Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 27 rðu mig í ita ykkur ir um nú- nnar með a og það gera. Við- sráðherra erust að “ stöðvar m ratsjár- ríkjamenn taka við áðherrann væri um íslenskra ráðamanna að brýnt væri að reka stöðvarnar áfram. Embættismenn beggja aðila væru nú að ræða hvern- ig best yrði tryggt að stöðvarnar yrðu áfram nógu vel búnar tækni- lega, hvernig veita mætti Íslending- um aðstoð í þeim efnum og vonandi næðust samningar. Ógnir framtíðarinnar yrðu af mörgum toga, Íslendingar héldu uppi landhelgisgæslu og björgunar- sveitir, hvort tveggja væri verið að efla. „En ratsjárstöðvar eru grund- vallaratriði í heimi nútímans, þær eru ekki eingöngu notaðar til að fylgjast með ferðum sprengjuflug- véla heldur mörgu öðru.“ Um gagnflaugadeilur og sam- skiptin við Rússland og deilurnar um sjálfstæði Kosovohéraðs sagði ráðherrann að vissulega væri spenna vegna þessara mála en mestu skipti að halda ró sinni. Hann sagðist viss um að Kosovo fengi sjálfstæði en dró í efa að það yrði gert með einhliða yfirlýsingu alb- anska meirihlutans. Vitað væri að minnst 11 af 15 ríkjum öryggisráðs SÞ styddu sjálfstæði héraðsins, Rússar væru einangraðir í málinu. Fyrst yrði reynt að ná samstöðu í ráðinu en ef það tækist ekki yrði reynd önnur leið. Oft væri best að láta eins og ekk- ert hefði í skorist þegar talsmenn Rússa hefðu uppi stóryrði. Hótanir þeirra í garð sumra lítilla grann- ríkja, þ. á m. Eistlands og Georgíu, væru fyrir neðan allar hellur. „En ekki má heldur gleyma að Rússar vinna með Bandaríkjamönnum á tveim hnattrænum sviðum, gegn al- þjóðlegum hryðjuverkum og gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna,“ sagði Burns. Hann minnti á að Rússar hefðu lengst af haldið því fram að engin þörf væri á gagnflaugum í Evrópu en Bandaríkjamenn segja þær nauð- synlegar vegna hugsanlegrar ógnar frá löndum eins og Íran og Norður- Kóreu. Nýlega hefði Pútín forseti hins vegar stungið upp á að gagn- flaugakerfinu yrði komið upp í Aser- bajdzhan í stað Evrópu og það yrði sameiginlegt. „Gott, þá hlýtur að vera þörf fyrir gagnflaugakerfið,“ sagði Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. á stefnu am hvaða arstarfa fögnuðu á borð setu í óttir hef- a til Mið- ér að- sti hug- öll ríki í riði, það ðaust- num við in skuli n,“ sagði oskaðri æði Morgunblaðið/Sverrir a, og Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkj- r óflokksbundinn embættismaður, er þriðji úi lands síns hjá Atlantshafsbandalaginu. kjon@mbl.is laðið/ÞÖK staðnum adóttur a. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is FRIÐRIK Már Baldursson, forseti viðskipta- og hagfræðideildar Há- skóla Íslands segist í heild vera ánægður með niðurstöður úttektar Ríkisendurskoðunar, Kostnaður, skilvirkni og gæði háskólakennslu. Hann segir að líta megi á margt sem þar komi fram björtum augum og bendir í því tilliti á að niðurstaða um afdrif nemenda að brautskráningu lokinni hafi verið sérlega ánægjuleg, en samkvæmt úttektinni komi nem- endur HÍ þar best út. „Þetta er ekki síst það sem nemendur ættu að hugsa um þegar þeir velja sér skóla,“ segir Friðrik. Að hans sögn er þó ýmislegt sem betur má fara í deildinni, brottfall nemenda sé mikið og nemendur deildarinnar ekki nægilega ánægðir með aðbúnaðinn. Hvað brottfallið varðar segir Friðrik að þröskuldur þess að taka ákvörðun um skráningu í viðskiptafræðideild HÍ sé mun lægri heldur en í einkareknu skól- unum og skuldbindingargildi skrán- ingarinnar minna þar sem nemend- ur taki ekki þátt í kostnaði við námið nema að litlu leyti. Hann segir að starfsfólk deildarinnar muni þó graf- ast betur fyrir um orsakir brottfalls- ins og gera það sem í þess valdi stendur til að draga úr því. Að því er aðbúnað nemenda varð- ar segir Friðrik að tekjur deildarinn- ar á hvern nemanda séu lægstar í HÍ og sú staðreynd hljóti einhvers stað- ar að koma niður á þjónustu við nem- endur. Hins vegar standi til að bæta aðstöðuna all verulega á næsti miss- erum, bæði hvað húsnæði og stoð- þjónustu varði. HR með yfirburðastöðu þegar kemur að viðhorfi