Morgunblaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Og hvert á svo að flytja góssið, Guðmundur minn?
VEÐUR
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir upp-lýsti á Alþingi í gær, að hún ætlaði
að eiga samstarf við utanrík-
isráðherra Noregs um það hvernig
Íslendingar geti komið að málefnum
Miðausturlanda.
Utanríkisráðherra kvaðst stefna áað heimsækja Miðausturlönd til
þess að athuga hvernig við gætum
beitt okkur betur
þar og lagt okkar
lóð á vogarskálar
fyrir betra
ástandi þar og í
þágu friðar og
mannréttinda.
Mikill óskap-legur
barnaskapur
væri það af hálfu
hins nýja utanríkisráðherra, ef hún
héldi að Íslendingar gætu komið að
einhverju gagni í Miðausturlöndum.
Auðvitað getum við engin áhrifhaft þar og fáránlegt að láta sér
detta það í hug.
Þetta veit Ingibjörg Sólrún vel.
Hún veit að við gerum bezt í því aðvera ekki að þvælast fyrir í Mið-
austurlöndum. Ástæðan fyrir þess-
ari yfirlýsingu ráðherrans er innan-
landspólitík. Hún er að tala við
vinstri arm Samfylkingarinnar og
koma í veg fyrir að Vinstri grænir
geti komið höggi á hana vegna mál-
efna Palestínu.
En er sjálfsagt að eyða fé skatt-greiðenda í ferðalög af þessu
tagi vegna pólitískra átaka hér
heima fyrir?
Fyrirfram hefði mátt ætla, að Ingi-björg Sólrún yrði jarðbundnari
utanríkisráðherra en svo að hún
hæfi þann þykjustuleik að halda að
smáþjóðin í norðri geti haft einhver
áhrif í Miðausturlöndum!!
STAKSTEINAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Barnaskapur
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
! "
! "
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
#
$ %
! "
:
*$;< &&&
!
"
#
$%
*!
$$; *!
'!
(
&
&
&
")
=2
=! =2
=! =2
'( &* %+&, -
>2?
/
@
@ ;
. &"/ &
(&0# (&
&- / 1
! &
&$ &
& &
& %2&&&'#&&'0# %1
3 && && 12& &1&4# )%1
=7
'#&&'0#! 2&
&" &
(1
'
&1&)" &&$
&& %2& &&40# %1&3
&& &5& 2& && & =
'
(&! 2&
&" &
(1&'$ %
&%! & &'6#&&6# %&
/" 1&
&!&40#&&0# %1&3
& && 2&& &
&5&40# %1
7/ &!&88 &" !&6
"&* %
3'45 A4
A*=5B CD
*E./D=5B CD
,5F0E ).D
25
2
2
1 51 2
2
2
25
2
2
2
2
2
2
2
2
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Óskar Þorkelsson | 5. júní
alltaf fundist þetta
skrítið ...
að laxveiði skuli vera
svona fréttnæm.. mér
gæti sennilega ekki
verið meira sama um
þessa veiði. Af hverju
er það frétt ef lax
veiðist en ekki ef silungur veiðist?
Undir roðinu eru þeir báðir bleik-
ir...
Munurinn er kannski sá að sil-
ung geta allir veitt en lax einungis
peningamenn og menn sem þekkja
peningamenn.
Meira: skari60.blog.is
Ívar Páll Jónsson | 5. júní
Björn Ingi (33)
breyttist í Guðna (47)
Þetta kallar maður
hollustu! Björn Ingi
Hrafnsson breytti
umsvifalaust um
hárgreiðslu og stíl
til að líkjast sem
mest formanni
Framsóknarflokksins, Guðna
Ágústssyni, þegar Guðni tók við
á dögunum.
Bara ef næstráðendur hinna
flokkanna sýndu foringjum sín-
um jafn mikla tryggð!
Meira: nosejob.blog.is
Heiða | 4. júní
Útlit vs sjálfstraust
Á það til að bólgna
í framan á ca 2-3ja
ára fresti. [...] Ákvað
að láta þetta ekki
hafa áhrif á daglegt
líf í þetta skiptið.
Mætti í vinnuna með
augun glansandi af Parkódin
Forte. Tók hárið í tagl í stað þess
að fela bólgnu kinnina með lubb-
anum og aldeilis ákveðin í því að
mitt sjálfstraust þyldi sko alveg
smá bólgu!
Eftir fimm mínútur var taglið
farið og lubbinn yfir kinnina.
Meira: skessa.blog.is
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir | 4. júní
Helgin í stuttu máli...
Franklin og co. eru
enn ekki komin til LA.
Bílstjórinn ákvað að
þau skyldu bíða í rúm-
an sólarhring á leið-
inni og var þeim kom-
ið fyrir í einhverri
íbúð á meðan. Hvar veit ég ekki. En
nú er búist við þeim um kvöldmat-
arleytið og það vonandi gengur eft-
ir.
Annars var helgin tíðindalítil.
Skólaskemmtun í skóla barnanna
minna. Stefán fórnaði sér ásamt
kennurum í skólanum og lét sig
hafa það að leyfa börnum að grýta
Glanna með boltum þar til að hann
féll ofan í vatnsbala. Ég hafði boðist
til að koma fram sem Ásta Sóllilja
en það virtist enginn hafa nokkurn
áhuga á því að drekkja henni.
Börnin höfðu af þessu mikið yndi.
Að niðurlægja Robbie Rotten og
ekki síður kennarana sína. Skóla-
stýran Mrs. Mastead sem er senni-
lega á sjötugsaldri lét sig hafa það
að fara fyrst klædd í trúðabúning.
Ég sé ekki marga skólastjóra fara í
fötin hennar. Til þess tekur fólk sig
of alvarlega.
Annars er stundum furðulegt að
vera leikari. Allir leikarar þekkja
það að vera beðnir um að leika við
undarlegustu aðstæður.
Í boðum t.d. : Ertu ekki til í leika
eitthvað fyrir okkur? Leiktu eitt-
hvað! Bara eitthvað!
Ég hef aldrei vitað til þess að raf-
virkjar séu t.d. beðnir um að taka í
sundur útvörp í boðum.
Eða að leigubílstjórar sem eru
ekki á vakt séu beðnir um að skutla
fólki heim úr partýum.
Eða að læknar séu beðnir um að
skera upp í veislum.
Heyrðu hún Lísa frænka er eitt-
hvað slæm í hnénu. Ert ekki til í að
krukka aðeins í hana fyrst þú ert
hérna? Viltu meira gin?
Svo sæta leikarar gjarnan ásök-
unum um að vera ekki þeir sjálfir
og spurningar á borð við...
Ertu að leika núna? eða Hvaða
karakter ertu núna? eru afar al-
gengar.
Ég fæ gjarnan spurninguna:
Hvernig er að vera gift Robbie Rot-
ten? Er hann ekki alltaf að fíflast?
Og ég svara að bragði : Jú það er
algjört djók að vera gift honum.
Meira: steinunnolina.blog.is
BLOG.IS
83 VASKIR drengir lögðu af stað í sumarbúðirnar í Vatnaskógi kl. 10 í
gærmorgun, en þetta er fyrsti flokkur sumarsins sem heldur þangað.
„Strákarnir voru spenntir og stuð í loftinu,“ segir Styrmir Magnússon,
æskulýðsfulltrúi KFUM, en drengirnir koma aftur í bæinn 11. júní.
Fullbókað er í 4 af 8 almennum drengjaflokkum þannig að enn eru laus
pláss fyrir þá sem seinir eru á ferð.
Morgunblaðið/Ásdís
Á leið í sumarbúðir
FRÉTTIR