Morgunblaðið - 18.01.2007, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
»Samhjálp hefur starfað frá árinu 1973og þarfnast aukins húsakosts og meiri
peninga til að taka við verkefnum Byrg-
isins.
»Áhersla er lögð á að flýta fyrir lausnmálsins af hálfu félagsmálaráðu-
neytisins í því skyni að finna langtímalausn-
ir fyrir skjólstæðinga sem voru í Byrginu og
eru nú á hrakhólum.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
HEIÐAR Guðnason, forstöðumaður Samhjálpar,
býst við að samningur við félagsmálaráðuneytið
vegna skjólstæðinga Byrgisins líti dagsins ljós fljót-
lega. Viðræður standa yfir milli ráðuneytisins og
Samhjálpar og segir Heiðar að mikill vilji sé til að
finna bæði skammtíma- og langtímalausnir fyrir
þann hóp sem áður var í Byrginu. „Síðast þegar ég
vissi voru fjórir eftir í Byrginu og það er óviðunandi
að þeir fari á götuna. Vanda þeirra getum við leyst
hér og nú,“ segir Heiðar. „En það er brýnt að finna
lausn fyrir þann hóp sem Byrgið sinnti og við höfum
verið að ræða ákveðnar lausnir í þeim efnum við
ráðuneytið.“
Samhjálp hefur frá stofnun samtakanna árið 1973
sinnt því fólki sem hvað harkalegast hefur orðið und-
ir í baráttunni við vímuefni og hefur góðar forsendur
til að taka við verkefnum Byrgisins – að tryggðum
stærri húsakosti og auknu fjármagni. „Við fullnýtum
húsakost okkar í dag,“ segir Heiðar. Í Hlaðgerð-
arkoti á vegum Samhjálpar er starfrækt meðferð-
arstöð og þaðan er allt að 75% umsækjenda vísað frá.
„Við erum fyrst og fremst að tala um langtímavist-
un, þeirra sem þess óska. Við erum talsmenn þess að
vandað verði til verka til framtíðar svo ekki sé hætta
á að hlutirnir lendi skyndilega í lausu lofti.“
Stöðugar viðræður í gangi við Samhjálp
Síðasti fundur Samhjálpar og félagsmálaráðu-
neytisins var á þriðjudag og samkvæmt upplýsing-
um ráðuneytisins voru starfsmenn þess einnig í við-
ræðum við Samhjálp í gær. Rætt er um hliðstæða
starfsemi við þá sem fram fór í Byrginu og tekið mið
af faglegum forsendum jafnt sem fjármálalegum.
Áhersla er lögð á að flýta málinu í ráðuneytinu og
standa viðræður m.a. um aukin fjárframlög og hús-
næði. Gert er ráð fyrir að málinu verði lokið innan
nokkurra daga eða vikna.
Hjá lögreglunni á Selfossi liggja tvær kærur
vegna meintra kynferðisbrota fyrrum forstöðu-
manns Byrgisins gegn skjólstæðingum þess. Lög-
regluskýrsla hefur þegar verið tekin af annarri kon-
unni og einnig er verið að rannsaka fyrirliggjandi
gögn, m.a. gögn á tölvutæku formi, að sögn Ólafs
Helga Kjartanssonar sýslumanns.
Mikill vilji til að hjálpa
skjólstæðingum Byrgisins
Óviðunandi að fólkið fari á götuna að mati Heiðars Guðnasonar hjá Samhjálp
EKKERT lát verður á kuldaskeiðinu sem ríkt hefur á
landinu að undanförnu ef marka má spá Veðurstofu Ís-
lands fyrir næstu daga. Vart hefur frostið framhjá
nokkrum manni farið og ljóst að kuldinn hefur bitið
hressilega í kinnar þeirra sem sínar leiðir fara fótgang-
andi, ekki síst í gær þegar vindkæling var töluverð sök-
um hvassviðris.
Ekki hefur enn tekist að opna skíðasvæðið í Bláfjöll-
um sökum snjóleysis og samkvæmt veðurspá er ólík-
legt að af opnun verði á næstunni. Í dag er gert ráð fyr-
ir norðaustanátt 10–15 metrum á sekúndu. Bjartviðri
verður sunnan- og vestantil en stöku él fyrir norðan og
austan. Frost verður frá einu til tólf stigum, kaldast inn
til landsins. Á morgun og laugardag má áfram búast
við bjartviðri sunnanlands en éljagangi eða snjókomu
norðanlands.
