Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 30

Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ÞARF SALSA- SÓSU... EINS OG SKOT ALLT Í LAGI, HÚN HEFÐI EKKI ÁTT AÐ HENGJA ÞAÐ ÚT Á SNÚRU Í FROSTI! ÞÚ ÆTTIR AÐ VERA ÁNÆGÐUR MEÐ AÐ MAMMA HAFI ÞVEGIÐ TEPPIÐ ÞITT! HVERNIG ÁTTI HÚN AÐ VITA AÐ ÞAÐ MUNDI FRJÓSA?! ÞAÐ VAR EKKI AUÐVELT AÐ FÁ KALVIN TIL AÐ LEGGJA AF STAÐ Í SKÓLANN HANN VERÐUR AÐ HLAUPA TIL ÞESS AÐ NÁ SKÓLABÍLNUM HANN ER BYRJAÐUR AÐ HLAUPA... ER HANN SVONA SPENNTUR YFIR... STOPP! KALVIN, SKÓLABÍLLINN STOPPAR ÞARNA! KOMDU AFTUR HINGAÐ EINS OG SKOT! ÁÐUR EN VIÐ FÖRUM Í LAND VIL ÉG VARA YKKUR VIÐ ÞVÍ AÐ ÞESSI BÆR ER FRÆGUR FYRIR AÐ VERA FULLUR AF SKÍTUGUM KRÁM, MEÐ LAUSGIRTU KVENFÓLKI OG SLÆMU, HEIMABRUGGUÐU ÁFENGI SVO AÐ VIÐ SÉUM EKKI AÐ EYÐA ÓÞARFA TÍMA ÞEGAR VIÐ KOMUM Í LAND, ERTU ÞÁ EKKI TIL Í AÐ TEIKNA HANDA OKKUR KORT SEM SÝNIR HVAR ÞÆR ERU? GRÍMUR, AF HVERJU TÓKSTU AF ÞÉR ÓLINA ÞÍNA? VIL EKKI FÁ FAR Í BRUNKUNA AF HVERJU ERTU AÐ ÞRÍFA NÚNA? ÉG GAT EKKI SOFIÐ Í NÓTT ÞANNIG AÐ ÉG ÁKVAÐ AÐ GERA EITTHVAÐ GAGN ÉG ER BÚIN AÐ RYKSUGA, ÞURRKA AF ÖLLU OG SKÚRA GÓLFIN ÞAÐ ER HRÆÐI- LEGT AÐ ÞÚ HAFIR ÞURFT AÐ EYÐA NÓTTINNI Í ÞETTA EN HÚSIÐ LÍTUR ROSALEGA VEL ÚT EKKI VENJAST ÞVÍ! GÓÐIR HUNDAR AFSAKIÐ STRÁKAR. ÉG ER VISS UM AÐ ÞIÐ SÉUÐ GÓÐIR GEGN INNBROTSÞJÓFUM... EN KÓNGU- LÓARMAÐURINN ER AÐEINS OF ERFIÐUR dagbók|velvakandi Velvakandi Á DÖGUNUM birtist hér í Velvak- anda stutt hugleiðing eftir Bjarna Jónsson, fyrrum verkamann. Hug- leiðingin var um hrós og um leið hvatning til allra um að vera ekki að spara það. Þetta var falleg hugleið- ing hjá Bjarna. Ég iðkaði það í eina tíð að gefa alltaf hrós dagsins, þ.e.a.s. að láta aldrei dag líða án þess að hrósa allavega einu sinni og það helst einhverjum ókunnugum. Ég hafði gleymt þessari iðju minni og minnti Bjarni mig á hana. Fyrir það er ég honum þakklátur og hrós dagsins fær Bjarni fyrir falleg skrif. Andri Gunnarsson. Hraðahindanir í Skaftahlíð ÞAKKIR til Kjartans Magn- ússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins. Ég vil koma þakklæti til Kjartans Magnússonar fyrir skjót vinnu- brögð þegar hann lét setja upp hraðahindranir í Skaftahlíð, þ.e.a.s. frá Lönguhlíð að Stakkahlíða í nóv- ember síðastliðnum. Ég vil koma þessu þakklæti á framfæri vegna þess að það var búið að ræða þessi mál við fráfarandi meirihluta borg- arstjórnar sl. tvö ár. Vel var tekið í málið en ekkert varð úr efndum. Það var ekki fyrr en nýr meirihluti tók við borginni að eitthvað fór að gerast. Undirritaðir hafði samband við Kjartan í byrjun nóvember og hálfum mánuði síðar var málið leyst. Þetta eru vinnubrögð sem ég kann að meta. Guðmundur Kr. Þórðarson. 600 í súginn ÉG SÁ í Fréttablaðinu 23. mars sl. að togarinn Venus HF-519 kom úr mánaða veiðiferð norður í dumbs- haf. Í fréttinni stóð: „Hann landar 400 tonnum af afurðum sem gera 1.000 tonn upp úr sjó“. Hvað varð um þessi 600 tonn sem komu að landi? Eru 600 tonn úrgangur? Hvers konar umhverfisglæpur er þetta. Hvað erum við með marga svona togara, og það á nærmiðum. Þorsteinn Pálson gerði, á sínum tíma, tillögu um að sett yrði í lög að úthafstogarar kæmu með allan aflann að landi og yrðu útbúnir vél- búnaði til að vinna