Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 TMNT kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára Scool for Scoundrels kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 Scool for Scoundrels LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 The Hitcher kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Epic Movie kl. 2, 4, 6 og 8 B.i. 7 ára The Number 23 kl. 10 B.i. 16 ára Night at the Museum kl. 3.20 og 5.40 Anna & skapsveiflurnar STUTTMYND kl. 2 Hot Fuzz kl. 5:45, 8 og 10:20 B.i. 16 ára TMNT kl. 6 og 8 B.i. 7 ára The Hitcher kl. 10 B.i. 16 ára - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir Frábær gamanmynd frá leikstjóra Old School með Billy Bob Thornton og Jon Heder úr Napoleon Dynamite. PÁSKAGAMANMYNDIN 2007 Of góður? Of heiðarlegur? Of mikill nörd? Hjálp er á leiðinni. Skóli þar sem góðir strákar eru gerðir slæmir! Lífið er leikur. Lærðu að lifa því. Toppmyndin í USA PÁSKAMYNDIN Í ÁR Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur í flottustu ævintýrastórmynd ársins Soðin skinka var fyrst á sviðog opnaði dagskrána meðstæl. Sveitinni hefur fariðmikið fram frá því hún braust áfram í undanúrslitum – greinilegt að sveitarmenn hafa lagt nótt við dag í æfingum og undirbún- ingi. Þeir virkuðu líka rólegri en í undanúrslitum og skemmtu sér greinilega betur fyrir vikið og um leið áheyrendum. Næsta sveit, Hip Razical, var aft- ur á móti ekki eins sannfærandi og í undanúrslitum. Sveitin lenti líka í smá hljómvandræðum í fyrsta lag- inu, en náði sér svo ágætlega á strik. Það spillti þó nokkuð fyrir henni að bassaleikarinn er ofvirkur á bass- ann, spilar allt of mikið, og fyrir vik- ið var annað lag hennar, sem er býsna gott, leðjukennt á kafla. Síð- asta lag sveitarinnar var best, mjög vel heppnað lag með fínni laglínu, sem fékk þó ekki að njóta sín sem skyldi. Ekki vantaði keyrsluna hjá The Portals, mikil sveifla og mikið stuð. Nú tókst vel það sem gekk illa í und- anúrslitum og kom í ljós sem menn hafði grunað að það var einmitt besta lag sveitarinnar. Lokalagið, „Portals-lagið“, var líka fínt. Blússveitin The Custom sigldi greiðlega í gegnum undanúrslitin og var enda öryggið uppmálað á sviðinu þetta kvöld. Lögin sem hún spilaði voru eitt samfellt ævintýri þar sem mikið var um hraðabreytingar og ýmis tilbrigði viðruð. Lögin runnu eiginlega saman í eina langloku og oftar en ekki varð maður ramm- villtur við það að hlusta. Hamagangurinn og spilagleðin hjá Gordon Riots hristu skemmti- lega upp í mannskapnum, enda hljómsveitin afskaplega skemmtileg og fjörug á sviði. Söngvari Gordon Riots er ótrúlega magnaður og fjöl- hæfur – í honum búa ótrúlega marg- ar raddir. Frábær hljómsveit og geysi-kraftmikil. Eftir fjörið var svo fínt að fá ró- legt progg í boði Loobyloo til að róa mannskapinn. Fyrsta lagið var þó ekki vel til þess fallið, hefði þurft að æfa það betur, en síðan gekk allt upp og lokalagið var hreint framúrskar- andi. Eftir stutt hlé birtust æringjarnir í <3 Svanhvít! á sviðinu og héldu áfram að dissa til hægri og vinstri, aðallega þó MH-inga. Þriðja lagið, viðbótarlagið sem sveitin spilaði, sýndi að hún hafði viðrað sitt besta efni í undanúrslitum og það dugði líka bærilega. Magnyl stóð sig með miklum ágætum í undanúrslitum, en eitt- Hart, harðara, harðast Úrslitakvöld Músíktilrauna haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, 31. mars Kraftur Shogun var ævintýralega þétt og fullt af fínum hugmyndum í gangi. Fékk líka fyrsta sætið. Stuð SkyReports spilaði grípandi fjörugt rokkað popp. Hamgangur Gordion Riots var afskaplega skemmtileg og fjörug á sviði og með magnaðan söngvara sem dró þá í þriðja sætið. Vandræði Hip Razical náði sér á strik eftir vandæði í upphafi. Eftir Árna Matthíasson arni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.