Morgunblaðið - 28.06.2007, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 45
Í kvikmyndinni The Hoax færrithöfundurinn Clifford Irvingenn eina höfnunina frá útgef-
anda sínum og í kjölfarið ákveður
hann í örvæntingu sinni að gerast
opinber ævisagnaritari auðjöfurs-
ins Howard Hughes, óumbeðinn.
Þegar hann virðist á góðri leið að
komast upp með blekkinguna fær
hann líklega öfugsnúnasta hrós æv-
innar þegar útgefandinn hans skál-
ar fyrir honum með þessum orðum:
„Til þess að þetta sé gabb þyrfti
Shakespeare til og þótt Clifford
Irving sé ágætisnáungi er hann
enginn Shakespeare.“
Vissulega var Irving óforskamm-
aður svindlari en getur virkilega
verið að svindlið hafi gert hann að
svona miklu betri höfundi – eða var
það eitthvað annað en stílsnilldin
sem höfðaði svona til útgefandans?
Í nýlegri grein í bókmenntaritinuStínu flokkar Hallgrímur
Helgason höfunda gróflega í tvo
hópa: „Þá sem skrifa út frá eigin
reynslu og þá sem gera það ekki.“ Í
kjölfarið segist hann bera meiri
virðingu fyrir síðari hópnum, þeim
sem „geta gleymt sjálfum sér og
ímyndað sér líf annarra, skáldað
upp heilar persónur og örlög
þeirra.“ Aðgreiningin sjálf þykir
mér óþörf og er nokk sama hversu
margt er satt og hversu miklu er
logið í skáldskap svo framarlega
sem höfundinum tekst að sannfæra
mig um að einhvern sannleika megi
finna í verkinu. En afstaða Hall-
gríms er þó skiljanleg, hún er eðli-
legt andsvar við veröld þar sem áð-
ur hunsaður rithöfundur fær
skyndilega milljónasamninga fyrir
það eitt að ljúga því sannfærandi að
saga sé ekki skálduð.
Saga þarf núorðið að hafa frétta-
gildi til þess að komast að í frétta-
óðum fjölmiðlum samtímans, þess-
um sömu fjölmiðlum og gegna
lykilhlutverki í að selja bækurnar.
„Léttur og leikandi stíll“ verður
seint forsíðufyrirsögn. Annaðhvort
þarf bókin að hafa fréttagildi eða
höfundurinn sjálfur – og hans hlut-
verk er jú að selja bókina – og þá er
illa komið fyrir skáldskapnum.
Hvaða gagn er að sögum semeru ekki einu sinni sannar?“
Þessar efasemdir skrifstofublók-
arinnar Sengúpta þurfa sögu-
persónur Salmans Rushdie í Harún
og Sagnahafinu að berjast við. Bar-
átta mannsandans við kreddur trú-
ar, vísinda og viðtekinna gilda sem
hafa misst andagiftina er orðin
löng og ofangreindar efasemdir
hafa sjálfsagt flestallir rithöfundar
og bókmenntafræðingar heyrt
sjálfir í einhverri útgáfu, jafnvel
spurt sig sjálfir.
En hvaða gagn er að þeim post-
ulum sannleikans sem sífellt telja
sig hafa fundið hina einu réttu leið?
Til að stjórna landinu, græða pen-
inga eða lifa heilbrigðu lífi. Er það
ekki einmitt þessi eiginleiki skáld-
skaparins, að auglýsa sig ekki sem
sannleika sem gerir hann mik-
ilvægan? Það kennir okkur að taka
sannleikanum ekki sem sjálfsögð-
um hlut, að hann megi finna þar
sem maður síst væntir – og að það
borgi sig að leita sjálfur frekar en
að bíða eftir að lýðskrumarar rétti
þér lygar í gjafapappír. Þá hefur
sagnalistin æ ofan í æ sannað gildi
sitt á þeim tímum sem ekki hefur
mátt segja sannleikann.
Líklega hafa Sengúpta og Hall-
grímur jafnrangt fyrir sér. Þeir
boða sitt hvora kredduna, sitt hvor-
ar öfgarnar, og bestu sögurnar
verða til þar á milli. En líklega
þurfum við frekar á kreddu Hall-
gríms að halda einmitt núna, því
Sengúptar veraldarinnar hafa tek-
ið völdin.
