Morgunblaðið - 02.07.2007, Síða 25
fjármál heimilanna
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2007 25
Landið er fallegra á löglegum hraða
Ég þekki fólk sem kaupirsér oftar ís á Íslandi ásumrin en veturna.Barnaís, sem er alveg
nógu stór fyrir nútímafólk sem þarf
að huga að línunum allan ársins
hring, kostar um 100 kr. Fyrir þenn-
an dagamun greiðir fjögurra manna
fjölskylda, sem vitaskuld hjólar sam-
an í ísbúðina á fallegum sumardegi,
400 kr. en nýtur þess eins og kon-
ungsfjölskylda.
Ég þekki líka fólk sem, þegar vel
viðrar á landinu, ekur á kaffihús með
alla fjölskylduna og situr þar ágæt-
lega klætt (fyrir rokinu) úti undir
sólhlíf. Foreldrarnir fá sér ekkert
venjulegt kaffi heldur móðins eins
og cappuccino eða cafe au lait. Hefð-
bundið meðlæti eins og kleina og
snúður er ekki lengur efst á vin-
sældalistanum heldur allt sem er líf-
rænt ræktað. Það er víst svo hollt,
jafnvel þótt það sé súkkulaðikaka.
Krakkarnir fá ávaxtasafa úr lífrænt
ræktuðum ávöxtum. Því finnst eins
og krakkarnir séu ekki eins æstir af
þessu lífræna og kóki og prins. Fyrir
þessa kaffihúsastund finnst fólkinu
ekki mikið að greiða eins og 4.000 kr.
Það er jú í sumarfríi og verður nú að
leyfa sér eitthvað.
Ég þekki svo marga sem verða
ómögulegir ef spáð er þremur sól-
arlausum dögum í röð og jafnvel
rigningu. Þá er víst alveg verið að
eyðileggja munaðinn sem þeir höfðu
ætlað sér í sumarfríinu sínu. Margir
bregða þá á það ráð að fara í sólar-
landaferð til þess að njóta, að því er
þeim finnst, þeirra lágmarksmann-
réttinda að láta sólina skína á sig í
lágmark 7-14 daga. Ég er samt ekki
viss um heimilisbókhaldið þoli í öll-
um tilfellum þau útgjöld sem ráða-
hagnum fylgja. Þessi sólarmannrétt-
indi kosta fjögurra manna fjölskyldu
sennilega á milli 400.000-500.000
þúsund með gjaldeyri og öllu.
Af þeim sem ég þekki á ég enn eft-
ir að nefna þá sem hafa hörkuna og
seigluna til þess að ferðast um Ís-
land – á jeppunum sínum, í tjald-
vagni eða í fellihýsi. Fyrr í sumar
heimsótti ég tjaldvagna- og felli-
hýsabúðir á tjaldstæði ekki langt frá
höfuðborginni og gerði það að leik að
telja saman milljónirnar sem hver
fjölskylda hafði dregið með sér í
ferðalagið og þær voru nú ekki fáar.
Jeppi kostar vitaskuld oft 2-8 millj-
ónir, tjaldvagnar 5-700.000 þúsund
og fellihýsi á milli eina og tvær millj-
ónir. Ætli sígaunar ferðist með
svona mikil verðmæti eða ætli Ís-
lendingar ferðist með skuldirnar?
Notaðu hugmyndaflugið
og vertu öðruvísi
Nú er þetta allt gott og gilt í sjálfu
sér, eigi fólk fé fyrir þeim munaði
sem mörgum finnst bara vera sjálf-
sögð mannréttindi samkvæmt ein-
hverjum stöðlum í samfélaginu. En
þegar peningar eru annars vegar
þýðir lítið að ætla að lifa eftir stöðl-
um annarra. Þar verður hver að
sníða sér stakk eftir vexti.
Heimspekingurinn Seneca orðaði
það einhvern veginn þannig að sá
væri ekki snauður sem lítið ætti,
heldur hinn sem sífellt vildi fá
meira. Kollegi hans, Epíkúros, sagði
einnig réttilega að ekkert nægði
þeim manni, sem fyndist ekki nóg að
hafa nóg. Heraklítos átti samt gull-
kornið eða ættum við að segja gra-
skornið: „Auk heldur asnar vita, að
gras er betra en gull.“ Þessi fornu
sannindi hafa öll staðist tímans
tönn.
Það er nú svo oft bara þannig að
stundum kostar munaðurinn sama
sem ekki neitt. Sá er oft ríkastur
sem skemmtir sér við minnstan
kostnað. Góður félagsskapur og
samvera þarfnast sjaldnast mikilla
umbúða. Að skapa, búa til og upplifa
góðar stundir með fjölskyldu og vin-
um er ómetanlegt og verður ekki
metið til fjár. Það þarf ekki alltaf að
ferðast á fjarlægar eða sólríkar slóð-
ir til þess, drekka móðins kaffi eða
borða exótískan mat á dýrum veit-
ingahúsum eða vera eins og íslensk-
ur sígauni. Það má finna aðrar leiðir.
Notaðu hugmyndaflugið, finndu
þær leiðir sem henta þér og þinni
pyngju og leyfðu þér í leiðinni að
vera bara svolítið öðruvísi en hinir
stöðluðu.
Þolir þín pyngja
munaðinn í sumarfríinu?
Morgunblaðið/RAX
Hagsýn Sumar fjölskyldur njóta þess að fara í tjaldútilegu og halda sig innan þess fjárhagsramma sem þau hafa.
Morgunblaðið/Ómar
Sólarströnd Forsjálir hafa ef til vill sparað fyrir sólarlandaferðinni allt ár-
ið en aðrir slá einfaldlega lán og fara kannski án þess að hafa ráð á því.
Sumarið er sæla í huga
flestra, langþráð sum-
arfríið munaður sem
lengi hefur verið beðið
eftir. Unnur H. Jóhanns-
dóttir velti fyrir sér hvort
fólk þyrfti ekki að sýna
aðhald í fjármálunum í
sumarfríinu.
HÉR ERU nokkrar spurningar sem
þú ættir að spyrja sjálfan þig áður
en þú byrjar að eyða í sumarfríinu
þínu.
Hvað áttu mikinn pening til
þess að eyða í sumarfríinu?
Skoðaðu heimilisbókhaldið eða
lausafjárstöðuna og gerðu áætlun
um hversu mikið þú getur eytt í
sumarfríinu. Gerðu ekki ráð fyrir
lántökum.
Hvað geturðu gert fyrir
þennan pening?
Settu allar hugmyndir niður á
blað þar til þú ert kominn með
a.m.k. 10 hugmyndir og settu verð-
miða á hverja og eina. Gerðu líka
áætlun um hvað litlu hlutirnir kosta
eins og ís, sundferðir, kaffihús,
matarboð og fleira.
Hvað langar þig helst að gera?
Skipleggðu sumarfríið. Raðaðu
hugmyndunum niður eftir því í
hvaða röð þú vilt hrinda þeim í
framkvæmd. Útfærðu hverja og
eina nánar.
Hvað svo?
Njóttu sumarfrísins, skuldlaus og
áhyggjulaus!
Fjárhags-
áætlun í
sumarfríinu