Morgunblaðið - 02.04.2007, Side 28
Eftir Eyþór Árnason
Mikið var um að vera íhestasportinu í liðinniviku. Á fimmtudag varfimmgangur í meistara-
deild VÍS og á laugardaginn var svo
Kvennatöltið í Glaðheimum og Ístölt-
ið í Skautahöllinni í Laugardal.
Heiður kvenna í veði
Hulda Gústafsdóttir kom, sá og
sigraði í meistaradeildinni eftir að
hafa hrifið alla með sér, bæði í for-
keppninni og úrslitunum. Hulda á
Galdri frá Flagbjarnarholti sveif með
glæsibrag inn í úrslit með 6,80 en á
eftir henni kom svo Páll Bragi Hólm-
arsson með 6,73.
Þrátt fyrir að Hulda heillaði alla
upp úr skónum var Viðar Ingólfsson
mjög beittur í úrslitunum og náði að
jafna um hana þannig að þau þurftu
bráðabana. Hulda og Viðar voru mjög
jöfn í bráðabananum og sá ekki á milli
hvor myndi hafa betur þegar það kom
að skeiðsprettinum. Greinilegt var að
Riddari var orðinn þreyttur hjá Við-
ari og tókst honum í hvorugum
sprettinum að leggja klárinn. Hulda
sem fór báða skeiðsprettina með
glæsibrag endaði því sem sigurvegari
og bjargaði heiðri kvenna en þær hafa
ekki riðið feitum hesti hingað til á
þessu móti. Í þriðja sæti varð hinn
þaulreyndi Sigurbjörn Bárðarson á
Stakk frá Halldórsstöðum en hann
vann sig upp úr b-úrslitum. Páll Bragi
Hólmarsson náði ekki að finna full-
komlega taktinn í úrslitum og endaði í
fjórða sæti.
Í stigakeppni knapa er sem fyrr
Þorvaldur Árni Þorvaldsson en marg-
ir höfðu reiknað með honum ofar
þetta kvöld en hann endaði í sjötta
sæti. Viðar Ingólfsson náði að skjóta
sér upp fyrir Sigurð Sigurðarson og
upp í annað sætið.
Þorvaldur bestur í þriðja sinn
Ístöltið fór fram í tíunda sinn um
helgina. Sigurvegari kvöldsins var
Þorvaldur Árni Þorvaldsson á gæð-
ingnum Rökkva frá Hárlaugsstöðum.
Þetta var þriðji ístöltstitill Þorvaldar í
röð og er því greinilegt að hann finnur
sig vel á ísnum. Þorvaldur var annar
inn í úrslit en engum tókst að ógna
honum þar því hann var efstur allan
tímann og vann með glæsibrag. Þór-
arinn Eymundsson á Krafti frá
Bringu var fyrstur eftir forkeppnina
en endaði í öðru sæti. Hinn ungi og
efnilegi Valdimar Bergstað náði að
vinna sig upp úr b-úrslitum og náði
svo að krækja í þriðja sætið í úrslit-
unum.
Jafn leikur
Metþátttaka var á Kvennatölti
Gusts í Glaðheimum. Mikil spenna
var í opna flokknum en eftir for-
keppnina voru Erla Guðný Gylfadótt-
ir, Hulda Gústafsdóttir og Marjolijn
Tiepen jafnar og ljóst að það stefndi í
mikla keppni í úrslitum. Erla Guðný,
sem reið Smyrli frá Stokkhólma,
leiddi keppnina eftir hæga töltið og
hraðabreytingar. Marjolijn kom svo
sterk inn í yfirferðinni og fékk háar
tölur fyrir. Enn svo fór að Erla Guðný
vann með 7,44 og Marjolijn varð önn-
ur með 7,39. Úrslit í öðrum flokkum
er hægt að sjá hér að neðan.
Gæðingaveisla
á ís og jörð Með glæsibrag Hulda Gústafsdóttir og Galdur frá Flagbjarnarholti unnu í fimmgangi meistaradeildar.
Metþátttaka Mikil spenna var í opnum flokki á Kvennatölti Gusts í Glaðheimum á laugardaginn.
Ístölt Þorvaldur Árni Þorvaldsson varð Ístöltsmeistari þriðja árið í röð.
Fimmgangur
meistaradeildar VÍS
1. Hulda Gústafsdóttir á Galdri
frá Flagbjarnarholti, 7,36.
2. Viðar Ingólfsson á Riddara
frá Krossi, 7,36.
3. Sigurbjörn Bárðarson á
Stakk frá Halldórsstöðum,
7,05.
4. Páll Bragi Hólmarsson á
Kjóa frá Stóra-Vatnsskarði,
6,90.
5. Eyjólfur Þorsteinsson á Eitli
frá Vindási, 6,71.
