Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 19
menntun
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 19
!!!
" # $ #%
&'' !!
((( 2
#8
;
& !
. "
.
(
,99! /
.&
.
.
.&
(
#
.%
I
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
UNDIRBÚNINGUR tíundubekk-
inga fyrir samræmdu prófin er
smám saman að aukast. En hver á
að hjálpa þegar mamma og pabbi
eru búin að steingleyma alge-
brunni úr gaggó og tekið er að
fenna yfir stafsetningarreglurnar
hjá þeim?
Skólavefurinn býður nú upp á
sérstök þjálfunarnámskeið á Net-
inu fyrir samræmdu prófin en að
sögn Ingólfs Kristjánssonar, eins
af ritstjórum vefjarins, er með því
verið að svara kalli foreldra og
nemenda eftir undirbúningsefni af
þessum toga. „Undirbúningurinn
fyrir samræmdu prófin mæðir
svolítið á heimilum landsins, ekki
síst í tíunda bekk,“ segir hann.
„Fólk er að leita að efni sem að-
stoðar það við að skipuleggja
þennan undirbúning. Efnið auð-
veldar því líka að átta sig á því
hvað eigi að læra, hvernig er best
að þjálfa sig í mismunandi aðferð-
um og komast að því hvar skórinn
kreppir.“
Námskeiðin byggjast á 20–30
kennslustundum þar sem farið er
yfir samræmd próf fyrri ára og
einstök atriði útskýrð. „Í stærð-
fræðinni eru dæmi t.d. skýrð út á
myndrænan hátt og í hverri
kennslustund eiga krakkarnir að
reikna fimm, sex dæmi, svo þetta
getur verið 20 mínútna vinna í
senn. Ef eitthvað er sem krakk-
arnir skilja ekki geta þeir svo leit-
að í skýringabankann.“
Hraði eftir þörfum
Námskeiðin eru að sögn Ingólfs
svolítið mismunandi enda ólíkir
kennarar sem sjá um að útbúa
efni fyrir mismunandi fög. „Það
eru samræmd próf í sex fögum en
í raun má segja að námskeiðin séu
tíu talsins því samfélagsfræðin
skiptist upp í landafræði, sögu og
þjóðfélagsfræði og eins skiptist
náttúrufræðin upp í lífvísindi,
jarðvísindi og eðlisvísindi.“ Nem-
andinn getur svo ákveðið hversu
hratt og hvenær hann tekst á við
efni námskeiðanna.
Ingólfur segir að í fyrra hafi
verið boðið upp á einfaldari út-
færslur af námskeiðum sem þess-
um. „Það mæltist gríðarlega vel
fyrir og fólk vildi geta sótt sér
enn meiri skipulagningu. Þetta
virðist líka hjálpa foreldrum og
nemendum að vinna saman.
Námsefnið er orðið svo mikið að
margir foreldrar geta hreinlega
ekki hjálpað börnunum sínum –
eru kannski búnir að gleyma
þessu frá því að þau voru í skóla
o.s.frv. Þarna geta þeir hins vegar
leiðbeint sjálfum sér til að geta
hjálpað barninu betur.“
Skólavefurinn er einnig með
þjálfunarnámskeið fyrir samræmd
próf í fjórða og sjöunda bekk og
stefnir að því að bjóða þjálfunar-
efni fyrir stærðfræði á framhalds-
skólastigi líka.
En hvernig getur fólk skráð sig
á þessi námskeið?
„Í raun skráir fólk sig ekki
heldur er þetta efni opið fyrir
áskrifendur Skólavefjarins,“ svar-
ar Ingólfur. „Með því að greiða
áskriftargjald, sem er 1.290 krón-
ur á mánuði, hafa menn aðgang að
þjálfunarnámskeiðunum sem og
öllu okkar efni öðru.“
Morgunblaðið/Eyþór
Lærdómur Námskeiðin byggjast á 20–30 kennslustundum þar sem farið er
yfir samræmd próf fyrri ára og einstök atriði útskýrð.
Þjálfun á Netinu fyr-
ir samræmdu prófin
Skólavefurinn hefur útbúið tíu mismunandi
undirbúningsnámskeið fyrir nemendur í 10. bekk
» Skólavefurinn er
einnig með þjálf-
unarnámskeið fyrir
samræmd próf í fjórða
og sjöunda bekk og
stefnir að því að bjóða
þjálfunarefni fyrir
stærðfræði á framhalds-
skólastigi líka.
www.skolavefurinn.is