nemenda Þorlákur Karlsson, forseti við- skiptadeildar Háskólans í Reykjavík segir að þegar skýrslan sé skoðuð verði að hafa það í huga að hún mæli gæði náms í takmörkuðu mæli; ekki sé hægt að líta til skilvirkni og kostn- aðar við nám þegar gæði þess séu metin. Hann segir að í skýrslu Rík- isendurskoðunar hafi viðskiptafræð- in verið mæld út frá fimm þáttum. Auk skilvirkni og kostnaðar séu við- horf nemenda, afdrif brautskráðra og akademísk staða mæld og kveður Þorlákur þær niðurstöður skipta mestu máli fyrir deildina. „Það sem er nýjast í þessum upplýsingum er viðhorf nemenda, en það var mælt í fyrra. Þar erum við með yfirburða- stöðu,“ segir Þorlákur. Hvað afdrif brautskráðra nem- enda varðar telur Þorlákur að mun- urinn á viðskiptafræðideildum HÍ og HR sé svo lítill að ekki sé mark á honum takandi. Hann segir hins vegar að í mælingum á akademískri stöðu lendi HR undir HÍ og þar sé munurinn nokkur. „Á þeim tíma sem könnunin var gerð [2003-2005] fékk HR nánast engin fjárframlög frá hinu opinbera til rannsókna. Þegar ég kenndi við HÍ man ég það að 40% af mínum launum voru vegna rann- sókna sem ég átti að stunda,“ segir Þorlákur en tekur fram að undanfar- in ár hafi skólinn fengið aukið rann- sóknarfé frá hinu opinbera, þótt bein framlög séu mun minni en til HÍ. Mælistikan afar ófullkomin Eyjólfur Guðmundsson, forseti viðskipta- og raunvísindadeildar Há- skólans á Akureyri, segir að heilmik- ið starf hafi verið unnið til eflingar deildarinnar frá árinu 2005. Doktor- um í kennaraliði hafi fjölgað mjög og skipan deilda endurskoðuð með það fyrir augum að gera eina stóra við- skiptafræði- og raunvísindadeild að öflugari einingu, bæði rekstrarlega og faglega. „Þannig að staðan í dag er allt, allt önnur en hún var árið 2005,“ segir Eyjólfur. Að því er af- drif brautskráðra nemenda snertir kemur HA sýnu verst út úr úttekt- inni; nýtni og sérþekking nemenda skólans virðist ekki skila sér jafnvel út í atvinnulífið og laun nemenda skólans eru lægri heldur en hinna skólanna þriggja. Eyjólfur segir að mælistikan sem Ríkisendurskoðun styðjist við sé afar ófullkomin hvað þetta varði. Vitað sé að nemendur skólans vinni og búi langflestir utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem meðallaun séu í það minnsta 18% hærri en á landsbyggðinni, og engin tilraun sé gerð til þess að bera sam- an launamun nemenda HA sem starfa á höfuðborgarsvæðinu við nemendur annarra skóla. „Það kem- ur líka fram í skýrslunni að ríkið eigi að skoða hvort peningum sé vel varið þegar menntunarstigið nýtist ekki jafnvel. Við spyrjum á móti: Er ekki réttara að auka tekjurnar á lands- byggðinni með því að auka mennt- unarstigið,“ segir Eyjólfur. Reynir Kristinsson, forseti við- skiptadeildar Háskólans á Bifröst, segir að ef viðskiptavinirnir séu ánægðir sé starfsfólk deildarinnar líka ánægt. Hann segir það gleðilegt hversu ánægðir nemendur virðast vera með þá þjónustu sem veitt er í skólanum, sem sé mun persónulegri heldur en í opinberu skólunum „Þetta kemur ekkert á óvart, enda höfum við byggt skólann upp á þenn- an hátt,“ segir Reynir. Hann segir að aðrar niðurstöður úttektarinnar séu eðli máls samkvæmt ekki nýjar og skólinn sé nú á fleygiferð í uppbygg- ingu og fylgi fyrirmynd framúrskar- andi erlendra háskóla í þeirri vinnu. „Við vinnum hörðum höndum að því að gera allt eins vel og hægt er og við höfum verið að umbreyta mjög miklu undanfarna mánuði. Næsti vetur verður öðruvísi en síðasti vet- ur,“ segir Reynir að lokum. Viðskiptadeildirnar í stöðugri þróun og vexti Forsetar viðskiptadeilda háskólanna fjögurra una flestir vel við sinn hlut í skýrslu Ríkisendurskoð- unar. Forseti viðskipta- deildar HA kveður mælistiku Ríkisendur- skoðunar ófullkomna. Í HNOTSKURN »Í skýrslu Ríkisendurskoð-unar lendir HÍ í 1. sæti í 4 samanburðarliðum af 5, en kemur sýnu verst út að því er viðhorf nemenda varðar »Mælistikurnar við úttektviðskiptadeildanna voru fimm: kostnaður, skilvirkni, akademísk staða, viðhorf nemenda og afdrif braut- skráðra nemenda »Nemendur HÍ voru meðrúmar 442 þús. kr. í