Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR.
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
eee
S.V. MBL.
BLIND DATING kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
SHREK 3 VIP m/ensku tali kl. 8 - 10:10
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
ZODIAC kl. 9 B.i.16.ára
OCEAN'S 13 kl. 6 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
OCEAN'S 13 VIP kl. 5:30
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5:30 - 9 B.i.10.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4:15 - 6:15 LEYFÐ DIGITAL
CODE NAME: THE CLEANER kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5 B.i. 10 ára DIGITAL
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
Eftir Ómar Örn Hauksson
mori@itn.is
ÞAÐ kemur sjaldan fyrir að tölvu-
leikir séu byggðir á bókum eða rit-
höfundar komi nálægt gerð leikja.
Undantekningar eru þó frá regl-
unni eins og í tilfelli rithöfundarins
Toms Clancys, sem hefur verið við-
riðinn Rainbow Six-seríuna, og
hrollvekjuhöfundarins Clives Bar-
kers, sem kom fram með Undying
fyrir nokkrum árum en þrátt fyrir
góða dóma seldist leikurinn ekki
vel og hvarf að lokum. Barker
reyndi svo aftur að brjótast inn í
tölvuleikjaiðnaðinn með leiknum
Demonik en hætt var við hann áð-
ur en framleiðslu lauk. Barker læt-
ur samt ekki bugast og í lok þessa
árs kemur út leikurinn Jericho
sem hann á hugmyndina að. Leik-
urinn er fyrstu persónu skotleikur
þar sem spilarinn er hluti af sér-
sveit hermanna sem tækla yf-
irnáttúrulega hluti. Verkefni þitt
er að kljást við fyrsta sköp-
unarverk Guðs áður en hann skap-
aði Adam og Evu. Þessi fyrsta til-
raun himnaföðurins var algjört
klúður og sendi hann því sköpun
sína í annan heim sem kallaður er
Boxið. En sköpunarverkinu líkar
vistin illa í Boxinu og reynir hvað
það getur að koma sér aftur til
jarðarinnar þar sem það telur sig
eiga heima. Þegar það gerist er
kallað í sérsveitina Jericho og
hennar hlutverk er að koma skepn-
unni aftur í Boxið. Leikurinn not-
færir sér liðsstjórnunarhæfileika
spilara til að komast frá þessu æv-
intýri lifandi en hver liðsmaður
hefur sína sérstöku yfirnáttúrlegu
hæfileika sem nýtast gegn óvin-
inum. Leikurinn mun koma út á
Playstation 3, Xbox 360 og PC í lok
árs. Rithöfundurinn Robert E.
Howard er líklega ekki mörgum
kunnur, en hans er helst minnst
fyrir sögur sínar um barbarann
Conan sem Arnold Schwarzeneg-
ger túlkaði svo eftirminnilega á
hvíta tjaldinu. Nokkrir tölvuleikir
hafa nú verið gerðir um Conan en
ekki náð hylli af einhverjum sök-
um. Nýr leikur hefur nú verið
framleiddur og vonast er til að
hann slái í gegn, ekki síst þar sem
leikurinn líkist um margt God of
War-bálknum, sem eru svo sann-
arlega meðmæli. Þrátt fyrir að
leikurinn fylgi upprunalegum sög-
um Howards að meira leyti en
kvikmyndunum verða í leiknum
persónur sem aðdáendur mynd-
anna ættu að þekkja. Það er fyr-
irtækið Nihilistic sem framleiðir
leikinn og mun hann koma út fyrir
Playstation 3, Xbox 360 og PC
snemma á næsta ári.
Er pinninn máttugri
en penninn?
Barbarinn Útlit leiksins um Conan minnir um margt á tölvuleikinn God of War.
TÖLVULEIKIR»
TÖLVULEIKIR
Playstation 2
Tomb Raider: Anniversary ***
Eidos
EF MARIO er þekktasta tölvuleikjapersóna
sem gerð hefur verið þá kemur Lara Croft
fast á hæla honum. Þessi kvenkyns útgáfa af
Indiana Jones kom fram á sjónarsviðið fyrir
10 árum og varð eflaust til þess að margur
tölvuleikja-nördinn uppgötvaði hitt kynið. En
persónan lifði ekki bara á útlitinu einu sam-
an heldur voru fyrstu leikirnir helvíti
skemmtilegir og ollu byltingu í tölvu-
leikjahönnun. Síðan fór að syrta í álinn og
leikirnir urðu vanmáttugar tilraunir til að
græða á persónunni. Þá tók við gott hlé en
svo sneri Lara aftur fyrir ári með Legend og
svo núna með afmælisútgáfu og nokkurs
konar endurgerð á fyrsta leiknum.
Í stuttu máli er Lara á höttunum eftir
fornum dýrgrip sem sagður er vera frá tíma
hinnar fornu borgar Atlantis. Hún fær starf-
ið í gegnum viðskiptajöfurinn Jacqueline
Natlas sem hefur ýmislegt grútskítugt í
pokahorninu. Lara ferðast um allan heim í
leit að dýrgripnum og berst við skúrka, kvik-
indi og risaeðlur. Á milli þess stekkur hún á
milli klettasyllna, trjágreina og húsþaka eins
og köttur og leysir níðþungar gátur. Bara að
fornleifafræði á Íslandi væri eins spennandi.
Leikurinn er spennandi, flókinn og stundum
óþarflega erfiður sem gerir mann mjög pirr-
aðan, sérstaklega þegar maður er að berjast
við erfiða andstæðinga. Skemmtilegast er
samt að príla um allt og reyna að finna
leynda hluti sem opna aðra möguleika utan
við leikinn.
Grafíkin er einföld og góð og hljóðmyndin
er faglega gerð og gefur leiknum æv-
intýralega stemningu.
Ánægjuleg
endurkoma
Lara Croft Fornleifafræðingurinn Lara Croft
er frægasta tölvuleikjapersóna sögunnar á
eftir Super Mario.
Ómar Örn Hauksson
TÖLVULEIKIR
Nintendo Wii
Mario Party 8 Nintendo
ENN sem komið er hefur hinn klassíski Mario
Bros-leikur ekki verið hannaður fyrir Wii-
vélina.
Þó mun hann vera væntanlegur en kemur
sennilega ekki út fyrr en seint á þessu ári.
Þetta þýðir að við sem erum eldri en 10 ára
verðum við að sætta okkur við Mario Party 8,
safn lítilla leikja fyrir yngri kynslóðina. Leik-
urinn er settur upp eins og skemmtigarður þar
sem maður kíkir inn í tjöld þar sem leikir leyn-
ast og keppir við aðrar persónur úr Mario-
heiminum. Leikurinn er aðallega hugsaður sem
tveggja spilara leikur og dregur það verulega úr
ánægju þess sem á enga vini! Þarf sá hinn sami
að bíða á meðan leikmenn sem stjórnað er af
tölvunni gera sitt og getur það tekið afskaplega
langan tíma og tekur eins og gefur að skilja á
þolinmæðina. Með því að vinna leiki fær maður
verðlaun sem maður getur notað til þess að
opna fyrir fleiri leiki. Leikurinn er mjög litríkur
og allar persónur hannaðar með yngri spilara í
huga sem þýðir að pirrandi aulagangurinn og
hávaðinn er nægur til að æra óstöðugan.
Sem sagt ekki beint leikur sem höfðar til full-
orðinna en gæti þó breyst í ágætis skemmtun ef
foreldri og barn spila saman.
Ómar Örn Hauksson
Partí fyrir börnin
Partí, partí, partí Mario er eiturhress í nýj-
um leik sem ætti að höfða til yngri spilara.