Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í MIÐRI Prag
er eyja sem
kallast Kampa
og þar hefst í
dag þriggja
daga leik-
húshátíð, Teat-
rotoè-hátíðin.
Alls verður 61
sýning á þess-
um stutta tíma,
meðal annars brúðuleikhús, trúðar
og fjöllistamenn ýmsir. Listamenn-
irnir koma víða að, frá Tékklandi,
Slóvakíu, Króatíu, Finnlandi, Dan-
mörku, Belgíu, Þýskalandi og Ísrael.
Þá mun gestum verða boðið að reyna
sig í leikbrúðugerð og loks verður
litrík skrúðganga yfir Karlsbrúna.
Á hátíðinni má sjá mann reyna að
hjóla á heimsins minnsta hjóli,
finnska útgáfu af Mjallhvíti og
dvergunum sjö auk ýmissa klass-
ískra sirkusatriða. Þá verður nokkuð
um að leikbrúður leiki við leikara af
holdi og blóði. Teatrotoè-hátíðin er
nú haldin í sjötta sinn en hún spratt
upp af óánægju með hversu lítið var
um götulistamenn í Prag miðað við
hvað menningarlífið var þó líflegt að
öðru leyti. Ástæðan er helst sú að
mjög flókið getur verið að fá leyfi
fyrir slíku enda skriffinnskan tékk-
neska ennþá með timburmenn eftir
kommúnismann auk þess að halda í
kafkaískar hefðir.
Leikbrúðuhefðin í Tékklandi er
sterk og ófáir túristar í Prag hafa
endað á að sjá margauglýsta brúðu-
sýningu Svartljósaleikhópsins eftir
óperu Mozarts, Don Giovanni, sem
hann sagðist hafa samið fyrir íbúa
borgarinnar. En fyrir þá sem eiga
leið um borgina næstu daga gefst
hér hins vegar frábært tækifæri til
þess að sjá hvað er að gerast í gras-
rót þessarar fornu listgreinar hvers
gamla Mið-Evrópa er helsta vígi.
Götuleik-
hús í Prag
Leikbrúður og
trúðar á eyju
Tékkabrúða
Í TILEFNI þess að reykingabann á
enskum skemmtistöðum tók gildi í
gær velta bókmenntaskríbentar
Guardian fyrir sér hverjir séu eft-
irminnilegustu reykingamenn bók-
menntasögunnar.
Ýmsir eru nefndir til sögunnar;
úr Moby Dick kemur Ahab skip-
stjóri með pípuna sína, Alan Sillitoe
skrifaði að reykingar væru helsta
lausn daglaunamanna í verk-
smiðjum og Leopold Bloom í Ulys-
ses er einnig nefndur. Frumlegustu
reykingarnar stundar líklega Joe í
The Borstal Boy eftir Brendan Beh-
an, en hann notaði Biblíuna til að
vefja sér rettur, alls ómeðvitaður
um fullyrðingar Míkhaíls Búlga-
kovs um að bækur brynnu ekki.
Þá eru ótaldir ótal einkaspæjarar
úr sögum Raymonds Chandlers og
Dashiells Hammetts sem sjálfsagt
yrði erfitt að fá til þess að hlíta
reykingabanni án þess að kæmi til
stympinga. Ljóst er þó að bannið
undirstrikar enn stereótýpu reyk-
ingamannsins í bókmenntum sem
hinn eilífi utangarðsmaður og
vandræðaseggur. Svo er bara að sjá
hvort einhver skáldsagan sé ekki
að fæðast á nýja skemmtistaðnum á
milli Ölstofunnar og Vegamóta …
Reykbók-
menntir
Afskipt Reykt úti í London.
Skálholtskvartettinn heldur
tónleika í Hóladómkirkju
þriðjudaginn 3. júlí kl. 20.
Kvartettinn mun leika
strengjakvartetta eftir Haydn
og Schubert.
Kvartettinn skipa Jaap
Schröder og Rut Ingólfsdóttir
á fiðlu, Svava Bernharðsdóttir
á víólu og Sigurður Hall-
dórsson sem spilar á selló.
