Morgunblaðið - 28.03.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 15
ERLENT
Vitur er sá sem vaknar fyrr.
Úrval verslana og þjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur aldrei verið glæsilegra.
Þess vegna skaltu gefa þér góðan tíma í Flugstöðinni og njóta þess að gera góð kaup.
Innritun hefst kl. 5:00 eða tveimur tímum fyrir brottför.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
U
36
51
3
03
/0
7
ENGINN veit hvers vegna þeir
ákváðu að flytja höfuðborgina en
herforingjastjórnin í Búrma (Myan-
mar) gaf erlendum blaðamönnum
tækifæri til þess í gær í fyrsta
skipti að líta augum nýja höfuðborg
landsins, Naypyidaw, sem byggð
hefur verið frá grunni í miðju land-
inu. Naypyidaw tekur við hlutverki
Rangoon, sem er syðst í landinu.
Það kom flestum í opna skjöldu
þegar herforingjastjórnin tilkynnti
að ákveðið hefði verið að skapa nýja
höfuðborg frá grunni. Borgin hefur
verið reist á svæði þar sem áður
var frumskógur og þurfti að rýma
mikil landsvæði til að finna henni
stað. Nýjar byggingar teygja sig nú
til skýjanna og glæsileg breiðstræti
setja svip sinn á borgina. Fullkomin
átta akreina hraðbraut liggur inn í
borgina, samkvæmt lýsingum vest-
rænna blaðamanna sem fengu að
koma til Naypyidaw, en víða annars
staðar í Búrma eru vegir slæmir og
anna engan veginn umferð.
Ríkisstarfsmenn þurftu að flytja
heimili sín til Naybyidaw fyrir einu
og hálfu ári og sumir þeirra hafa
kvartað undan því að í borgina
vanti sárlega verslanir og veit-
ingastaði.
Æðstu yfirmenn herforingja-
stjórnarinnar, sem hrifsaði til sín
völd í Búrma 1992, hafa byggt sér
rammgirt vígi í útjaðri nýju höf-
uðborgarinnar. Than Shwe hers-
höfðingi, leiðtogi herforingjastjórn-
arinnar, flutti sjálfur ræðu við
sérstaka hersýningu sem haldin var
í gær með þátttöku fimmtán þús-
und hermanna en orðrómur hefur
verið á kreiki um að hann væri orð-
inn heilsulítill. Than virtist hins
vegar við bestu heilsu í gær og fátt
virðist benda til að tök herforingj-
anna á valdataumunum í Búrma
séu að linast.
Glæný höfuðborg
risin í miðju landi
Reuters
Tilkomumikið Than Shwe, leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Búrma,
heilsar þátttakendum í hersýningunni í Naybyidaw að hermannasið í gær.
TONY Snow,
talsmaður Hvíta
hússins, er með
krabbamein í lif-
ur. Snow var
skorinn upp
gegn krabba í
ristli fyrir tveim-
ur árum. Sl.
mánudag var
fjarlægt pínulítið mein en við að-
gerðina kom í ljós að krabbinn
hafði breiðst út í lifrina. Snow mun
undirgangast lyfjameðferð til að
reyna að vinna bug á meininu.
Snow með krabba
ÞRJÁTÍU biðu bana þegar tveir
flutningabílar voru sprengdir í loft
upp í Talafar í Norður-Írak í gær.
50 til viðbótar særðust. Þá týndu
a.m.k. tíu lífi í sjálfsmorðs-
sprengjuárás í Ramadi, vestur af
Bagdad.
Tugir féllu í Írak
TALSMAÐUR íranska utanríkis-
ráðuneytisins fordæmdi í gær um-
mæli Tony Blairs, forsætisráðherra
Bretlands, í sambandi við „fanga-
málið“ og sagði þau ögrandi, en
málið væri í réttum farvegi. Blair
sagði að bæru samningaviðræður
ekki árangur yrðu Bretar að beita
öðrum ráðum til að tryggja að
bresku sjóliðunum 15, sem Íranar
handtóku á föstudag, yrði sleppt úr
haldi.
Reuters
Eftirlitsferð Breskir sjóliðar að
störfum á Persaflóa.
Ólgan vex
STARFSMENN ástr-
alskrar hjálparlínu
hafa ekki undan við
að svara símtölum
frá sjúklingum sem
hafa upplifað furðu-
lega hluti eftir að
hafa tekið þekkt
svefnlyf. Meðal ann-
ars hafa þeir borðað
í svefni og skaðað sig. Hjálparlínan,
sem rekin er af stjórnvöldum, er
ætluð fólki sem tekur lyf. Einn sjúk-
lingur hefur þyngst um 20 kg eftir
að hann byrjaði að taka svefnlyfið
Stilnox, sem einnig er þekkt undir
nafninu Ambien. Alls hafa borist
um fjögur hundruð símtöl frá sjúk-
lingum. Einhverjir hafa vaknað
undir stýri á bíl, aðrir vakna þar
sem þeir eru að elda eða reykja í
svefni. Eru áströlsk heilbrigðisyf-
irvöld að ræða aðgerðir og ætla að
fara fram á að framleiðendur
svefnlyfsins gefi út viðvaranir
vegna lyfsins á umbúðum þess.
Óvenjulegar
aukaverkanir