Morgunblaðið - 18.01.2007, Page 23
Reuters
Litur Ein af þeim fáu sem mættu í
öðru en svörtu og hvítu var Reese
Witherspoon.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
LITLAUSIR og leiðinlegir mætti segja
um kjólana sem Hollywood- leikkon-
urnar klæddust á Golden Globe verð-
launahátíðinni sem fór fram á mánu-
daginn. Það virðist sem lágstemmdir
klassískir og síðir kjólar séu málið í ár,
helst svartir eða hvítir á lit með smá
slaufu eða blúndu til skrauts. Allar vilja
þær vera fágaðar og fallegar, engin
þorir að taka áhættu og þær sem gera
það komast iðulega á lista yfir verst
klæddu konurnar á hátíðinni.
Við skulum vona að þetta sé ekki það
sem koma skal á Óskarsverðlaununahá-
tíðinni en Golden Globe hátíðin gefur
oft forsmekkinn að því sem þar verður
að sjá á rauða dreglinum......geisp!
Venjuleg People.com sagði Kate
Winslet eina af þeim flottustu á há-
tíðinni enda litlaus eins og fleiri.
Gullgella Beyonce Knowles hristi
aðeins upp í þessu með einum gyllt-
um sem virkaði samt ekki vel.
Dúskar Babel-leikkonan Rinko Ki-
kuchi tók nokkra áhættu enda var
hún sögð ein af þeim verst klæddu.
Fágað og fallegt eða
litlaust og leiðinlegt?
Pífur Á perezhilton.com er Cameron
Diaz sögð hafi komist í fataskáp Bjark-
ar og klæðst efnisbútum þaðan. Svana-
kjóllinn virðist ekki ætla að gleymast.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 23
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
www.heimili.is
Vel staðsett 2ja herbergja íbúð sem þarfnast töluverðrar endur-
nýjunar í góðu húsi við rólega íbúðargötu.
Eignin er laus til afhendingar.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Heimilis fasteignasölu
sími 530 6500
GLAÐHEIMAR
GOTT TÆKIFÆRI FYRIR LAGHENTA
Í HJARTA Evrópu, um 50 kílómetr-
um sunnan við Prag í Tékklandi, hafa
hjónin Jórunn Friðjónsdóttir og Thor
Thors staðið í stórræðum við að koma
upp gistiaðstöðu fyrir ferðamenn.
Um er að ræða fjóra 90 m² heils-
ársbústaði sem byggðir voru á ný-
liðnu ári og lítið hús frá þarsíðustu
aldamótum.
„Þegar dóttir okkar fór til Tékk-
lands í leiklistarnám eltum við hana
þangað út,“ útskýrir Jórunn en þau
hjón verja stórum hluta ársins ytra.
„Þegar við komum urðum við svo
hrifin af landi og þjóð að það endaði
með því að við ákváðum að fara út í
þetta ævintýri.“
Húsin fimm eru staðsett í Cejko-
vice í Bóhemíu, rétt ofan við Sazava
ána. Skammt frá stendur elsti kastali
landsins, Èeský Šternberk sem er frá
14. öld en enn er búið í honum að sögn
Jórunnar. „Þetta er eitt af fallegustu
svæðum í Tékklandi að okkar mati,“
segir hún. „Tékkar eru miklir útivist-
armenn og þarna eru frábærar
göngu- og hjólaleiðir og hægt er að
fara í kajakróður á ánni. Stærsti golf-
völlur Tékklands er í 20 mínútna
akstursfjarlægð frá húsunum og
sömuleiðis er stutt í stærstu versl-
unarmiðstöð í Mið-Evrópu.“
Hús í anda Hans og Grétu
Sem fyrr segir voru bústaðirnir
fjórir byggðir á síðasta ári og inni-
halda „allan þann lúxus sem Íslend-
ingar vilja hafa,“ eins og Jórunn
orðar það. „Þeir eru með þremur góð-
um svefnherbergjum auk stofu og svo
er 20 fermetra verönd við hvert hús.
Gamla húsið, sem við gerðum upp á
sama tíma er miklu minna og í svona
„Hans og Grétu“ stíl. Þar er eitt
svefnherbergi og stofa með eldhús-
aðstöðu og baði og hentar til dæmis
pari eða hjónum með lítið barn.“
Þau hjón eru með enn frekari upp-
byggingu á prjónunum og vinna nú
að því að innrétta ráðstefnuhúsnæði
og veitingasal fyrir allt að 30 manns
sem stefnt er að því að verði tilbúið
fyrir næsta sumar. „Síðan eru fleiri
byggingar á svæðinu sem bíða betri
tíma,“ bætir Jórunn við.
Húsin eru til leigu yfir styttri eða
lengri tíma á veturna en í viku og viku
í senn yfir sumarið.
Íslensk lúxusgist-
ing í Tékklandi
Gróið Húsin eru við Sazava-ána í Bóhemíu og flest byggð í fyrra.
Nýtt Húsin eru með nauðsynlegum húsbúnaði og húsgögnum.
Gamalt Elsta húsið er nýuppgert.
www.czechlodging.com
www.gcko.cz