Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 39
Páskarétturinn
í ár er lambahryggur með
chili-apríkósugljáa.
Sjá nýstárlegar uppskriftir á www.lambakjot.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
0
0
9
RÉTT eftir að myndin hefst sjáum
við aðalsöguhetjuna, stöðumæla-
vörðinn Roger (Heder), vera að rýna
í bók sem heitir Hvernig á að þrauka
þótt ekkert gangi, eða eitthvað
ámóta gæfulegt. Sjálfsagt hefur það
verið ætlunin að School for Scound-
rels yrði gamansöm ádeila á pen-
ingaplokkið á bak við hjálpaðu-þér-
sjálfur-iðnaðinn, þótt niðurstaðan sé
ekki jafnfyndin og hún hefði auð-
veldlega getað orðið með meiri yf-
irlegu og metnaði hjá handritshöf-
undinum og leikstjóranum Phillips
(Starsky and Hutch).
Roger er stöðumælavörður í New
York, vansæll og uppburðarlaus.
Hann verður fyrir endalausu áreiti í
lífinu, er niðurlægður af vinnufélög-
unum, smáður af borgurunum og
það líður yfir Roger af skelfingu
þegar hann reynir að reyna við
Amöndu (Barrett), stelpuna í næstu
íbúð. Þá er honum bent á endurhæf-
ingarskóla dr. P. (Thornton), sem
beitir óhefðbundnum aðferðum við
að hjálpa skræfum að hrista upp í
sálartötrinu og leita vandfundinnar
karlmennskunnar. Stefnir allt í já-
kvæðan árangur uns doksi fer að
reyna við Amöndu.
Það tekur smátíma að átta sig á
því að Heder er enginn annar en
náunginn sem lék svo eftirminnilega
aulabárðinn Napoleon Dynamite,
hér er hann ósköp geðþekkur venju-
legur strákur með hörmulega sjálfs-
mynd. Billy Bob er skemmtilega
ósvífinn og undirförull flagari sem
hagnýtir sér vesaldóm annarra á all-
an hátt. Samleikur þeirra gerir
myndina að óvæntri, þokkalegri af-
þreyingu, ef aðeins er hugsað um
augnablikið.
Stöðu-
mælavörð-
ur hristir af
sér volæðið
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn
Leikstjóri: Todd Phillips. Aðalleikendur:
Billy Bob Thornton, Jon Heder, Jacinda
Barrett, Michael Clarke Duncan, Luis
Guzman. 101 mín. Bandaríkin 2007.
School for Scoundrels Sæbjörn Valdimarsson
Kennarinn „Billy Bob er skemmti-
lega ósvífinn og undirförull flagari
sem hagnýtir sér vesaldóm annarra
á allan hátt.“
ÞAU leiðu mistök urðu við vinnslu
dóms Heiðu Jóhannsdóttur um
frönsku myndina Vísindi svefnsins
(La Science des rêves) að leikarinn
Gael Garcia Bernal var sagður leik-
kona en ekki leikari. Rétt umsögn
er: „Gael Garcia Bernal gefur sig al-
gerlega á vald þeirrar undarlegu en
fallegu persónu sem Stephane er og
sýnir hér óvæntar hliðar á sér sem
leikara.“
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT
STÖKKBREYTTU táninga-
ofurskjaldbökurnar Rafael, Dona-
tello, Leonardo og Michelangelo þarf
ekki að kynna fyrir lesendum. Þessar
bardagaglöðu teiknimyndasögufíg-
úrur náðu feikivinsældum á 9. ára-
tugnum, þegar þær voru söguhetjur í
sjónvarpsþáttum. Líkt og flestar slík-
ar hófu þær göngu sína á síðum has-
arblaðanna og enduðu á hvíta tjald-
inu. Bíómyndirnar eru orðnar
allnokkrar, TMNT, sú nýjasta, segir
frá baráttu þeirra við forsögulegar
óvættir sem auðmaður í New York
vekur upp til að nota í illum tilgangi.
Það er fátt nýtt undir sólinni í ver-
öld skjaldbaknanna, þær eru eins og
aðrar ofurhetjur ódrepandi þegar
upp er staðið. Hiksta dálítið á tímabili
en sögulokin jafnan fyrirsjáanleg.
Í myndarbyrjun er risið lágt á
bræðrunum fjórum, Rafael er sá eini
sem enn berst að hætti Kónguló-
armannsins og allra hinna við rumpu-
lýð New York-borgar. Af nógu að
taka þrátt fyrir skrúbbinn hans Giuli-
anis.
Upphaflega voru söguhetjurnar
hugsaðar sem skopstæling á þeim
urmul teiknimyndasagnahetja sem
tröllríða afþreyingarheiminum. Þau
skil eru horfin, eftir sitja frekar óaðl-
aðandi söguhetjur sem hafa litlu við
að bæta löngu mettað framboðið.
Tölvutæknin er tekin við og útlitið
hefur batnað og er óaðfinnanlegt, en
söguna og fígúrurnar skortir tilfinn-
anlega einhvers konar taugakerfi og
sjarma sem áhorfendur geta tengt
sig við. TMNT er hröð og vandvirkn-
isleg en fjarlæg og húmorslaus.
Skaðlaus bægaslagangurinn sjálfsagt
ætlaður krökkum komnum undir
fermingu.
Skjaldbökuhetjur stíga upp úr skólpræsunum
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Kevin Munroe. Teiknimynd
með ensku tali. 87 mín. Hong Kong/
Bandaríkin 2007.
TMNT Sæbjörn Valdimarsson
TMNT „Hröð og vandvirknisleg en fjarlæg og húmorslaus.“
Fréttir á SMS