Samkvæmt langtímaspá gæti dregið úr frosti þegar
líða tekur á næstu viku en of snemmt er að slá því föstu.
Morgunblaðið/Kristinn
Áframhaldandi kuldaskeið næstu daga
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
GUÐNI Þórðarson í Sunnu hyggst
óska eftir lögreglurannsókn á því
hvers vegna skjöl sem tengjast
Ferðaskrifstofunni Sunnu og gjald-
þrotaskiptum á flugfélaginu Air
Viking, sem var í eigu hans, virðast
hafa horfið innan stjórnkerfisins.
Guðni segir hin horfnu skjöl tengj-
ast tilraunum samgönguráðuneyt-
isins til að stöðva rekstur Sunnu og
gögnum skiptaréttar um gjaldþrot
Air Vikings.
Á opnum fundi í Sagnfræðinga-
félagi Íslands skömmu fyrir jól, þar
sem fjallað var um nýútkomna bók
um ævi og störf Guðna, voru þessi
mál rædd en Arnþór Gunnarsson,
sem skrifaði bókina, fann í haust
minnisblöð ráðuneytisstjóra sam-
gönguráðuneyt-
isins í Þjóð-
skjalasafninu,
sem Guðni segir
sanna bein af-
skipti Seðlabank-
ans af málinu. Í
samtali við Morg-
unblaðið, stað-
festi Guðni að
hann, ásamt lög-
manni sínum, ynni að undirbúningi
bréfs þar sem beiðni um rannsókn
er lögð fyrir ríkislögreglustjóra.
Air Viking-flugfélagið var tekið
til gjaldþrotaskipta í marsmánuði
1976 að kröfu Olíufélagsins hf.
Guðni segir að mikið sé í húfi enda
hafi félagið unnið að mörgum verk-
efnum erlendis á þessum tíma. Tak-
ist að sanna óviðeigandi afskipti
hins opinbera af gjaldþrotaskipt-
unum sé hugsanlegt að hárra
skaðabóta verði krafist.
Engar upplýsingar
um málið fundust
Guðni sendi fyrir um það bil ein-
um áratug bréf til sýslumannsins í
Reykjavík og samgönguráðuneyt-
isins þar sem óskað var eftir upp-
lýsingum sem vörðuðu gögn um
gjaldþrotaskipti Air Viking og af-
skipti ráðuneytisins af málefnum
Ferðaskrifstofunnar Sunnu í des-
ember 1975. Jafnframt var sent
bréf til Seðlabanka Íslands þar sem
óskað var eftir upplýsingum um
bréfaskriftir bankans til samgöngu-
ráðuneytisins vegna mála Sunnu.
Í svarbréfum sem bárust frá
stofnununum kom fram að engar
upplýsingar um málið fyndust hjá
þeim. Í svarbréfi samgöngu-
ráðuneytisins, sem dagsett er 2. maí
2006, segir að þrátt fyrir leit í því
málsnúmeri sem vísað er til í bréf-
inu og leit í öðrum málsnúmerum
sem til greina gátu komið, hafi
gögnin ekki fundist.
Liggur fyrir að bréf fóru milli
Seðlabanka og ráðuneytis
Í bréfi sýslumannsins í Reykjavík
frá því í nóvember 1995 segir að
engin gögn hafi fundist þrátt fyrir
leit í þeim gögnum sem embættið
hafi sent á Þjóðskjalasafn. Í svar-
bréfi Seðlabankans segir að eftir ít-
arlega athugun á bréfasafni bank-
ans komi fram að engin bréf virðist
hafa verið send samgöngu-
ráðuneytinu um málefni ferðaskrif-
stofunnar. Guðni segir að það liggi
fyrir úr bréfum samgöngu-
ráðuneytisins til Ferðaskrifstof-
unnar Sunnu að bréfaskipti hafi
verið milli bankans og ráðuneyt-
isins.
Mikið í mun að stöðva
rekstur fyrirtækjanna
Þá hafi Arnþór Gunnarsson, sem
skrifaði bókina um ævi og störf
Guðna, í haust fundið minnisblöð
ráðuneytisstjóra samgöngu-
ráðuneytisins í Þjóðskjalasafninu.
Þar komi fram sannanir fyrir bein-
um afskiptum Seðlabankans af mál-
efnum Ferðaskrifstofunnar Sunnu
og flugfélagsins Air Viking, en
Seðlabankanum virðist, að sögn
Guðna, hafa verið mikið í mun að
stöðva rekstur fyrirtækjanna.
