Morgunblaðið - 24.04.2007, Page 21
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 21
Það fer ekki fram hjá nokkrum
manni að vorið er á fullri ferð norður
á bóginn og sumarið er handan við
hornið. Reyndar má segja um þenn-
an vetur að hann hafi ekki verið til-
takanlega harður og þónokkrum
sinnum hafa komið yndislegir dagar
þar sem Húnaflóinn hefur skartað
sínu fegursta.
Sá sögulegi atburður gerðist hér á
Blönduósi í vetrarlok að starfsmenn
trésmiðjunnar Stíganda á Blönduósi
luku við að gera tvær íbúðir í parhúsi
fokheldar en húsið stendur við
Smárabraut 6–8. Þegar er byrjað að
byggja annað hús við hlið þessa húss.
Þessar framkvæmdir kveikja í
brjósti manna von að nú séu fram-
undan bjartari tímar. Reyndar hefur
atvinnuástand verið nokkuð traust
undangengin ár og verkefnin næg
hjá flestum fyrirtækjum sem hér
starfa.
Það er sjálfsögð kurteisi að minnast
á Blönduóslögguna í pistlum frá
Blönduósi því sú vaska sveit á ekkert
annað skilið. Flestir þekkja Blöndu-
óslögregluna af öflugu eftirliti með
umferð um sýsluna og hversu öflugir
þeir hafa verið að stöðva menn aki
þeir of hratt. Það eru hins vegar
færri sem vita að hjá embætti lög-
reglunnar hefur verið og er verið að
þjálfa hund til fíkniefnaleitar. Þetta
hlutverk lögreglunnar er afar mik-
ilvægt og hefur mikið gildi í barátt-
unni við fíkniefnavandann.
Þessa dagana er verið að kynna
deiliskipulagstillögu um breytingar á
tjaldsvæði Blönduósinga. Á þessu
svæði eru nú til staðar tjaldsvæði,
þjónustuhús og 7 gistihýsi. Deili-
skipulagstillagan felur m.a. í sér að
fjölga gistihýsum, bæta við þjónustu-
húsi og stækka tjaldsvæðið með sér
svæði fyrir húsbíla, hjólhýsi o.þ.h. Þá
er gert ráð fyrir útivistarsvæði og
leiksvæðum ásamt breyttum veg-
tengingum að svæðinu. Jafnframt
hefur verið töluvert rætt um bygg-
ingu nýrrar sundlaugar á Blönduósi
og sýnist sitt hverjum hvernig hún
eigi að verða. Sumir vilja 25 metra
útilaug, aðrir vilja 16,5 m laug með
leiktækjum og enn aðrir vilja inni-
laug. En ljóst er að með tilkomu
nýrrar sundlaugar í nágrenni við
endurbætt tjaldsvæði verður mikill
styrkur fyrir ferðaþjónustu í A-
Húnavatnssýslu.
Af framansögðu má sjá að það er
þónokkur hugur í Blönduósingum
þessa dagana og er það vonandi að
framvindan í vorinu og uppbygging-
unni haldist í eðlilegum farvegi og
ekkert hik verði á.
Grágæsin hefur lengi sett sterkan
svip á bæjarbraginn mörg undan-
gengin ár og er að sjá að gæsirnar
verði síst færri í ár en þær voru í
fyrra. Mönnum er mishlýtt til þess-
arar fuglategundar og nefna þar til
ýmis rök sem eflaust eiga rétt á sér.
Engu að síður gefur gæsin okkur
nokkra sérstöðu því mér er til efs að
jafn margar grágæsir séu saman-
komnar í einu bæjarfélagi þegar tek-
ið er tillit til höfðatölureglunnar.
Þessi fugl er líka með þeim fyrstu
sem koma heim eftir vetursetu á suð-
lægari slóðum og er því með fyrstu
vorboðunum.
BLÖNDUÓS
Jón Sigurðsson fréttaritari
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fiðurfénaður Grágæsin setur sterk-
an svip á bæjarbraginn á Blönduósi.
yfirtaka félagið með góðu
eða illu.
Margir hafa áhyggjur
af þessari þróun og ýmsir
líta á Arsenal sem síðasta
vígið sem er raunar kald-
hæðnislegt í ljósi þess að
knattspyrnustjóri félags-
ins er Frakki og svo til
allir leikmenn erlendir að
uppruna.
En í hverju er hættan
fólgin? Það er alveg ljóst
að Dein er gegnheill Ars-
enalmaður og metur
stöðuna augljóslega
þannig að félagið eigi
meiri möguleika á því að
standa stærstu félögum álfunnar
snúning með liðsinni hins ameríska
auðmanns.
