Morgunblaðið - 02.04.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 23
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
0
0
1
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
ER KOMINN!
Qashqai er glænýr tímamótabíll frá Nissan. Þessi fjórhjóladrifni
borgarjeppi sem beðið hefur verið með þvílíkri eftirvæntingu á
Íslandi á eftir að koma verulega á óvart, enda helsti tískubíllinn í
evrópskum borgum. Qashqai sameinar eiginleika töff borgarbíls
og harðsnúins fjallajeppa.
Qashqai – allt á einu bretti.
KOMDU OG REYNSLUAKTU
Nissan Qashqai 4x4
Verð frá 2.550.000 kr.
ÁFENGISMÁL eru
oft eins og falinn mála-
flokkur þ.e.a.s. það er
rætt af fjálgleik um
fíkniefnavandann en
þætti áfengisins, mik-
ilvirkasta vandamáls-
ins, þó oftast nær alveg
sleppt. Einstaka sinn-
um er þó sem menn
átti sig á þessu en að-
eins alltof sjaldan. Þrjú
atriði langar mig að nefna hér úr um-
fjöllun fjölmiðla síðustu daga sem
virkilega er vert að vekja frekari at-
hygli á. Viðtal sjónvarpsins við
ógæfumann vestur í Bandaríkjunum
vakti bæði samúð með manninum og
fólki hans en einnig heita andstyggð
á réttarfarinu í þessu landi „frels-
isins“ þar sem skinhelgin virðist ráða
ríkjum undir „kristilegum“ for-
merkjum. „Ég var blindfullur,“ sagði
fanginn og dró ekkert úr þessari
ástæðu illvirkisins án þess að vera í
nokkru að afsaka hegðun sína. Áhrif
neyzlunnar ótvíræð eins og í svo
skelfilega mörgum afbrotatilfellum
svo sem við eigum vel að vita.
Á skjánum birtist einnig óhugn-
anleg birtingarmynd þess hversu
sölumenn áfengis ganga langt í þeirri
viðleitni sinni að tæla sem allra yngst
fólk til fylgilags við fíknina. Áfeng-
isauglýsingar settar inn á vefinn með
myndum af ungu fólki að skemmta
sér, hvorki hirt um lög landsins sem
banna áfengisauglýsingar, né frið-
helgi einkalífsins þar sem þetta unga
fólk vissi ekki fyrr en það sá á Netinu
hvernig það var notað til þess að aug-
lýsa áfengi á hinn ógeðfelldasta hátt.
Við höfum löngum sagt að áfeng-
isauðvaldið svífist einskis til að ná
sem mestum gróða til sín, illa fengn-
um gróða vel að merkja. Augljósari
sönnun þessa er varla unnt að fá.
Svo var það athyglisvert viðtal við
yfirlækninn á Vogi, þann mæta mann
Þórarin Tyrfingsson, í Blaðinu þar
sem hann talar um nýtt afbrigði
áfengissýki hér á landi. Þar segir
hann að mesta hættan af bjór-
drykkju nú steðji að fólki sem komið
er yfir miðjan aldur. Hann lýsir erf-
iðleikum við afeitrun þessa fólks
vegna blóðþrýstingshækkana,
hjartasjúkdóma svo og aldurs að
sjálfsögðu. Orðrétt er haft eftir Þór-
arni um dagdrykkju þessa fólks:
„Það drekkur bjór á hverjum degi.
Það er öðruvísi en þetta túramunstur
þegar menn létu renna af sér því þá
var kannski hægt að hitta á þá þegar
þeir voru þurrir. En það er ekki
hægt með þetta fólk því það er stöð-
ugt drukkið.“ Þetta er nöturleg lýs-
ing á hegðunarmunstri þessa hóps.
En Þórarinn segir líka að það þurfi
að draga úr áfengisneyzlu hér á landi
og segir orðrétt: „Það vita allir
hvernig á að draga úr henni en það er
með því að hækka verð og minnka
aðgengi að vörunni.“
Ég segi nú bara: Taki þeir sneið
sem eiga, þeir sem vilja opna allar
gáttir svo neyzlan megi sem allra
mest verða. Ætli aðvörunarorð þess
sem af mestri alvöru fæst við afleið-
ingarnar nái ekki eyrum „frelsis“
postulanna eða ganga þeir virkilega
annarra erinda? Ekki vil ég í alvöru
trúa því en undarleg er áráttan engu
að síður þar sem öllum staðreyndum
er snúið á haus.
Og svona sem krydd í þetta allt í
lokin þá hljómar nú í út-
varpsfregnum að áfeng-
issala hafi enn aukist
milli ára eða um 6% tal-
ið í hreinum alkóhóllítr-
um.
En þrátt fyrir allt og
þó að ár færist yfir er ég
samt sem áður þeirrar
bjartsýni aðnjótandi að
senn muni þjóðinni
þykja nóg komið, að það
verði vitundarvakning
hjá fólki þar sem blá-
kaldur veruleikinn lýsir
leið að því marki að gjöra þær ráð-
stafanir sem megna að bægja þessari
hræðilegu heilsuvá frá sem allra
flestum. Til þess átaks erum við í
IOGT alltaf reiðubúin með þeim sem
heill samfélagsins meta meira en
gróða fárra til ógæfu fyrir svo alltof
marga.
Helgi Seljan skrifar
um áfengisneyslu
Helgi Seljan.
» Taki þeir sneið semeiga, þeir sem vilja
opna allar gáttir svo
neyzlan megi sem allra
mest verða.
Höfundur er formaður fjölmiðla-
nefndar IOGT.
Vitundarvakningar er þörf
FYRRVERANDI oddviti okk-
ar Breiðdælinga til margra ára,
Lárus Sigurðsson, sendi undirrit-
uðum og sveitarstjórn Breiðdals-
hrepps góðar kveðjur í Morg-
unblaðinu hinn 28. mars sl.
Af því tilefni vil ég benda á að
það sem sveitarstjórn Breiðdals-
hrepps samþykkti var að senda
bæjarstjórn Fjarðabyggðar er-
indi um ósk um viðræður. Nú á
eftir að koma í ljós hvað þær við-
ræður leiða af sér, en eins og
flestir vita sem til þekkja og sveit-
arstjórnarlög kveða á um eru það
íbúar sem hafa síðasta orðið í
þeim efnum.
Jafnframt er rétt að minna á að
fyrir rúmum tveimur árum sendi
þáverandi sveitarstjórn Breið-
dalshrepps, sem Lárus var odd-
viti fyrir, svipaða ósk til Fljóts-
dalshéraðs. Ég minnist þess ekki
að efasemdir um lýðræði hafi þá
komið fram, en ef til vill er hefð
fyrir takmörkuðu lýðræði í Breið-
dal.
Páll Baldursson
Af lýðræði í Breiðdal
Höfundur er sveitarstjóri
Breiðdalshrepps.
Handan við völlinn
stíga knaparnir á bak
ríða heiminum.
Skáldið horfir út um
gluggann á Café París
yfir Austurvöll
til Alþingishússins.
Gunnar Dal, mars 2007.
Hæka