Morgunblaðið - 02.04.2007, Side 13

Morgunblaðið - 02.04.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 13 ÚR VERINU Nú geta menn sagt elskunni sinniþað með fiski, að þeir elski hana.Já, það er ekki bara hægt meðblómum. Þetta er eitt það nýj- asta sem vekur athygli í henni Ameríku. Gæludýrabúðin Steve’s Wonderful World of Pets í Williamsville NY er nú farin að bjóða upp á húðflúraða fiska. Hægt er að fá þá með ýmsu mynstri, meðal annars bleikum hjört- um og jafnvel ástarjátningum. Fiskarnir eru fluttir inn frá Singapúr og mun þurfa að halda fiskunum kyrfilega kyrrum, þegar þeir eru húðflúraðir, hvernig sem það er gert. Eigandi verzlunarinnar telur þetta góða leið til að auka áhuga fólks á því að eiga og hugsa um skrautfiska. Leiði fiskur með hjartahúðflúr til þess að börn fái áhuga á fiskunum, sé björninn unninn. Það kemur reyndar ekki fram í þessu tilfelli hvort fisk- unum mislíki þessi aðferð, eða hvort þessi meðferð gæti heyrt undir dýraverndarlög. En velferð fiska er töluvert til umræðu um þessar mundir. Það er svo líka spurningin hversu rómantísk ástarjátning af þessu tagi er. En hvernig væri að fara svipaða leið hér heima til að auka fiskátið. Þá gætu fiskbúð- irnar auglýst: Segið það með fiski, og útbúið alls kyns ástarjátningar á ýsuflökin eða humarinn. Þá gætu ástarjátningarnar stig- magnast eftir fiskverði og ekki er að efa það að fái ung stúlka ástarjátningu á ýsuflaki, muni hún ekki aðeins taka ástfóstri við unn- ustann heldur ýsuna líka. Mesta ástarjátn- ingin gæti svo verið varanlegur kvóti, sú minnsta freðýsa. Einstaklega rómantískt. Fiskaklósett mun vera meðal þeirra nýj- unga vestan hafs sem enginn getur verið án. Þarna er þó ekki átt við klósett sem fiskar ganga örna sinna í, heldur klósett með fiska- búri. Fyrirtækið AquaOne Technologies í Kaliforníu hefur hannað tvöfaldan klósett- kassa. Ytra byrðið er fiskabúr en innan í því er hinn raunverulegi klósettkassi. Gengur þetta nýja hægindi undir nafninu Fish ’n Flush þar vestra. Herlegheitin kosta um 300 dali, eða tæp tuttugu þúsund. Fiskabúrið tekur 10 lítra af vatni en klósettkassinn 11,3 lítra. Sagt er að auðvelt sé að taka fiskabúrið frá til að hreinsa það og hægt sé að nota bún- aðinn við flest venjuleg hægindi. Framleið- endur viðurkenna að hugmyndin sé svolítið brjálæðisleg, en segja að þeir hafi líka fengið góð viðbrögð og sumir foreldrar séu farnir að nota þess aðferð til að venja ung börn á salernið. Það er allavega ljóst að klósett af þessu tagi mun vekja umtal. Það fylgir svo sögunni að í samvinnu við fiskifræðinga hafi búnaðurinn verið hannaður þannig að það skaði ekki fiskana þó sturtað sé niður. Þeir fylgja ekki með, þegar það er gert. Já, fiskurinn er til margra hluta nytsam- legur og alltaf er hægt að koma fólki á óvart. Ástarjátning á ýsuflaki? » Þá gætu ástarjátning-arnar stigmagnast eftir fiskverði … BRYGGJUSPJALL Hjörtur Gíslason hjgi@mbl.is Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is EYJABÁTARNIR hafa mokfiskað að undanförnu, eftir að brælan gekk niður. Það fiskast í öll veiðarfæri og flestallir koma með fullan bát í land. Narfi VE 108 var að gera það gott í lok síðustu viku. Fékk mikið af ríga- þorski í netin milli