Svo má líka skoða málið í stærra
samhengi. Hvað er Arsenal? Er það
David Dein? Nei. Er það stærstu
hluthafarnir, Danny Fiszman og lafði
Bracewell Smith, eða hinn glæsilegi
Emirates-leikvangur? Er Arsenal
kannski Arsène Wenger? Ekki held-
ur. Arsenal er fyrst og síðast aðdá-
endurnir. Þar slær hjarta félagsins.
Þeir eru vel að merkja fjölþjóðlegir
og munu aldrei líða annað en ábyrga
yfirstjórn – hverrar þjóðar sem hún
kann að vera. Það er kjarni málsins.
Eignarhald á enskumknattspyrnu-
félögum hefur verið í
brennidepli undanfarin
misseri. Bandarískir
kaupahéðnar hafa á
skömmum tíma yfirtekið
þrjú af frægustu félög-
um landsins, Liverpool,
Manchester United og
Aston Villa og sem kunn-
ugt er ræður rússneski
auðkýfingurinn Roman
Abramovitsj ríkjum hjá
Englandsmeisturum
Chelsea.
Enn eitt vígið gæti
fallið á næstunni en
bandaríski milljarðamæringurinn
Stan Kroenke reynir nú leynt og ljóst
að læsa klónum í Arsenal. Hann hef-
ur á skömmum tíma eignast um 12%
hlut í félaginu sem fram að þessu hef-
ur verið mjög lokaður selskapur, er
t.a.m. ekki á almennum hlutabréfa-
markaði. Stjórn félagsins hefur að
vísu spyrnt við fótum og neyddist
varaformaður hennar, David Dein,
sem borið hefur hitann og þungann af
rekstri Arsenal í tæpan aldarfjórð-
ung, til að stökkva frá borði í liðinni
viku en hann hefur viljað greiða götu
Kroenkes. Er nú talið að þeir félagar,
Kroenke og Dein, hafi í hyggju að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
EINN venjulegur kakóbolli fyrir svefn-
inn getur hjálpað til við að lækka blóð-
þrýstinginn á jafn áhrifaríkan hátt og
lyfseðilsskyld lyf, að sögn sérfræðinga.
Matvæli, sem eru rík af kakói, til
dæmis dökkt súkkulaði, virðast einnig
hafa einkar góð áhrif á blóðrásina og
minnka hættu á bæði hjartaáfalli og
heilablóðfalli. Efasemdir eru hins vegar
um að tedrykkja hafi sömu áhrif, að því
er segir í nýlegri frétt á vefmiðli
Times. Það voru sérfræðingar við há-
skólasjúkrahúsið í Köln í Þýskalandi
sem gerðu kakó- og teprófanir á fólki
með tilliti til heilsuáhrifa og komust að
fyrrgreindum niðurstöðum um að
kakóið væri hjartanu hollt og hefði
mun jákvæðari áhrif en te fyrir svefn-
inn.
Bandarísku læknasamtökin hafa
greint frá þessum niðurstöðum í mál-
gagni sínu Archives of Internal Medic-
ine.
Kakóið hjarta-
styrkjandi
Morgunblaðið/Kristinn
Hollusta Kakóbolli fyrir svefninn getur lækkað blóðþrýstinginn.
Økoren WC-hreinsir
Seigfljótandi WC-hreinsir sem fjarlægir
fljótt og vel kalk, ry› og óhreinindi ásamt
flví a› koma í veg fyrir ólykt.
Økoren Universal
alhli›a hreinsiefni
Alhli›a basískt hreinsiefni til daglegra
nota á öllum flvottheldum flötum. Einnig
kjöri› til flrifa á sápubornum og bónu›um
gólfum.
Økoren uppflvottalögur
Økoren uppflvottalögur er hlutlaust
hreinsiefni til handuppflvotta og
hreinsunar á öllum flvottheldum flötum.
Spartan umhverfisvænn
ba›herbergishreinsir
Umhverfisvænn ba›herbergishreinsir
votta›ur af Green Seal í Bandaríkjunum.
Er me› náttúrulegum s‡rum, sítrónus‡ru (8%)
og flrífur vel sápuskánir, flurrkbletti og
ry›smit af flísum, salernisskálum og vöskum.
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
UMHVERFISVÆN EFNI
FYRIR SUMARBÚSTA‹I
Í bústa›num skiptir miklu máli hverskonar vörur eru
nota›ar vi› flrifin. Röng efnanotkun getur au›veldlega
heft ni›urbrot í rotflróm og valdi› stíflum. Umhverfisvæn
hreinsiefni eru flví bæ›i betri og öruggari kostur.
Fjöldi aukahluta
Lágvær og þrælsterk,
endist kynslóðir