Morgunblaðið - 28.03.2007, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Rangárvallasýsla | „Ég tel að skól-
inn sé á góðri leið. Hann er orðinn
mun nútímalegri en hann var þegar
við komum
hingað,“ segir
László Czenek,
skólastjóri Tón-
listarskóla
Rangæinga.
Skólinn heldur
upp á fimmtíu
ára afmæli sitt
um þessar
mundir.
Tímamót-
anna hefur verið minnst með ýms-
um hætti allt starfsárið. Opnuð var
ný heimasíða (tonrang.ismennt.is)
þar sem meðal annars er hægt að
hlusta á upptökur af völdum tón-
leikum og samspili nemenda. Hald-
ið var píanó-„masterclass“ og gítar-
„masterclass“ fyrir nemendur skól-
ans og Jónas Ingimundarson
píanóleikari heimsótti skólann til að
spjalla við nemendur.
Komu fram á tónleikum
Um helgina voru svo haldnir
miklir hátíðartónleikar á Lauga-
landi í Holtum. Fram komu 230
nemendur skólans, þar af 126 nem-
endur úr forskóladeild. Mikið var
um samspilsatriði. László kvaðst
ánægður með tónleikana.
Það er sérstakt fyrir Tónlistar-
skóla Rangæinga að hann er rekinn
af þremur sveitarfélögum sýslunn-
ar undir hatti Héraðsnefndar
Rangæinga. Kennt er á Hvolsvelli,
Hellu og Laugalandi í Holtum. Hef-
ur orðið mikil breyting á örfáum ár-
um með sameiningu sveitarfélaga.
Þannig var kennt á sjö stöðum þeg-
ar László hóf störf við skólann.
Sveitarfélögin standa vel að
starfseminni, að hans sögn, hús-
næði fer sífellt batnandi. Opnuð
hefur verið ný og glæsileg aðstaða
til tónlistarkennslu á Hellu. Skólinn
á Hvolsvelli er í bráðabirgðahús-
næði en í undirbúningi er bygging
nýs húsnæðis fyrir hann við Hvols-
skóla.
László segir mikilvægt að hafa
gott húsnæði í tengslum við grunn-
skólana því búið sé að færa mikinn
hluta af tónlistarkennslu barnanna
á skólatíma. Það sé mikilvægt til að
öll börn hafi jafnan aðgang að
hljóðfæranámi, hvar sem þau séu
búsett.
Skólasókn er mjög góð, að sögn
skólastjórans, þrátt fyrir mikið
framboð af öðru tómstundastarfi.
Nemendur Tónlistarskóla Rang-
æinga eru nú 266, þar af eru 126
forskólanemendur og 140 nemend-
ur í almennu tónlistarnámi. László
segir að nemendur og foreldrar
leggi á sig mikla vinnu við að koma
alls staðar að úr sýslunni í tónlistar-
tíma og uppákomur á vegum skól-
ans.
Börnin hafa jafnan aðgang
að kennslu, óháð búsetu
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Spilagleði Allir forskólanemendur í Tónlistarskóla Rangæinga komu
fram á hátíðartónleikunum á Laugalandi og fjöldi annarra nemenda.
Í HNOTSKURN
»László Czenek og konahans, Hédí Marópí, eru frá
Ungverjalandi.
»Þau fluttu til Húsavíkur1996 og kenndu við tónlist-
arskólann þar og László stjórn-
aði kórum.
»Þau fluttu á Hvolsvöll 1999og hafa bæði starfað við
Tónlistarskóla Rangæinga,
László hefur verið skólastjóri
frá árinu 2001.
»Þeim líkar vel á Suðurlandi.László segir að landslagið
þar sé líkara Ungverjalandi en
Þingeyjarsýslur.
László Czenek
Bolungarvík | Landssamband slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna efndi til
árlegs eldvarnaátaks dagana 23. til 30.
nóvember í fyrra. Meðal þeirra sem
slökkviliðsmenn heimsóttu voru nem-
endur 3. bekkjar Grunnskóla Bolung-
arvíkur.
Ásamt því að fá fræðslu um eldvarn-
ir og öryggismál gafst þeim kostur á
að taka þátt í eldvarnagetrauninni
2006. Meðal 34 vinningshafa í eld-
varnagetrauninni á öllu landinu var
Hjálmar Örn Bjarkarson nemandi í
Grunnskóla Bolungarvíkur og var
hann heimsóttur í bekkinn sinn þar
sem Ólafur Þ. Benediktsson slökkvi-
liðsstjóri í Bolungarvík afhenti honum
verðlaunin um leið og bekkjarsystk-
inum hans og kennara þeirra Elínu
Ragnarsdóttur voru þökkuð þátttakan
í eldvarnaátakinu.
Vann verð-
laun í eld-
varnagetraun
Fræðsla Slökkviliðsstjórinn heimsótti
nemendur Grunnskóla Bolungarvíkur.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„VIÐ ætlum okkur að gera Jað-
arsvöll þannig úr garði að hægt
verði að bjóða kylfingum upp á
áreiðanleg gæði frá ári til árs. Þegar
endurgerð hans er lokið vonast ég til
að leiktímabilið lengist um mánuð
eða þar um bil,“ segir Edwin Rögn-
valdsson golfvallahönnuður við
Morgunblaðið, um þær breytingar
sem verða gerðar á vellinum á næstu
árum og sagt var frá í blaðinu í gær.