Kvartettinn er nýkominn úr
tónleikaferð um Ítalíu. Tónleikarnir eru hluti af
sumartónleikaröð á Hólum í Hjaltadal sem stend-
ur út ágúst og telur alls ellefu tónleika. Dagskrána
má finna á holar.is undir liðnum ferðaþjónusta.
Tónlist
Skálholtskvartett-
inn á Hólum
Dómkirkjan á
Hólum í Hjaltadal.
ÉG stytti mér leið framhjá
dauðanum, ljóðabók Einars
Más Guðmundssonar, kom út í
Danmörku í júní í þýðingu Er-
iks Skyum-Nielsens sem þýðir
titilinn svo: Jeg skyder genvej
forbi døden.
Bókin hefur fengið glimr-
andi dóma í Danaveldi í dag-
blöðum á borð við Politiken,
Weekendavisen og Inform-
ation. Einar Már var einmitt
staddur í Danmörku þar sem hann var gestur
ljóðahátíðar á Norðurbrú í Kaupmannahöfn auk
þess að koma fram ásamt Jóhannesi Møllehave á
vegum norrænu ráðherranefndarinnar.
Bókmenntir
Danir hrifnir af
ljóðum Einars Más
Einar Már
Guðmundsson
MIÐBÆRINN brennur er
sýning um helstu bruna í
miðbæ Reykjavíkur og er í Ár-
bæjarsafni. Eldsvoðar hafa
sett mark sitt á miðbæinn allt
frá því þéttbýli fór að myndast
í Kvosinni. Mörg merkileg og
sögufræg hús hafa orðið eldi að
bráð, nú síðast húsin á horni
Lækjargötu og Aðalstrætis. Á
sýningunni er stiklað á stóru í
sögu eldsvoða og brunavarna í
miðbæ Reykjavíkur allt frá 18. öld. Á sýningunni
má meðal annars sjá líkan af miðbæjarbrunanum
árið 1915 og slökkvibíl og brunadælur frá sama
tíma auk fjölda ljósmynda frá ýmsum brunum.
Sagnfræði
Miðbærinn brennur
í Árbænum
Miðbæjarbruninn
18. apríl í ár.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„VIÐ spiluðum í sjö ár saman sem
dúó og ferðuðumst mikið erlendis
sem innanlands. Það var síðan árið
1981 sem við ákváðum að fara sitt
hvora leið því ég vildi endilega fara
að spila með barokkhljóðfærum,“
segir Helga Ingólfsdóttir sembal-
leikari um samstarf hennar og
Manuelu Wiesler flautuleikara sem
lést í lok seinasta árs.
Helga hélt erindi um Manuelu á
laugardaginn í Skálholti og opnaði
með því hina árlegu Sumartónleika
á staðnum. Það var Helga sem
stofnaði Sumartónleikanna árið
1975 og var listrænn stjórnandi
þeirra fyrstu þrjátíu sumrin ásamt
því að spila.
Fyrsta sumarið voru flytjendur,
auk Helgu, Elín Guðmundsdóttir
semballeikari og Manuela sem kom
inn í samstarfið þegar aðeins var lið-
ið á sumar.
Lærdómsrík ár
„Ég heyrði fyrst af Manuelu þeg-
ar menn voru að dásama flautuleik
hennar, fólk hafði ekki heyrt annan
eins leik. Við fórum að bjóða hvor
annarri að spila með hinni og vorum
aðallega í Bach í byrjun en samstarf
okkar tók á sig aðra mynd í Skál-
holti og hélst í öll þessi sjö ár,“ segir
Helga en Manuela átti gríðarstóran
þátt í mótun Sumartónleika í Skál-
holtskirkju fyrstu árin en á þeim
hélt hún iðulega eina einleiks-
tónleika og aðra dúótónleika með
Helgu.
„Manuela gerði mikið fyrir mig
sem tónlistarmann, þessi ár voru
mikill lærdómur. Henni tókst að
laða fram í mér dulda hæfileika.
