Morgunblaðið - 02.04.2007, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 21
taða fyrir
efur verið
Það mun
ví máli á
ndinn sé í
nar kosn-
é stillt yf-
n séu enn
og spenn-
Alcan á
með úrslit
sem einu
versta áfalli sem verksmiðjan hefur
orðið fyrir í nærri 40 ára sögu þess.
Síðastliðið sumar olli alvarleg raf-
magnsbilun því að 40% verksmiðj-
unnar datt út og segir Rannveig að
sá atburður ásamt niðurstöðu kosn-
ingarinnar á laugardag séu verstu
áföllin. „Við vorum nýstigin upp úr
því [afleiðingum rafmagnsbilunar-
innar] þegar við lendum í þessu,“
segir hún. „Þetta áfall kemur mjög
seint í ferlinu því við höfðum í góðri
trú keypt lóð, fengið starfsleyfi og
farið í umhverfismat og fleira. Allt
þetta hafði verið gert í góðri trú þeg-
ar allt í einu kemur kosning sem við
vorum ekki meðvituð um að við
þyrftum að ganga í gegnum.“
Rannveig segir alla starfsmenn
Alcan hafa unnið gott starf í barátt-
unni fyrir stækkun álversins og jafn-
framt hafi fyrirtæki í Hafnarfirði
stutt við bakið á Alcan. „Þetta hefur
þjappað hópnum okkar í Straumsvík
vel saman. Við höfum verið með
þessa einu áætlun um að stækka
verksmiðjuna í gangi og framhaldið
er óákveðið. Það verður að setjast
yfir það en við einbeitum okkur að
því að reka þessa verksmiðju. Við
vitum að það er ekki eins ákjósan-
legt og ekki til eins langs tíma eins
og ef við hefðum fengið að stækka
hana.“
Alcan hafði tryggt sér raforku til
stækkunar en staðan er ný að lokn-
um kosningunum og þarf nú að end-
urmeta hana að sögn Rannveigar.
Orðrómur um óheiðarlega
framgöngu Sólar í Straumi
Jóhanna Fríða Dalkvist, stjórnar-
maður í Hagi Hafnarfjarðar, segir
niðurstöðuna ekki þá sem búist var
við, sérstaklega ef litið er til þess
hversu kjörsókn var góð. „Við virki-
lega trúðum að Hafnfirðingar sæu
nauðsyn þess að hafa þetta fyrirtæki
áfram í sveitarfélaginu, því bæði eru
það svo mörg fyrirtæki, sem við
stöndum fyrir, sem hafa gífurlega
hagsmuna að gæta.“ Hún segir fé-
lagsmenn enn vera að jafna sig en
baráttunni sé ekki lokið. „Þetta er
okkar framtíð sem þetta snýst um en
við höfum ekki ákveðið það til fulls
hvað við munum gera. Það er ým-
islegt sem við fengum að heyra í gær,
sem ber merki um óheiðarlega fram-
göngu hjá Sól í Straumi,“ segir Jó-
hanna og vísar þar til orðróms um að
sjö hundruð manns hafi flutt lög-
heimili sín til bæjarins eingöngu til
að kjósa gegn stækkun álversins.
Hún segir að enn sé aðeins um orð-
róm að ræða en málið svo alvarlegt
að nauðsyn er að kanna það nánar.
Stjórn samtakanna fundað um málið
á þriðjudag og verður þá ákveðið
hvort þau muni bregðast við.
Ekki áhyggjur af lokun
Pétur Óskarsson, talsmaður sam-
takanna Sólar í Straumi fagnar úr-
slitum íbúakosninganna. Aðspurður
segist Pétur ekki hafa áhyggjur af
því að álverið í Straumsvík muni loka
og fara úr Hafnarfirði þrátt fyrir að
meirihluti kjósenda hafi kosið gegn
stækkun álversins.
Segist hann ekki vilja nota hug-
takið sigur eða sigurvegari úr kosn-
ingunum, heldur hafi málið snúist um
tillögu sem borin var upp og henni
hafnað af íbúum Hafnarfjarðar.
„Það sem að liggur að baki er að
það er allt óbreytt í Hafnarfirði.
