Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 27
Á fáki fráum Guðmundur Davíð Sigurðsson á Fífli frá Haga sigraði í barnaflokki. Frábær árangur í stökki færði þeim sigurinn. Besti vinurinn Magnús Magnússon og stóðhesturinn Farsæll. B-flokkur Taktur frá Tjarnarlandi sigraði í B-flokki gæðinga með einkunnina 8,88. Knapi Viðar Ingólfsson. Glæsilegir taktar Blær frá Torfunesi og Þorvar Þorsteinsson voru efstir í A-flokki gæðinga. Frá Árgerði Glymur hlaut hæstu ein- kunn í flokki sex vetra stóðhesta. Eftir Gunnar Gunnarsson UM tvö þúsund gestir sóttu Fjórð- ungsmót hestamanna á Austurlandi sem fram fór á Stekkhólmum, fé- lagsstæði hestamannafélagsins Freyfaxa, á Fljótsdalshéraði um helgina. Jens Einarsson, fram- kvæmdastjóri mótsins, var ánægður með framkvæmd mótsins þó hann hefði viljað sjá fleiri gesti. „Mótið tókst í alla staði mjög vel. Undir forystu Bergs Hallgríms- sonar var ráðist í mótshaldið af djörfung og hug og markið sett hátt. Það eru skilaboð til allra, einkum hér á Fljótsdalshéraði, um hvað hægt er að gera þó liðsaflinn sé ekki mikill, ef allir taka undir. Með því má ná hestamennskunni á Fljóts- dalshéraði upp og koma henni á fyrri stall. Mótið er klárlega þýðing- armikið skref í að breyta hug- arfarinu og koma krafti í uppbygg- ingu hestamennskunnar. Hvað hrossin varðar geta allir verið sammála um að hér voru mjög góð hross. A-flokkurinn og töltið voru glimrandi góð.“ Gestir á mótinu virtust á sama máli og Jens um að mótið hefði gengið vel fyrir sig. „Það eru allir mjög ánægðir og ég er ánægðastur með að margt lykilfólk, sem hefur komið nálægt framkvæmd stórra hestamóta, gefur okkur mjög góða einkunn. Við getum ekki annað en verið stolt.“ Svæðið á Stekkhólmum hefur tek- ið stakkaskiptum á seinustu vikum og aðstaða orðin hið besta, jafnt fyr- ir menn sem hesta. Síðustu dagana fyrir mót var unnið hörðum höndum að því að reka seinustu naglana á sína staði. „Menn tóku sér knappan tíma í undirbúning en unnu hratt og á endasprettinum komu margar fús- ar hendur til leiks. Við vorum óheppnir með veðrið fyrsta daginn og spáin var ekki góð sem sennilega hefur haft áhrif á gesti því við vild- um helst fá þúsund manns í viðbót. En við fengum þrjá góða daga, þar af tvo frábæra.“ Fjórðungsmóti hestamanna á Austurlandi lauk í gær „Þýðingarmikið skref til að efla hestamennskuna“ Hafið hátt! Áhorfendur gátu haft áhrif á niðurstöðuna í stóðhestakeppninni með því að láta heyra í sér. Þeir létu ekki sitt eftir liggja eftir hvatninguna. Hópur Hross frá Ketilsstöðum sem tóku þátt í Fjórðungsmótinu. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2007 27 HESTAR Úrslit A-flokkur gæðinga 1 Þorvar Þorsteinsson / Blær frá Torfunesi .................................................. 8,82 2 Stefán Friðgeirsson / Dagur frá Strandarhöfði ......................................... 8,61 3 Bergur Jónsson / Tjörvi frá Ketilsstöðum ................................................. 8,59 4 Guðröður Ágústsson / Áli frá Eyrarlandi ................................................... 8,56 5 Baldvin Ari / Úði frá Húsavík ...................................................................... 8,48 6 Vignir Siggeirsson / Grásteinn frá Brekku ................................................ 8,47 7 Þór Jónsteinsson / Seifur frá Skriðu ........................................................... 8,42 8 Hans Kjerúlf / Prati frá Eskifirði ................................................................ 7,70 Úrslit í B-flokki gæðinga 1 Viðar Ingólfsson / Taktur frá Tjarnarlandi ................................................ 8,88 2 Eyjólfur Þorsteinsson / Komma frá Bjarnanesi ..................................... 1 8,61 3 Bjarni Jónasson / Vænting frá Brúnastöðum ............................................ 8,47 4 Þorbjörn Hreinn Matthíasson / Nanna frá Halldórsstöðum .................... 8,43 5 Ólafur Guðjón Reynisson / Mökkur frá Lækjamóti .................................. 8,41 6 Bergur Már Hallgrímsson / Heimir frá Ketilsstöðum .............................. 8,41 7 Hans Kjerúlf / Glymur frá Stóra-Sandfelli 2 ............................................. 8,40 8 Sigurður Sigurðarson / Ísak frá Tjarnarlandi ........................................... 8,37 Úrslit í barnaflokki 1 Guðmundur Davíð Sigurðsson / Fífill frá Haga ......................................... 8,60 2 Eyrún Þórsdóttir / Gustur frá Hálsi ........................................................... 8,52 3 Berglind Rós Bergsdóttir / Myrkva frá Ketilsstöðum .............................. 