Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Félagslíf MÍMIR 6007040219 III I.O.O.F. 19  187428  I.O.O.F. 10  187428 HEKLA 6007040219 IV/V GIMLI 6007040219 I Raðauglýsingar 569 1100 Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli háð mati á umhverfis- áhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum. nr. 106/2000 m.s.br. Raflýsing þjóðvega nr. 38 og 39 um Þrengsli að Þorlákshöfn í Sveitarfélaginu Ölfusi Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulags- stofnunar: www.skipulag.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 2. maí 2007. Skipulagsstofnun. Tónlistarkennarar Við Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar vantar tónlistarkennara til starfa frá og með næsta skólaári. Helst er um að ræða kennslu á hljómborðshljóðfæri, tréblásturshljóðfæri og strengjahljóðfæri en allt kemur til greina. Við Tónlistarskólann eru u.þ.b. 80 nemendur og er kennt á tveimur stöðum. Mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og eru spennandi tímar framundan. Nýtt húsnæði skólans á Fáskrúðsfirði er í byggingu en næsta skólaár munu allir skólarnir á Fáskrúðsfirði verða undir sama þaki og á Stöðvarfirði eru grunnskólinn og tónlistarskólinn í sama húsi. Kennsla við tónlistarskólann fer fram að hluta til á skólatíma grunnskóla. Einnig er möguleiki á hálfri stöðu organista við Kolfreyjustaðarprestakall fyrir viðkomandi kennara. Laun eru samkvæmt kjarasamningum LN og FT. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Tónlistarskólans, Valdimar Másson, í símum 475 9035/663 4401 og í tölvupósti. Netfangið er tonlist@austurbyggd.is. Járnamaður Vanan járnamann vantar verkefni. Stór sem smá. Upplýsingar í síma 898 9475. Atvinnuauglýsingar Fasteignasala Móttaka – Skjalavinnsla Þekkt og vel kynnt fasteignasala óskar eftir að ráða starfskraft í móttöku, símavörslu, skjala- vinnslu o.fl. Ef þú ert hress, hefur mikla þjónustulund og langar að starfa með góðum hópi fólks, þá sendu okkur umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf á augl.deild Mbl. eða á box@mbl.is merkta: ,,Fasteignasala - 19760’’. Raðauglýsingar sími 569 1100 ✝ Þórunn IngunnÞorsteinsdóttir fæddist á Dalvík 18. júlí 1926. Hún lést á Landspítalanum 22. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristrún Sig- ríður Friðbjörns- dóttir og Þorsteinn Antonsson. Systkini hennar voru Þór- unn, Skafti, Hjalti, Freyja og Hólm- fríður en þau eru öll látin. Hinn 14. júní 1961 giftist Þórunn eftirlifandi maka sínum Þorsteini W. Guðmundssyni frá Flatey á Skjálfanda, f. 15. desember 1927. Foreldrar hans voru Þuríður Elísa Pálsdóttir og Guðmundur Jón- asson. Börn Þórunnar og Þor- steins eru: 1) Freyja María, sonur hennar er Ásberg Sigurðsson. 2) Sveinn, maki Bylgja Þorvarðardóttir, sonur þeirra er Guð- mundur Aðalsteinn, börn Sveins frá fyrra hjónabandi eru a) Þórir Ingi, b) Andri, c) Erna María. 3) Þuríður El- ísa, maki Kolbeinn Ingi Birgisson, börn þeirra eru a) Þor- steinn Wilhelm, b) Þórey Fjóla, c) Þór- ólfur. 4) Kristrún Sigríður, maki Sig- urjón Þorvaldur Árnason, synir þeirra eru a) Þorsteinn Wilhelm, b) Þorvaldur Wilhelm. Barna- barnabörnin voru orðin þrjú. Þórunn var húsmóðir mestan hluta ævi sinnar. Útför Þórunnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. „Sæl vinan. Komdu og fáðu þér eitthvað að borða. Þú ert dálítið horuð þykir mér.“ Þannig hljóðaði fyrsta kveðjan sem Þórunn Ingunn Þorsteinsdótt- ir, húsmóðirin í Búðargerði 10, lét falla til feiminnar fimmtán ára tán- ingsstúlku vordag einn árið 1979. Stúlkan hafði verið að draga sig saman við soninn á heimilinu og þetta voru hennar fyrstu kynni af Þórunni og fjölskyldunni. Þau kynnin voru í líkingu við það sem síðan fór í hönd: Jákvæð, örvandi og uppbyggileg. Leiðir sonarins og hinnar gestkomandi lágu síðan lengi saman og af varð hjónaband og börn og ótal komur í Búðargerð- ið. Allir sem þangað komu, háir sem lágir, ættingjar, vinir, börn og ást- fangnir unglingar fundu sig vel- komna frá fyrstu stundu þar á bæ. Heimilisbragurinn hjá þeim Þór- unni og Steina eiginmanni hennar einkenndist af gestrisni og gleði. Margir áttu leið um, börnin með alla sína vini, fólkið þeirra að norð- an og fleiri og fleiri. Í Búðargerðinu hjá Þórunni var alltaf pláss og hjartahlýja fyrir hvern gest. Þór- unn átti svo sannarlega ráð í poka- horninu til að láta öllum líða vel. Hún gaf óspart af sjálfri sér og miðlaði öðrum. Gleðin og gamanið var í fyrirrúmi. Aldrei hugsaði hún um eigin hag fyrr en allra síðast. Þegar barnabörnin fóru að koma var amman í Búðargerði auðvitað til staðar og bar þau á höndum sér í blíðu og stríðu. Hún var líka ein- faldlega besta tengdamamma í heimi. Já. Hjartað hennar Þórunnar var sannarlega stórt og hlýtt. Það eru forréttindi að fá kynnast slíkri manneskju. Blessuð sé minning Þórunnar. Andrea Laufey Jónsdóttir. Þórunn föðursystir mín er látin. Við fráfall hennar leitar á hugann fjöldi góðra minninga. Minningar um glaðlynda og umfram allt um- hyggjusama frænku sem var okkur í Efstakotsfjölskyldunni afskaplega kær. Þórunn fæddist í Efstakoti á Dal- vík árið 1926. Hún var yngst fimm systkina sem jafnan voru kennd við Efstakot. Þó að hún hafi mestan hluta ævinnar búið í Reykjavík og nú síðustu ár í Kópavogi þá leit hún alltaf á sig sem Dalvíking. Þar lágu ræturnar og þangað leitaði jafnan hugurinn. Það var sérstakur hljómur í röddinni þegar hún talaði um upp- vaxtarárin í Efstakoti, hvernig hún naut lífsins í ástríkri fjölskyldu og í nánum samskiptum við góða vini og nágranna í Miðkoti og Hjalla. Ef- laust hafði þetta umhverfi mótandi áhrif á persónu hennar, persónu sem á margan hátt var einstök. Þórunni einkenndi bjartsýni, hjartahlýja og jákvæðni. Í Reykjavík stofnað hún heimili á Tómasarhaga 17 ásamt manni sín- um Þorsteini Guðmundssyni. Það hefur verið í mörg horn að líta á heimilinu á meðan börnin voru að vaxa úr grasi. Þrátt fyrir það stóð heimili Þórunnar og Steina alltaf opið ættingjum og vinum af lands- byggðinni. Við systkinabörnin hennar sem ólumst upp á Dalvík áttum vísan samastað hjá Þórunni og Steina og sum okkar dvöldu á heimili þeirra um lengri eða skemmri tíma. Þegar ég kom suður til Reykja- víkur til náms og vinnu var mér tekið opnum örmum eins og öðrum úr fjölskyldunni. Það var gott að setjast niður í litla eldhúsinu á Tómasarhaganum og ræða mál líð- andi stundar, skiptast á fréttum frá Dalvík eða „að heiman“ eins og Þórunn sagði alltaf þegar hún talaði um æskustöðvarnar. Þegar ég síðar eignaðist dætur mínar var Þórunn ætíð boðin og bú- in að að létta undir og gæta þeirra ef á þurfti að halda. Það