Morgunblaðið - 02.04.2007, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 02.04.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 29 Auglýstu atburði á þínum vegum hjá okkur Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1100 • Tónleika • Myndlistar- sýningar • Leiksýningar • Fundi • Námskeið • Fyrirlestra • Félagsstarf • Aðra mann- fagnaði árnað heilla ritstjorn@mbl.is Frístundir og námskeið Lesblindusetrið | Sérsniðin hraðlestrarnámskeið fyrir krakka frá 10-18 ára. Gefðu barninu þínu tæki- færi til að tvöfalda – jafnvel margfalda lestrarhraða sinn. Kolbeinn Sigurjónsson. Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handav. kl. 9-12. Smíði/ útskurður kl. 9-16.30. Söngstund kl. 10.30. Fé- lagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, morg- unkaffi/dagblöð, bútasaumur, fótaaðgerð, sam- verustund, hádegisverður, bútasaumur, kaffi. Uppl. í s. 535-2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull- smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10- 11.30. S. 554-1226. Skrifstofan í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13- 14. S. 554-3438. Félagsvist í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félagsvist í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bridds kl. 13. Kaffi- tár kl. 13.30. Danskennsla Sigvalda, línudans kl. 18. Samkvæmisdans byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leið- beinandi verður til hádegis. Boccia kl. 9.30. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og kl. 13. Lomber kl. 13.15. Canasta kl. 13.15. Kóræfing kl. 17. Skapandi skrif kl. 20. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9.05 postu- línsmálun, kl.10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 bridds, kl. 20.30 félagsvist FEBK. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45 í Kirkjuhvoli. Í Garðabergi er bíó- sýning kl. 13, Garðaberg opið til 16.30. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Handa- vinnustofan í Þjónustumiðst. Hlaðhömrum er opin alla virka daga eftir hádegi. Margskonar handa- vinna, t.d. kortagerð, postulínsmálun og skart- gripagerð. Einnig standa yfir námskeið í tréskurði og bókbandi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Kl. 9.50 sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug. Frá hádegi spilasalur opinn. Kóræfing fellur niður, Gerðubergskórinn syngur við messu á Droplaugarstöðum miðvikud. 4. apríl kl. 14.30. Fimmtud. 10. maí leikhúsferð í Borgarleikhúsið „Ást“, skráning hafin á staðnum og s. 575-7720. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, prjónaðar handstúkur og kortagerð. Jóga kl.9-11, Sóley Erla. Frjáls spilamennska kl. 13-16. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir s. 588-2320. Hæðargarður 31 | Munið gönguferðina alla laug- ardagsmorgna kl. 10 árdegis. Gengið alla virka morgna kl. 9 eftir kaffisopa og blöðin. Hefurðu heyrt um Halaferðina, tölvukennsluna, bútasaum- inn, glerskurðinn, postulínið og bókmenntahópinn og allt hitt? Samfylkingin 60+ miðvikud. kl. 14. Allir velkomnir. S. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, þriðjudag, er sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30. Kvenfélag Garðabæjar | Félagsfundur í Garðaholti þriðjudaginn 3. apríl kl. 20. Fróðlegur og páska- legur fundur auk hefðar. Kaffinefndir hverfi: 2, 5, 6 og 11. Kvenfélagið Heimaey | Farið verður í óvissuferð í dag frá kirkjunni í Mjódd stundvíslega kl. 18. Mætið helst kl. 17.30. Tvær rútur. Dússý, s. 565-6480; 864-2721; Palda, s. 895-1328, Fríða, s. 868-8038. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund kl. 10.30. Handavinnustofur kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Uppl. í s. 552-4161. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Hátúni 12. Bridds í kvöld kl. 19. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30- 15.45 kaffiveitingar. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 félagsráðgjafi (annan hvern mánudag). Kl. 13 opinn salur. Kl. 13.15 leikfimi. Kirkjustarf Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með morgunsöng á Dalbraut 27, kl. 9.30 í dag. Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára í Grafarvogs- kirkju kl. 17-18. TTT fyrir 10-12 ára í Húsaskóla kl. 17- 18. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk í Graf- arvogskirkju kl. 20. Lesið úr Passíusálmum séra Hallgríms Péturssonar. Í dag kl. 18 les Sæunn Stef- ánsdóttir. Hjallakirkja | Páskaeggjabingó kl. 20. Margvíslegir bingóvinningar, páskaegg, páskaskraut, sælgæt- iskörfur og fleira. Bingóspjaldið kostar kr. 300. All- ur ágóði af bingóinu rennur til barna- og æskulýðs- starfs kirkjunnar. Allir velkomnir. Laugarneskirkja | Harðjaxlarnir kl. 16. Umsjón María Magnúsdóttir. Kvenfélagsfundurinn sem hefði átt að vera í kvöld venju samkvæmt fellur nið- ur. 60ára afmæli. 