Morgunblaðið - 18.01.2007, Qupperneq 24
neytendur
24 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það var tekið smá forskot ásæluna um síðustu helgi,en við eigum von á miklufjöri á bóndadaginn, sem
er á morgun. Vesturbæingar vilja
nefnilega halda í allar góðar hefðir
og er þorrinn þar engin undantekn-
ing,“ segir Pétur Guðmundsson,
kaupmaður í Melabúðinni, þar sem
menn eru fyrir löngu búnir að und-
irbúa komandi þorravertíð. Þorra-
matur einkennir nú kjötborðið og
hangikjötsilmurinn liggur í loftinu.
Þar útbúa líka kaupmennirnir
þorramat í trog fyrir þá, sem kjósa
að efna til alvöru þorrablóta heima í
stofu að fornum sið.
Samkvæmt upplýsingum Daglegs
lífs, lætur nærri að framleidd séu
um 60 tonn af súrmat fyrir komandi
þorra, en helstu framleiðendurnir
eru Sláturfélag Suðurlands, Norð-
lenska og Kjarnafæði, sem fram-
leiðir bæði undir eigin merkjum og
undir Bónus-merkjum. Samkvæmt
lauslegri verðathugun Morgun-
blaðsins í gær nemur smásöluverð á
blönduðu súrmeti í fötum 1.868
krónum hjá SS, 1.989 krónum hjá
Norðlenska og 1.998 krónum hjá
Kjarnafæði, sem selur aðeins fram-
leiðslu sína í verslunum Bónuss þar
sem veittur er 10% afsláttur við
kassa og kostar þá súrmetisfata
Kjarnafæðis 1.798 krónur. Að gefnu
tilefni skal tekið fram að hér er ekki
um neinn gæðasamanburð að ræða
enda er mismunandi hversu mikið af
hvaða tegund ratar í föturnar. Auk
hlutfallslegrar skiptingar á milli
vörutegunda í fötunum, er þéttleiki
hrútspunga mismunandi og fer eftir
því hversu mikið hlaup er sett í vör-
una. Í gæðalegu tilliti skiptir líka
máli hvort ný mysa er sett í föturnar
þegar pakkað er í þær.
Dýrastur og líka hollastur
Verð á loftpökkuðum súrmat í
lausasölu er mismunandi eftir fram-
leiðendum og sést m.a. í meðfylgj-
andi töflu, en alls staðar eru það
hrútspungarnir sem eru mun-
aðarvaran og kosta vel á þriðja þús-
und krónur kílóið. Í Melabúðinni
kosta súrir hrútspungar í lausasölu
2.200 krónur kg., súr hvalur er á
3.000 kr. kg. og kílóið af hákarls-
bitum er á 4.600 kr. Harðfiskurinn
er hinsvegar langdýrastur og kostar
um 5.000 krónur kílóið, en þess má
geta að munaðarvara á borð við
nautalundir kosta á sama stað 3.990
krónur. Af þorramatnum eru soðnu
sviðakjammarnir hvað ódýrastir og
kosta um 700 kr. kg. Svo má alltaf
spara og búa í haginn með því að
búa til rófustöppuna og kartöflu-
músina heima og baka rúgbrauð og
flatbrauð við tækifæri.
„Vinsældir þorramatarins eru að
aukast ár frá ári, ef eitthvað er,
enda er þorramaturinn ákaflega
hollur matur í kuldanum hér hjá
okkur, sé hann borðaður í hófi.
Hann hélt nefnilega þjóðinni gang-
andi í aldir. Ætli harðfiskurinn sé
ekki hollastur og brennivínið óholl-
ast af þessu. Ég gæti best trúað
því,“ segir Pétur í Melabúðinni og
hlær.
Verðið liggur í löngu ferli
Þegar svara er leitað við því hvers
vegna matvörur á borð við harðfisk,
hákarl, súrt hvalspik, súrsuð eistu
og annað súrmeti séu jafn dýrar og
raun ber vitni, segir Guðmundur E.
Björnsson, sölustjóri hjá SS, að
skella megi skuldinni á tiltölulega
langt framleiðsluferli þessara mat-
vara. „Við byrjum á því að framleiða
súrmatinn í sláturtíðinni í sept-
ember og ræðst verðið því fyrst og
fremst af löngu framleiðsluferli þó
hér sé um að ræða tiltölulega ódýra
hluta af skepnunni sjálfri. Að auki er
þorramaturinn árstíðabundinn og
þá má alltaf gera ráð fyrir ein-
hverjum afskriftum sem hækka
kostnaðarverðið,“ segir Guðmundur.
Súrsunin eykur hollustuna
Súrsun er gömul varðveisluað-
ferð, sem hefur verið okkur Íslend-
ingum mikilvæg um aldir. Súrsun
eykur hollustu matvæla. Vítamín úr
mysu síast inn í þau og sýran vernd-
ar ýmis bætiefni. Sýran gerir kjötið
meyrara, leysir beinin smám saman
upp og eykur þannig meltanleika og
næringargildi fæðunnar, segir m.a.
á vef Umhverfisstofnunar.
Súrsunin byggist á því að soðin
matvæli eru sett í súrsunarmysu í
þrjá til sex mánuði eftir því hve súr
maturinn á að vera. Mikilvægt er að
hreinlæti sé mjög gott og kæling
góð og matvælin á kafi í mysunni.
Einnig þarf að passa að sýrustigið í
mysunni hækki ekki, t.d. vegna
vatns úr hrútspungunum. Mysan á
ekki að fara mikið yfir pH 4,0 til
þess að varan verkist rétt og mygla
nái sér ekki á strik. Nauðsynlegt er
að hafa rúgmjöl, sem er í blóðmör
og lifrapylsu, með í súrnum vegna
þess að kolvetnin í mjölinu eru
nauðsynleg fyrir mjólkursýrugerl-
ana til að viðhalda sýrunni. Þegar
sýrustigið í matvælunum er komið
niður í pH 4-4,5 geta sjúkdómsvald-
andi örverur ekki fjölgað sér og
maturinn verður því öruggur til
neyslu.
Nú á tímum er orðið algengara að
léttsýra matinn enda er fólk ekki
eins hrifið af súra bragðinu og áður.
Þá telst hann ekki lengur súrmatur í
þeim skilningi að geymsluþolið sé
tryggt með sýrunni. Við geymslu á
súrmat er mikilvægt að geyma hann
í mysu í kæli. Varasamt getur verið
að geyma blöndu af sýrðum mat og
öðrum ósýrðum, eins og gjarnan
gert er á þorrabakka nema einn til
tvo daga. Annars geta skapast vaxt-
arskilyrði fyrir myglu, sem er mjög
fljót að ná sér á strik.
join@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lúxusinn liggur í harðfiski,
hval, hákarli og pungunum
Nærri lætur að framleidd hafi verið 60 tonn af súrmat
fyrir komandi þorra og má því gera ráð fyrir að ein-
hverjir verði pakksaddir á næstunni af bringukollum,
lundaböggum, slátri, sviðasultu og hrútspungum.
Jóhanna Ingvarsdóttir tók púlsinn á þorravertíðinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorratrogið Hangikjöt, sviðasulta, svínasulta, hákarl, harðfiskur, hvalur,
hrútspungar, lundabaggar, bringukollar, lifrarpylsa, blóðmör, rófustappa
og kartöflujafningur eru allt fæðutegundir, sem minna á þorrahlaðborðið.
$% "#
#&
' ," -"
,! "
& ./ !"
!
0"
&
! 1
')
'"2* !
,1 3"2!)
,1 "
"
,1 *!
"
,1 % 1
,1 "&
3
,$ 4$,
,1 3 /""
+
+
+! !
+ #
+!!
+"%
!
+
+%"
$+#
+$
+$"!
+$"!
+
$+#%!
+"
+#%!
+#!$
+!#
+!!
$+"!
+%
+$$
Grænmeti og ávextir
Ferskar kjötvörur hafa sett á
markað undir vörumerkinu Ferskt
þrjár tegundir af fersku blönduðu
salati og fjórar tegundir af ferskum
skornum ávöxtum. Salatið er pakk-
að í loftskiptar umbúðir og aðskilið
frá öðru sem fylgir með í pakk-
anum eins og t.d. soðnu eggi, maís,
sólþurrkuðum tómötum, fetaosti og
brauðteningum. Gaffall og
sósa fylgir. Þrjár tegundir
eru í boði, blandað salat
með túnfiski, kjúklingi eða
hunangsskinku. Ávextirnir
eru einnig pakkaðir í loft-
skiptar umbúðir. Tegundir
af ávöxtum sem eru í boði
eru ferskur ananas í bitum,
melónublanda, ávaxtablanda
og vatnsmelóna. Vörurnar
fást í Hagkaup, Bónus og
10-11.
Hráskinka
Sláturfélag Suðurlands hefur nú
sent frá sér hráskinku sem hlotið
hefur nafnið Grand Parma. Skink-
an, sem unnin er úr grísakjöti, er
þurrkuð og mehöndluð
samkvæmt ströngum
gæðakröfum. Hún er
verkuð við kjör-
aðstæður í nokkra
mánuði en því
lengur sem tek-
ur að vinna
skinkuna þeim
mun tryggari
eru gæði henn-
ar. Sneiðarnar
er hægt að
nota í forrétti,
á snittur og í smárétti svo
og á flatbökur eða í heita
rétti. Skinkan er án msg og
fæst í flestum matvöruversl-
unum.
Lífrænir safar
Yggdrasill hefur aukið úrvalið af
lífrænum, hreinum ávaxtasöfum.
Fyrir er úrval af grænmetis- og
ávaxtasöfum í 0,7 l
flöskum en nú bætist
við úrvalið í litlum
0,33 l flöskum. Saf-
arnir eru hreinn app-
elsínusafi úr nýpress-
uðum appelsínum,
ferskjusafi og hrein
safablanda sem inni-
heldur blandaða ávexti
og gulrótarsafa. Allt
innihald safanna er
unnið úr lífrænt rækt-
uðum ávöxtum.
Múslístangir úr lífrænt
ræktuðu korni
Nýlega komu á markað Rapunzel
múslístykki sem innihalda lífrænt
ræktað korn og þurrkaða ávexti.
Þetta eru næringar- og trefjaríkir
orkubitar, jarðarberja-, epla- og
súkkulaðistangir.
nýtt