Morgunblaðið - 09.07.2007, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Við skulum hrópa ferfalt húrra fyrir þeim vilja, þreki og æðruleysi sem forstjóri Hafró sýn-
ir, þrátt fyrir 22 árangurslausar meðferðir.
VEÐUR
Ætli stjórnarandstaðan hafi verið ísumarfríi?
Það heyrist lítið frá henni um eittstærsta hagsmunamál íslenzku
þjóðarinnar, stöðu þorskstofnsins.
Það sem hefur heyrzt eru gamal-kunnar hugmyndir um millileið.
Þetta heitir að missa af strætis-vagn-
inum.
Hin nýjaríkis-
stjórn hefur
óumdeilan-
lega tekið
slíkt frumkvæði í uppbyggingu
þorskstofnsins að það er eins og
stjórnarandstaðan sé ekki til. Þó
samanstendur hún af þremur stjórn-
málaflokkum.
Hvar hefur Guðjón Arnar verið?
Hvar hefur Steingrímur J. Sigfús-son verið?
Hvar hefur Guðni Ágústsson ver-ið?
Hvernig stendur á því að hinnarmur Vinstri grænna, um-
hverfissinnarnir, ganga ekki fram
fyrir skjöldu og heita ríkisstjórninni
öflugum stuðningi við það vernd-
unarstarf, sem nú er að hefjast.
Hafa Vinstri grænir ekki áhuga á
umhverfisvernd í hafinu?
Áhugaleysi stjórnarandstöðunnarum þetta mikla hagsmunamál
þjóðarinnar er æpandi. Því verður
eiginlega ekki trúað að þeir séu
svona áhugalausir.
Það er lífsmark með þeim í Morg-unblaðinu í dag.
STAKSTEINAR
Í sumarfríi?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
*$;<
! " #$## ## ## %
# ## ##
& "' () (
#
! )* #
#
" ' ! " #$##
*!
$$; *!
! "#
!#
$
%#
&%
=2
=! =2
=! =2
$#" '
(
)*+%,
>2?
=7
# "' ' ##
# "
##
&
+## "
8
&
$!
#
#, $###
-!
.
# ## ##
62
& #
$!
#
" "'#
# ## & (* ( -. %//
%#0
%
+%'
(
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C 1
2 2 1
12
1
1
12
1
1
1
1
12
1
1
1
1
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Gunnlaugur Erlendsson | 5. júlí 2007
Af sjónum
En af okkur er það að
frétta að við gátum
launað Hákons peyj-
unum greiðann með því
að lána þeim varahlut
og hittumst við hér á
bleyðunni í svarta þoku
og slökuðum til þeirra einhverjum
tannhjólum, svo erum við um hálfn-
aðir með miðlestina og allt gengur
„gegt“ vel, erum að hífa núna og
ágætis kropp er hér á bleyðunni,
verðum vonandi í landi á sunnudag
eða mánudag og þá er ég kominn í frí.
Meira: gunniep.blog.is
Jenný Anna Baldursdóttir | 8. júlí 2007
Verður að
komast á ræmu
Ég er samþykk því að
hin frægu kynni Hughs
Grants af gleðikonunni
í Hollywood verði meg-
inuppistaðan í fyrir-
hugaðri kvikmynd. Það
hlýtur að vera hægt að gera eina
níutíu mínútna mynd um þetta atvik.
Ég á frænda sem hefur einu sinni
reykt hass og svo þekki ég til manns
sem hefur farið á súlustað. Um að
gera að hafa samband við þá líka.
Meira: jenfo.blog.is
Þorleifur Ágústsson | 7. júlí 2007
Þjónustudepurð
Það er ekki auðvelt að
vera utanbæjarmaður í
Reykjavík. Ekki það að
ég eigi hér við umferð-
arómenninguna sem
auðvitað batnar ekkert
þó að bærinn fyllist af
mislægum gatnamótum – ég er held-
ur ekkert að tala um stórkostlegar
verslanir sem virðast eiga það eitt
sameiginlegt að vera með útsölur
sem sífellt fjölgar og teygist úr –
skyldi það tengjast óeðlilegri álagn-
ingu?
