Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Magnús Stefánsson | 16. janúar
Ríkisstofnanir og
byggðastefna
Eins og þekkt er hefur flutningur rík-
isstofnana í heild sinni oft valdið deil-
um og misklíð. Nauðsynlegt er því að
leita annarra leiða, án þess að hvika í
raun frá upphaflegum markmiðum.
Meira: http://www.magnuss.is/
Þórunn Sveinbjarnardóttir | 17. janúar
Hillary í þungavigt
Hillary Rodham Clinton
hefur sýnt og sannað í
störfum sínum sem öld-
ungadeildarþingmaður
fyrir New York ríki að
það fer þungavigt-
armaður í stjórnmálum.
Hún mætti mikilli andstöðu þegar
hún bauð sig fyrst fram til öld-
ungadeildarinnar en malaði endur-
kjörið í nóvember sl. með um 70% at-
kvæða. Geri aðrir betur.
Meira: http://www.althingi.is/tsv/
Katrín Júlíusdóttir | 17. janúar 2006
Hver er stefnan?
Miðað við orð Sigurðar Kára er Sjálf-
stæðisflokkurinn með eina skoðun í
RÚV málinu. Hver er þá sú skoðun?
Maður hlýtur að spyrja þar sem að á
þessu kjörtímabili hefur Sigurður
Kári sjálfur lagt fram ásamt fleiri
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins –
sem hefur eina skoðun í málinu –
frumvarp um hlutafélagavæðingu
RÚV og sölu þess.
Meira: http://www.katrinjul.is/
„REGLUR eru ekki virtar hér í
þinginu hvað varðar vinnubrögð,“
sagði Ásta R. Jóhannesdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, í um-
ræðum í upphafi þingfundar í gær.
Frumvarp um Ríkisútvarpið ohf. er
enn eina málið á dagskrá Alþingis og
stjórnarandstöðuþingmenn hafa
gagnrýnt harðlega breytingar á
hefðbundnum störfum þingsins.
Venjubundinn fyrirspurnartími var
ekki í gær og enginn tími var gefinn
til utandagskrárumræðna.
Ásta gerði athugasemdir við mikl-
ar tafir sem hafa orðið á svörum ráð-
herra við fyrirspurnum. „Elstu fyr-
irspurnirnar eru fjögurra mánaða
gamlar,“ sagði Ásta og benti á að
ráðherrar ættu með réttu að svara
munnlegum fyrirspurnum innan
viku og skriflegum á tíu dögum.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstri grænna, sagði forseta
vera að hafa af þingmönnum þann
rétt sem þeir eiga samkvæmt lögum
og stjórnarskrá. „Það verður að
breyta þingsköpum þannig að for-
sætisnefnd Alþingis sé dagskrár-
gjafinn en ekki bara forsetinn einn
því það greinilega gengur ekki að
hafa það vald í höndum forseta sjálf-
stæðismanna,“ sagði Steingrímur.
Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, sagði
stjórnarandstöðuna sjálfa koma í
veg fyrir að önnur mál komist á dag-
skrá. „Hér hefur verið sett á grímu-
laust málþóf, herra forseti, af hálfu
þingmanna stjórnarandstöðunnar og
það eru þeir sjálfir sem hafa komið í
veg fyrir það að þessi brýnu mál,
sem þeir eru að kalla eftir að verði
hér rædd, hafi komist á dagskrá,“
sagði Sigurður Kári og uppskar mót-
mæli stjórnarandstöðuþingmanna
sem vísuðu í rétt sinn til að reifa mál-
in eins lengi og þeir telja þarft.
Segja reglur ekki virtar
Morgunblaðið/ÞÖK
Gagnrýndir Ráðherrar voru sagðir lengi að svara fyrirspurnum.
Tekist á um þingsköp og fundarstjórn vegna umræðna um RÚV-frumvarpið
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
HUNDRAÐ klukkustundir hafa farið í að flytja
ræður um breytt rekstrarform Ríkisútvarpsins
frá því að frumvarp þess efnis var fyrst lagt fram í
mars 2005. Fyrst var talað í sjö klukkustundir um
Ríkisútvarpið sf., síðan í 43 klukkustundir um
Ríkisútvarpið hf. og nú hafa umræður um Rík-
isútvarpið ohf. staðið í rúmar 50 klukkustundir.
Nefndarfundir um málið eru frátaldir í þessum
útreikningum sem og umræður um efnið sem fara
fram undir öðrum liðum, t.d. fundarstjórn forseta.
Til samanburðar má geta þess að þegar Ísland
gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu árið
1993 vörðu ræðuhöld einnig í rúmar hundrað
klukkustundir. Umræður um fjölmiðlafrumvarpið
tóku í kringum 90 klukkustundir í þingsal en ann-
ars hefur ekkert mál tekið svo marga klukkutíma
í afgreiðslu síðustu ár. Umræður um gagnagrunn
á heilbrigðissviði tóku um 58 klst, Kárahnjúka-
virkjun var afgreidd á tæpum 39 klst. og álver á
Reyðarfirði tók 28 klukkutíma í umræðum.
Vatnalagafrumvarpið, sem rataði oft í fréttir sl.
vor, tók samtals tæpar 56 klst. í umræðum í þing-
sal.
Ekkert bendir til þess að umræður um RÚV
ohf. séu á endasprettinum. Í gærkvöld voru enn
níu manns á mælendaskrá. Ögmundur Jónasson,
þingmaður Vinstri grænna, sagði í ræðu sinni í
gær, sem tók samtals tæpar tvær klukkustundir,
að hann myndi fara mun ítarlegar yfir málin í
seinni ræðu sinni.
Langar ræður fram undan?
Kolbrún Halldórsdóttir, Mörður Árnason og
Valdimar Leó Friðriksson hafa öll haldið langar
ræður og á mælendaskrá eru nú auk Ögmundar
þingmenn á borð við Steingrím J. Sigfússon,
Magnús Þór Hafsteinsson, Jóhönnu Sigurðar-
dóttir og Jón Bjarnason sem öll hafa komist á
lista yfir „málglöðustu“ þingmennina.
Umræður um Ríkisútvarpið
hafa tekið 100 klukkustundir
Kárahnjúkamálið tók 39 klst. og aðgangur að EES-svæðinu rúmlega 100
● „Í DAG er mið-
vikudagur og lífið
gengur sinn gang,
eða hvað? Nei
svo er ekki,“
sagði Jóhann Ár-
sælsson, í ræðu-
stóli á Alþingi í
gær. Meðan lífið
gekk eflaust sinn
vanagang hjá
þorra landsmanna var það ekki svo á
Alþingi þar sem hefðbundinn fyr-
irspurnartími vék fyrir áframhaldandi
umræðum um Ríkisútvarpið ohf.
Lífið gengur ekki sinn
vanagang á Alþingi
Jóhann Ársælsson
„ÞAÐ ER ekki lausn á vanda þings-
ins að takmarka hér algjörlega
ræðutíma,“ sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar, í umræðum um fund-
arstjórn forseta á þingi í gær.
Stjórnarandstöðuþingmenn tóku
ummæli Sólveigar Pétursdóttur,
forseta Alþingis, í hádegisfréttum
Stöðvar 2 og Bylgjunnar stinnt upp
en þar sagðist hún vera þeirrar
skoðunar að kannski þyrfti að tak-
marka ræðutíma í annarri og þriðju
umræðu enda tíðkaðist ótakmark-
aður ræðutími ekki í flestum ná-
grannalöndunum.
Jóhanna Sigurðardóttir útilokaði
samt ekki að ræðutími yrði tak-
markaður en það væri þá aðeins að
undangengnum öðrum breytinum á
störfum þingsins. „Löggjafarvaldið
er mjög undirgefið framkvæmda-
valdinu og ég held þetta þekkist
ekki í neinum nálægum þingum,“
sagði Jóhanna og bætti við að eina
tækið sem þingmenn hefðu væri að
standa í ræðustóli og mótmæla.
Ekki lausn
að takmarka
ræðutíma
ÞINGMENN BLOGGA
ÞETTA HELST…
● STJÓRNARANDSTAÐAN hefur sak-
að meirihlutann um að vera með her-
lög á Alþingi og koma í veg fyrir að
nokkuð annað fáist rætt. Þingmenn
meirihlutans segja aftur á móti að
það sé stjórnarandstaðan sjálf sem
haldi uppi málþófi og geri það að
verkum að ekkert annað komist á
dagskrá.
Í umræðum í upphafi þingfundar
fór Össur Skarphéðinson yfir leyfðan
fundartíma og hlýddi ekki strax þegar
bjallan glumdi. Birgir Ármannsson,
sem þá sat í forsetastóli, lamdi þá
aðeins fastar á bjölluna. Næst þegar
Össur kom í ræðustól baðst hann af-
sökunar en bað jafnframt um að vera
ekki beittur slíku ofbeldi aftur, enda
slæmt fyrir heyrnina.
Herlög eða málþóf í
vegi fyrir umræðu?
● MIKIÐ hefur mætt á forseta þings-
ins undanfarið. Hann hefur oft þurft
að minna þingmenn á að vera ekki
með frammíköll en þeim hættir stund-
um til að tauta óþarflega hátt úr sæt-
um sínum. Guðjón Ólafur Jónsson var
einn þeirra þingmanna sem kallaði
fram í ræðu Hlyns Hallssonar sem þá
ávarpaði hann „herra yfirgjammara“.
Forseti bað Guðjón að leyfa varaþing-
manninum að ljúka máli sínu og vara-
þingmanninn um að gæta orða sinna.
Herra yfirgjammari
● FUNDUR Alþingis hefst kl. 10:30 í
dag og er gert ráð fyrir að hann
standi fram á kvöld. Eitt mál er á dag-
skrá, frumvarp um Ríkisútvarpið ohf.
Dagskrá þingsins