Morgunblaðið - 28.03.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 17
MENNING
SKÁLDSAGAN
Karítas án titils
var nýlega gefin
út í Danmörku á
vegum Gyld-
endal-forlagsins.
Fjallað hefur ver-
ið um bókina, sem
er í þýðingu Ás-
laugar Th. Rögn-
valdsdóttur, í
bæði Jyllands-
Posten og Politiken og er umsögnin í
báðum tilvikum afar jákvæð.
Gagnrýnandi Politken, Mette
Winge, segir til að mynda í upphafi
að sagan sé „stórkostleg“. Enn
fremur segir hún að Kristín Marja
leiki sér með tungumálið á þann hátt
að maður „lepur frásögnina eins og
mjólk“. Hún er svo ekki að skafa of-
an af hlutunum í lok umfjöllunar
sinnar, greinilega ósátt við lengd-
artakmörk ritstjóra síns: „Gefið mér
meira pláss, ég er ekki búin með allt
hrósið.“
Það kveður einnig við einkar já-
kvæðan tón í gagnrýni Henriette
Bacher Lind hjá Jyllands-Posten.
Lind gefur bókinni fjórar stjörnur af
sex og segir að hér sé á ferðinni
„hrífandi frásögn um sterkar ís-
lenskar konur“. Að hennar sögn
gagntekur sagan lesandann og að
lokum fyllyrðir hún að það sé „eng-
inn vafi“ á að aðalsöguhetjan, Kar-
ítas, muni „hrífa jafnt framakonur
sem húsmæður“.
Karítas án titils er fjórða skáld-
saga Kristínar Marju. Hún kom út á
Íslandi árið 2004 og var tilnefnd til
Bókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs í ár. Hún hefur þegar
verið gefin út í Svíþjóð og er vænt-
anleg í bæði Hollandi og Þýskalandi,
að því er fram kemur á heimasíðu
Eddu útgáfu.
Danir
hrifnir
Karítas án titils út-
gefin í Danmörku
Kristín Marja
Baldursdóttir
AÐEINS 7% af
listmunum í eigu
Tate safnsins er
eftir konur.
Samkvæmt
heimildum The
Art Newspaper
hefur safnið
ákveðið að kaupa
inn fleiri verk eft-
ir kvennkyns
listamenn í tilraun til að laga þenn-
an kynjamismun á safninu. 348 af
2914 listamönnum í Tate safninu
eru konur. Það er um 12% hlutfall
eða 7% ef talið er út frá fjölda lista-
verka.
En það er ekki hægt að saka Tate
eitt um þetta því The National Gall-
ery á aðeins listaverk eftir 8 konur
meðan það á verk eftir yfir 400 karl-
menn.
Vandamálið er það, fyrir utan
samfélagslega þáttinn, að í gegnum
söguna (þar á meðal mestan part 20
aldarinnar) hafa konur framleitt
mikið færri verk en karlar.
„Hvers vegna eru svona fáir
frægir kvennkyns listamenn?,“
spurði listasögufræðingurinn Linda
Nochlin árið 1971 og skýrði út að
það væri ekki út af því að litið hefði
verið framhjá kvennkyns listamönn-
um og heldur ekki út af því að þær
væru ekki nógu góðar heldur vegna
þess að þær væru svo fáar að þær
urðu ekki sýnilegar. Þær drukknað í
fjölda karlkyns listamanna.
Samkvæmt heimildum er vanda-
mál Tate það að fjármagn til lista-
verkakaupa ár hvert er það lítið að
þeir ná ekki að kaupa eins mörg
verk eftir konur og þeir vildu og
minnka þannig kynjamismuninn.
Kynjamun-
ur á Tate
Frida Kahlo
Á SÍÐUSTU háskóla-
tónleikum vetrarins í dag
kl. 12.30, leika Rússíban-
ar. Tónleikarnir verða
ekki í Norræna húsinu
eins og venjan er, heldur
í Hátíðarsal Háskólans.
Rússíbanar eru komn-
ir á tólfta ár, og sem kunnugt er spila þeir tónlist
úr heimshornum nær og fjær. Tvö laganna í dag
eru frá Svíþjóð og Rúmeníu, tvö úr smiðju félag-
anna og tvö eftir eitt af þekktari tónskáldum okk-
ar. Rússíbanar eiga mikið efni í fórum sínum sem
lítið hefur heyrst opinberlega.
Tónlist
Rússíbanar í Há-
tíðasal Háskólans
Rússíbanar
NÆSTA rannsóknarkvöld Fé-
lags íslenskra fræða verður
annað kvöld í húsi Sögufélags-
ins, Fischersundi 3, kl. 20. Þá
flytur Marteinn H. Sigurðsson
erindi sem hann nefnir: Ein-
hendr áss: Um goðið Tý og
samnefnda rún.
Þar talar Marteinn um ásinn Tý og helstu heim-
ildir um hann, Snorra-Eddu og Lokasennu. Hug-
myndin um hinn einhenda ás er almennt álitin
ævaforn og hið sama á við um nafn Týs. Í erindinu
verður reynt að varpa ljósi á söguna um hand-
armissi Týs í tengslum við samnefnda rún.
Fræði
Handarmissir Týs
og Týsrúnin
ÞRENNIR tónleikar í minn-
ingu Margrétar Jónsdóttur
verða næstu daga, en Margrét
lést úr krabbameini fyrir ári,
24 ára gömul. Þeir fyrstu verða
í Grensáskirkju í kvöld. Þar
syngja Vox Feminae og
Stúlknakór Reykjavíkur með
Diddú og fleirum. Aðrir tón-
leikar verða á NASA í kvöld,
með Dr. Spock, Benny Crespo’s Gang, Innvortis
og Rass. Þriðju tónleikarnir verða í Fríkirkjunni
annað kvöld. Þar koma fram Múm, Ólöf Arnalds
og Pétur Ben. Ágóði rennur til Ljóssins.
Tónlist
Þrennir tónleikar
til styrktar Ljósinu
Margrét Jónsdóttir
♦♦♦
Þú færð símann í vefversluninni á siminn.is eða á næsta sölustað Símans.Tilboðin gilda til 15. apríl
Sony Ericsson W300i
Innbyggt 20 MB minni • 256 MB minniskort fylgir með • Bluetooth
Flugstilling • Stereo handfrjáls búnaður fylgir
Verð 19.900 kr.
Verð áður 24.900 kr.
musicI
Flottur Walkman samlokusími
– og þú nýtur tónlistarinnar hvar sem er
®
MDS-60 hátalarastandur
Verð 6.980 kr.
Verð áður 8.980 kr.