Gjaldþrotið hafi hins vegar verið
óþarft enda hafi félagið átt mun
meiri eignir en sem nam skuldum
þess.
Gögn sem tengdust Ferðaskrifstofunni Sunnu og Air Viking hurfu í þremur stofnunum
Lögregla rannsaki hvarf skjala
Guðni Þórðarson
ENDANLEGA verður gengið frá
framboðslista Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi á fundi kjördæm-
isráðs flokksins í Hveragerði á
sunnudaginn kemur.
Á fundinum verður til meðferðar
tillaga kjörnefndar sem byggist á
niðurstöðu prófkjörs sem efnt var til
um skipan framboðslistans. 5.814
greiddu atkvæði í prófkjörinu og
voru gild atkvæði 5.461. Atkvæði
féllu sem hér segir: 1. Árni M.
Mathiesen með 2.659 atkvæði, 2.
Árni Johnsen með 2.302 atkvæði, 3.
Kjartan Ólafsson með 1.578 atkvæði,
4. Björk Guðjónsdóttir með 2.112 at-
kvæði, 5. Unnur Brá Konráðsdóttir
með 2.592 atkvæði, 6. Drífa Hjart-
ardóttir með 2.965 atkvæði.
Gengið frá
framboðslista
á sunnudag
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um að karlmaður sæti gæsluvarð-
haldi til 23. febrúar vegna rann-
sóknar á fjölda afbrota, sem hann
er grunaður um. Maðurinn lauk í
september afplánum dóms fyrir
rán, og segir lögregla ljóst að
brotaferill hans hafi haldið áfram
strax í kjölfarið.
Maðurinn var handtekinn á höf-
uðborgarsvæðinu í síðustu viku
ásamt tveimur öðrum eftir að af-
greiðslukassi fannst í bíl þeirra.
Þeir játuðu að hafa um nóttina
brotist inn í hárgreiðslustofu.
Grunaður um að
tengjast fleiri málum
Fyrr í janúar var maðurinn
stöðvaður réttindalaus við akstur
og við leit í bílnum var lagt hald á
muni sem taldir voru þýfi og reynd-
ust tengjast innbrotum í Borgar-
firði í byrjun janúar. Einnig er
hann grunaður um fleiri mál sem
tengjast innbrotum og þjófnuðum.
Í gæslu vegna
fjölda afbrota
♦♦♦
♦♦♦
HRUNDIÐ verður af stað auglýs-
ingaherferð í dag um bætt samskipti
á netinu. Herferðin er samstarfs-
verkefni SAFT, vakningarverkefnis
Heimilis og skóla, og AUGA, góð-
gerðarsjóðs auglýsenda, auglýs-
ingastofa og fjölmiðla og hefur það
m.a. að markmiði að benda á að ekki
eigi að nota netið til að særa eða
meiða annað fólk.
Vilja betri sam-
skipti á netinu
GJALDSKRÁ Herjólfs mun
hækka um 11,49% 1. febrúar nk.
sem hefur í för með sér að hver
eining í afsláttarkortum hækkar
um 45 krónur, úr 360 í 405 krónur.
Guðmundur Petersen, rekstrar-
stjóri hjá Eimskip sem rekur
Herjólf, segir í samtali við Fréttir
í Vestmannaeyjum að eingöngu sé
um að ræða einfaldar vísitölu-
hækkanir. Guðmundur segir síð-
ustu gjaldskrárhækkun hafa verið
í byrjun árs 2004 og það sé fyrst
og fremst hækkun á eldsneytis-
kostnaði sem valdi verðbreyting-
unum.
Í samningi Eimskips við Vega-
gerðina er ákvæði þess efnis að
gjaldskrá Herjólfs taki mið af olíu-
verði, hafnargjöldum, bygginga-
og launavísitölu. Eldsneytisverð
hækkaði um rúm 20% á síðasta ári
og að sögn Guðmundar því nauð-
synlegt að færa gjaldskrána til
samræmis.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Vestmannaeyja, segir gjaldskrá
Herjólfs of háa. „Ég hef verið
ósáttur við hana, ekki síst farm-
gjöldin en geri ráð fyrir að þarna
sé verið að fylgja ferjuvísitölunni.
Og þetta er ekki gott því allar
aukaálögur á landsbyggðina eru
vondar.“
Gjaldskrá
Herjólfs
hækkar