Morgunblaðið - 28.06.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 11
FRÉTTIR
iðunn
tískuverslun
Laugavegi, s. 561 1680
Kringlunni, s. 588 1680
ÚTSALA
ÚTSALA
30%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN ER HAFIN
40% - 80% AFSLÁTTUR
Suðurlandsbraut 50, (bláu húsunum við Fákafen).
Endilega kíktu inn á www.gala.is
Opið 11-18 virka daga • 11-16 laugardaga.
Sími: 588 9925
Kringlunni - sími 568 1822
www.polarnopyret.se
Útsalan
er hafin
Opið virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 10-16Engjateigi 5 • Sími 581 2141
Útsala
KRINGLUNNI - S ími : 568 9955
hönnunarvörur
OPIÐ
TIL 9
Gjafir Karafla + 2 glösverð kr. 3.995.-
Líttu á www.tk.is
Laugavegi 25
sími 533 5500
ÚTSALA
Sumartilboð
20% afsláttur
Laugavegi 51, sími 552 2201
HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað
karlmann til að sæta gæsluvarðhaldi
allt til föstudagsins 3. ágúst nk. en
hann reyndi að ræna 10-11-verslun í
Kópavogi nýverið, vopnaður hníf.
Hæstiréttur sneri við úrskurði Hér-
aðsdóms Reykjavíkur sem taldi ekki
nauðsynlegt að halda manninum í
varðhaldi þar sem játning liggur fyr-
ir.
Aðfaranótt fimmtudagsins 21. júní
sl. kom maðurinn inn í verslunina og
ógnaði starfsstúlku með hnífi. Hann
reyndi að opna peningaskáp sem
staðsettur er inni á skrifstofu versl-
unarinnar en án árangurs. Þegar við-
vörunarbjalla fór í gang hljóp mað-
urinn út um bakdyr verslunarinnar,
og hafði því ekkert upp úr krafsinu.
Afgreiðslustúlkan gat gefið lög-
reglu greinargóða lýsingu á mann-
inum sem hún taldi vera fyrrverandi
starfsmann í versluninni. Í kjölfar
þess að stjórnendur verslunarinnar
skoðuðu myndbandsupptökur af
ráninu beindist grunur að manninum
sem var handtekinn daginn eftir rán-
ið. Sá játaði brot sitt skýlaust.
Fjölskyldunni ógnað
Maðurinn bar við að hann skuldi
handrukkurum fjármuni – fjölskyldu
hans hafi verið hótað líkamsmeiðing-
um – og því hafi hann gripið til þess
örþrifaráðs að ræna verslunina.
Þrátt fyrir að maðurinn eigi að
baki tvo refsidóma fyrir þjófnað, hafi
með atferli sínu rofið skilorð á þrett-
án mánaða dómi og ógnað afgreiðslu-
stúlku með stórhættulegu vopni taldi
Héraðsdómur Reykjavíkur ekki
nauðsynlegt að maðurinn sætti
gæsluvarðhaldi áfram. Því var
Hæstiréttur ósammála og mun hann
sitja inni með tilliti til almannahags-
muna.
Með handrukkara
á hælunum
SIGURRÓS Þor-
grímsdóttir var
kjörin forseti
bæjarstjórnar
Kópavogs á fundi
bæjarstjórn-
arinnar á mánu-
dag. Hún tekur
við af Ármanni
Kr. Ólafssyni,
sem tók sæti á
Alþingi eftir ný-
liðnar alþingiskosningar, og óskaði
ekki eftir endurkjöri. Sigurrós er
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Sigurrós
kjörin forseti
bæjarstjórnar
Sigurrós
Þorgrímsdóttir
LITHÁINN sem slasaðist alvarlega í
hópslagsmálunum í Breiðholti að-
faranótt sunnudags hefur verið út-
skrifaður af gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi. Að sögn
vakthafandi læknis er maðurinn á
batavegi en honum hafði áður verið
haldið í öndunarvél. Maðurinn er á
fertugsaldri og hafði verið barinn í
höfuðið með barefli með þeim afleið-
ingum að hann höfuðkúpubrotnaði.
Útskrifaður af
gjörgæsludeild
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn