Morgunblaðið - 02.04.2007, Page 2
2 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson,
bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HÆGT verður að hefja
framkvæmdir við ál-
tæknigarð í Þorlákshöfn
á næsta ári, en í því mun
m.a. felast bygging
60.000 tonna álvers, sem
stækkað yrði í áföngum
uns 270.000 tonna fram-
leiðslugetu á ári yrði
náð.
Unnið hefur verið að
hönnun áltæknigarðsins
undanfarin tvö ár, en verkefnið var fyrst
kynnt opinberlega á málþingi um framtíð
Suðurlands á Selfossi síðastliðinn föstudag.
Fyrirtæki í áltæknigarðinum munu fyrst
og fremst vera í fullvinnslu áls, en eins og
áður segir er gert ráð fyrir byggingu álvers
og mun stærð þess ráðast af orkuframboði.
Álverinu er svo ætlað að sjá fullvinnslufyr-
irtækjunum fyrir áli.
Orkan notuð í héraði
Í fréttatilkynningu frá Jóni Hjaltalín
Magnússyni, verkfræðingi og einum að-
standenda verkefnisins, kemur fram að í
tengslum við byggingu áltæknigarðsins sé
stefnt að uppbyggingu alþjóðlegrar náms-
brautar á háskólastigi á sviði málmtækni á
Selfossi. Er gert ráð fyrir því að rannsókn-
artæki fyrirtækjanna í áltæknigarðinum
muni nýtast fyrir þá kennslu og rannsóknir.
Einnig muni starfsemi í áltæknigarðinum
verða til þess að gerð stórskipahafnar í Þor-
lákshöfn verði flýtt.
Í fréttatilkynningunni segir að á mál-
þinginu hafi greinilega komið fram hjá
fundarmönnum að þeir vilji að orka á Suð-
urlandi verði í framtíðinni fyrst og fremst
notuð í héraði. Hafi margir fundarmanna
sagt að þeir hafi beðið í fjörutíu ár eftir öfl-
ugum orkunotanda á Suðurlandi eða síðan
Búrfellsvirkjun hafi verið byggð.
Að verkefninu eru sagðir standa innlend-
ir og erlendir fjárfestar, þeirra á meðal
stórfyrirtæki frá Kína og Japan auk banda-
rískra og evrópskra aðila í áliðnaði.
Álgarður
rísi í Þor-
lákshöfn
Jón Hjaltalín
Magnússon
Stefnt að byggingu 60
þúsund tonna álvers
GREINT var frá því í Morgunblaðinu í gær
að notendum mbl.is gæfist tækifæri til þess
að taka þátt í gagnvirku vefvarpsbloggi á
vef Morgunblaðsins.
Gagnvirknin var hins vegar ekki meiri en
svo að um aprílgabb var að ræða. Mbl.is
þakkar hins vegar fyrir jákvæð viðbrögð.
Gagnvirkt
aprílgabb
♦♦♦
ÞAÐ varð vorlegt í fjárhúsunum hjá Jónasi
Jónassyni, bónda á Héðinshöfða, um helgina
því þá fæddust fyrstu lömbin þegar ærin
Snjóka bar tveimur hrútum sl. laugardag.
Jónas hafði ekki átt von á fyrirmálslömbum,
en þegar hann lét ómskoða ærnar í vetur
kom í ljós að ærin var langt gengin. Þetta
kom þægilega á óvart því alltaf er gaman að
hafa líf í húsunum þegar fer að vora, en Jón-
ast segist ekki áður hafa fengið lömb í mars
í sínum búskap. Hrútar þessir eru frískir og
eru þegar farnir að leika sér. Þeir hafa verið
nefndir Kóngur og Prins enda má búast við
því að þeir verið stórir og tignarlegir í
haust.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Fyrirmálshrútar á Héðinshöfða
PÁLMI Haraldsson, fjárfestir og
einn eigenda flugfélagsins Iceland
Express, segir það fjarri öllum
sanni að aðild sín og Jóhannesar
Kristjánssonar að félaginu á sínum
tíma hafi verið með þeim hætti sem
fyrrverandi forsvarsmenn hafa lýst
í fjölmiðlum í kjölfar úrskurðar
Samkeppniseftirlitsins.
Pálmi segir tilraunir stofnenda
Iceland Express til að upphefja
sjálfa sig á kostnað nýrra eigenda
félagsins ekki taka nokkru tali og
ljóst sé að fyrrverandi forsvars-
menn hafi verið reynslulausir ein-
staklingar í forstjóraleik án þess að
hafa svo mikið sem lágmarkskunn-
áttu í flugfélagarekstri.
„Af hálfu stofnenda IE er ekki
nema hálf sagan sögð,“ segir Pálmi.
„Við borguðum
15 milljónir
króna fyrir
ákveðinn hluta
af bréfunum í
IE en þess er
hins vegar í
engu getið af
hálfu þessara
manna að sam-
hliða jukum við
hlutaféð í IE um 250 milljónir króna
með beinhörðum peningum úr okk-
ar eigin sjóðum. Við gerðum þetta
vegna þess að þegar þarna var kom-
ið sögu rambaði IE á barmi gjald-
þrots og hefði ekki þraukað út vik-
una. Ástandið var svo alvarlegt í
félaginu að vörsluskattarnir voru í
vanskilum upp á tugi milljóna kr. og
voru greiddir með peningum okkar
í hlutafjáraukningunni. En sjaldan
launar kálfur ofeldi og ég fullyrði að
ef við Jóhannes hefðum ekki komið
til skjalanna hefðu fyrrverandi
stjórnendur ÍE lent í fangelsi og
tugir þúsunda Íslendinga tapað
flugmiðum sínum, því IE lifði ein-
göngu á fyrirframgreiddum tekj-
um. Stjórnendur félagsins höfðu
aldrei skotið nema örfáum krónum
til hliðar í hlutafé.