Meira: tolliagustar.blog.is
Laufey B. Waage | 8. júlí 2007
Sumarbúðir og afmæli
Erðanú! Mín rétt ný-
byrjuð að blogga, þeg-
ar hún fer úr bænum,
og það norður á hjara
veraldar, þar sem
hvorki er farsíma-
samband né netteng-
ing. Og ég þorði ekki að láta les-
endur vita af því fyrirfram, – það var
búið að hræða mig svo mikið með því
að óprúttnir steliþjófar leituðu í
bloggheimum að fólki sem tilkynnti
fjarveru sína – ryddust heim til
þeirra og létu greipar sópa.
Annars finnst mér ekki alveg
passa að kalla þennan stað hjara
veraldar. Ég sem hef löngum og
góðum stundum dvalið í Fljótavík í
Sléttuhreppi (í sama hreppi og
Hornbjarg og Aðalvík). Þar er
hvorki rafmagn né rennandi vatn og
þangað ferðast fólk yfirleitt á bátum
(lendingaraðstaða erfið – engin
bryggja), nema það tengist minni
fyrstu tengdafjölskyldu og fari fljúg-
andi.
En aftur til nútíðar. Sá yndislegi
staður sem ég dvaldi á síðustu vik-
una heitir Hólavatn. Þar eru sumar-
búðir KFUM – og hann er nú ekki
meiri „hjari“ en svo, að maður er
rúman hálftíma frá Akureyri – á
fólksbíl. Þarna vorum við hjónin
semsagt að vinna síðustu viku.
Stjúpsynir mínir og ömmustrák-
urinn voru með okkur. Vinnan var
skemmtileg og dvölin unaðsleg.
Þetta er alveg einstaklega ljúfur og
notalegur staður.
Veðrið var allan tímann eins og
best verður á kosið. Og þá er ég ekki
bara að tala um sólskinið og blíðuna,
heldur líka þessa unaðslegu hlýju
þéttu logn-rigningu, sem kom síð-
degis á fimmtudag og fram á kvöld.
Þá fyrst fór ég í göngutúr – í uppá-
haldsveðrinu mínu. Fyrsta vinnu-
daginn átti ég afmæli. Það kom mér
virkilega notalega á óvart, að þrátt
fyrir nútíma sambandsleysi fékk ég
helling af afmælisóskum. Heilar sjö
upphringingar frá ættingjum og vin-
um, sem höfðu grafið upp símanúm-
erið í sumarbúðunum og hringdu í –
þið vitið – svona stóran svartan síma
– með númeri sem byrjar á 4. Flestir
sungu afmælissönginn fyrir mig.
Svona er ég nú rík. Ég get ekki
ímyndað mér meira ríkidæmi en að
eiga skemmtilega, heilbrigða og
hugulsama ættingja og vini.
Meira: laufeywaage.blog.is
BLOG.IS
ÍSLAND sigraði Danmörku 1:0 í
fyrsta opinbera öldungalands-
leiknum í knattspyrnu sem leikinn
hefur verið hér á landi. Leikurinn
fór fram á Akureyrarvelli fyrir
framan liðlega fjögur þúsund
áhorfendur og var hluti af við-
burðum í kringum Pollamót Þórs.
Margar gamlar landsliðskempur
mættu til þess að verja heiður Ís-
lands og má þar nefna Arnór Guð-
johnsen, Atla Eðvaldsson fyrirliða,
Guðna Bergsson, Sigurð Grétars-
son og Eyjólf Sverrisson. Sigur-
markið skoraði hins vegar einn af
heimamönnunum, Siguróli Krist-
jánsson, fyrrverandi leikmaður
Þórs til margra ára.
Markið kom undir lok leiksins og
var þá heldur farið að draga af leik-
mönnum, enda misjafnlega vel á sig
komnir. Innáskiptingar voru frjáls-
ar í leiknum og varamannaskýli lið-
anna munu hafa minnt á brautar-
stöðvar á annatíma, samkvæmt
lýsingum á heimasíðu Þórs.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Íslenskur sigur í fyrsta
öldungalandsleiknum