Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 17

Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 17
|mánudagur|2. 4. 2007| mbl.is daglegtlíf Skólavefurinn hefur útbúið tíu mismunandi undirbúnings- námskeið fyrir nemendur í 10. bekk. » 19 menntun Í kommóðunni á heimilinu er sparnaður heimilisins, öryggi og velferð. Skúffurnar geta ver- ið mismargar. » 18 fjármál Morgunblaðið/ÞÖK Kelirófur Kötturinn Alexander er af tegundinni „oriental-shorthair“ á meðan Ísleifur tilheyrir tegund sem kallast „british-shorthair“. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Hann Alexander okkar ernú ekki beinlínis þekkt-ur fyrir fegurð greyið,en við kolféllum bara fyrir honum vegna þess að hann er svo mikil kelirófa. Ég hafði verið í heimsókn hjá vinkonu minni sem ræktar oriental-ketti og tók eftir þessum kettlingi þar vegna þess hve ljúfur og afslappaður hann var. Hann sofnaði og kúrði sig upp við alla sem komu og var svo vingjarn- legur. Ég hugsaði með mér að þetta væri rétta kisan fyrir litlu dóttur mína, hana Þóru Dís, sem var rétt orðin tveggja ára þarna og svolítið lítil í sér og feimin. Fyrst gekk sambúðin brösuglega og henni leist ekkert á þennan kisa, sem mjálmaði svo skrækt og skringilega. En svo smullu þau allt í einu saman og urðu óaðskiljanleg. Hún tók Alex, eins og við köllum hann, með sér í alla leiki. Hann hafði unun af því að vera með henni og naut sín vel í dúkkuvagninum henn- ar. Eftir þetta varð Þóra Dís mun öruggari með sig og vil ég meina að það sé kisu að þakka,“ segir Guð- munda Björk Matthíasdóttir í sam- tali við Daglegt líf. Ólíkir og einkar samrýndir Alexander fluttist nýfæddur inn á hafnfirska heimilið í febrúar 2005 og hálfu ári síðar bættist Ísleifur í fjöl- skylduna, einfaldlega vegna þess að hann var svo sætur, en auk þess var hann hugsaður sem félagsskapur fyrir Alex. Högnarnir tveir eru mjög ólíkir í útliti enda hvor af sinni teg- undinni, en að sögn húsmóðurinnar eru þessir tveir „fóstursynir“ Þóru Dísar, sem nú er fjögurra ára, einkar samrýndir og finnst gaman að leika sér saman. „Ísleifur er mjög skemmtilegur, en er ekki eins mikið fyrir að vera í „mömmó“ og Alex. Hann er meira fyrir að vera með fullorðna fólkinu. Ísleifur er mikil prímadonna og lætur Alex gjarnan þrífa sig hátt og lágt og dekra við sig,“ segir Guðmunda. Fiskur til hátíðarbrigða Litla fjölskyldan keypti kisurnar sínar af íslenskum kattaræktendum. „Við borguðum fimmtíu þúsund krónur fyrir stykkið og sjáum svo sannarlega ekki eftir því enda veita þeir okkur góðan félagsskap og eru mikið krydd í tilveruna. Þeir komu með nöfnum og ættarbók til okkar og við höfum svo alið þá upp sem inniketti. Þeim er ekkert vel við að vera úti þótt við sitjum úti í garði. Þeir fá venjulega bara þurrfóður og vatn í matinn, en stöku sinnum fisk til hátíðarbrigða. Þeir eru hins veg- ar ekkert fyrir blautfóður og þaðan af síður vilja þeir kattanammi, sem við höfum reynt að gleðja þá með. Ég mæli eindregið með gælu- dýrahaldi ef börn eru á heimilinu því þau læra svo margt á því að um- gangast svona dýr,“ segir heim- ilisfaðirinn Garðar Eyjólfsson. Sautján tegundir á Íslandi Skábræðurnir Alexander og Ís- leifur voru í góðum félagsskap á sýningu Kynjakatta fyrir skömmu, en félagið heldur reglulega tvær sýningar á ári, á vorin og