Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 14
MOHAMMAD Ali Hoss-
eini, talsmaður íranska
utanríkisráðuneytisins,
hvatti í gær George W.
Bush Bandaríkja-
forseta til að blanda sér
ekki frekar í deiluna
við Breta, í kjölfar þess
að 15 breskir sjóliðar
voru handteknir 23.
mars sl. Spennan í sam-
skiptum ríkjanna vex
daga frá degi og í gær
hafði Al-Alam-
sjónvarpsstöðin eftir írönskum herforingja að bandarískar herþotur hefðu
flogið inn fyrir íranska lofthelgi. Mikil ólga er í Teheran og í gær köstuðu
íranskir námsmenn grjóti að breska sendiráðinu og kröfðust þess að réttað
yrði yfir sjóliðunum. Staðfest var í gær að fulltrúar utanríkisráðuneyta
ríkjanna tveggja væru í beinu sambandi vegna handtökunnar, á sama tíma
og dagblaðið The Sunday Telegraph greindi frá því að til stæði að senda
hátt settan foringja úr breska sjóhernum til málamiðlana.
Íranar birtu í gær nýtt myndband af tveimur sjóliðana sem breska utan-
ríkisráðuneytið fordæmdi, óverjandi væri að sýna það í sjónvarpi.
Íranar senda Bush tóninn
vegna afskipta af handtökum
Reiðir Íranskir mótmælendur mæta öryggis-
vörðum fyrir utan sendiráð Breta í Teheran.
14 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
„ÞETTA er bara einhver orðróm-
ur sem enginn veit hvort eitthvað
er til í,“ segir Þorfinnur Óm-
arsson, talsmaður norrænu eft-
irlitssveitanna, SLMM, á Srí
Lanka, um þær vangaveltur í dag-
blaðinu Sunday Observer, að Mah-
inda Rajapakse forseti kunni að
bera það undir þjóðina í atkvæða-
greiðslu hvort binda eigi enda á
vopnahléið frá árinu 2002.
Átök stjórnarhersins og upp-
reisnarmanna úr röðum Tam-
íltígranna hafa verið hörð að und-
anförnu og var ekkert lát á
ofbeldisverkum um helgina.
„Við erum bara hérna sem hluti
af þessum vopnahléssamningi. Ef
það yrði ákveðið að fella vopna-
hléið úr gildi þá værum við ekki
lengur hér. Þetta eru bara ein-
hverjar vangaveltur í blaði sem
lýtur stjórn forsetans og stjórn-
arinnar,“ segir Þorfinnur, sem
bendir á að báðar fylkingarnar
geti hvenær sem er sagt vopna-
hléinu upp með fjórtán daga fyr-
irvara. Hann
bendir jafnframt
á að það sé mjög
tæknilega erfitt
að halda þjóð-
arátkvæða-
greiðslu í landinu,
síðustu forseta-
kosningar séu
dæmi. „Ég á eftir
að sjá þetta ger-
ast.“
Anna Jóhannsdóttir, for-
stöðumaður Íslensku friðargæsl-
unnar, segir vel fylgst „með okkar
fólki í SLMM“. „Það er ljóst að ef
stjórnin lýsir því yfir að vopna-
hléinu yrði lokið þá yrði starfsemi
SLMM sjálfhætt,“ segir Anna, sem
minnir á að hlutverk sveitanna sé
að fylgjast með að vopnahléið sé
haldið.
Til frekari tíðinda dró í átaka-
sögu Srí Lanka í gær þegar 16
grunaðir meðlimir Tígranna voru
handteknir í París vegna rann-
sóknar á fjármögnun samtakanna.
Starfsemi SLMM sjálfhætt ef
vopnahléssamkomulag brysti
Þorfinnur
Ómarsson
ÞEIR eru ferðamáti elskenda og
íðilfagur söngur ræðarans þykir
ómissandi undirspil við heita sum-
argoluna í Feneyjum. Starf ræð-
arans nýtur virðingar og aðeinar
karlar hafa mátt taka jafn veiga-
mikið embætti að sér. Nú hefur það
breyst, Alexandra Hai hefur fengið
leyfi til að reka gondól, eftir tíu ára
baráttu, og ganga í karlaklúbb 405
útvalinna ræðara í Feneyjum. Enn
eitt karlavígið á Ítalíu er fallið og
kvenrödd ómar um sundin.