Félaginu blæddi óskaplega
Vandamál IE á þessum tíma-
punkti voru stóralvarleg og í þokka-
bót voru stjórnendur félagsins í for-
stjóraleik. Þeir voru alveg
reynslulausir, höfðu ekki minnstu
hugmynd um hvað þeir voru að
gera. Þeir sköpuðu gífurlegt of-
framboð á flugferðum sem gerði
það að verkum að félaginu blæddi
óskaplega. Og í upphafi ársins 2004
ráku þeir Jóhannes Georgsson, sem
var sá eini í hópnum sem hafði vit á
flugrekstri. Það sem gerði það að
verkum að okkur Jóhannesi Krist-
jánssyni tókst að snúa rekstrinum
við var að okkur tókst að láta leigu-
flugfélagið Astraeus taka aðra flug-
vél IE umsvifalaust úr umferð og
setja hana í verkefni í Asíu. Við
minnkuðum flugframboð IE strax
um 50% og tókst þannig að skrúfa
niður hið geysilega tap sem var á fé-
laginu. Okkur tókst að endursemja
við alla birgja félagsins og lækka
rekstrarkostnað IE um tugi millj-
óna.“
Voru í forstjóraleik og án
allrar reynslu í flugrekstri
Pálmi Haraldsson
Pálmi Haraldsson fjárfestir um fyrrverandi forsvarsmenn Iceland Express
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FYRSTU niðurstöður rannsókna
vísindamanna frá Bretlandi og Kan-
ada, sem byggðar eru á tilraunum
með nýja meðferð við astma, eru
taldar geta gefið mjög góða raun og
bætt líðan fólks sem þjáist af astma.
Rannsóknirnar leiddu í ljós að á
heilu ári eftir meðferðina dró veru-
lega úr einkennum astma hjá sjúk-
lingum, þörf þeirra fyrir lyf minnk-
aði verulega og astmaköstum
fækkaði.
Niðurstöðurnar voru birtar í síð-
ustu viku í vísindatímaritinu New
England Journal of Medicine.
Sigurður Þór Sigurðarson, sér-
fræðingur í lungnalækningum, segir
að um sé að ræða
frumniðurstöður
úr rannsókn. Þó
að hún sé fremur
lítil sé hún engu
að síður mjög
spennandi og þær
niðurstöður sem
nú liggja fyrir lofi
mjög góðu.
Sjúklingar
þurfa að gangast
undir berkjuspeglun í nokkur skipti
þegar þessari meðferð er beitt en
hún felst í að notaðar eru rafsegul-
bylgjur til að hita berkjuvegginn í
um það bil 65 gráður. Við það þynn-
ast vöðvar og þroti í berkjuveggnum
minnkar.
„Þetta leiðir til þess að einkenni
astmasjúklinga minnka og þeir nota
minna af lyfjum. Þetta er alveg nýtt
af nálinni og kemur því ekki í al-
menna notkun alveg á næstunni en
þessar frumniðurstöður virðast lofa
mjög góðu. Þetta eru mjög spenn-
andi rannsóknir,“ segir hann.
„Þetta er frekar fyrir þá sem eru
með meðalslæman eða slæman
astma. Það er ekki mjög stór hópur
hér á landi en fyrir þá getur þetta
skipt verulegu máli. Ennþá er þetta
á tilraunastigi en lofar góðu,“ bætir
hann við.
Í frásögn af rannsókninni kemur
fram að 112 sjúklingar gengust
þrisvar sinnum undir meðferðina
með þriggja vikna millibili en með-
ferðin stendur yfir í um klukkustund
í hvert skipti. Haft er eftir Neil
Thomson, prófessor í öndunarfæra-
sjúkdómum við Gartnavel-sjúkra-
húsið í Glasgow, að niðurstöðurnar
staðfesti fyrri vitneskju og veki von-
ir um að meðferðin verði tiltæk öll-
um sjúklingum, sem fá astmaein-
kenni þrátt fyrir lyfjanotkun.
Betri líðan og minni lyfjaþörf
Vísindamenn kynna niðurstöður nýrrar meðferðar við astma sem lofar mjög
góðu Þörf sjúklinga fyrir lyf minnkaði verulega og astmaköstum fækkaði
Í HNOTSKURN
»Talið er að allt að 5% Ís-lendinga séu með astma.
»Astmi er mun algengarihjá börnum en fullorðnum
eða 18–28% eftir aldri skv.
upplýsingum landlæknis.
»Rannsóknum á nýrri með-ferð verður haldið áfram. Sigurður Þór Sigurðarson
NÝ aðalræðisskrifstofa Íslands í
Færeyjum var opnuð í gær á veg-
um utanríkisráðuneytisins og hefur
Eiður Guðnason tekið við starfi að-
alræðismanns. Auk hans starfar
staðarráðinn ritari á skrifstofunni.
Skrifstofan er til húsa í svo-
nefndri Fógetastofu í miðbæ Þórs-
hafnar en húsið var byggt árið
1770.
Húsið stendur alveg niðri við
höfnina í miðbæ Þórshafnar. Um er
að ræða 150 fermetra hús en þar af
eru um 40 fermetrar undir súð. Í
næsta nágrenni eru stjórnarbygg-
ingar Færeyinga.
Í tilefni dagsins var efnt til mót-
töku í Norræna húsinu í Þórshöfn
og síðan var opið hús á aðalræð-
isskrifstofunni þar sem boðið var
upp á veitingar, s.s. íslenskar klein-
ur og pönnukökur.
Opnað í
Færeyjum