voru ekki bara dætur mínar sem nutu umönn- unar Þórunnar á heimili hennar. Hennar nutu mörg önnur börn svo og hennar eigin barnabörn eftir að þau fæddust. Það var mér lærdómsríkt að fylgjast með því hvernig Þórunn umgekkst börnin. Það var sama hvort hún var að tala við þau eða um þau, alltaf gerði hún það af hlýju, nærgætni og virðingu. Hún þurfti engin námskeið í uppeldis- aðferðum eða ráðleggingar fræði- manna, henni var þetta eðlilegt og í blóð borið. Eftir að Þórunn eignaðist börnin fjögur var heimilið hennar aðal- starfsvettvangur. Hún var um- hyggjusöm og kærleiksrík móðir og síðar amma, svo lengi sem heilsa hennar leyfði. Síðustu árin átti Þórunn við heilsubrest að stríða og þá sem fyrr var það hennar létta lund, bjartsýni og jákvæðni sem fleytti henni yfir hvern hjallann á fætur öðrum. Við fráfall Þórunnar föðursystur eru þau Efstakotssystkin öll fallin frá. Það markar tímamót. Það verða kaflaskil hjá okkur afkomendum þeirra. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Steina, Freyju Maríu, Sveini, El- ísu og Rúnu, tengdabörnum, barna- börnum og langömmubörnum Þór- unnar votta ég samúð mína. Kristrún Hjalta. Nú þegar kveðjustundin er runn- in upp langar mig til að kveðja kæra frænku og vinkonu og rifja eitthvað upp. Við höfum átt samleið frá því við komum í þennan heim. Aðeins nokkur ár hafa aðskilið okk- ur. Við erum báðar fæddar í Efsta- koti við Dalvík þar sem amma okk- ar og afi bjuggu og aðeins tveir mánuðir eru á milli okkar. Mæður okkar voru systur. Þórunn lauk sinni hefðbundnu skólagöngu á Dal- vík sem var þá framhaldsskóli. Síð- an lá leið hennar í Húsmæðraskól- ann á Laugalandi í Eyjafirði. Þar naut hún sín vel, kom frá stóru og góðu heimili og bætti þar við sig miklu, bæði til munns og handar. Það þótti sjálfsagt í þá daga að senda dætur sínar í slíka skóla svo þær gætu orðið góðar húsmæður. Þórunn giftist þann 14. júní 1961 Þorsteini W. Guðmundssyni frá Flatey á Skjálfanda. Þau stofnuðu heimili í Reykjavík og hafa búið þar æ síðan. Hún var kona sem ræktaði garðinn sinn, allt mannlegt skipti máli, umhyggja og alúð voru hennar einkenni. Sérstak- lega var hún róleg og glaðvær og hafði góð áhrif á alla sem í kringum hana voru. Börnin, barnabörnin og langömmubörnin voru henni allt. Hún hafði mjög gaman af tónlist og hlustaði oft á góða tónlist, já við tókum oft lagið saman. Minning- arnar hrannast upp í huga mínum frá bernsku okkar. Þórunn ferðað- ist ekki mikið um dagana en hafði afskaplega gaman af þegar farið var í ferðalag. Hún var ekta nátt- úrubarn, elskaði blómin, trén og ferska loftið úti í náttúrunni. Eina slíka ferð fórum við upp í Borg- arfjörð í viku tíma. Sú ferð var okk- ur ógleymanleg. Eigi má sköpum renna, glíma Þórunnar við sjúkdóm sinn einkenndist af kjarki og dugn- aði, hún kvartaði aldrei. Eftir stendur dýrmæt minning sem við þökkum fyrir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Kveð Þórunni með þökk og virð- ingu og bið fjölskyldu hennar guðs- blessunar, Þín, Jóna. Þórunn Ingunn Þorsteinsdóttir Elsku amma, við kveðjum þig með bæninni sem þú kenndir mömmu og mamma kennir okkur nú: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þínir, Þorsteinn Wilhelm og Þorvaldur Wilhelm. HINSTA KVEÐJA Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.