lands og Eyja. Þeir drógu svo í sig til að spara kvót- ann og ætluðu ekki að leggja aftur fyrr en í gær. „Það eru bara góðar fréttir frá Vestmannaeyjum,“ segir Viðar Elíasson, sem gerir bátinn út og rek- ur samnefnda fiskverkun í Eyjum. „Almennt er mjög gott fiskirí í öll veiðarfæri, troll og net. Það er alls staðar fiskur og menn eru að fá mjög góðan afla. Ástand fisksins er mjög gott og ástandið hér á miðunum miklu betra en áður. Við sáum aðeins breytingu á þessu í fyrra, en þetta er enn betra núna. Auðvitað hefur ótíð- in verið að trufla okkur í vetur, en eftir að veðrið lagaðist er gaman að eiga við þetta. Eini dökki punkturinn í þessu er að það gengur ört á kvót- ann. Hér eru bátar að byrja að stoppa út af því að kvótinn er búinn.“ Góður fiskur í saltið Viðar tekur fiskinn af Narfa í salt- fiskverkun og er ánægður með bæði fisk og markað: „Þetta er mjög góð- ur fiskur í saltið. Gott holdafar, sterkur og vænn fiskur. Við megum ekki nota stærri möskva en átta tommur í netin núna. Það væri örugglega hægt að ná í meira af þessum stóra fiski ef við mættum beita stærri möskva. En fiskurinn er að öllu jöfnu mjög vænn, mikið sex til átta kílóa fiskur. Markaðurinn fyrir saltfisk er góður um þessar mundir. Það virðist vera vöntun á fiski. Það má ekki gleyma að þeim er alltaf að fækka sem salta. Hlutfall þess þorsks sem fer í salt er alltaf að minnka þannig að það er ekki skrítið að það vanti inn á markaðinn og eft- irspurnin sé mikil. Þessi fiskur sem þeir voru að taka á fimmtudaginn var bara tekinn milli lands og Eyja, eiginlega í jarðgang- astæðinu. Það er farið að ganga á kvótann og við reynum að haga þessu eftir afköstum. Við erum ekk- ert að flýta okkur í sjálfu sér. Það er bara kvótinn sem takmarkar okkur. Almennt er mikil bjartsýni í sjáv- arútvegi í Vestmannaeyjum. Við er- um að horfa á ný skip koma. Vest- mannaeyin kom um daginn og nú er von á nýju Gullbergi eftir helgina. Veiðiheimildir hafa verið að aukast og menn eru bara brattir.“ Það virðist vera mikið af fiski á slóðinni, en samt er verið að tala um að það þurfi að minnka þorskkvót- ann. Ert þú sömu skoðunar? Ekki hlynntur niðurskurði „Nei, ég er ekki hlynntur hug- myndum um að fara að skerða afla- mark í þorski. Ég sé ekki alveg hvaða rök liggja þar að baki. Fisk- urinn er betri en í fyrra og virðist auðsóttari. Ég veit ekki nákvæmlega hver er skýringin á því. En það er ljóst að það er meiri fiskgengd á þessum heimamiðum okkar en und- anfarin ár. Við þurfum ekki að sækja hann út í kant, en þar er nóg af fiski. Það eru mjög fáir bátar sem sækja þangað í dag. Því er eðlilegt að mað- ur spyrji sig hvaða þörf sé á nið- urskurði á aflamarkinu. Ég þarf að fá betri rök en Hafró hefur sýnt fram á. Það er svo kannski spurning hvort við þurfum að fara að beita annarri tækni við að sækja fiskinn í sjóinn. Hvort ekki væri meiri friðun í því. Það er spurning hvort við erum að taka of stórt hlutfall í botndregin veiðarfæri. Þetta er bara ein af hug- myndunum. Mér finnst sjálfsagt að menn skoði það. Nákvæmlega eins og menn kveði upp þann dóm að það eigi bara að fara niður með afla- markið. Það er ekkert óeðlilegt að sitt sýnist hverjum og svo takast á ákveðnir hópar í þessu