Alcan bar þessa tillögu upp við
íbúana og henni var hafnað. Úr því að
svo mjótt var á mununum eins og
raun bar vitni, var betra að tillögunni
skyldi hafnað vegna þess að það hefði
orðið erfiðara fyrir samfélagið og
hrinda af stað risaframkvæmd í
óþökk nærri helmings bæjarbúa. Ég
held því að niðurstaðan endurspegli
að Hafnfirðingar hafi að vissu leyti
valið friðinn.“
Pétur segir umræðu um hugsan-
leg kosningasvinds koma flatt upp á
sig og kannast hvorki við fjölgun íbúa
né að Sól í straumi hafi nokkuð hvatt
til slíks.
r höfnuðu deiliskipulagstillögu sem hefði gert Alcan á Íslandi kleift að stækka álver sitt í Straumsvík
ki að stækka
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
ar sem talning atkvæða fór fram.
iðla.
Ekki atkvæðagreiðsla í Reykjanesbæ
ÁRNI Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segir að niðurstaða
kosninganna í Hafnarfirði breyti
engu um gang mál varðandi
byggingu álvers í Helguvík og
ekki verði efnt til atkvæða-
greiðslu um byggingu álversins
meðal íbúa í Reykjanesbæ.
Árni segir að þeir hafi á engan
hátt tengt verkefnið í Helguvík
verkefninu í Hafnarfirði. Orku-
samningar séu ótengdir. Norðurál
sé ekki með samninga við Lands-
virkjun vegna Helguvíkur, heldur
Orkuveituna og Hitaveitu Suð-
urnesja og það líti allt ágætlega
út.
„Það eru í raun og veru allt
aðrar aðstæður í Helguvík. Við
höfum núna í tvö ár verið að und-
irbúa þetta verkefni. Eftir að hafa
kynnt álverið á
íbúafundum
töldum við
ástæðu til að
færa aðstöðu
undir það fjær
og sömdum um
það við Garð.
Það stendur
mjög vel í landi
og sést varla til
þess. Við höfum verið að fara yfir
línumál. Þau líta vel út. Það er
samkomulag um að leggja streng-
ina í jörð næst byggð og síðan eru
þetta lagnir sem eru nánast í þeim
lagnaleiðum sem fyrir eru á
Reykjanesi,“ segir Árni enn-
fremur.
Hann segir að ekki verði efnt til
atkvæðagreiðslu meðal íbúanna
um álverið. Samningar við Norð-
urál hafi verið gerðir í aðdrag-
anda síðustu sveitarstjórnarkosn-
inga. Þar hafi verið farið mjög
ítarlega yfir þetta mál og enginn í
bæjarstjórn hafi lagt fram tillögu
þar um kosningu þegar þessir
samningar hafi verið þar til um-
fjöllunar. Ekkert sé í samning-
unum sem setji fyrirvara um slíka
kosningu. „Ég held líka að menn
geri sér grein fyrir því að það
þarf að bæta fyrir þau 700 störf
sem hurfu af Suðurnesjum á síð-
asta ári,“ segir Árni.
Hann bætir því við að niður-
staðan í Hafnarfirði styðji einnig
að verkefnið í Helguvík fái að
hafa sinn gang, en gert er ráð fyr-
ir að fyrsti áfangi álversins verði
komin í gagnið haustið 2010.
Árni Sigfússon
Norðurál heldur sínu striki við Helguvík
RAGNAR Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar-
og framkvæmdasviðs Norðuráls,
segir að fyrirtækið muni halda
sínu striki hvað varðar fram-
kvæmdir við nýtt álver í Helguvík
og niðurstaða álverskosninganna í
Hafnarfirði hafi engin áhrif í þeim
efnum.
„Við höfum verið að vinna sam-
kvæmt ákveðnu ferli og það hefur
gengið vel og við höldum því bara
áfram,“ sagði Ragnar.
Markmiðið er að fyrsti áfangi ál-
versins hefji
starfsemi haust-
ið 2010 og geti
framleitt 110–
120 þúsund tonn
og að fram-
kvæmdum verði
lokið ekki síðar
en árið 2015.
Ragnar sagði
að unnið væri að
mati á umhverf-
isáhrifum, auk þess sem ganga
þyrfti frá skipulagsbreytingum
bæði í Garði og Reykjanesbæ og
hann vonaðist til að niðurstöður í
þeim efnum yrðu lagðar fram nú í
apríl. Síðan færi í gang ákveðið
ferli þar sem almenningi gæfist
kostur á að skoða og koma að at-
hugasemdum. Það færi síðan til
Skipulagsstofnunar og allt þetta
ferli tæki dálítinn tíma. Stefnt
væri að því að fá framkvæmdaleyfi
í haust og vonir bundnar við að
hægt yrði að hefja framkvæmdir
fyrir árslok, en það væri háð því
að öll tilskilin leyfi fengjust.
