Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 11 FRÉTTIR Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is ÓJÖFNUÐUR eftir álagningu skatta og greiðslu úr bótakerfum hefur aukist vegna rýrnunar skatt- leysismarka og upptöku fjár- magnstekju- skatts, en það hefur gert það að verkum að skatt- byrði lágtekju- hópa hefur aukist meira en þeirra sem eru með meðaltekjur og mun meira en hjá þeim sem eru með hæstu tekjurnar, samkvæmt upplýsingum Stefáns Ólafssonar prófessors en fram kem- ur hjá Ragnari Árnasyni prófessor í Morgunblaðinu í gær að dreifing at- vinnutekna síðastliðin rúm tíu ár sé nánast óbreytt. Stefán sagði að það sem Ragnar gerði í sinni athugun væri að skoða fyrst og fremst þróun tekna fyrir skatta og bætur og tæki fyrir í því sambandi atvinnutekjur annars veg- ar og fjármagnstekjur hins vegar, hvort tveggja fyrir skatta. „Það hefur nú komið fram í mín- um rannsóknum áður að aukning ójafnaðar á atvinnutekjum fyrir skatta er lítil, en vegna breytinga á skattbyrðinni sem gerðist fyrir rýrnun skattleysismarkanna annars vegar og hins vegar vegna upptöku fjármagnstekjuskattsins hefur skattbyrði lágtekjuhópanna aukist mikið, en mun minna eftir því sem ofar fer í tekjustigann. Þetta þýðir að aukning ójafnaðar eftir skatta og bætur er miklu meiri en fyrir skatta,“ sagði Stefán. Hann sagði aðspurður að ráðstöf- unartekjurnar væru auðvitað það sem ákvarðaði endanlega hvernig tekjuskiptingin liti út. Skattakerfi væru alls staðar jafnandi en jöfn- unaráhrifin hefðu verið minnkandi hér á landi vegna þess að skattleys- ismörkin hefðu rýrnað. „Hitt hefur frekar litla meiningu fyrir fólk. Þetta er eins og að ætla að útskýra verðlag í búðum almennt á öllum tegundum af vörum eingöngu með heildsöluverði á landbúnaðarvör- um,“ sagði Stefán. Hann sagði að þegar tölurnar koman væri alltaf ráðstöfunartekj- urnar. Það væri það sem skipti fólk máli þegar upp væri staðið. Hann sagði að það lægi alveg fyr- ir að ójafnaður hér á landi hefði aukist fyrir áhrif skattkerfisins. Það væri annars vegar vegna rýrnunar skattleysismarkanna, sem gerði það að verkum að tekjur lágtekjufólks hefðu hækkað minna en annarra. Upptaka fjármagnstekjuskattsins hefði áhrif í efstu bilunum og gerði það að verkum að ráðstöfunartekjur hátekjufólks hefðu aukist meira eft- ir skatta en fyrir skatta þar sem skattbyrði þeirra lækkaði svo gríð- arlega mikið. væru skoðaðar eftir skatta væri aukning tekna í lægstu tekjuhóp- unum minni en í meðaltekjuhópun- um og munurinn væri enn meiri þegar horft væri til hæstu tekjuhóp- anna. Ráðstöfunartekjur reglan Stefán sagði að það væri reglan á Vesturlöndum í umfjöllun um tekju- skiptingu, hvort sem horft væri til rannsókna eða opinberrar skýrslu- gerðar, að stuðst væri við ráðstöf- unartekjur eftir skatta. Það væri forvitnilegt að skoða einstaka þætti teknanna fyrir skatta til að sjá hvað væri á bak við breytingarnar, en út- Ójafnaður eftir skatta hefur aukist Stefán Ólafsson                                          ! "   #    $ %"&   '( ) * !"            (    ! "# "# !! !" #! $ $ !   $   % %% + !"" + !"" #$$ #$%% #"$ # #$#" #$%% &'        (      )*          !  "   #  ÖRYGGISMIÐSTÖÐIN kynnti í gær nýja þjónustu undir heitinu „Heima- öryggi eldri borgara“, sem kemur til með að stórauka öryggi eldri borg- ara sem búa heima, að því er fram kom á blaðamannafundi af þessu til- efni. Fram kom að þjónustan sam- anstendur af öryggishnappi sem borinn er á úlnlið þar sem kalla má með einu handtaki eftir aðstoð ör- yggisvarða, hreyfiskynjara með fer- ilvöktun ásamt reykskynjara sem beintengdur er stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar. „Þjónustan gerir kleift að fylgjast með ástandi fólks á mun tryggari hátt en áður og hefur það að leið- arljósi að veita öldruðum betri tæki- færi til að búa heima og veita þeim ásamt aðstandendum nauðsynlega öryggistilfinningu,“ segir einnig. Fram kom að Tryggingastofnun ríkisins greiðir hluta kostnaðar við þjónustuna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. „Heimaöryggi eldri borgara“ Morgunblaðið/Sverrir Öryggi Ómar Örn Jónsson, markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar, kynnti nýju heimaþjónustuna fyrir eldri borgara á blaðamannafundi í gær. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt mann um tvítugt í þriggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir að leggja til öryggisvarðar í Select-verslun með vasahnífi. Tveir piltar, þá báðir 19 ára, voru inni í versluninni í nóvember á síð- asta ári og ætlaði öryggisvörður að vísa þeim út vegna óláta. Í átökum í kjölfarið tók annar pilturinn fram hníf og stakk öryggisvörðinn í brjóstið. Dómurinn taldi piltinn þó ekki hafa haft einbeittan vilja til að stinga manninn og tilgreindi fleiri málsbætur piltsins. Jónas Jóhannsson héraðsdómari dæmdi málið. Verjandi var Brynjólf- ur Eyvindsson hdl. og sækjandi Sig- ríður Elsa Kjartansdóttir saksókn- ari hjá ríkissaksóknara. Stakk öryggisvörð Dæmi um verð: Áður Nú Síðumúla 13, 108 Reykjavík Sími 568 2870 Peysa 6.900 2.900 Pils 5.400 1.500 Buxur 5.800 2.000 Vafin túnika 4.700 2.300 Íþróttagallar 5.500 1.900 Úlpa 7.700 2.900 Bolir 4.500 1.900 Mikið úrval af fatnaði á 990 ÚTSALA - ÚTSALA 50-90% verðlækkun Virka daga frá kl. 10-18. Laugardaginn 20. janúar frá 10-18. Ath. Síðasti dagur útsölunnar. www.friendtex.is Svona útsölur fá alla til að brosa Nú 2 fyrir1 af öllu á útsölu ☺

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.