öllu. Maður hefur heyrt þau rök gegn kvótaaukningu að hún leiði aðeins til þess að hinir stóru geti leigt meira frá sér. Þetta snýst ekki um það hjá okkur minni aðilunum. Við erum að veiða allan okkar kvóta og vinna fiskinn. Við sjáum sóknarfæri í að gera meira, en kvótinn takmarkar það. Við verðum auðvitað að lúta þeim lögmálum. Má ekki missa af toppunum Það er líka mikilvægt að við miss- um ekki af toppunum, þegar þeir koma. Það eru greinilega einhver skilyrði í sjónum núna sem valda því að það er uppgangur og aukin fisk- gengd. Það getur verið of seint að ætla að sækja það á næsta eða þar- næsta ári. Við megum ekki njörva þetta svo svakalega niður að engu sé hægt að breyta. Við sáum það um daginn að það fengu einhverjir nokkra farma af loðnu og töldu sig vera að veiða úr vestangöngu. Þá var bætt við kvót- ann 15.000 tonnum. Það getur vel verið að það hafi verið rétt, en þá var hlaupið til og kvótinn aukinn, sem er ekki gert núna í botnfiskinum. Það má ekki missa af þeim tækifærum sem gefast. Það er dýru verði keypt að sleppa þeim. Þetta eru auðvitað umræður sem menn eru endalaust að velta sér upp úr og sitt sýnist hverjum og það er svo sem eðlilegt,“ segir Viðar Elíasson. Alls staðar fiskur Í HNOTSKURN »Það er ljóst að það er meirifiskgengd á þessum heimamiðum okkar en und- anfarin ár. »Það er líka mikilvægt aðvið missum ekki af topp- unum þegar þeir koma. »Þessi fiskur sem þeir voruað taka á fimmtudaginn var bara tekinn milli lands og Eyja, eiginlega í jarðganga- stæðinu. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Vinnslan Fallegur saltfiskur. Viðar Elíasson er ánægður með fiskinn í ár, hann er stór og fallegur, markaðurinn góður, en kvótinn mætti vera meiri. Veiðar Björgvin Sigurjónsson, stýrimaður á Narfa VE, með tvo golþorska. Annar vó 30 kíló, hinn 32. Það eru ennþá stórfiskar í sjónum. GÓÐ aflabrögð hafa verið mikið til umræðu síðustu daga og rætt um Íslandsmet. Fyrir réttum 60 árum var sérlega góð vertíð, bæði á þorski og steinbít. Í marz það ár, 1947, kom Benedikt Vagn Gunnarsson á Garðari ÍS, 14 tonna bát frá Flateyri, með 21 tonn af slægðum stein- bít að landi úr einum róðri, en það gæti svarað til um 25 tonna af óslægðum fiski. Sama dag kom Vestri ÍS inn til Flateyrar með 19 tonn af slægðum steinbít. Garðar var með 104 lóðir, en varð að skilja fjórar lóðir eftir. Þeir komu ekki meiru í bátinn. Ásgeir Sölvason var þá á Vestra, en faðir hans, Sölvi Ásgeirsson, var með bátinn, sem var 31 tonn. „Þetta var mikil aflavertíð. Steinbíturinn var þá kom- inn í algleyming. Hann kemur alltaf í febrúar, marz. Þetta var alveg glymjandi vertíð og í febrúar fengum við á Vestra 19 tonn af slægðum þorski í einum róðri á 34 400 króka bala. Þetta var svo góður fiskur að hvert tonn skilaði 100 lítrum af lifur. Gríðarlega stór og fal- legur þorskur. Ætli þetta gæti ekki svarað til 24 tonna af óslægðum fiski, það var svo mikið inni í honum, lifrin stór og gota byrjuð að koma í hann. Það þótti mikið þá. Það er allt í lagi að þetta komi fram, þegar menn eru að tala um Íslandsmet núna með minni afla,“ segir Ásgeir Sölvason. Með 21 tonn af slægðum steinbít fyrir 60 árum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.