„Við viljum að Jaðarsvöllur verði
afdráttarlaus kostur þegar að því
kemur að halda stórmót, hvort held-
ur sem mælikvarðinn spannar Ís-
land eða eitthvað stærra og meira.“
Mesta breytingin er á nyrðri hluta
vallarins; nýtt æfingasvæði verður
gert norðan við bílastæðið og keppn-
isvöllurinn lagaður að því sem og
skiptum á landi vegna Miðhús-
abrautar. Auk þess verður gerður
nýr níu holna völlur í suðvesturhorni
svæðisins á Jaðri. Breytingum að-
alvallarins á að vera lokið fyrir Ís-
landsmótið 2010.
Önnur og þriðja braut vallarins
breytast mjög, nýr teigur verður
gerður á fjórðu braut og fimmta
brautin er færð að stórum hluta og
verður par 5. Áttunda brautin verð-
ur einnig lengd úr par 4 í par 5 og tí-
unda braut færist austar. „Verkefnið
er mjög margslungið og spennandi.
Við erum í góðu samstarfi við fag-
menn innan raða bæjarfélagsins og
reynum þannig að hámarka umrædd
samlegðaráhrif sem óneitanlega
verða í tengslum við þessar fram-
kvæmdir,“ segir Edwin.
„Verkefnið er einnig mjög krefj-
andi. Það er ekki sama hvernig farið
er með Jaðarsvöll. Hann er mörgum
mjög kær. Norðurhluti hans var
byggður kringum 1970 og ég yrði
fyrir vonbrigðum ef einhver, sem
kæmi í fyrsta sinn á völlinn að fram-
kvæmdum loknum, teldi hann vera
yngri en svo.“
Edwin segir að í hugmyndavinn-
unni, sem hefur snúist um að bregð-
ast við breyttum aðstæðum á og við
völlinn, hafi verið reynt eftir fremsta
megni að takmarka breytingar á að-
alvellinum. „Það varð þó ljóst að
hann tæki einhverjum breytingum.
Helsta markmiðið er að þær verði til
bóta, en ekki til skerðingar á þeirri
upplifun sem golfhringur á Jaðri er.
Mér finnst golfvallarsvæðið stór-
glæsilegt og Jaðarsvöllur er í dag
einn allra gróðursælasti golfvöllur
landsins. Við viljum því kappkosta
að allar breytingar dragi fram og ýti
undir þessa fegurð,“ segir Edwin, og
bætir við: „Ég sé Jaðarsvöll fyrir
mér sem risastóran skrúðgarð,
augnayndi fyrir alla sem þangað
koma, ekki bara kylfinga.“
Risastór skrúðgarður
„Ekki sama
hvernig farið er
með Jaðarsvöll“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ánægður Edwin Rögnvaldsson golfvallahönnuður: Við viljum að Jað-
arsvöllur verði afgerandi kostur þegar að því kemur að halda stórmót.
Annarri og
þriðju braut
vallarins snúið við
ALÞJÓÐLEGA tónlistarhátíðin
AIM (Akureyri International Mu-
sic Festival) verður haldin í annað
sinn 31. maí til 3. júní og nú er
ljóst að framúrskarandi listamenn
mæta til leiks. Meðal þeirra eru:
Fernandez Fierro, sem er 13
manna argentísk tangóhljómsveit,
talin meðal bestu tangóhljómsveita
í heimi, hinn margverðlaunaði kúb-
verski djasspíanóleikari og hljóm-
sveitarstjóri Hilario Duran mætir
með tríó sitt, raftónlistarhljóm-
sveitirnar Isan frá Bretlandi og
Tarwater frá Þýskalandi, The Go
Find, Benni Hemm Hemm, Sea-
bear, Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands, Tómas R. Tómasson ásamt
Kúbubandinu sínu, Magnús Ei-
ríksson og Blúskompaníið, Park
Project og Hrund Ósk Árnadóttir.
Frábærir
listamenn á
AIM í maí
ALLS skráðu sig 550 konur á leið-
toganámskeið sem hófst á Akureyri
í gær í boði Sjálfstæðisflokksins.
Húsrými var aðeins fyrir um 300
manns og þátttakendum því skipt í
tvo hópa. Á námskeiðinu er farið
yfir mikilvægi þess að skapa sér
sýn, setja sér markmið, samskipti
og árangur í einkalífi. Einnig er
leiðbeint í ræðumennsku og fram-
komu og haldin erindi um sam-
skipti og árangur tengdan atvinnu.
Metaðsókn
á námskeið
RÚMLEGA 100 hassbútar og tals-
vert magn maríjúana í söluein-
ingum fannst á hótelherbergi þrí-
tugs karlmanns á Akureyri um
síðustu helgi. Hann viðurkenndi að
eiga efnin og hafa ætlað að selja
þau – á höfuðborgarsvæðinu. Að
skýrslutöku lokinni og staðfestingu
hennar hjá dómara var manninum
sleppt.
Fíkniefni á
hótelherbergi