Ragnar
Guðmundsson
Hefur ekki áhrif á virkjanir í Þjórsá
ÞORSTEINN Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
að niðurstaðan í atkvæðagreiðsl-
unni í Hafnarfirði hafi ekki áhrif á
fyrirætlanir fyrirtækisins um virkj-
anir í neðri hluta Þjórsár. Fram-
kvæmdir muni hins vegar ekki
hefjast fyrr en kaupandi að rafork-
unni sé fundinn. Þorsteinn sagði að
það hefði alltaf legið fyrir að fyr-
irtækið myndi halda sínu striki
varðandi virkjanir í neðri hluta
Þjórsár. Þær framkvæmdir væru
óháðar einstökum orkukaup-
endum. Gengið hefði verið frá vilja-
yfirlýsingu með Alcan í upphafi síð-
asta árs og á þeim grundvelli hefði
verið gengið frá raforkusamningi
sem ekki hefði þó verið undirrit-
aður. Þessi yfirlýsing hefði gefið
Alcan forgang að þeirri raforku
sem fengist frá virkjunum í neðri
hluta Þjórsár fram á mitt þetta ár
með fyrirvara um að það yrði af
framkvæmdum. Það væri því hægt
að semja við aðra um þessa raf-
orku. „Við vitum af áhuga annarra.
Hvað stóriðju
varðar erum við
auðvitað að tala
um Century
Aluminum (móð-
urfélag Norður-
áls), sem var í
rauninni í
keppni við Alcan
um það hvor að-
ilinn kæmist í
samninga-
viðræður við okkur. Við héldum
hálfgert útboð á sínum tíma um
það. Þá eru fleiri járn í eldinum ef
svo má segja og almennur vöxtur í
raforkunotkun í landinu á næstu
árum fyrirsjáanlegur og þessir
virkjunarkostir í Þjórsá eru mjög
vænlegir að okkar mati.“
Þorsteinn sagði að Landsvirkjun
myndi áfram vinna að því að ganga
frá samningum við landeigendur
og ríkið um virkjanaréttindin. Þá
hefði hönnunarvinna og útboðs-
gagnagerð fyrir þessar virkjanir
verið boðin út.
„Við viljum fullhanna virkj-
anirnar og ganga frá útboðs-
gögnum þannig að það sé hægt að
bjóða þær út til framkvæmda og
við viljum ganga frá samningum
við landeigendur og vatnsrétt-
areigendur, þar sem er fyrst og
fremst um ríkið að ræða,“ sagði
Þorsteinn ennfremur.
Hann bætti við að niðurstaðan í
Hafnarfirði hefði hins vegar gert
það að verkum að óvissa hefði auk-
ist um það hvenær yrði ráðist í
framkvæmdir við virkjanirnar, þar
sem ekki yrði farið af stað nema
kaupandi að raforkunni væri fyrir
hendi. Aðspurður hvort nið-
urstaðan í Hafnarfirði væri áfall
fyrir fyrirtækið sagði hann að þeir
teldu að þeir hefðu getað náð mjög
hagfelldum samningum við Alcan.
Hins vegar ætti fyrirtækið sér
marga aðra stóra viðskiptavini og
Century Aluminum væri líka stór
viðskiptavinur, auk þess sem mark-
aður gæti verið fyrir fjölbreyttari
not á raforkunni í framtíðinni.
Þorsteinn
Hilmarsson
INGIBJÖRG Sólrún
Gísladóttir, formað-
ur Samfylking-
arinnar, segir að
kosningin í Hafn-
arfirði marki sögu-
leg tímamót fyrir
lýðræðið í landinu.
„Ég held að þetta
muni hafa þau áhrif
að aukin krafa verði um [íbúalýðræði]
meðal íbúa, bæði í sveitarfélögum og á
landsvísu.“
Aðspurð segir Ingibjörg að vel kunni
að hafa verið gallar á framkvæmdinni
og eðlilegt væri að reglur giltu, s.s. um
gegnsæi í fjármögnun svona baráttu.
„Ég held að það þurfi að reyna að passa
upp á það í svona kosningum eins og
öðrum að það gildi reglur um fram-
kvæmdina. En niðurstaðan er fengin,
fólkið hefur talað og þótt munurinn sé
ekki mikill er hann samt fyrir hendi.
