN skein úr augum þessa unga drengs
þar sem hann horfði út um gluggann á mannlífið í
miðbæ Reykjavíkur. Hvort það voru bílarnir sem runnu
löturhægt niður Laugaveginn eða kappklæddir gang-
andi vegfarendur sem gripu athygli drengsins skal
ósagt látið en hann virtist una sér vel í hlýjunni.
Morgunblaðið/Ásdís
Horft á mannlífið í miðbænum
VINNA við gerð Héðinsfjarðar-
ganga hefur gengið vel undanfarna
viku. Þetta segir Sigurður Oddsson,
yfirmaður nýrra framkvæmda Vega-
gerðarinnar á norðaustursvæðinu og
fulltrúi verkkaupa að gerð Héðins-
fjarðarganga.
Á vef Vegagerðarinnar má sjá að
sl. mánudag var lengd ganga frá
Siglufirði um 666 metrar og Ólafs-
fjarðarmegin um 357 metra. Samtals
er því búið að sprengja 1.023 metra
sem er um 9,6% af heildarlengd
ganganna.
Að sögn Sigurðar er bergið í fjall-
inu gott. Bendir hann á að ávallt í
upphafi jarðgangagerðar fari menn
sér rólega meðan þeir eru að venjast
berginu en þegar þekking á fjallinu
liggi fyrir að nokkrum tíma liðnum
þá fari hlutirnir að ganga hraðar.
„Nú þegar menn eru farnir að slípast
til og farnir að þekkja fjallið þá fer
þetta að ganga betur og hraðar,“
segir Sigurður.
Sem kunnugt er var verksamning-
ur um gerð Héðinsfjarðarganga milli
Vegagerðarinnar, sem verkkaupa,
og Metrostav-Háfells, sem verktaka,
undirritaður á Siglufirði í maí á síð-
asta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni hófust framkvæmdir á
verkstað síðla í júní sl. við gröft á for-
skeringu við gangamunna Siglu-
fjarðarmegin. Síðan var unnið að for-
skeringum, bæði í Siglufirði og
Ólafsfirði og gangagreftri Siglu-
fjarðarmegin og 1. nóvember hófst
gangagröftur frá Ólafsfirði. Enn-
fremur hefur verið unnið að al-
mennri aðstöðusköpun og m.a. er
risin steypustöð á Ólafsfirði. Vega-
gerð er hafin á báðum stöðum en
fremur lítið hefur verið unnið við
vegagerð utan ganga að undanförnu
vegna tíðarfars. Við verkið starfa
alls um 80 starfsmenn. Umsjón
framkvæmda og eftirlit er í höndum
GeoTek ehf.
Vinnu við Héðinsfjarð-
argöng miðar ágætlega
Í HNOTSKURN
»Héðinsfjarðargöng verða um3,7 km á milli Siglufjarðar og
Héðinsfjarðar og um 6,9 km milli
Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar.
Heildarlengd steyptra vegskála
við alla fjóra gangamunna er um
450 m. Samtals verða því göngin
tæplega 11 km á lengd.
»Áætlað er að verkið taki þrjúog hálft ár og fram-
kvæmdum verði lokið í árslok
2009.