Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 31
verða sko hræddir þegar þeir sjá
þetta“ og það reyndist raunin. Á
mbl.is má finna ýmsar greinar
Hrafnkels um skipulagsmál og þeir
sem vilja sjá teikningar geta skoð-
að greinar undir fyrirsögninni
skipulag á http://www2.hi.is/page/
vvhi_greinar/.
En hann sem við spilafélagarnir
söknum er ekki arkitektinn og
skipulagssérfræðingurinn Puri,
heldur félaginn og vinurinn. Alltaf
traustur, upplitsdjarfur og æðru-
laus, líka þegar drekinn var búinn
að ná yfirhöndinni og öllum var
ljóst í hvað stefndi. Við söknum
vinar í stað, og sendum eiginkonu
hans Kristínu, klettinum í lífi hans,
og fjölskyldu hans allri innilegustu
samúðarkveðjur.
Jónas Elíasson.
Það er erfitt að hugsa sér að
Hrafnkell Thorlacius sé ekki leng-
ur á meðal okkar þegar sólin skín í
Suðurgötunni eins og hún gerir í
dag. En ekkert varir að eilífu og
einhvern veginn heldur þetta allt
áfram.
Auk þess að gegna samtímis
ýmsum trúnaðarstöðum á vegum
Arkitektafélags Íslands kynntumst
við Hrafnkell vel þegar við fórum
með konum okkar fyrir einum 30
árum til Leníngrad og Moskvu til
þess að rannsaka skipulagsmál
sovétmanna og að hvaða leyti, ef
einhverju, þau væru frábrugðin því
sem þá tíðkaðist hér. Hannes Jóns-
son, sem þá var sendiherra í
Moskvu, hjálpaði okkur við að fá
fundi með ráðamönnum á báðum
stöðum og var það mikill skóli að
fá að ræða við þessa menn og
skiptast á skoðunum við þá. Mikið
held ég líka að þeir sem eru nú að
skipuleggja Ísland og setja hér lög
og reglugerðir um skipulagsmál
hefðu haft gott af að vera með okk-
ur Hrafnkatli í þessari ferð.
Hrafnkell var einn þeirra allt of
fáu arkitekta á Íslandi sem bæði
þora að hafa faglega skoðun og
líka tjá hana opinberlega auk þess
sem hann var alltaf málefnalegur í
sinni afstöðu þar sem arkitektúr
eða skipulagsmál bar á góma. Þeg-
ar flókin mál voru til umfjöllunar
kom hann líka yfirleitt alltaf með
ný sjónarhorn og ábendingar sem
leiddi til betri tillagna og ákvarð-
ana en ella.
Í Suðurgötunni skiptast á skin
og skúrir eins og í öllum öðrum
götum en það er óneitanlega tóm-
legra að eiga ekki von á að hitta
Hrafnkel þar á gangi. Við sem
höldum áfram röltinu um suður-
götur heimsins enn um sinn sökn-
um vandaðs manns sem hvergi
hvikaði frá sannfæringu sinni í
ræðu eða riti.
Gestur Ólafsson.
Arkitektar voru enn fámenn
stétt þegar Hrafnkell Thorlacius
kom heim að loknu námi í Þýska-
landi og vinnu í Danmörku. Arki-
tektafélag Íslands var enn lítið og
það munaði um alla sem komu
heim. Það munaði sér í lagi um þá
sem voru félagslega þenkjandi og
Hrafnkell var einmitt einn þeirra.
Hann var frá byrjun bæði virkur
og traustur félagsmaður sem taldi
mun betra að kollegarnir væru
sameinaðir heldur en sundraðir.
Þetta var á þeim tíma þegar
margir kolleganna töldu sér skylt
að vera hver á móti öðrum.
Hrafnkell var formaður Arki-
tektafélagsins á árunum 1975-76.
Þau ár sat ég með honum í stjórn
sem ritari og var í hlutverki ritara.
Það var eins gott að vanda sig í því
starfi, hafa mál og texta í lagi, því
að Hrafnkell var góður penni og
gerði kröfur til annarra um slíkt
hið sama. Þá hefði heldur ekki sak-
að að hafa betri latínukunnáttu því
hann var óspar á að nota gömlu
klassísku málin til að krydda text-
ann. Hrafnkell var sérlega góður
formaður, sem bar hag og orðstír
stéttarinnar alltaf og alls staðar
fyrir brjósti. Og ekki sakaði að
hann gat verið afskaplega
skemmtilegur. Hin ýmsustu atvik
gátu orðið að skondnum sögum í
meðförum hans því að bæði var
málfarið skemmtilegt og stíllinn
var alltaf fyrir hendi á hverju sem
gekk.
Hrafnkell var einn þeirra manna
sem lítið breytast. Húmorinn var
alltaf á sínum stað, honum var
hægt að ganga að vísum hvenær
sem var. Á sama hátt var alltaf
hægt að ganga að honum vísum til
að sinna þeim störfum sem til hans
var leitað með hann var beðinn um
í þágu Arkitektafélagsins og þeim
öllum sinnti hann vel.
Að lokum vil ég votta Kristínu
og öðrum aðstandendum innilega
samúð við missi góðs drengs. Fyrir
hönd Arkitektafélags Íslands vil ég
þakka Hrafnkatli kollega mikið og
óeigingjarnt starf í þágu félagsins,
allt til hins síðasta.
Albína Thordarson,
formaður Arkitekta-
félags Íslands.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2007 31
Atvinnuauglýsingar
ⓦ Blaðbera
vantar í
Hveragerði
í afleysingar og
einnig í fasta
stöðu
Upplýsingar í síma
893 4694
eftir kl. 14.00
ⓦ Vantar fólk til
sumarafleysinga
Upplýsingar gefur
Ólöf Hafdís
899 5630
Vantar sjómenn
Vantar háseta sem lausamenn á Arnarberg
ÁR-150 sem gerir út á línu með beitningarvél
frá Þorlákshöfn.
Einnig vantar vélavörð frá 7. júlí. Skipið verður
gert út fram að mánaðamótum júlí/ágúst.
Upplýsingar um borð í síma 852 0141 eða í
898 3285.
Rørleggere søkes!
Roald Larsen AS er en Oslo
basert total entreprenør, stiftet i 1937
Vi søker faglærte rørleggere for allsidig service
arbeid i Oslo området, og døgnvakt i turnus. Vi
tilbyr startlønn 170.- NOK pr time og 10.000.-
NOK i ansettelsesbonus, fri bil og arbeidstele-
fon.
Ansettelsene er i egen rørleggeravdeling, med
Islandsk formann. Vi kan være behjelpelig
med å finne bolig. Evt spørsmål rettes
Gudfinnur Olafsson: +47 4745 4923.
Søknad merkes: RØRLEGGER
Sendt pr mail: post@roaldlarsen.no
Pr fax: +47 6384 1193
Pr post: Roald Larsen AS
PB 9, 1483 Skytta, Norge.
Kranamaður óskast
Óskum eftir að ráða kranamann með réttindi.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í síma 861 1401.
Á.B. Lyfting ehf.
Raðauglýsingar 569 1100
Til sölu
Til sölu er
lítið framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem
hentar jafnt körlum sem konum. Fyrirtækið er
ekki gamalt en á mikla möguleika.
Verð kr. 4.500.000.
Áhugasamir sendið póst á box@mbl.is
merkt ,,Sala - 20220“.
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um breytingar á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar til kynningar tilögur að breytingum á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 - 2024.
Spöngin við Móaveg
Tillagan felur í sér að skilgreindur er nýr þéttingar-
reitur fyrir íbúðarbyggð í vesturhluta Spangarinnar
við Móaveg, þar sem gert er ráð fyrir allt að 100
nýjum íbúðum, þar af um 50 íbúðum fyrir eldri
borgara. Tillagan gerir einnig ráð fyrir að landnotk-
un í vesturhluta Spangarinnar, milli Móavegar og
Borgavegar, breytist úr miðsvæði í íbúðarsvæði.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 2. júlí 2007
til og með 13. ágúst 2007. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs
eigi síðar en 13. ágúst 2007.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir inn-
sendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 2. júlí 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli háð mati á um-
hverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br.
Stækkun alifuglabús á Melavöllum,
Kjalarnesi, Reykjavík
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstof-
nun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er ein-
nig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar:
www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 7. ágúst
2007.
Skipulagsstofnun.
Auglýsing
vegna úthlutunar byggðakvóta á fisk-
veiðiárinu 2006/2007
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um úthlutun
byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin
byggðalög
Grýtubakkahreppur Akureyrarbær
Sveitarfélagið Árborg Fjallabyggð
Um úthlutunarreglur í ofangreindum byggða-
lögum vísast til reglugerðar nr. 439, 15. maí
2007, með síðari breytingum, auk sérstakra
úthlutunarreglna í hlutaðeigandi byggða-
lögum sbr. auglýsingu nr. 579/2007 í
Stjórnartíðindum. Þessar reglur er einnig að
finna á heimasíðu Fiskistofu, www.fiskistofa.is
Umsóknum skilað til Fiskistofu á eyðublaði
sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí 2007.
Fiskistofa, 29. júní 2007.