afskurð. En for- ystumenn í togaraútgerðinni töldu betra að henda þessu. Og þetta er útkoman. Það er til háborinnar skammar að fara svona með verð- mæti. Einar Vilhjálmsson. Skila skattalækkanir sér ATHYGLISVERÐ þróun á vöru- verði hefur átt sér stað í Select und- anfarnar vikur. Sagan er eftirfar- andi: Verð á kaffi í Select var fyrir skömmu 150 kr., í stuttan tíma hækkaði það í 175 kr., síðan eftir skattlækkun fór það niður í 164 kr. Allt þetta gerist óheppilega nálægt þeim tíma sem Alþingi hafði áætlað að lækka vöruverð í landinu. Ætli þetta hafi nokkuð verið raunin með aðrar vörur sem áttu að taka lækk- unum um land allt. Áhyggjufullur neytandi. Mávarnir MIG langar til að lýsa ánægju minni með þá ákvörðun að svæfa máva. Löngu er orðið tímabært að fækka þessum fuglum og er ég mjög þakklát fyrir að loksins sé eitthvað gert. Get vonandi farið með börnin mín niður að Tjörn í sumar án þess að verða fyrir sjokki vegna atgangs þessara fugla en sú varð raunin í fyrra þegar þeir átu alla ungana beint fyrir framan okkur. Reykvíkingur. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Hókus pókus-dagar í Leikbæ Á DÖGUNUM stóðu yfir svokallaðir Hókus pókus-dagar í Leikbæ þar sem veittur var 33% afsláttur af öllum vörum. Í tilefni af þessu var plakati með Lalla og Lísu dreift á heimili og börn hvött til að hengja plakatið út í glugga. Leikbæjarbíllinn var svo á ferðinni um bæinn, valdi merkta glugga á hverjum degi og verðlaunaði eigendur þeirra með 20.000 kr. gjafabréfum í formi Leikbæjarseðla. Í heildina voru því veitt gjafabréf að verðmæti 140.000 kr. Nöfn þeirra heppnu sem fengu 20.000 kr. í Leikbæjarseðlum fylgja hér á eftir: Agnes og Björgvin Óli Geirsbörn, Anna Bryndís Ómarsdóttir, Ásdís og Íris Gunnarsdætur, Fríða Snædís Jóhannesdóttir, Hrafnhildur Sigurðar- dóttir, Jón Foss Guðmundsson, Sesselja Sif Stefánsdóttir og Rúnar Leví og Teitur Jóhannssynir. Alcoa fagnar þjóðgarði FYRIRTÆKIÐ Alcoa, sem opnar álver á Reyðarfirði innan tíðar, fagnaði á vefsíðu sinni ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda um að stofna Vatnajökulsþjóðgarð. Á vefsíðunni kemur fram að Alcoa hafi um nokk- urra ára skeið hvatt til stofnunar Vatnajökulþjóðgarðs og fylgst með undirbúningnum. Vatnajökulsþjóðgarður, sem Al- þingi samþykkti að stofna áður en það lauk störfum þann 17. mars síð- astliðinn, verður stærsti þjóðgarð- ur Evrópu. Þann 15. mars 2006 veitti Alcoa 20 milljónir króna í styrk til upp- byggingar í þjóðgörðunum í Jökuls- árgljúfri og Skaftafelli. Sú upphæð var notuð til að fjármagna sýningu á umhverfi, sögu og menningar- arfleifð friðlandsins við Jökuls- árgljúfur sem sett verður upp í Upplýsingamiðstöð Jökuls- árgljúfra. Stefnt er að því að opna Gljúfrastofu, gestastofu og upplýs- ingastofu við Jökulsárgljúfur nú í vor. Auk þess var féð notað til að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn í Lakagígum innan þjóðgarðsins í Skaftafelli. Vatnajökulsþjóðgarður mun ná yfir um 15% landsins, en Skafta- fellsþjóðgarður og þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum munu renna sam- an við hann. Þá er áætlað að hann taki til starfa formlega í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.