Þetta var stórkostlegt samstarf, við
vorum ofnar saman í tónlistinni.“
Jákvæður snillingur
Helga á greinilega margar góðar
minningar um Manuelu og hæfileika
hennar.
„Ég á Manuelu ýmislegt að þakka.
Ég man sérstaklega eftir einu atviki
þegar staðartónskáldin fóru að
semja fyrir Sumartónleikana. Einu
sinni var Leifur Þórarinsson að
semja fyrir okkur og við vorum bún-
ar að æfa og æfa en svo í hádegismat
á föstudeginum, fyrir tónleikana sem
voru á laugardeginum, kemur Leifur
með viðbótarkafla við verkið. Ég hélt
að það ætlaði að líða yfir mig því fyr-
irvarinn var svo skammur en Manu-
ela sagði að þetta væri ekkert mál,
við gætum þetta alveg. Hún var snill-
ingur, mjög jákvæð og lét ekkert
stoppa sig.“
Leið vel á Íslandi
Helga talaði aðallega um hin
fyrstu sjö samstarfsár hennar og
Manuelu í erindinu á laugardaginn
enda segir hún þau hafa verið ein-
staklega viðburðarík.
„Mér þykir vænt um að hafa getað
kvatt Manuelu á þennan hátt í Skál-
holti. Enda fannst henni alltaf þegar
hún kom í Skálholt að hún væri kom-
in heim, hún dáðist svo að náttúrunni
og leið svo vel á Íslandi,“ segir Helga
sem hefur komið að Sumartónleikum
í Skálholti í öll þau 33 ár sem þeir
hafa verið haldnir en í mismunandi
hlutverkum eins og hún vill orða það.
Ofnar saman í tónlistinni
Helga Ingólfsdóttir minntist Manuelu Wiesler á Sumartónleikum í Skálholti
„Hún var snillingur, mjög jákvæð og lét ekkert stoppa sig“
www.sumartonleikar.is
Flautuleikari Manuela Wiesler fæddist í Brasilíu árið 1955 en fluttist til Ís-
lands árið 1973 og bjó hér í um áratug.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blómleg Helga Ingólfsdóttir starf-
aði lengi með Manuelu Wiesler.
FINANCIAL Times birti nýverið
grein um Þjóðleikhús Íslendinga.
Blaðakonan Clare Shine hitti Tinnu
Gunnlaugsdóttur, þjóðleik-
hússtjóra, og Stefán Jónsson, leik-
stjóra, og spjallaði við þau um ís-
lenska leiklist. Það kom Shine á
óvart hversu seint leikhúsið náði
fótfestu á Íslandi en um leið kemur
henni jafnmikið á óvart hversu ört
það hefur vaxið síðan það komst á
legg. Þegar hún spyr hvort al-
þjóðavæðingin þýði að íslenskt leik-
hús skeri sig minna úr en áður þá
játar Tinna því en Stefáni er tíðræð-
ara um einangrunina sem Íslend-
ingar þó búa við, kosti hennar og
galla.
Shine fjallar þónokkuð um Leg,
leikverk Hugleiks Dagssonar sem
ber nafnið Uterus: A Science Fict-
ion Musical á ensku. Hún segir ís-
lenskt leikhús eiga ríka hefð í satíru
og ögrandi leikritun þrátt fyrir
hversu stór hluti ríkisins sé í rekstri
leikhúsanna.
Loks heimsækir hún æfingar á
Partílandi Jóns Atla Jónassonar og
þykir mikið til koma að sjá Jón Pál
Eyjólfsson undirbúa sig fyrir
pönnukökubakstur á meðan leik-
skáldið límdi útlínur Íslands á gólfið
með límrúllu. Hún komst svo ekki á
frumsýninguna en þykir mikið til
koma að forsetinn hafi mætt. Grein-
ina alla má lesa á heimasíðu Fin-
ancial Times.
Financial Times heimsækir Þjóðleikhúsið
Morgunblaðið/Golli
Þjóðleikhúsið Það kom á óvart hve seint leikhúsið náði fótfestu á Íslandi.
www.ft.com.