6. Þorvaldur Árni Þorvaldsson á
Þokka frá Kýrholti, 6,10.
7. Haukur Baldvinsson á Fal frá
Þingeyrum, 6,83.
8. Sigurður V. Matthíasson á
Birtingi frá Selá, 6,81.
9. Sævar Örn Sigurvinsson á
Leyni frá Erpsstöðum, 6,76.
10. Jóhann G. Jóhannesson á
Hrannari frá Þorlákshöfn,
6,40.
Staðan í stigakeppni knapa
1. Þorvaldur Árni Þorvaldsson,
35 stig.
2. Viðar Ingólfsson, 30 stig.
3. Sigurður Sigurðarson, 25 stig.
4. Hulda Gústafsdóttir, 18 stig.
5. Atli Guðmundsson, 16 stig.
Staðan í liðakeppni
Lið Kaupþings: 390 stig.
Lið Málningar: 386 stig.
Lið Icelandair: 378 stig.
Lið IB.is: 346 stig.
Ístölt 2007
1. Þorvaldur Á. Þorvaldsson á
Rökkva frá Hárlaugsstöðum,
8,82.
2. Þórarinn Eymundsson á Krafti
frá Bringu, 8,62.
3. Valdimar Bergstað á Leikni
frá Vakurstöðum, 8,53.
4. Sigurður Sigurðarson á Freyði
frá Hafsteinsstöðum, 8,50.
5. Viðar Ingólfsson á Tuma frá
Stóra-Hofi, 8,48.
6. Lena Zielinski á Einingu frá
Lækjarbakka, 7,76.
7. Daníel Jónsson á Þóroddi frá
Þóroddsstöðum, 7,66.
8. Sigurbjörn Bárðarson á Mark-
úsi frá Langholtsparti, 7,56.
9. Eyjólfur Þórsteinsson á Há-
reki frá Vindási, 7,54.
Kvennatölt Gusts
Byrjendaflokkur:
1. Sigríður Jónsdóttir, Andvara,
og Snerra frá Reykjavík 6,37/
6,83.
2.–3. Drífa Daníelsdóttir, Fáki,
og Háfeti frá Þingnesi 6,03/6,17.
2.–3. Hulda Gunnarsdóttir, Geysi,
og Eydís frá Djúpadal 6,23/6,17.
4. Jódís Sigurðardóttir, Andvara,
og Vafi frá Svalbarða 5,43/5,75.
5. Elísabet Reinhardsd., Fáki, og
Hrísla frá Efri-Brú 5,27/5,67.
Áhugam. – minna keppnisvanar:
1. Cecilie Flydahl, Geysi, og
Hvinur frá Egilsstaðakoti 6,43/
6,83.
2. Svandís Sigvaldad., Gusti, og
Dreki frá Skógskoti 5,83/6,39.
3. Sirrý Halla Stefánsd., Gusti,
og Lind frá Úlfsstöðum 5,77/6,11.
4. Ásdís Ó. Sigurðard., Snæfell-
ingi, og Mosi frá Kílhrauni 5,50/
5,94/6,00 (vann B-úrsl.)
5. Guðrún Valdimarsd., Herði, og
Víkingur frá Efri-Gegnishólum
5,67/5,94.
Áhugam. – meira keppnisvanar:
1. Elísabet Sveinsdóttir, And-
vara, og Pendúll frá Sperðli 5,73/
6,28/6,61 (vann B-úrslit, sigraði
svo A-úrslit eftir bráðabana).
2. Guðríður Gunnarsdóttir, Gusti,
og Örvar frá Selfossi 5,97/6,61.
3.–5. Katrín Stefánsdóttir, And-
vara, og Skuggi frá Litlu-
Sandvík 5,83/6,28.
3.–5. Henna Siren, Geysi, og
Svalur frá Hvassafelli 5,90/6,28.
3.–5. Guðrún Edda Bragad.,
Fáki, og Hávarður frá Búðarhóli
5,77/6,28.
Opinn flokkur:
1. Erla Guðný Gylfad., Andvara,
og Smyrill frá Stokkhólma 6,63/
7,44.
2. Marjolijn Tiepen, Geysi, og
Vígar frá Skarði 6,63/7,39.
3. Hulda Gústafsdóttir, Fáki, og
Þota frá Árbæ 6,63/7,17.
4. Íris Hrund Grettisd., Fáki, og
Nubbur frá Hólum 6,27/6,78/7,0
(vann B-úrsl.)
5.–6. Berglind Ragnarsd., Fáki,
og Fjalar frá Hvolsvelli 6,57/6,56.
5.–6. Signý Á. Guðmundsd., Fáki,
og Dimma frá Strandarhöfði,
6,57/6,56.
Úrslit
28 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR