Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
og þetta verður unnið í sumar og
fram á haust, jafnhliða því sem við
framleiðum ál.“ Um það hvenær
fari að skipta Fjarðaál máli að fá
umsamda raforku frá Lands-
virkjun, segir Tómas Már að fyr-
irtækin hafi unnið náið saman og
Alcoa lengi vitað að stefndi í að
seinkun yrði á rafmagninu frá
Kárahnjúkum. „Við höfum miðað
áætlanir okkar við það, en undir
lok sumars munum við örugglega
verða farin að ókyrrast ef ekki
verður komið rafmagn. Ég treysti
því þó að þetta gangi allt saman.“
Hann telur ekki að koma muni til
„Hafnarfjarðarkosninga“ um
stækkun álvers í Reyðarfirði, ál-
verið hafi ekki verið hugsað þann-
ig og einingin sé hagkvæm eins og
hún sé. „Þetta er nýjasta og full-
komnasta álver heimsins í dag og
við vonum að álverið hér verði lík-
an fyrir aðra til að kynna sér.“
Engar efasemdir hjá Alcoa
Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri
Alcoa Corp., lýsti því þegar
fulltrúar Alcoa komu fyrir fimm
árum til Austfjarða í fyrsta sinn
og fóru um svæðið í fylgd Smára
Geirssonar. Hann hafi horft fast á
þá Alcoa-menn og sagt þeim að
álverið myndi rísa.
„Sannfæringarkraftur hans var
slíkur að sendinefndin lét sér ekki
til hugar koma að draga þetta
nokkru sinni efa og enginn hafði
hugrekki til að láta í ljósi efa-
semdir um verkefnið. Sannfæring
Smára varð holdgerving þeirrar
samstöðu og samstarfsvilja sem
samfélagið allt og stjórnvöld
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
ALCOA Fjarðaál fagnaði upphafi
starfsemi nýs álvers á Reyðarfirði
á laugardag og bauð starfsmenn
sína velkomna til starfa.
Hátíðin var haldin í öðrum ker-
skála álversins og sóttu hana á
fimmta hundrað manns, þ.á m.
Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Al-
coa Corp., Geir H. Haarde for-
sætisráðherra, Jón Sigurðsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og
Valgerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra. Þau Geir og Valgerður
klipptu á borða í kerskálanum
ásamt Hildi Einarsdóttur og Sig-
urði Ólafssyni, starfsmönnum Al-
coa Fjarðaáls, en fyrsta kerið
verður gangsett nk. laugardag.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaáls, vitnaði í ræðu
sinni í þau orð Sörens Kirkegaard
að lífinu verði að lifa með því að
horfa fram, en það skiljist ekki
nema með því að horfa aftur. Þeg-
ar Fjarðaál byrji framleiðslu áls á
Reyðarfirði og hátt í þrjú hundruð
manns hefji störf, minnist menn
þess þegar Austfirðingar horfðu
fram á versnandi framtíðarhorfur
með dofnandi athafnalífi, fólks-
flótta og fækkandi störfum. Sá
tími heyri nú sögunni til. „Þús-
undir manna hafa komið að þess-
ari uppbyggingu og margir um
langan veg. Sambúð þeirra við
heimamenn hefur verið með ágæt-
um og verktakinn okkar, Bechtel,
staðið sig vel. Árangur þeirra í ör-
yggismálum hefur vakið verð-
skuldaða athygli langt út fyrir
landsteinana. Það kemur í okkar
hlut að taka við keflinu og halda
áfram að bæta okkur í umhverfis-
og öryggismálum á hverjum
degi,“ sagði Tómas Már. Hann
segir þó ýmislegt enn eftir í ál-
versframkvæmdinni. „Eftir er
m.a. að ljúka seinni hluta kerskál-
anna og síðara reykhreinsivirkinu
sýndu í framhaldinu,“ sagði Reit-
an.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra sagði hið nýja álver ekki
einungis vera mikilvægt fyrir
Austfirðinga heldur einnig þjóð-
arbúið allt og ætti eftir að skila
því drjúgum arði. Valgerður
Sverrisdóttir utanríkisráðherra
sagði mikla ástæðu til að gleðjast
og verkefnið hefði gengið framar
björtustu vonum. Undir það tók
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, og sagði verk-
efnið margfaldast út í samfélagið
og hafa geysileg áhrif langt út fyr-
ir sig. „Að auka útflutningstekjur
skiptir mjög miklu máli þar sem
við höfum verið að fást við við-
skiptahalla,“ sagði Valgerður.