haustin. Guðmunda Björk er gjaldkeri í stjórn félagsins, en Kynjakettir er félag kattaræktenda, kattaeigenda og áhugafólks um ketti. Félagið var stofnað vorið 1990 og eru félagsmenn nú um tvö hundruð talsins. Eitt helsta markmið Kynjakatta er að stuðla að kattarækt hérlendis með hag kattanna að leiðarljósi og stuðla að jákvæðu viðhorfi til katta og kattahalds. Kynjakettir sjá um ættbókarskráningu hreinræktaðra katta, halda sýningar og gefa út fréttablað tvisvar á ári, fé- lagsmönnum til fróðleiks og skemmtunar. Yfir þrjátíu kattateg- undir eru viðurkenndar af Fife, móðurfélagi Kynjakatta, en á Ís- landi eru til sautján kattategundir. Með skaplyndi ljúflings Báðar eru kisurnar svartar að lit. Alexander er af tegund sem nefnist „Oriental-shorthair“, sem sameinar glæsileika tígursins og skaplyndi mestu ljúflinga, að sögn Guðmundu. Hann er langur, háfættur og grannvaxinn með langt og mjótt skott og langan og grannan háls. Höfuðið er þríhyrningslaga, trýnið langt og mjókkar fram, eyrun stór og sitja neðarlega á höfðinu. Augun eru í meðallagi stór, skásett, möndlulaga og skærgræn. Oriental-kötturinn er, eins og síamskötturinn, hávær og krefst mikils félagsskapar við eigendur sína og aðra ketti. Þeir halda lengi leikgleði kettlings og allir eigendur svona katta geta örugglega staðfest að ef eitthvað fer í taugarnar á oriental, þá eru það lokaðar dyr. Saga oriental-katta er stutt miðað við sögu margra annarra kattateg- unda. Þeir hafa ekki neinar þjóðsög- ur eða ævintýri sem vitna um upp- runann. Þeir lifa hvergi í trúar- legum tröllasögum og engar sögur eru frá framandi löndum til að styðja við getgátur um uppruna. Oriental-kötturinn er næstum því án sögu, en bara næstum því, því hann er ein af fáum tegundum sem vitað er nákvæmlega hvernig urðu til. Breskir áhugamenn munu hafa par- að heillita ketti og þá helst Russian Blue vegna vaxtarlags hans við sí- amsketti til að ná fram grönnu vaxt- arlagi, sem þeim þótti eftirsókn- arvert. Þolinmóður og sjálfsöruggur Hin kisan á heimilinu er af teg- undinni British-shorthair. Sú teg- und er sögð mjög kelin og eltir eig- anda sinn frá einu herbergi til annars. Skapgerðin er einstök og brosið hrífandi. Hann er afar þol- inmóður, sjálfsöruggur og semur vel við börn og önnur gæludýr á heim- ilinu. Hann er mátulega fjörugur og lagar sig að hvers kyns heimilis- aðstæðum. Breski stutthærði kött- urinn þroskast seint og nær ekki fullri stærð eða andlegum þroska fyrr en eftir þriggja ára aldur. Saga þessarar tegundar nær aftur í aldir, en í ræktunarmarkmiðum segir að hann eigi að vera með stutt- an búk, sterklegur og samsvara sér vel. Brjóstkassinn er breiður, lapp- irnar stuttar og skottið þykkt og stutt. Höfuð kringlótt og augun vel opin og rafgul. Feldurinn er svo snöggur, þéttur og silkimjúkur. Morgunblaðið/ÞÖK Fjölskyldan Hjónin Guðmunda Björk Matthíasdóttir og Garðar Eyjólfsson ásamt dótturinni Þóru Dís og kisunum sínum sem má segja að séu hálfgerðir „skábræður“ og bera nöfnin Alexander og Ísleifur. Einn er langur og mjór, annar feitur með flatan haus TENGLAR ..................................................... www.kynjakettir.is www.fifeweb.org » Ísleifur er mikil prímadonna og lætur Alex gjarnan þrífa sig hátt og lágt og dekra við sig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.