Morgunblaðið - 15.06.2007, Page 21
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
7-
05
81
Nú getur þú hlaupið fyrir gott
málefni að eigin vali í Reykjavíkur-
maraþoni Glitnis. Glitnir greiðir
500 kr. fyrir hvern kílómetra sem
viðskiptavinir bankans hlaupa
þann 18. ágúst. Eins og í fyrra
greiðir Glitnir 3.000 kr. fyrir hvern
kílómetra sem starfsmenn hlaupa.
Skráning í hlaupið fer fram á
www.glitnir.is/marathon en þar er
einnig hægt að skrá sig í hlaupa-
hóp, fá leiðsögn þjálfara og æfinga-
áætlun. Við hjálpum þér að undirbúa
þig undir þennan alþjóðlega viðburð.
Núna er rétti tími til að byrja að æfa.
Reykjavíkurmaraþonið skiptist í
fimm mislöng hlaup sem henta
mismunandi hópum; fjölskyldum,
trimmurum og keppnisfólki.
Latabæjarmaraþon vakti gríðarlega
lukku á síðasta ári og verður endur-
tekið í ár. Það er 1,5 km á lengd og
ætlað börnum yngri en 11 ára.
Allir þátttakendur í Latabæjar-
maraþoninu fá sérstaka boli og
viðurkenningu að loknu hlaupi.
Foreldrar sem fylgja börnum í
Latabæjarhlaupinu þurfa ekki að
skrá sig. Hlaupaleiðin er út
Lækjargötu og Fríkirkjuveg yfir
Tjarnarbrú og farið meðfram litlu
tjörninni og út á Sóleyjargötu,
Fríkirkjuveg og endar fyrir framan
útibú Glitnis í Lækjargötu. Allir
þátttakendur fá stuttermabol þegar
þeir sækja keppnisgögn í Laugar-
dalshöllina, föstudaginn 17. ágúst.
Í sjálfu hlaupinu verða drykkjar-
stöðvar á u.þ.b. 5 km fresti.
Færanleg salerni verða nálægt 5
km, 12 km, 18 km, 23 km og 34
km. Læknar og hjúkrunarlið
verður til reiðu meðan á hlaupinu
stendur og til aðstoðar er hlauparar
koma í mark. Verndari hlaupsins
er borgarstjórinn í Reykjavík,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Veldu vegalengd við þitt hæfi og
hvaða málefni þú vilt styrkja.
Taktu síðan fyrsta skrefið í áttina
að endamarki Reykjavíkurmara-
þons Glitnis þann 18. ágúst með
því að skrá þig á www.glitnir.is.
Allir sigra í Reykjavíkurmaraþoni
Glitnis!
Reykjavíkurmaraþon markar upphaf
Menningarnætur laugardaginn
18. ágúst fer Reykjavíkurmaraþon
Glitnis fram í 24. sinn á götum
Reykjavíkur. Upphaf skemmti-
skokksins sem er ræst klukkan 11.00
markar upphaf Menningarnætur en
síðari ár hefur Reykjavíkurmara-
þonið verið hlaupið sama dag. Þessir
tveir atburðir eru núna orðnir stærsta
samkoma Íslandssögunnar.
Báðir atburðir eru miðaðir að því
að vera skemmtun fyrir alla
fjölskylduna. Til dæmis er boðið upp
á fjölskylduafslátt í 3 km skemmti-
skokkinu. Miðað er við að tveir
fullorðnir og börn þeirra 12 ára og
yngri fái afslátt. Afslátturinn eykst
eftir því sem fólk skráir fleiri börn.
Maraþonhlaupið sjálft er opið
öllum 18 ára og eldri. Hálfmaraþon-
hlaupið er opið hlaupurum 16 ára og
eldri. 10 km og skemmtiskokkið eru
öllum opin. Þó er bent á að æskilegt
sé að 12 ára og yngri hlaupi 10 km
aðeins með góðum undirbúningi.
Hlauptu til góðs í Reykjavíkur-
maraþoni Glitnis!
Reykjavíkurmaraþon
markar upphaf
Menningarnætur
Besta leiðin til að undirbúa sig fyrir
Reykjavíkurmaraþon Glitnis er að
skrá sig í hlaupahóp á www.glitnir.is.
Hlaupahópar hafa verið starfræktir í
allan vetur og verða fram að mara-
þoninu. Hlaupahópur Glitnis hleypur
frá styttunni af sjómanninum á
Kirkjusandi, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 17.30. Hlaupahóp-
urinn er opinn öllum, þeim að
kostnaðarlausu og eru allir velkomnir.
