Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VAR VALINN BESTA MYND
ÁRSINS Í FRAKKLANDI
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
/ KEFLAVÍK
MEET THE ROBINSONS kl. 5:50 LEYFÐ
SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára
/ AKUREYRI
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
300 kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
„FYNDNASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS“ - GQ
eeee
VJV, TOPP5.IS
AUDREY TAUTOU
eee
- S.V., Mbl
eee
- K.H.H., Fbl
MISS POTTER kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 7 LEYFÐ
THE GOOD GERMAN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
300 kl. 9 B.i. 16 ára
LADY CHATTERLEY kl. 5:40 - 9
TELL NO ONE (NE LE DIS À PERSONNE) kl. 8
HORS DE PRIX kl. 10:20
PARIS, JE T'AIME kl. 5:40
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
GAD ELMALEH
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓSÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ eee
Ó.H.T. RÁS2
BRESKA gamanteymið sem stóð að
gerð sjónvarpsþáttanna Spaced og
kvikmynda á borð við hina bráð-
snjöllu hrollvekjuparódíu Shaun of
the Dead er nú mætt til leiks á ný
með löggugamanmyndina Heitt í
kolunum (Hot Fuzz). Hér eru hefðir
og venjur spennuhefðarinnar teygð-
ar og togaðar í gamanmynd um ofur-
samviskusaman lögreglumann sem
fer svo í taugarnar á samstarfs-
mönnum sínum í London að honum
er „sparkað“ upp í embætti lög-
reglustjóra í afskekktum smábæ.
Lífið í bænum reynist þó allt annað
en rólegt, enda hefur raðmorðingi
nýhafið þar störf. Þeir Simon Pegg,
sem fer með hlutverk ofurlöggunnar
Nicholas Angel, og Nick Frost, sem
leikur dyggan aðstoðarmann hans,
fara á kostum í þessari snjöllu gam-
anádeilu á klisjur sem sóttar eru frá
öllu til Agöthu Christie til banda-
rískra hasarmynda. En paródían
felst ekki aðeins í skemmtilegum út-
úrsnúningi á handritaklisjum. Stór
hluti spaugsins beinist að beitingu
kvikmyndamiðilsins, og tískufyr-
irbæra á borð við hraða klippingu,
hæga myndspilun og ýkt áhrifahljóð.
Þar gengur spaugið raunar svo langt
að útkoman verður á stundum snilld-
arleg könnun á þanþoli kvikmynda-
legra frásagnaraðferða. Þá er sögu-
framvindan alger hrærigrautur sem
stigmagnast eftir því sem á líður, en
missir þó örlítið frumleikakraftinn á
lokasprettinum. Þetta er fersk og
skemmtileg gamanmynd engu að
síður.
Löggumyndin
teygð og toguð
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó og
Borgarbíó Akureyri
Leikstjórn: Edgar Wright. Aðalhlutverk:
Simon Pegg, Nick Frost, Jim Broadbent,
Timothy Dalton o.fl. Bretland, 121 mín.
Heitt í kolunum (Hot Fuzz) Hot Fuzz „Fersk og skemmtileg gamanmynd.“
Heiða Jóhannsdóttir
Það var allt að gerast um helgina, Mús-íktilraunir í blússandi svingi á laug-ardagskvöldinu og auk þess AME
kvöld á NASA, færeyskt tónlistarkvöld þar
sem fram komu fimm af frambærilegustu
tónlistarmönnum eyjanna. Greinarhöfundur
fór því á harða spretti yfir á NASA eftir að
skyldustörfum á Tilraununum lauk, úr ís-
lenskum hljóðheimi yfir í færeyskan.
Ég hef verið svo heppinn að fá að kynnastfæreyskri tónlist og þeim sem hana
stunda vel og rækilega undanfarinn fimm ár.
Heppinn segi ég, því að eftir mörgu er að
slægjast og ég er alltaf jafn hissa á skeyting-
arleysi Íslendinga í garð þessa systkina okk-
ar á tónlistarsviðinu. Það er eins og að það
þurfi að halda í eitthvað sem er minna og fá-
skrúðugra en hér, eitthvað sem hægt er að
hlæja að í stað þess að einblína fremur á þá
staðreynd að hér er um tvo litla grjóthnull-
unga í ballarhafi að ræða, tvær smáþjóðir
sem eiga meira sameiginlegt en ekki.
En samt, þetta er að breytast, a.m.k. hvað
tónlistina varðar og þetta AME-kvöld var til
vitnis um þá þróun. Það hefur verið jafn en
hægur stígandi í þessu, t.d. var fremur dræm
mæting á AME-kvöldið í fyrra en nú var hús-
ið pakkað.
Brandur Enni, barnastjarnan fyrrverandi,tróð upp með nýtt efni af væntanlegri
plötu og þá lék Teitur ásamt íslenskri
strengjasveit. Teitur er sá færeyski tónlist-
armaður sem hefur náð „lengst“ á al-
þjóðavettvangi, og keyrir þannig fram úr Ei-
vöru „okkar“. Eivör er hins vegar að verða
allstór á Norðurlöndum og náði hún, að
vanda, að heilla alla viðstadda upp úr skónum
með leik sínum og söng. Ég held að ég hafi
aldrei fyrirhitt jafn mikið náttúrubarn í tón-
list og hana. Högni Lisberg sté næst á svið
ásamt hljómsveit. Önnur plata hans, Morning
Dew, er hreint stórgóð en lög af henni hljóm-
uðu nokkuð á Rás 2 á síðasta ári. Eins og með
svo marga færeyska tónlistarmenn er flæðið
taumlaust og „fílingurinn“ eitthvað svo sjálf-
sprottinn, líkt og ekkert sé haft fyrir þessu.
Högni og co voru í góðu stuði og náðu að
hrífa fólk með sér. Gestir, ein besta rokksveit
Færeyja í dag, luku svo kvöldinu með sínu
dramaskotna rokki, og voru studdir tveimur
strengjaleikurum.
Þetta var „fínur tónleikur“ á NASA, og égvona einlæglega að AME-kvöldin verði
að reglubundnum viðburði. En um leið vil ég
líta á þetta sem eins konar upphaf að frekara
tónaflæði á milli landanna; færeyskar hljóm-
sveitir verða að koma oftar hingað yfir og ís-
lenskar hljómsveitir, ekki síst, verða að fara í
ríkari mæli út í eyjarnar. Treystið mér, það
er eitthvað sem þið eigið ekki eftir að sjá eft-
ir. Þess fyrir utan þarf færeysk tónlist að
verða sýnilegri í hérlendum plötubúðum. Það
er sem sagt margt óunnið í þessum efnum
ennþá en um leið eru ýmis merki á lofti um að
við séum á réttri leið. Þannig að … ég er
nokk vonbjartur á þetta allt saman … og
hmmm...já … frjálsar Færeyjar!
„Fínur tónleikur“
Morgunblaðið/Eggert
Heitur „Teitur er sá færeyski tónlistarmaður sem hefur náð „lengst“ á alþjóðavettvangi, og
keyrir þannig fram úr Eivöru „okkar“. “
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
»En um leið vil ég líta á þettasem eins konar upphaf að
frekara tónaflæði á milli land-
anna; færeyskar hljómsveitir
verða að koma oftar hingað yf-
ir og íslenskar hljómsveitir,
ekki síst, verða að fara í ríkari
mæli út í eyjarnar.
arnart@mbl.is