Morgunblaðið - 02.04.2007, Page 12
12 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍFFRÉTTIR
SPÁÐ er súld eða rigningu um sunnan- og vestanvert landið næstu dagana
en bjartara veðri um norðan- og austanvert landið. Talsverður hiti miðað
við árstíma verður næstu daga eða 10–15 gráður en spáð kólnandi eftir
miðja vikuna og hugsanlega slyddu eða snjókomu áður en hlýnar aftur um
páskahelgina.
Mikið hefur rignt undanfarna daga, einkum um vestanvert landið og á
Vestfjörðum. Þannig rigndi eins og hellt væri úr fötu á Vestfjörðum á laug-
ardag og við þessa miklu úrkomu verða litlar ár eins og stórfljót, eins og
myndin ber með sér. Vegurinn upp á Dynjandisheiði frá Flókalundi var við
það að breytast í fjallalæk sem sjatnaði svo í þegar rigningunni slotaði.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er greiðfært víðast hvar um
landið en þungatakmarkanir sumst staðar á vegum þar sem frost er að
fara úr jörðu.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Miklir vatnavextir
fyrir vestan
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá fyrrver-
andi aðstandendum flugfélagsins
Iceland Express:
„Undirritaðir eru furðu lostnir yf-
ir þeim ummælum forstjóra Sam-
keppniseftirlitsins að linnulaus und-
irboð Icelandair gagnvart Iceland
Express á árunum 2003 og 2004 hafi
engin áhrif haft á eignarhald okkar í
Iceland Express og því sé ekki við
samkeppnisyfirvöld að sakast.
Okkur sýnist forstjóri Samkeppn-
iseftirlitsins hafa takmarkaða þekk-
ingu á þessu máli. Fram kemur í úr-
skurði Samkeppniseftirlitsins að
Icelandair hafi árin 2003 og 2004 selt
gríðarlegt magn farmiða undir
kostnaði í samkeppni við Iceland
Express. Fyrir vikið drógust far-
þegatekjur Icelandair saman um 3
milljarða króna árið 2003 og 2 millj-
arða árið 2004. Allt var þetta gert til
að koma Iceland Express á kné.
Þess vegna og aðeins þess vegna
misstu stofnendur Iceland Express
eignarhald sitt á fyrirtækinu – vegna
þeirra brota á samkeppnislögum
sem nú hefur verið úrskurðað um.
Aðgerðir hins markaðsráðandi
fyrirtækis fældu fjárfesta frá Ice-
land Express í stríðum straumum,
en þeir hefðu vissulega getað lagt
mikilvæg lóð á vogarskálarnar í
samkeppninni við Icelandair. For-
stjóri Samkeppniseftirlitsins sýnir
af sér fádæma ósvífni þegar hann
segir að í október 2004 hafi Iceland
Express verið komið með „kjölfestu-
fjárfesta“. Má af orðum hans ráða að
þar með hafi fyrirtækið verið hólpið.
Þessir „kjölfestufjárfestar“ voru
menn sem biðu eins og hrægammar
eftir því að Iceland Express væri
komið að fótum fram vegna undir-
boða Icelandair. Þá komu þeir og
buðust til að taka við rekstrinum og
borguðu 15 milljónir króna fyrir 89%
hlut í fyrirtækinu. Þessir sömu
menn voru stórir hluthafar og
stjórnarmenn í Icelandair á þeim
tíma sem fyrirtækið stóð í sem mest-
um undirboðum gagnvart Iceland
Express. Þeir nýttu sér þannig að-
stöðu sína til að eignast keppinaut-
inn fyrir smánarpeninga. Að kalla
þetta „kjölfestufjárfesta“ eru örg-
ustu öfugmæli.