með- allaun að námi loknu, nem- endur HR voru með 422 þús. kr. og nemendur HB með tæp- lega 406 þús. kr. Lestina rak HA, en nemendur skólans voru með tæplega 378 þús. kr. í meðallaun að námi loknu. Friðrik Már Baldursson Reynir Kristinsson Þorlákur Karlsson Eyjólfur Guðmundsson „ÉG uppgötvaði fyrir stuttu að ég er hálf- norskur,“ segir Richard Horton. „Ég var ætt- leiddur,“ bætir hann við til skýringar og bros- ir. Horton, sem er ritstjóri hins virta lækna- rits The Lancet, er harla ánægður með þessi nýuppgötvuðu vensl. Hann er til Íslands kom- inn til að halda fyrirlestur á þingi norrænna heimilislækna. Tæplega 1.300 manns hafa skráð sig til þátttöku á þinginu. Á þinginu segir Horton frá sýn sinni á starf læknisins. „Ég dáist að mörgu á Norðurlöndum. Hér er hefð fyrir samráði í ákvarðanatöku og mannréttindi, ekki síst kvenréttindi, í háveg- um höfð. Við hin gætum lært margt af ykk- ur.“ Hann segir marga lækna telja hlutverk sitt vera að hjálpa þeim einstaklingum sem til þeirra leita. „Ég er á öðru máli,“ segir Hor- ton. „Læknum ber skylda til að hlúa að öllum í samfélaginu, sérstaklega þeim sem minnst hafa. Þeir eiga að vera í fylkingarbrjósti þeirra sem berjast fyrir félagslegum rétt- indum. Læknum ber að taka í taumana þegar stjórnvöld brjóta á almenningi eða ójöfnuður verður of mikill,“ segir Horton af þunga. „Læknar koma inn á heimili fólks og þeim er trúað fyrir persónulegustu leyndarmálum. Þeir sjá hvað fer aflaga í samfélaginu og er skylt að bregðast við því,“ bætir hann við. „Flestir eru einfaldlega dysjaðir“ Á síðasta ári birti The Lancet rannsókn á fjölda dauðsfalla í Írak eftir að stríðið þar hófst. Áætlað var að 655.000 Írakar hefðu lát- ið lífið í stríðinu, eða um tíu sinnum fleiri en oft er haldið fram. „Ég er sannfærður um að þetta sé rétt. Niðurstöðurnar eru fengnar með viðurkenndum tölfræðilegum aðferðum. Aðrar tölur eru fengnar með því að telja lík. Ástandið í Írak er svo voðalegt að fæst lík rata á spítala eða í líkhús þar sem hægt er að telja þau. Flestir eru einfaldlega dysjaðir,“ útskýrir Horton. Rannsóknin vakti hörð viðbrögð. Daginn sem hún var birt tilkynnti George Bush Bandaríkjaforseti að hún væri ómarktæk og illa unnin. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, tók í sama streng. „Auðvitað reyna þeir að fela mistök sín. Al- menningur hefur áttað sig á því að yfirvöld lugu um allt sem tengist þessu stríði og þeir segja hvað sem er til að sleppa af króknum.“ Horton var gagnrýndur fyrir að birta þessa rannsókn í The Lancet og ýmsir töldu að hún ætti ekki heima í sérfræðiriti fyrir lækna. Því er hann ósammála. „Læknarit eiga að fjalla um allt sem við- kemur heilsu. Ég held að mannkynið sé á krossgötum og að afdrif okkar ráðist af því hvað við gerum a næstu árum. Við erum að eyðileggja jörðina með mengun og stríðs- rekstri. Jafnframt eykst fátækt jafnt og þétt. Allt þetta eiga læknarit að taka til skoðunar. Það má ekki gleyma því að vísindi og þekking eru gagnslaus ef þau eru ekki nýtt til góðs. Vísindi sem snúast um sjálf sig eru einskis verð,“ segir hann. Horton dreymir um að The Lancet verði bæði fræðirit og hugmyndabanki þar sem færir vísindamenn saman til að vinna að lausn brýnna vandamála. „Á meðal fræði- og vísindamanna gætir í auknum mæli ótta við að ræða ágreiningsmál og eldfim pólitísk efni. Þetta er m.a. afleiðing aukinnar einkavæðingar. Að mínu viti er þessi þróun mjög ógnvænleg því hún heggur að rót- um lýðræðisins. Þess vegna er mjög mik- ilvægt að læknar og aðrir vísindamenn taki í sig kjark og láti í sér heyra. Fólk hlustar á þá,“ fullyrðir Horton. Spurður um framtíðarsýn sína segist Hort- on alltaf vera bjartsýnn. „Allt er hægt ef vilj- inn er fyrir hendi, líka að breyta heiminum.“ Ótti við að ræða ágreinings- mál er ógnvænleg þróun Morgunblaðið/RAX Baráttumaður Ritstjórinn Richard Horton tel- ur að mengun og stríð ógni afkomu mannkyns. Þing norrænna heimilislækna stendur yfir í Reykjavík Nicholas Burns fagnar framboði Íslands VEFVARP mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.