„Grunnþátturinn í þessu öllu er að
skapa meiri verðmæti í landinu.
Við erum hreint ekki með öll egg-
in í sömu körfunni með því að
bæta þessari sterku atvinnugrein
inn í okkar litróf. Nú nálgast að
áliðnaðurinn sé fjórðungur
útflutningstekna og fer að slaga
upp í hinn mikilvæga sjávarútveg
okkar.“
Nýr tími
runninn upp á
Austurlandi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Áfangi Sigurður Ólafsson, Alcoa Fjarðaáli, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra, Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra og Hildur Einarsdóttir hjá Alcoa Fjarðaáli klipptu á borða til marks um upphaf starfsemi álversins.
Bjartsýnn Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls, sagði mikilvægi hins
nýja álvers ekki ljóst nema litið væri aftur til erfiðs ástands eystra.
Í HNOTSKURN
»Upphafi starfsemi hinsnýja 346 þúsund tonna ál-
vers Alcoa Fjarðaáls á Reyð-
arfirði var fagnað af starfs-
fólki og embættismönnum um
helgina.
»Álverið er hið fyrsta semAlcoa byggir í tvo áratugi
og telst flaggskip fyrirtæk-
isins, búið nýjasta og besta
búnaði sem völ er á.
»Stjórnendur Alcoa Fjarða-áls og íslensk stjórnvöld
þakka uppbyggingu álversins
þau miklu umskipti sem orðið
hafa á Austurlandi.
»Fyrsta álið verður brættnk. laugardag á Reyð-
arfirði.
Áliðnaðurinn nálgast að verða fjórða
stærsta útflutningsgreinin á Íslandi
Knáir Starfsmenn og makar fögn-
uðu starfsemi í nýju álveri.
STÓRIÐJA á Reyðarfirði á sér langan að-
draganda. Unnið var að atvinnuþróun á Aust-
urlandi í áratugi og ýmsar leiðir og hug-
myndir kannaðar, m.a. kísilmálmverksmiðja.
Árið 1999 kom viljayfirlýsing frá Norsk
Hydro um að byggja 422 þúsund tonna álver
á Reyðarfirði og átti að byggja það í áföngum
ásamt rafskautaverksmiðju. Umhverfismat
fyrir það verkefni var samþykkt en gerð
málamiðlun með þá virkjun sem skyldi út-
vega stóriðjunni orku. Ákveðið var að Eyja-
bökkum skyldi hlíft og farið í Kárahnjúka-
virkjun í staðinn, sem gat ekki framleitt
nægjanlegt rafmagn til slíkrar stórverk-
smiðju sem var í burðarliðnum. Í mars 2002
dró Norsk Hydro sig út úr verkefninu. Þáver-
andi iðnaðarráðherra, Valgerður Sverris-
dóttir, hafði forgöngu um að ræða við önnur
fyrirtæki og í kjölfarið kom Alcoa inn í mynd-
ina. Viljayfirlýsing um byggingu álvers var
undirrituð af íslenskum stjórnvöldum og Al-
coa í júlí 2002 og 2003 samþykkti Alþingi lög
um byggingu 346 þúsund tonna álvers í Reyð-
arfirði. Undirbúningur og hönnun álversins
hófst í júlí 2003, byggingarframkvæmdir
byrjuðu seint á árinu 2005 og lýkur í enda
ársins. Strax var ákveðið að setja fram-
kvæmdina ekki í útboð, heldur fól Alcoa
Bechtel, sem er eitt stærsta og elsta verk-
takafyrirtæki í heimi, vinnuna. Bechtel hefur
fengið fjölmarga íslenska undirverktaka til
samstarfs við álversbygginguna, en fyrst og
fremst samsteypuna HRV, þ.e. Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Rafhönnun
og Hönnun. HRV tekur nú þátt í að byggja
álver í Noregi í kjölfar reynslu sinnar af
Fjarðaálsverkefninu.