Í upphafi er farið mjög rólega af stað
til að tryggja að enginn heltist úr
lestinni og mælst til þess að hlauparar
gangi og hlaupi til skiptis svo að þeir
ofkeyri sig ekki. Núna er rétti tíminn
að byrja að æfa.
Reyndir þjálfararnir senda út
hlaupaáætlun á tölvupósti tvisvar í
viku og ýmsa mola um gagnsemi
hlaupa og hreyfingar almennt. Í
hlaupahópnum færðu leiðsögn mjög
hæfra þjálfara og æfingaáætlun fyrir
hverja viku.
Það verður boðið upp á tvo hópa til
að byrja með. Byrjendahóp fyrir þá
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
götuhlaupum eða þá sem ekki hafa
verið að hlaupa lengi en langar til að
geta hlaupið 10 km í Reykjavíkur-
maraþoni Glitnis seinna í sumar.
Annar hópur er fyrir þá sem hafa
hlaupið áður eða hafa reynslu úr
öðrum íþróttagreinum og langar að
ná betri tíma í 10 km hlaupinu.
Hugsanlega verður þriðji hópurinn
starfræktur fyrir þá sem ætla í hálft
eða heilt maraþon og verður það þá
auglýst síðar.
Umhverfissvið Reykjavíkur lét
nýlega kanna hversu oft Reykvíkingar
færu á stærstu útivistarsvæði
borgarinnar og hvernig þeir notuðu
svæðin. Staðirnir sem spurt var um
voru Heiðmörk, Rauðavatn og
Elliðaárdalurinn. Kom í ljós að
tæplega 32% borgarbúa fara þrisvar
eða oftar á ári í Heiðmörkina, rúmlega
11% fara þrisvar eða oftar á útvistars-
væðið við Rauðavatn og 45%
borgarbúa fara þrisvar eða oftar á ári í
Elliðaárdalinn.
Einnig kom fram að 30% borgarbúa
koma aldrei í Elliðaárdalinn, 33%
aldrei í Heiðmörk og 72% aldrei að
Rauðavatni. Auk þess kom í ljós að
íbúar í Árbæ og Grafarholti sækja
þessi útvistarsvæði meira en íbúar í
öðrum hverfum.
Ætla má að 28. þúsund manns fari
mánaðarlega í Heiðmörkina af
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hún er
gríðalega vinsælt útivistarsvæði sem
fólk virðist sækja óháð búsetu í
borginni og aldri. Íbúar í Grafarholti
og Árbæ nota hins vegar útivistar-
svæðið við Rauðavatn en íbúar í
miðborginni, Hlíðum og Háaleiti
minnst.
Maraþonhlaupið sjálft er opið öllum
18 ára og eldri. Hálfmaraþonhlaupið
er opið hlaupurum 16 ára og eldri. 10
km og skemmtiskokkið er öllum opið.
Þó er bent á að æskilegt sé að 12 ára
og yngri hlaupi 10 km aðeins með
góðum undirbúningi. Latabæjar-
maraþon vakti gríðarlega lukku á
síðasta ári og verður endurtekið í ár.
Latabæjarmaraþonið er 1,5 km á
lengd og ætlað börnum yngri en 11
ára. Allir þátttakendur í Latabæjar-
maraþoninu fá sérstaka boli og viður-
kenningu að loknu hlaupi. Foreldrar
sem fylgja börnum í Latabæjar-
hlaupinu þurfa ekki að skrá sig.
Nú getur þú hlaupið fyrir gott
málefni að eigin vali í Reykjavíkur-
maraþoni Glitnis. Glitnir greiðir
500 kr. fyrir hvern kílómetra sem
viðskiptavinir bankans hlaupa
þann 18. ágúst. Eins og í fyrra
greiðir Glitnir 3.000 kr. fyrir hvern
kílómetra sem starfsmenn hlaupa.
Skráning í hlaupið fer fram á
www.glitnir.is/marathon en þar er
einnig hægt að skrá sig í hlaupahóp,
fá leiðsögn þjálfara og æfinga-
áætlun. Við hjálpum þér að
undirbúa þig undir þennan
alþjóðlega viðburð. Veldu vega-
lengd við þitt hæfi og hvaða mál-
efni þú vilt styrkja. Taktu síðan
fyrsta skrefið í áttina að endamarki
Reykjavíkurmaraþons Glitnis
þann 18. ágúst með því að skrá þig
á www.glitnir.is/marathon.
Hlaupahópur Glitnis vex
og dafnar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 21
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Austurbær | Í samantekt sem
unnin var af nokkrum nágrönnum
Njálsgötu 74 er vakin athygli á því
að ríflega 25% af félagslegu hús-
næði í póstnúmeri 101 er á litlum
bletti í nágrenni Njálsgötu. Ef
þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru
ekki taldar með hækkar hlutfallið
upp í rúmlega þriðjung.
