Morgunblaðið - 28.06.2007, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 28.06.2007, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 17 BJARTASTA kvöld ársins á Jóns- messu naut sín ekki sem skyldi í Reykjavík sakir sunnangrámans. Eins var um tæpan fyrri dagskrár- hluta Björns Steinars Sólbergssonar Hallgrímsorganista, a.m.k. hjá þeim sólgnustu í þrumur og eldingar, því fram að 2. þætti úr Hommage á Frescobaldi eftir Langlais – burtséð frá gustmikla upphafsatriðinu, Prelú- díu Buxtehudes í D BuxWV – var verkefnavalið í rólegum og allt að því svæfandi kanti. E.t.v. áhnykkt fáein- um silalegum rúbatóum sem á kostn- að hæfilegs púlsrytma virðast stund- um geta stungið jafnvel beztu verk svefnþorni í annars skýrri túlkun, eins og gerðist í forleikum sama höf- undar BuxWV 199 & 223, ásamt hlut- fallslega loðinni Ciaconu miðbar- okkmeistarans í e-moll (160). Nema fleira hafi komið til. Eins og kannski næmara samband sólistans við franska orgelskólann, ef marka má snilldarúttekt Björns á Jean Langlais (1907-91) og Alexandre Gu- ilmant (1837-1911) sitt hvorum megin við hlé. Alltjent færðist stórum meira líf í tuskurnar frá og með öðrum þætti fyrrnefndrar Þakkarskuldar til Frescobaldis (valdir voru I, V, VII & VII), og eftir það fór allt stigmagn- andi upp á við. Eftir glæsilegan síð- asta tilbrigðaþáttinn, er að auki var borinn uppi af bráðskemmtilegu og afar persónulegu raddvali líkt og það sem fylgdi, stormsópaði að Te Deum franska snillingsins, og í þríþættri 1. sónötu Guilmants í D-dúr fór Björn Steinar á engu minni kostum. Virtú- ósinn var hér greinilega í essinu sínu og hefði eftir öllu að dæma skorað 4. stjörnuna, hefði fleira verið í boði vestan Rínar. Germanskt blý, gallískt kvikasilfur TÓNLIST Hallgrímskirkja Verk eftir Buxtehude, Langlais og Guilm- ant. Björn Steinar Sólbergsson orgel. Sunnudaginn 24. júní kl. 20.  Orgeltónleikar Ríkarður Ö. Pálsson FÆREYSKI bassaleikarinn Edv- ard Nyholm Debes er Íslendingum að góðu kunnur, svo oft hefur hann leikið hér. Þeir Sigurður Flosason hafa sett TRISFO á laggirnar í stað GRISFO; í stað Grænlandskanans Jim Milne er Kjartan Valdimarsson sestur við píanóið. Við það hefur tríóið tvíeflst og diskur þeirra, sem hljóðritaður var í Færeyjum og kom út í sumar, er firnagóður. Lögin eru sex; eitt eftir Sigurð „Heart of Gold“ sem hét „Hjarta- lag“ á Gengið á hljóðið, „D.D.D.D.“ er áhrifamikil ballaða eftir Kjartan með stríðri undir- öldu, kraftmikill tangó sama, ,,Kjar tango“, svo og þrjú ljúf lög Debes, þar sem merkja má Bach á stund um, eða kannski Kingo; skemmti legastur er dúett hans og Sigurðar ,,Early Morning Call“ þar sem ha- denískur bassaleikur Debes er í fullkomnu samræmi við leik Sig- urðar, sem oftast blæs í altó- og sópransaxófóna, en hér í tenór með möttum hljóm eins og Óskar Guðjónsson gerir jafnan. Kannski eru það áhrif frá þokulúðrum sem gjarnan hljóma við Færeyjar enda ber hinn fyrsti af sex samspunum þeirra félaga nafnið ,,Foggy Is- lands“. Þessir stuttu spunakaflar sem oft eru stríðhljóma og trylltir s.s. ,,Invading Sweden … and Fin- land“ og í annan stað sveiflu glaðir eins og ,,Marching Down Karl Joh- angæfu“, ásamt tónsmíðum Kjart- ans, tilefni til hálfrar stjörnu í við- bót, stæðu slíkar til boða. Kammer- sveit keisara- dæmisins TÓNLIST Geisladiskur Landing Duck Records LDR 005  TRISFO: The North Atlantic Empire Vernharður Linnet GOLFKORT KAUPÞINGS E N N E M M / S ÍA / N M 2 7 8 2 2 Til viðbótar við afslátt sem Golfkortið veitir er golfsettið tryggt á ferðalögum auk ýmissa annarra fríðinda. FRÍÐINDI SEM TENGJAST GOLFKORTINU • Fjölbreyttur afsláttur af völdum vörum í Golfbúðinni, Hole in One, Markinu og Nevada Bob • 20% afsláttur af vallargjöldum á öllum völlum GSÍ • 20% afsláttur í golfhermi Sporthússins • 10% afsláttur af boltakortum hjá Pro Golf í Básum Grafarholti • Spennandi golfferð að hausti • Frítt árgjald og stofngjald fyrsta árið • MasterCard ferðaávísun við stofnun Golfkortsins • Árlega er send veltutengd MasterCard ferðaávísun • Inngöngugjöf þegar kortið er sótt • Fjölbreytt tilboð og fríðindi í gegnum Netklúbb Golfkortsins mbl.isókeypis smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.