Byggingarkostnaður álversins í Reyð-
arfirði er áætlaður 1.295 milljarðar Banda-
ríkjadala og um þriðjungur af bygging-
arkostnaðinum fellur til á Íslandi og
Íslendingar leggja til um þriðjung af heildar-
vinnustundum á framkvæmdasvæðinu.
Álverið er byggt á Hrauni, á landi þriggja
jarða sem komnar voru í eyði, samtals um 100
hekturum. Svæðið er nokkuð erfitt, m.a.
vegna hallandi klappar og kallaði á gríðarlega
jarðvegsflutninga. Suðurverk, einn af und-
irverktökum Bechtel, stóð að jarðvegsflutn-
ingum og flutti rúmlega 6,8 milljónir rúm-
metra efnis á svæðinu, sem er mjög svipað og
það efnismagn sem flutt var til á virkj-
unarsvæðinu við Kárahnjúka. Á álverslóðinni
var framkvæmd stærsta manngerða spreng-
ing Íslandssögunnar; 28 tonn af dýnamíti
voru notuð til að losa 60 þúsund rúmmetra af
efni. 155 þúsund rúmmetrar af steinsteypu
hafa farið í verkið, 25 þúsund tonn af burð-
arstáli, 77 km af pípulögnum og 1350 km af
raflögnum. Byggingar eru klæddar með 310
þúsund rúmmetrum af álklæðningu frá Alcoa.
Kerskálarnir tveir eru lengstu byggingar á
landinu, 1.100 metrar hvor. Í hvorum verða
168 ker, alls 336 talsins. Í kerskálum er allt
að verða tilbúið fyrir gangsetningu á fyrsta
kerinu nk. laugardag. Gangsetning mun ger-
ast í áföngum og öll kerin 336 eiga að vera
komin í notkun í árslok. Fyrsti súrálsfarm-
urinn kom til Alcoa Fjarðaáls fyrir nokkrum
dögum. Hann dugar verksmiðjunni í 2–3
mánuði í byrjun, en þegar verið er í fullum
rekstri kemur súrálsflutningaskip á u.þ.b.
þriggja vikna fresti í Mjóeyrarhöfn við álver-
ið. Rafskautaverksmiðja álversins er í Noregi
og verða rafskaut flutt fullbúin til landsins,
180 þúsund tonn á ári. 90% álframleiðslunnar
verða álkaplar til rafmagnsflutninga, annað
fer í álbarra, bílgrindur o.fl. Reiknað er með
að 900–950 tonn af áli verði til á sólarhring.
Álið verður flutt út um Mjóeyrarhöfn til við-
skiptavina í Evrópu og Bandaríkjanna.
Nú er búið að ráða 270 starfsmenn og 230
þar af komnir til starfa. 2500 umsóknir hafa
borist. Um 60% fólksins er af Austurlandi og
33% konur. Stór hluti starfsfólksins hefur
hlotið þjálfun í öðrum álverum Alcoa, einkum
í Kanada og um 60 erlendir sérfræðingar að-
stoða við gangsetninguna.
2.500 starfs-
umsóknir
Stiklað á stóru í aðdraganda og uppbyggingu
álvers á Reyðarfirði sem nú er að hefja rekstur
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Heildarmynd Álverið hefur nú tekið á sig nokkuð endanlega mynd, þó enn sé ýmislegt eftir.
Það er þó einkum innanhúss og eins er allur frágangur eftir á nánasta umhverfi.