Reykjavíkurborg opna heimili
fyrir 10 heimilislausa karlmenn á
Njálsgötu 74 en því hafa margir, ef
ekki langflestir, íbúar í nágrenninu
mótmælt harðlega.
Samkvæmt upplýsingum frá Fé-
lagsbústöðum Reykjavíkur er 221
félagsleg íbúð í hverfinu sem af-
markast af póstnúmerinu 101. Af
þeim eru 54 á svæði sem afmarkast
af Bergþórugötu, Vitastíg, Snorra-
braut og Grettisgötu eða um 25%.
Njálsgata 74 er innan þessa svæð-
is.
Í samantekt íbúanna er einnig
tekið fram að gistiheimili á vegum
borgarinnar sé í um 10 metra fjar-
lægð frá þessu svæði og einnig
einkarekið áfangaheimili sem fái
stuðning frá borginni.
Stór hluti félagslegra íbúða í 101
er þjónustuíbúðir fyrir aldraða eða
69 af 221. Aðrar félagslegar íbúðir
eru því samtals 152. Ef íbúðir fyrir
aldraða eru ekki taldar með er því
ríflega þriðjungur félagslegra
íbúða innan svæðisins sem áður
var nefnt. Svæðið er um 30.000 m²
en til samanburðar er Kringlan um
60.000 m², að því er segir í sam-
antektinni.
Að sögn Sigurðar Kr. Friðriks-
sonar, framkvæmdastjóra Félags-
bústaða, er net félagslegra íbúða
víða þéttara í borginni, t.d. í Breið-
holti og við Kleppsveg þar sem Fé-
lagsbústaðir eiga í sumum tilvikum
heila stigaganga og heilu fjölbýlis-
húsin. Þetta sé arfur frá gamalli
tíð en markvisst sé unnið að því að
draga úr þéttleikanum með því að
selja íbúðir og kaupa á nýjum stöð-
um.
14% íbúa eru 12 ára og yngri
Í samantektinni er einnig bent á
að um 14% íbúa í 101 séu börn, 12
ára og yngri. Til samanburðar má
nefna að hlutfall barna á þessum
aldri er 15% í Vesturbænum (póst-
númer 107) og ríflega 16% í póst-
númeri 105 en undir það falla m.a.
Hlíðar og Holt.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Kristinn að ástæðan fyrir því að
nágrannar bentu á mikinn fjölda
félagslegra íbúða í hverfinu væri
aðallega sú að það hefði verið
stefna borgarinnar að stuðla að fé-
lagslegum fjölbreytileika í hverfum
borgarinnar. Áform um að opna
heimili fyrir 10 heimilislausa karl-
menn í hverfinu væru því í aug-
ljósri andstöðu við þá stefnu. Þá
væri byggðin í hverfinu gríðarlega
þétt og helst mætti líkja Njálsgötu
74 við hluta af fjölbýlishúsi.
Aðspurður sagði Kristinn að íbú-
arnir gerðu ekki athugasemdir við
núverandi ástand, heldur eingöngu
þá fyrirætlun borgarinnar að bæta
heimili, eða öllu heldur stofnun,
fyrir 10 heimilislausa karlmenn á
þennan litla blett.
Fjórðungur félagslegra íbúða
í miðborginni á litlum bletti
!
"#
#
$
"%&'$( "
&
#)*%
(
&
(
&
+
,
)%
(
)
%
-
)$& )+
!
" #$% $
'()!*)* ! +,! --!-
!
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
NÁTTÚRAN er ótrúleg og lífsbaráttan
stundum hörð. Nú í vikunni varð smásíldin
fyrir árás, sem ekki var hægt að verjast.
Að öllum líkindum hafa hrefnur, selir og
jafnvel þorskar smalað saman smásíld í
þétta torfu rétt við ós Blöndu. Þegar dýr
undirdjúpanna gerðu árás á síldina neðan
frá spriklaði hún í yfirborðinu og skapaði
það veizlu fyrir fugla, aðallega máva. Krí-
urnar litu ekki við þessum fiski. Fjöldi
manns varð vitni að þessu í yndislegu veðri,
var skyggni gott og sást til allra átta og öll-
um ljóst á þessari kvöldstund að skap-
aranum urðu ekki á nein mistök við sköpun
á vestanverðu Norðurlandi.
Síldarveizla
í sjávar-
borðinu
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Spirulina
Orkugefandi og brennsluaukandi.
Fréttir á SMS