Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 17 SAMNINGUR um samstarf Lands- banka Íslands og Listahátíðar í Reykjavík vegna komu San Franc- isco-ballettsins á hátíðina í vor var undirritaður í gær. Það voru þau Sig- urjón Þ. Árnason bankastjóri og Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, sem undirrituðu samninginn en með- al viðstaddra var Robert Russo, framkvæmdastjóri dansflokksins. Við tilefnið kvaðst Sigurjón vera stoltur af aðild bankans að verkefn- inu og sagði það kærkomið tækifæri fyrir Íslendinga að berja augum þennan heimsfræga dansflokk sem lýtur listrænni stjórn Íslendingsins Helga Tómassonar. Þórunn Sigurðardóttir sagði að undirbúningur vegna komu San Francisco-ballettsins hefði í raun staðið yfir alveg frá síðustu og einu heimsókn hans til landsins árið 2000, en koma hans þá var einnig í tengslum við Listahátíð í Reykjavík og sömuleiðis styrkt af Landsbank- anum. Hún bætti því við að á þessum sjö árum hefði vegur San Francisco- ballettsins vaxið mjög og að hann sýndi nú alla jafna í stærstu og glæsilegustu leikhúsum heims. Það væri því einstakt að hópurinn gerði sér ferð til Íslands til að sýna í Borg- arleikhúsinu og sjálfsagt óhugsandi ef ekki væri fyrir Helga. Sýningin byggð á ballettum eftir Helga Um gríðarstórt verkefni er að ræða og koma um 60 manns til lands- ins með Helga. Að sögn Þórunnar er hópurinn m.a. svo stór sem raun er þar sem tvískipað er í mörg hlut- verkanna. Það sé enda um erfiða sýningu að ræða fyrir dansarana og sýnt þétt; alls sjö sýningar dagana 16.–20. maí. Tók hún fram að gott samstarf væri milli Listahátíðar og Icelandair sem sæi um að koma flokknum til landsins. Sýning flokksins er sérstaklega sett saman af Helga fyrir þetta til- efni og byggist eingöngu á ballettum sem hann hefur samið fyrir flokkinn. Ber hún einfaldlega nafnið HELGI. „Þetta eru í rauninni fimm nýleg verk, sýnd hvert á eftir öðru. Í einu tilviki er meira að segja um frumsýn- ingu að ræða,“ sagði Þórunn aðspurð um sýninguna. Hún upplýsti að hluti af verkunum hefði verið sýndur á Edinborgarhátíðinni árið 2004 og í Sadler’s Wells-leikhúsinu í London það sama ár. Fyrir sum þessara verka hlaut dansflokkurinn hin virtu Laurence Olivier-verðlaun árið 2005. Yfirlitssýning um feril Helga San Francisco-ballettinn er elsti ballettflokkur Bandaríkjanna. Frægðarsól hans skín skært um þessar mundir og var hann m.a. val- inn besti dansflokkur síðasta árs af Dance Europe. Hefur Helgi verið listrænn stjórnandi hans í rúm tutt- ugu ár. Í tilefni af komu flokksins stendur Leikminjasafn Íslands fyrir sýningu í anddyri Borgarleikhússins þar sem farið er yfir feril Helga og sögu flokksins sem fagnar í ár 75 ára af- mæli. Að sögn Russo, fram- kvæmdastjóra dansflokksins, mark- ar heimsóknin til Íslands einmitt að vissu leyti upphafið að afmælisárinu sem minnst verður með marg- víslegum hætti í framhaldinu. Koma San Francisco-ballettsins til Íslands er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Borg- arleikhússins og er miðasala þegar hafin á vef hátíðarinnar. Skrifað undir vegna komu San Francisco- ballettflokksins Samningur Þórunn Sigurðardóttir og Sigurjón Þ. Árnason handsala samninginn. Robert Russo fylgist með. Á heimsmælikvarða Jaime Garcia Castilla í verki eftir Helga Tómsson. Morgunblaðið/ÞÖK Ljósmynd/Erik Tomasson NÁMSKEIÐ TIL UNDIRBÚNINGS PRÓFI TIL AÐ ÖÐLAST RÉTTINDI TIL AÐ VERA HÉRAÐSDÓMSLÖGMAÐUR Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2005 um próf til að öðlast réttindi til að vera hér- aðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að námskeið verði haldið á fyrri hluta árs 2007. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar. Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnusturéttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslugreinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lög- mannsstörf, málflutningur og önnur störf lögmanna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum við námskeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna.Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi. Kennsla fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Stefnt er að því að kennsla í fyrri hluta fari fram dagana 19.-24. febrúar og dagana 5.-10. mars 2007. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00) Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 19.-30. mars 2007. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar. Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 23.-28. apríl og 30. apríl til 5. maí 2007. Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrra hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi. Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 170.000 og greiðist við skráningu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í námskeiðsgjaldi. Skráning fer fram á skrifstofu Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, Reykjavík. Sími 568 5620. Fax 568 7057, en einnig er hægt að ganga frá skráningu með tölvupósti á netfangið: hjordis@lmfi.is. Við skráningu á námskeiðið þarf að tilgreina nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer (heimasíma, vinnusíma og gsm-síma), auk netfangs. Við skráningu skal jafn- framt leggja fram afrit prófskírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi. Frestur til að skrá sig á námskeið er til 18. febrúar 2007. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 18. janúar 2007

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.