Rithöfundurinn sem lærði
að ljúga vel
AF LISTUM
Ásgeir H. Ingólfsson
»En hvaða gagn er aðþeim postulum sann-
leikans sem sífellt telja
sig hafa fundið hina einu
réttu leið?
Shakespeare Var leikskáldið nógu kunnugt staðháttum í Danmörku til
þess að geta skrifað sannfærandi um konungsfjölskylduna þar?
asgeirhi@mbl.is
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
OPIN HÚS Í EFTIRTÖLDUM EIGNUM
KAMBASEL 53 1. HÆÐ AUK BÍLSKÚRS
KAMBASEL 30 - 2. HÆÐ 3ja herbergja
Falleg 93 fm 3ja herb. íbúð auk 26 fm sérstæðs bílskúrs (samtals 119 fm) í fallegu fjöl-
býli. Tvö stór svefnherbergi með skápum. Stór og björt stofa/ borstofa með útg. á suð-
vestursvalir. Parket, flísar og dúkur á gólfum. Stórt þvottahús innaf eldhúsi. Bílskúr er
fullbúinn með mikilli lofthæð. ÍBÚÐIN ER LAUS FLJÓTT.
VERÐ 24,9 millj.
Þórhildur og Níels sýna íbúðina í dag fimmtudag frá kl 19:00 - 20:00
Traust þjónusta í 30 ár
Góð 3ja - 4ra herb. 102 fm íbúð á 2. hæð (efstu) í fallegu fjölbýli. Tvö rúmgóð herb. og
sjónvarpsherbergi. Stofan er stór og björt með útg. á stórar suðursvalir. Þvottahús í
íbúð. Parket og flísar á gólfum. Eldh. nýlega endurnýjað og uppgert. Stór sérgeymsla.
Sameign mikið tekin í gegn og hefur fengið gott viðhald.
Verð 22,9 millj.
Jóhann og Kristjana sýna eignina í dag fimmtudag frá kl. 19:00 - 20:00
TÓNLISTARMAÐURINN
og plötusnúðurinn Goldie
kemur fram á Break-
beat.is-klúbbakvöldi á
NASA hinn 14. júlí næst-
komandi. Goldie gaf ný-
lega út breiðskífuna Mal-
ice in Wonderland undir
listamannsnafninu Rufige
Kru, en tónleikarnir eru
liður í kynningarferð í
kjölfar útgáfunnar.
Karl Tryggvason, eða
Kalli í breakbeat.is, segir komu Gol-
die til Íslands ævinlega hafa vakið
stormandi lukku. „Hann er nátt-
úrlega „Íslandsvinur“. Við fluttum
hann inn árið 2005, og hann sýndi
áhuga á að koma aftur.“
Goldie er litríkur karakter og
sennilega einhver skærasta stjarnan
á sínu sviði. Fyrir tólf árum kom út
breiðskífa hans, „Timeless“, og
hlaut mikið lof gagnrýn-
enda og almennings.
Platan er talin meðal
hinna áhrifamestu í dans-
tónlistargeiranum. Gol-
die hefur breitt fagn-
aðarerindi drum’n
bass-tónlistarinnar út um
víða veröld og rekið hið
virta útgáfufyrirtæki Me-
talheadz, en því mætti ef-
laust jafna við Blue Note-
útgáfuna í djassinum.
Goldie hefur farið um víðan völl
og auk tónlistarafreka sinna státar
hann af prýðilegum kvikmyndaferli.
Þá minnast þess eflaust einhverjir
að drengurinn var tilvonandi
tengdasonur Íslands um skeið; hann
og Björk áttu í ástarsambandi.
Forsala miða hefst í Plötubúð
Smekkleysu mánudaginn 2. júlí og
kostar miðinn 2.000 krónur.
Gulldrengur til Íslands
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Karlovy
Vary fer fram í Tékklandi um
helgina. Áður hefur verið greint frá
því að Mýrin hans Baltasars Kor-
máks sé ein þeirra 14 mynda sem
keppa í aðalkeppni hátíðarinnar.
Mýrin verður hinsvegar ekki eina
íslenska ræman sem sýnd verður á
hátíðinni því Börn Ragnars Braga-
sonar og Vesturports verður sýnd í
flokki sem nefnist Another View og
stuttmynd Helenu Stefánsdóttur,
Anna, verður sýnd í flokknum For-
um of Independents.
Frá þessu segir á fréttavef Lands
og sona.
Anna og
Börnin til
Tékklands
Hress Gísli Örn Garðarsson í kvik-
myndinni Börn.