Það hljóta því allir að virða þessa nið-
urstöðu. Það er ljóst að þarna tókust á
tvær ámóta stórar fylkingar og mik-
ilvægt er að bera klæði á vopn og reyna
að ná sátt,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Mikilvægt að
reyna að ná sátt
„ÉG tel að þessar
kosningar séu sögu-
legar, eða úrslitin
öllu heldur. Þetta er
fyrst og fremst stór
sigur fyrir lýðræðið,
ekki síst í ljósi þess
hversu ójafn leik-
urinn var. Þarna voru
umhverfisvernd-
arhreyfing og almannasamtök með
tvær hendur tómar gegn stórfyrirtæk-
inu og öllum peningunum. Þeim mun
sögulegri er þessi sigur,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs, og
bætir því við að niðurstaðan sé stærri
sigur fyrir sjónarmið umhverfisverndar
en menn átta sig á.
„Ég tel að þetta sé upphaf að áfram-
haldandi sókn þessara sjónarmiða sem
orkufyrirtækin, iðnfyrirtækin og stjórn-
völd verða að horfast í augu við. Núna
eru breyttir tímar og þessi viðhorf hafa
sótt gríðarlega á. Ég tel einnig merki-
legt að þetta er til marks um að fólk læt-
ur ekki hræðsluáróður slá sig út af lag-
inu.“
Steingrímur J. Sigfússon
„Núna eru
breyttir tímar“
„ÞETTA kom ekki
á óvart og ég átti í
raun von á að mun-
urinn yrði meiri,“
segir Magnús Þór
Hafsteinsson, vara-
formaður Frjáls-
lynda flokksins. „
Ég tel að það sé
sterk undiralda í
þjóðfélaginu hvað varðar að farið
verði að vinda ofan af þessari stór-
iðjustefnu og við þurfum að hugsa
okkur vandlega um fyrir næstu skref
í þessum efnum.“
Magnús segist vera þeirrar skoð-
unar að Húsavík eigi að njóta for-
gangs þegar kemur að álverum og
efast um að kosningamálin í ár lúti að
stóriðju og umhverfismálum. „Ég tel
að skuldir heimilanna og atvinnu-
málin í heild sinni hvíli meira á al-
menningi en umhverfismál. Mestu
átökin um þau mál eru í raun liðin
hjá. Slagurinn var tekinn í kringum
Kárahnjúka og það fór eins og það
fór. Við verðum að reyna vinna úr því
eins vel og við getum.
Magnús Þór Hafsteinsson
Úrslitin koma
ekki á óvart
ÓMAR Ragnarsson,
bráðabirgða-
formaður Íslands-
hreyfingarinnar – lif-
andi lands, segist
vona að niðurstaðan
gefi tóninn fyrir kom-
andi alþingiskosn-
ingar. „Niðurstaðan
er mjög mikilvægur
, þótt stríðið sé í raun allt
slensku stóriðjuflokk-
við þann möguleika að
em muni þurfa alla virkj-
ndsins – með ómældum
m. En ég vona að bylgjan
ssum árangri muni halda
þannig að við sjáum fram
f þessu tagi.“
að Hafnfirðingar hafi
ð þá kenningu að á höf-
inu hafi menn aðeins
ma í veg fyrir álver á
ni, en ekki á suðvest-
nn er hins vegar á þeirri
ðin öll hefði átt að kjósa
ál, ekki aðeins Hafnfirð-
son
ð í raun
t eftir
ARNDÍS Björns-
dóttir, formaður Bar-
áttusamtakanna, bar-
áttusamtök eldri
borgara og öryrkja
(BEÖ) og Höfuðborg-
arsamtökin (HBS),
segir kosninguna
merkilegan áfanga
en telur það liggja í
augum uppi að niðurstaðan hafi fengist
vegna þeirrar staðreyndar að álverið í
Straumsvík er inni í byggð í bænum.
Hún segist ekki viss um að útkoman
hefði verið sú sama væru forsendur aðr-
ar. „Þetta sýnir að fólk vill ekki hafa ál-
ver við húsdyrnar. Það þykir mér eðli-
leg krafa og ég get ekki ímyndað mér
að íbúar í Vallarhverfi séu beinlínis
glaðir með álversútsýnið,“ segir Arndís
og bendir á að einnig sé byggð að byggj-
ast upp meðfram strandlengjunni, suð-
ur með sjó.
Arndís segist einnig mótfallin því að
orkuverði til stóriðju skuli vera haldið
leyndu fyrir almenning og telur að það
myndi að einhverju leyti sætta þjóðina
að gera verðið opinbert.
Arndís Björnsdóttir
Fólk vill ekki ál-
ver við húsdyrnar