Morgunblaðið - 15.06.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 11
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
KRISTJÁNI Berg, sem eitt sinn
gekk undir nafninu fiskikóngurinn,
brá heldur betur í brún þegar hann
kom að verslun sinni í Hillerød, sem
er 30 km norður af Kaupmannahöfn, í
gærmorgun. Búið var að stela heitum
potti sem var til sýnis fyrir utan
verslunina og ljóst að þar hafa ein-
hverjir verið á ferð sem kunna til
verka.
Potturinn er metinn á um 1,5 millj-
ónir íslenskra króna og var hlaðinn
aukabúnaði, s.s. hljómflutnings-
græjum. „Þetta var einfaldlega Rolls
Royce heitu pottanna; flottasti pott-
urinn á markaðnum,“ segir Kristján
sem er að vonum vonsvikinn með
þjófnaðinn en potturinn var ekki
tryggður. „Verslunin er í fyr-
irtækjagötu og hér eru bílasölur allt
um kring, með nýja og notaða bíla.
Þrátt fyrir það vilja þeir heita pott-
inn. Ég hefði nú talið að menn væru
fljótari að stela bílum en heitum potti
og ættu væntanlega að fá meira fyrir
þá einnig – enda bílar dýrir í Dan-
mörku.“
Hefur verið um tvö tonn
Að sögn Kristjáns er heiti pott-
urinn af stærstu gerð, 2,35 m á
breidd. „Hann passar ekki inn í einn
einasta sendibíl. Potturinn rétt passar
inn í stóran flutningabíl. Þetta er í
raun stórmerkilegt, enda var hann
fullur af vatni og þessir aðilar hafa lík-
lega þurft að tæma hann áður,“ segir
Kristján sem telur pottinn hafa verið
um tvö tonn á þyngd. Hann var ekki
skrúfaður niður og Kristján reiknar
með að þjófarnir hafi notað krana.
Kristján segist reyndar hafa verið
varaður við. „Jah, það spurði mig við-
skiptavinur hvernig ég þyrði að hafa
pottinn úti, og hvort ég væri ekki
hræddur um að honum yrði stolið. En
eins og ég segi, þetta er fyr-
irtækjagata og það eru vaktmenn
sem keyra hérna um á tíu mínútna
fresti. Það tekur töluverðan tíma að
flytja svona pott, ég er um tvær
klukkustundir, með lyftara og sér-
stökum bíl.“
Verslun Kristjáns var opnuð hinn
1. apríl sl. auk þess sem hann rekur
verslun undir sama nafni í Hafn-
arfirði. Í furðu léttum dúr segist hann
þegar hafa áhyggjur af versluninni í
Hafnarfirði. „Ég ætla rétt að vona að
menn fari ekki að reyna stela pottum
þaðan.“
„Stórmerkilegt, enda
var hann fullur af vatni“
Horfinn Kristján með rafmagnssnúruna sem er það eina sem eftir er af
heita pottinum. Fyrir neðan er pottur af sömu tegund og stolið var.
Óprúttnir aðilar
stálu heitum potti
frá Spakongen í
Danmörku
HÆÐASMÁRI 4 SÍMI 544 5959
Ga l l ap i l s
S/L/XL/XXL
kr. 6.900
Kjóllkr.8.990
Kjóllkr.7.990
Jakkapeysa
kr. 6.990
Toppu r
kr. 3.990
Go l l a
kr. 3.990
Toppu r
kr. 2.900
P i l s
kr. 6.990
N Ý T T K O R T A T Í M A B I L
P i l s
kr. 6.990
Go l l a
kr. 3.990
Lýðveldis-
dagar
í Flash
20% afsláttur
af öllum vörum
Laugavegi 54
sími 552 5201
20% afsláttur
af sumarkjólum
Helgartilboð