8,52 4 Nanna Lind Stefánsdóttir / Stirnir frá Halldórsstöðum .......................... 8,28 5 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir / Tign frá Tókastöðum ....................... 8,16 6 Snæfríður Björg Jónsdóttir / Nói frá Kollaleiru ....................................... 8,01 7 Bjarney Guðjónsdóttir / Neisti frá Halldórsstöðum ................................. 7,96 8 Fanndís Viðarsdóttir / Þokki frá Hraukbæ ................................................ 6,92 Úrslit í unglingaflokki 1 Stefanía Árdís Árnadóttir / Flóki frá Þverá, Skíðadal .............................. 8,54 2 Linda Hrund Káradóttir / Fálmi frá Fremra-Hálsi .................................. 8,45 3 Karen Hrönn Vatnsdal / Kóngur frá Miðgrund ........................................ 8,41 4 Skarphéðinn Ragnarsson / Katla frá Garðsá ............................................. 8,38 5 Erla Guðbjörg Leifsdóttir / Ljúfur frá Neðri-Skálateigi 8,31 6 Gunnar Ásgeirsson / Kyndill frá Skarði ..................................................... 8,23 7 Dagný Ásta Rúnarsdóttir / Fjallaljón frá Möðrudal ................................. 8,22 8 Dagbjört Diljá Einþórsdóttir / Kyndill frá Brekkugerði .......................... 8,20 Úrslit í ungmennaflokki 1 Ragnhildur Haraldsdóttir / Ægir frá Móbergi .......................................... 8,54 2 Nikólína Rúnarsdóttir / Júpíter frá Egilsstaðabæ .................................... 8,48 3 Torfi Sigurðsson / Freyja frá Ártúni .......................................................... 8,36 4 Lena Hrönn Marteinsdóttir / Mozart frá Ártúni ....................................... 8,35 5 Guðmundur Þorsteinn Bergsson / Ljónslöpp frá Ketilsstöðum .............. 8,30 6 Hulda Lily Sigurðardóttir / Slæða frá Möðrudal ...................................... 8,30 7 Hallveig Karlsdóttir / Ögrun frá Útnyrðingsstöðum ................................ 8,23 8 Vordís Eiríksdóttir / Djákni frá Sléttu ....................................................... 8,05 Úrslit í tölti 1 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi ...................................................... 8,50 2 Sigurður Óli Kristinsson / Sleipnir frá Gunnarsholti ................................ 8,11 3 Mette Mannseth / Bragi frá Hólum ............................................................ 8,06 4 Baldvin Ari Guðlaugsson / Örn frá Grímshúsum ....................................... 7,50 5 Sigurður Sigurðarson / Kjarnorka frá Kálfholti ........................................ 7,44 Úrslit í tölti áhugamanna 1 Nikólína Rúnarsdóttir á Júpíter frá Egilsstaðabæ ................................... 7,28 2 Rakel Sigurhansdóttir á Streng frá Hrafnkelsstöðum ............................. 6,56 3 Anna Catharina Gros á Glóð frá Ytri-Bægisá 1 ......................................... 6,56 4 Einar Ben Þorsteinsson á Skrekk frá Hnjúkahlíð .................................... 6,44 5 Marteinn Gíslason á Þyrnirós frá Ártúni ................................................... 6,39 JÓN Bergsson frá Ketilsstöðum var verðlaunaður á Fjórðungsmóti hestamanna fyrir ræktunarstarf sitt. Upphaf þess nær hálfa öld aftur í tímann þegar hryssan Ljónslöpp sigraði í góðhestakeppni á fyrsta Fjórðungsmótinu, en hún er formóð- ir annarra hesta frá Ketilsstöðum. Á mótinu um helgina voru fjögur af 33 einstaklingssýndum hrossum frá Ketilsstöðum og öll áttu þau ætt- ir sínar að rekja til Ljónslappar, sum á margan hátt. Jón Bergsson fædd- ist 25. júní árið 1933. Hann var at- kvæðamikill í félagsmálum hesta- manna og sat um tíma í stjórn Landssambands hestamanna. Hann þykir alla tíð hafa verið trúr sinni sannfæringu og verið óhræddur við að fara sínar eigin leiðir í hrossa- rækt. Honum, og konu hans, Elsu Þorsteinsdóttur, var efst í huga þakklæti þegar Morgunblaðið ræddi við þau í gær. „Við þökkum fyrir þetta. Ég er búinn að standa í hrossarækt í 50-60 ár og þetta hefur verið mikil vinna,“ sagði Jón. „Hugsjón Jóns hefur alltaf verið hross og aftur hross,“ sagði Elsa. „Við eigum þetta ekki ein, börnin okkar hafa tekið við og þar skarar fram úr sonur okkar Bergur Jóns- son. En við sendum frá okkur kærar þakkir fyrir þennan heiður.“ Viðurkenning Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bænda- samtaka Íslands, afhenti Jóni Bergssyni og Elsu Þorsteinsdóttur við- urkenningu fyrir framlag þeirra til hrossaræktar í fimmtíu ár. Í hrossarækt í hálfa öld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.