Þá eru undarleg þau ummæli for-
stjóra Samkeppniseftirlitsins að
gögn hafi ekki legið fyrir til að taka
bráðabirgðaákvörðun til að stöðva
undirboð Icelandair. Ef samkeppn-
isyfirvöld telja sig þurfa margra ára
undirbúningsvinnu til að geta tekið
bráðabirgðaákvörðun hafa þau ann-
an skilning á þessu úrræði en venju-
legt fólk. Einnig má spyrja hvern
það hefði skaðað að taka bráða-
birgðaákvörðun? Varla Icelandair
því þá hefði félagið verið neytt til að
hækka fargjöld sín og þannig hefði
dregið úr tapi þess. En bráðabirgða-
ákvörðun hefði fyrst og fremst
hjálpað Iceland Express og gert
stofnendum þess kleift að halda
áfram rekstri og eignarhaldi.
Vegna getuleysis samkeppnisyfir-
valda máttu eigendur Iceland Ex-
press sætta sig við að tapa fyrirtæk-
inu út úr höndum sér. Ábyrgð
samkeppnisyfirvalda er algjör og
væri forstjóra Samkeppniseftirlits-
ins fremur sæmandi að biðja hlut-
aðeigandi afsökunar á úrræðaleysi
stofnunarinnar heldur en reiða fram
hallærislegt og ótrúverðugt yfir-
klór.“
Undir yfirlýsinguna skrifa Aðal-
steinn Magnússon hagfræðingur,
Guðmundur Þór Guðmundsson lög-
fræðingur, Ólafur Hauksson blaða-
maður og Sigurður I. Halldórsson
lögfræðingur.
Undrast ummæli
forstjóra Sam-
keppniseftirlitsins
MIKLAR breytingar verða á fyr-
irkomulagi Kauphallar Íslands í
dag, er nafn hennar breytist form-
lega í OMX Nordic Exchange á Ís-
landi og 25 skráð íslensk félög
verða hluti af norrænu félögunum
sem skráð eru á aðalmarkað Nor-
dic Exchange.
Sérstök athöfn verður í kaup-
höllinni í dag þar sem Árni M.
Mathiesen fjármálaráðherra mun
hringja viðskipti dagsins af stað kl.
10. Viðstaddur verður m.a. for-
stjóri OMX Nordic Exchange,
Finninn Jukka Ruuska, en nor-
ræna kauphöllin samanstendur af
dönskum, sænskum, finnskum og
íslenskum félögum. Norska kaup-
höllin er enn sem komið er ekki að-
ili að OMX.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar,
ICEX-15, mun í dag breytast í
OMXI15 og íslensk félög munu
eiga möguleika á að fá skráningu í
OMX Nordic 40 vísitöluna hinn 3.
júlí nk. þegar næst verður valið í
vísitöluna. Sú vísitala byggist á
þeim félögum sem mest viðskipti
eru með í Nordic Exchange.
Af þessum 25 félögum skráðum
hér eru níu flokkuð sem stór félög,
þ.e. eru yfir 1 milljarði evra að
markaðsvirði. Þetta eru Actavis,
Bakkavör, Exista, FL Group,
Glitnir, Kaupþing, Landsbankinn,
OMX AB og Straumur-Burðarás.
Meðalstór félög eru tíu talsins,
með markaðsvirði upp á 150–1.000
milljónir evra, eða Alfesca, Atorka,
Eimskipafélagið, Icelandic Group,
Icelandair Group, Marel, Mosaic
Fashions, Teymi, Tryggingamið-
stöðin og Össur. Smærri félög inn-
an OMX á Íslandi teljast sex, með
minna en 150 milljón evra mark-
aðsvirði. Þetta eru 365, Atlantic
Petroleum, Flaga Group, Nýherji,
Sláturfélag Suðurlands og Vinnslu-
stöðin. HB Grandi og Hampiðjan
verða eftir sem áður á First North-
hlutabréfamarkaðnum innan OMX.
Kauphöllin verður
OMX Nordic Exchange
Morgunblaðið/Kristinn
Breyting Frá og með deginum í dag nefnist Kauphöll Íslands OMX Nordic
Exchange á Íslandi, og verða 25 íslensk félög skráð á aðalmarkað OMX.
Fjármálaráð-
herra hringir
bjöllum í dag
● KAUPÞING hefur áhuga á því að
bjóða í breska fjárfestingabankann
og verðbréfafyrirtækið Bridgewell
Securities, að því er segir í frétt
breska dagblaðsins The Independ-
ent. Fram kemur í fréttinni að breski
fjárfestingarbankinn hafi átt erfitt
uppdráttar og í síðustu viku hafi
hann greint frá því að nokkrir aðilar
hafi sett sig í samband varðandi
kaup og þar sé Kaupþing banki
fremstur í flokki.