Fær að sigla
FRANSKI arkitektinn Jean-Pierre Houdin heldur
því fram að Keops-pýramídinn í Giza í Egyptalandi
hafi verið byggður innan frá. Máli sínu til stuðnings
hefur Houdin beitt nýrri þrívíddartækni sem hann
telur sýna fram á að innri skábraut hafi verið notuð
til að hífa upp risavaxna steinferningana á réttan
stað. Um þrjár milljónir steina sem hver vó um 2,5
tonn fóru í byggingu pýramídans. Að hans mati gátu
4.000 verkamenn reist pýramídann, sem var graf-
hýsi Keops, gríska orðið yfir Khufu, konung Egypta-
lands í fjórðu ættinni, í stað þeirra 100.000 sem talið var.
Alls tók það Houdin átta ár að móta kenninguna og mun hann nú sýna
fram á réttmæti hennar með framkvæmdum í landi faraóanna.
Ný kenning um pýramída
ALÞJÓÐA Rauði krossinn áætlar
að tugir manna hafi fallið og hundr-
uð særst í átökum stjórnarhersins
og uppreisnarmanna á síðustu dög-
um í Mogadishu, höfuðborg Sómal-
íu. Talið er að á fimmta hundrað
hafi týnt lífi síðan á fimmtudag.
Barist í Sómalíu
ÞJÓÐVERJAR, sem fara með for-
ystu í ESB, fögnuðu í gær myndun
bráðabirgðastjórnar í Nepal, maó-
istar fá nokkrar ráðherrastöður.
Ný stjórn í Nepal
PLASTPOKAR kunna við fyrstu
sýn að virðast harla veigalitlir í hlut-
fallslegum samanburði á ýmsum
annmörkum orkufreks neyslusam-
félagsins. Við nánari skoðun kemur
þó í ljós að afleiðingarnar af notkun
þeirra eru einkar alvarlegar og
óæskilegar með tilliti til verndunar
vistkerfa og umhverfisins.
Þetta er ástæða þess að borgaryf-
irvöld í San Francisco í Kaliforníu-
ríki hafa gripið til þess ráðs að banna
plastpokana í stórmörkuðum og
helstu lyfjaverslunum. Samkvæmt
úttekt vefsíðu The Christian Science
Monitor nota borgarbúar árlega um
181 milljón plastpoka á ári og öll
bandaríska þjóðin um eitt hundrað
milljarða poka.
Plastpokar eru léttir og ódýrir en
sá galli er á gjöf njarðar að innan við
eitt prósent þeirra fer í endurvinnslu
vestanhafs og kafna ófáar dýrateg-
undirnar af því að gleypa þá í nátt-
úrunni. Í staðinn er ætlunin að nota
t.d. poka úr mjölva sem má endur-
vinna við moltugerð.
Líkt og hér á landi hafa endur-
vinnslumál verið til umræðu vestan-
hafs að undanförnu og þykir bannið
tímamótaskref í þeim málaflokki.
Bannið í San Francisco hefur víð-
tækari skírskotun, olíusparnaður við
plastframleiðslu nemur sem svarar
meðaleyðslu 140.000 bíla á ári.
Gagnrýnendur benda á að sé ekki
tekið tillit til áhrifa á þriðja aðila séu
plastpokar mjög ódýrir og að bannið
kunni að skaða lítil fyrirtæki. En
græna bylgjan rís óvíða jafn hátt og í
ríki Arnolds Schwarzeneggers ríkis-
stjóra og líklegt verður að teljast að
frjálslyndir kjósendur muni ekki
setja fyrir sig að taka í almenna
notkun dýrari, margnota poka úr
öðrum efnum við innkaupin.
Banna plastpokana
!
!
"
!
!"#$$ %& $ " '
%
("" #"" "#)" %
%
"* *
+ ,-."
"' % "
/* &#
1*#2 3"
" /"
6 "
/ " #
$
7'
3
)#
(# / 8
) 9
(:"
;7/"!
"*
#
< "* '#%
#
##
"* "
2< !
= 6
7
( = > >
)
?':(
7
= * 3
& (
%&
&
'
%
&
$ $
!
"#
$
) #
@
#
$ %$
! A!
!BC #A!2- #
<,)3DA2
!!)3D
!!"&" A!B:!- !.A2.
Úthýst í San
Francisco
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞAÐ KANN að vera óráðlegt að
ætla svo í ljósi reynslunnar en færð
hafa verið rök fyrir því að morðið á
hinum 25 ára gamla Michalis Filo-
poulos fyrir kappleik í blaki í Aþenu í
síðustu viku geti orðið kornið sem
fylli mælinn hjá grísku þjóðinni og
að tími ofbeldisverka á íþróttavöllum
sé loks að renna sitt skeið á enda.
„Þetta eru ekki aðeins íþróttabull-
ur, þetta er félagsleg hryðjuverka-
starfsemi […] hreyfanlegra sveita,“
sagði glæpafræðingurinn Yiannis
Panousis um óeirðaseggina 300, sem
styðja erkifjendurna Olympiakos
Pireaus og Panathinaikos Athens.
Grjóti ku hafa verið kastað, kylf-
um sveiflað og hnífum brugðið á loft í
slagsmálunum, sem fjölmiðlar telja
víst að hafi verið þaulskipulögð. Sex-
tán fengu að gista fangageymslur,
allir ákærðir fyrir aðild að morði.
Gerð var húsleit hjá heimilum
meintra óeirðaseggja en á mynd-
böndum vitna má sjá hvernig margir
mættu vopnaðir bensínsprengjum,
og öðrum harla óvenjulegum búnaði
til að hafa í meðförum á kappleik.
Græðgin rót ofbeldisins
Fimm slösuðust í átökunum sem
áttu sér stað á undan leik í blaki
kvenna, íþrótt sem yfirleitt dregur
ekki að sér marga áhorfendur. Þing-
ið brá skjótt við, efndi til neyðar-
fundar á fimmtudag og felldi niður
fyrirhugaða kappleiki í hópíþróttum
þangað til föstudaginn 13. apríl.
Eins og kunnugt er luku Grikkir
við ólympíuleikvanginn í Aþenu á ell-
eftu stundu fyrir leikana í ágúst 2004
en nú á ekki að slá slöku við, tuttugu
stærstu íþróttavellir landsins verða
svo útbúnir frá haustinu að þar verði
öryggismyndavélar og fullkomið,
rafrænt miðasölukerfi.
Fjórir Grikkir til viðbótar hafa
týnt lífi á íþróttaleikjum síðan 1982,
auk Albana sem lést árið 2004, og vill
Aleka Papariga, leiðtogi grískra
kommúnista, ekki viðhafa nein vett-
lingatök heldur afnema tengsl
íþróttanna við fjármagnið.
„Keppni í íþróttum má ekki tengj-
ast viðskiptum, því þá verður hún að
hráu ofbeldi og spillingu,“ sagði Pap-
ariga á flokksþingi á laugardag.
Theodoros Roussopoulos, tals-
maður stjórnvalda, gaf til kynna að
vandinn ætti sér dýpri rætur, ólætin
væru hluti af ofbeldismenningu sem
yrði að uppræta úr grísku samfélagi.
Öllum kappleikjum á
Grikklandi frestað
AP
Stjórnlaust Starfsmaður Karaiskaki-leikvangsins í Piraeus, skammt frá
Aþenu, fjarlægir logandi blys á landsleik Grikkja og Tyrkja 24. mars sl.
Í HNOTSKURN
»Bannið minnir á harðaraðgerðir stjórnvalda í Róm
í kjölfar morðs á lögregluþjóni
eftir knattspyrnuleik á árinu.
»Grískar íþróttabullursækja helst leiki í knatt-
spyrnu og körfubolta.
Þingið grípur loks í taumana eftir morð og hópslagsmál
fyrir blakleik Kommúnistar skella skuldinni á fégræðgi
MEIRA en fimmta hver kona í Bret-
landi hefur orðið fórnarlamb kyn-
ferðislegs ofbeldis í æsku að því er
kemur fram í nýjum tölum sem
blaðið Independent skýrði frá.
Breskt ofbeldi
MATTHEW Dowd, einn helsti kosn-
ingaráðgjafi George W. Bush, hefur
snúist gegn forsetanum, stefnan í
Írak hafi verið gegn vilja fólksins.
Snýst gegn Bush
EHUD Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, sagðist í gær tilbúinn að
taka þátt í friðarráðstefnu með
fulltrúum arabaríkja. Ef Sádi-
Arabía héldi slíka ráðstefnu og byði
Mahmoud Abbas, forseta Palestínu,
myndi hann þiggja boðið.
Olmert reiðubúinn