31. marssíðastliðinn varð sex- tugur Ingólfur Karl Sigurðs- son. Af því tilefni tekur hann á móti gestum í kvöld, mánu- dagskvöldið 2. apríl, á Stór- höfða 29 (gengið inn á bak við), milli klukkan 19 og 21. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda til- kynningu og mynd á net- fangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja lið- inn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. dagbók Í dag er mánudagur 2. apríl, 92. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Eggert Þór Bernharðssonsagnfræðingur flytur erindiá morgun, þriðjudag, semhluta af fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands. Yfirskrift fyrirlestrarins er Ferð til fortíðar. Sögusýningar á Íslandi, og hefst hann kl. 12.05 í fyrirlestrarsal Þjóðminja- safnsins. „Viðfangsefni fyrirlestrarins er miðlun sögunnar eins og hún birtist á sögusýningum á Íslandi; hverju er miðlað og hvernig,“ segir Eggert. „Á síðastliðnum árum hefur mátt greina ný viðmið í sýningagerð, litið er til nýrra aðferða og framsetningar, og er ný grunnsýning Þjóðminjasafnsins oft nefnd í því sambandi.“ Eggert segir óvenjumargar sögu- sýningar að finna á Íslandi miðað við fólksfjölda: „Mikil uppgangur hefur verið síðustu ár og margskonar sögu- setur og sérsýningar hafa verið opn- aðar í þéttbýli og dreifbýli,“ segir Eggert. „Áður fyrr voru sýningar oft samtíningur áhugaverðra gripa, en nú má æ oftar sjá sérhannaðar og út- hugsaðar sýningar þar sem nýstár- legar miðlunaraðferðir eru notaðar til að vekja athygli á efninu. Um leið hafa tækniframfarir valdið byltingu í sýn- ingarmöguleikum t.d. með aukinni gagnvirkni.“ Eggert segir viðfangsefni sögusýn- inga á Íslandi frekar hefðbundið, og vill í fyrirlestrinum hvetja sýnendur til dáða: „Gaman væri að sjá meira ögr- andi sýningar þar sem tekin er sterk- ari afstaða í málum eða valið efni sem kallar á meiri viðbrögð gesta,“ segir Eggert. „Samtímasagan hefur líka orðið útundan í sögusýningum hér á landi, nánar tiltekið saga 20. aldar frá lokum seinni heimsstyrjalda. Fjölgun sögusýninga í þéttbýli er þó að rétta hlut samtímasögunnar, enda saga þéttbýlis á Íslandi að stærstum hluta 20. aldar saga.“ Að sögn Eggerts eru sögusýningar mikilvægur miðill fróðleiks: „Bæði er safnkennsla mikilvægt tæki til að gefa börnum og unglingum innsýn í sög- una, en sýningar eru ekki síður til að svala fróðleiksþorsta almennings,“ segir Eggert. „Tölur Hagstofu Íslands sýna að mikil aðsókn er þennan miðil, en árið 2005 voru gestir á söguminja- söfnum á íslandi 625.000 og því ljóst að áhuginn er mikill á spennandi sýn- ingum.“ Finna má frekari upplýsingar á slóðinni www.sagnfraedingafelag.net. Sagnfræði | Fyrirlestur um sögusýningar í Þjóðminjasafninu á þriðjudag kl. 12.05 Ferð til fortíðar  Eggert Þór Bernharðsson fæddist í Reykja- vík 1958. Hann lauk stúdentsprófi frá MS 1978, BA í sagnfræði og stjórnmálafræði frá HÍ 1983 og cand. mag. í sagn- fræði frá sama skóla 1992. Eggert hef- ur stundað ritstörf og rannsóknir og er höfundur Sögu Reykjavíkur 1940– 1990. Hann hóf störf við HÍ 1987 sem stundakennari, síðar aðjúnkt og dós- ent frá 2006. Eggert er kvæntur Þór- unni Valdimarsdóttur sagnfræðingi og eiga þau tvo syni. PÁSKAHELGIN er framundan og eru íbúar Oviedo á Spáni meðal þeirra sem huga að hátíðahöldum. Meðfylgjandi mynd var tekin í einni af fjölmörgum skrúðgöngum sem fram fara í páskavikunni ár hvert á Spáni og eru aðdráttarafl fyrir þúsundir ferðamanna. Líður að páskum MENNINGARSJÓÐUR Glitnis styrkir Verzl- unarskóla Íslands og Alþjóðaskólann (Inter- national School of Iceland) um samtals 15 millj- ónir svo efla megi nám á ensku. Íslenskir sem erlendir nemendur eiga nú kost á að ljúka nærri allri sinni skólagöngu í íslenskum skólum þar sem kennt er á ensku. Samkvæmt samningnum greiðir Glitnir sam- tals 15 milljónir króna til skólanna tveggja næstu þrjú ár svo að efla megi nám á ensku. Með þessum styrk mun Alþjóðaskólinn innleiða að fullu alþjóðanámskrá (International Primary Curriculum) fyrir nemendur sína sem eru á aldr- inum 5 til 13 ára. Þá mun Verzlunarskóli Íslands hefja kennslu á námsbraut þar sem allt náms- efnið og öll kennsla fer fram á ensku og auka þannig valmöguleika nemenda á framhalds- skólastigi. Íslenskum börnum sem leggja stund á nám við skólana verður gert að stunda krefjandi nám í íslensku. Gerðar eru strangar kröfur til þeirra sem sækja um inngöngu í námið. Enn sem komið er geta skólabörn á Íslandi ekki valið enskumælandi nám á miðskólastigi, eða frá 13 til 15 ára aldri. Nám á ensku eflt til muna Morgunblaðið/G. Rúnar Styrkur Berta Faber frá Alþjóðaskólanum, Ingi Ólafsson, aðstoðarskólastjóri Verslunarskólans, og Jón Diðrik Jónsson, forstjóri Glitnis á Íslandi, undirrita samninginn. Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.