Kaupþing orðað við
breskan banka
VIÐSKIPTI
ÞETTA HELST ...
Verslanakeðjur
takast á
● SAMKEPPNI House of Fraser- og
Debenhams-verslanakeðjanna í
Bretlandi fer harðnandi, en HoF er
að stórum hluta í eigu Baugs Group.
Segir í frétt breska blaðsins Ob-
server að HoF ætli að herða til muna
sóknina gegn Debenhams, meðal
annars með því að opna fjölda nýrra
smárra verslana um landið allt.
Debenhams hafði áður tilkynnt um
opnun smárra verslana.
Tchenguiz eltist
við La Tasca
● FASTEIGNAJÖFURINN breski Ro-
bert Tchenguiz heyr nú baráttu við
Blackstone-fyrirtækið um veitinga-
húsakeðjuna La Tasca. Dótturfélag
Blackstone, Tragus, hækkaði fyrir
skömmu yfirtökutilboð sitt úr 185
pensum í 192 pens á hlut, en
Tchenguiz hafði í millitíðinni boðið
hluthöfum La Tasca 188 pens á hlut.
Kaupþing fjármagnar yfirtökutilboð
Tchenguiz.
GJALDÞROT sænska lággjaldaflug-
félagsins FlyMe hefur vakið mikla at-
hygli þar í landi og koma sífellt fleiri
fletir á málinu í ljós. Eins og kunnugt
er komu Pálmi Haraldsson og við-
skiptafélagar hans að félaginu en yf-
irgáfu það á haustdögum. Þá sló í
brýnu á milli þeirra og Norðmannsins
Christian Ager-Hansen sem varð til
þess að Norðmaðurinn keypti hlut
Pálma og félaga fyrir um 40 milljónir
sænskra króna.
Að öllu jöfnu hefðu þeir peningar
átt að koma úr vasa þess er keypti en
nýlega greindi Västnytt, svæðis-
fréttastofa sænska ríkissjónvarpsins í
Gautaborg og nágrenni, frá því að
hluti þeirra fjármuna sem notaðir
voru til þess að kaupa Pálma og félaga
út úr FlyMe var tekinn beint úr sjóð-
um félagsins.
Talden Holdings
Sama dag og Pálmi og félagar yf-
irgáfu hóp eigenda FlyMe bættist
breski kaupsýslumaðurinn John Ro-
bert Porter í eigendahópinn og félag-
ið keypti hlutabréf að andvirði 40
milljóna sænskra króna í River Don,
félagi í hans eigu. Peningarnir fóru þó
aldrei þangað en samkvæmt frétt
Västnytt voru 40 milljónir sænskra
króna greiddar af reikningi FlyMe
inn á reikning lögmannsstofunnar
Hamilton í Gautaborg þann dag. Það-
an var helmingur fjárins færður inn á
reikning Talden Holdings SA í gegn-
um Kaupþing í Lúxemborg, sem hluti
af greiðslu fyrir hluti Pálma og félaga
í FlyMe en eigandi Talden er einmitt
Pálmi Haraldsson. Í samtali við Väst-
nytt staðfestir hann að greiðslan fyrir
hlutafé hans hafi borist gegnum
Kaupþing í Lúxemborg en hann vill
ekki velta vöngum yfir hvaðan féð
kom. Skv. fréttinni ber hann þó ekki
mikið traust til Ager-Hansen.
Þess ber að geta að einn eigenda að
áðurnefndri lögmannsstofu er Staffan
Edh, einn stjórnarmanna í FlyMe og
viðskiptafélagi og vinur Ager-Hansen
til margra ára.
FlyMe keypt
fyrir fé FlyMe
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sænskt félag Pálmi Haraldsson og viðskiptafélagar hans áttu í sænska
flugfélaginu FlyMe þar til í fyrrahaust, þegar þeir seldu hluti sína.