Morgunblaðið - 09.07.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.07.2007, Blaðsíða 16
Ég vann samkeppni umhönnun ljósa á vegumítölsku fyrirtækjannaPrisma Illuminazione, Performance Lightning og hönn- unartímaritsins Ottagono,“ segir María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir hógvær hinum megin á línunni, sitjandi í strætisvagni í Lundúnum. Þar í borg hóf hún nýlega störf fyrir fyrirtæki arkitektsins Norm- ans Fosters, sem hlotið hefur fjöl- margar alþjóðlegar viðurkenningar og er nánast goðsögn í arkitekta- bransanum. Hjá Foster&Partners starfa engir aukvisar enda hefur fyrirtækið hannað margar af eft- irtektarverðustu og oft umdeild- ustu byggingum í London á seinni tíma eins og Wembley-leikvanginn, St. Mary og Millennium Bridge en einnig í öðrum löndum. „Jú, það þarf góð sambönd til þess að fá vinnu hjá Norman Foster,“ segir iðnhönnuðurinn aðspurður og hlær. „Og reynslu,“ bætir hann við og hún er bæði fjölbreytt og drjúg. „Ég fór í grunnnám í iðnhönnun til Madrid á Spáni og í mastersnám til Mílanó á Ítalíu. Eins og flestir sem hafa starfað á Íslandi hef ég lagt margt fyrir mig í hönnun, allt frá ljósum og húsgögnum og inn- anhússarkitektúr til skipulags íbúðarbyggða. Ég hef einmitt gam- an af þessari fjölbreytni og á erfitt með að lýsa mínum stíl, hann fer oft eftir viðfangsefninu. Ég hef þó alltaf haft mikinn áhuga á sjálf- bærri þróun og að nota endurnýt- anleg efni en það er mikil umhverf- isvakning í arkitektúr og hönnun almennt, sem er ánægjulegt. Norman Foster vinnur t.d. mikið út frá hugmyndum um sjálfbæra þróun.“ Brilliant Bjartur sigraði En snúum okkur að ljósunum þínum, sem skinu skærast í sam- keppninni. Hvers konar ljós eru þetta og hvað hafðirðu í huga við hönnun þeirra? „Lampann er hægt að nota bæði inni og úti en hugmyndin er að ljósið fylgi dagsbirtunni. Litir þess og styrkleiki breytast því eftir birt- umagni dagsljóssins og á milli árs- tíða. Lampinn hefur einnig þann eiginleika að hægt er að kveikja og slökkva á litum ljóssins og lýsa hann aðeins hvítu ljósi eða þeim lit sem óskað er eftir. Þá er slökkt á dagsbirtuskynjara og valinn litur á ljósið,“ segir hönnuðurinn María Sjöfn. Útlitið er að sjálfsögðu held- ur engin tilviljun. „Lampaskerm- urinn er úr hvítlituðu akrílplasti sem dreifir birtunni jafnt um allt formið.“ Form lampans Form lampans vísar til lögunar hinnar sígildu stofuklukku sem einnig skírskotar til hinnar líð- andi stundar og dagsbirt- unnar. – Hvers vegna hafðirðu íslenskt heiti í nafni ljóssins? Er nafnið Brilliant Bjartur vísun í Halldór Laxness? „Vá, góð spurning. Ég hafði nú ekki hugsað út í það en það gæti vel ver- ið.“ – Hefur Ís- land, íslenska veðurfarið haft áhrif á hönnun ljósa þinna? „Já, ég ég held að birtan heima láti engan ósnortinn, ég sakna hennar.“ – Hvaða þýðingu hefur það að vinna keppni sem þessa og komast á forsíðu blaðs eins og Ottagono? „Ég býst við að tíminn leiði það bara í ljós,“ segir María Sjöfn, enn hógværðin uppmáluð. Úthugsuð Ljósin uppfylla kröfur um þægindi, öryggi, margbreytileika auk þess sem tæknin er notuð á skapandi hátt. Ítalir verðlauna íslenskt, bjart ljós Það telst til tíðinda þegar íslenskur iðnhönnuður vinnur ítalska ljósasamkeppni. Unnur H. Jóhannsdóttir sló á þráðinn til Maríu Sjafnar Dupuis Davíðsdóttur og hleraði hvernig komst á forsíðu ítalska hönnunartímaritsins Ottagono. www.mariasjofn.com www.otta- gono.com Verðlaunuð María Sjöfn með verðlaunaskjalið en hún starf- ar nú hjá arkitektnum Norman Foster í London.  Forsíða Mynd af verðlaunaljósum Maríu Sjafnar eru nú á forsíðu ítalska hönnunartíma- ritsins Ottagono.  Umfjöllun Mynd- ir af ljósunum birt- ust í blaðinu ásamt opnuumfjöllun um keppnina. |mánudagur|9. 7. 2007| mbl.is daglegtlíf Fólk ætti að skipuleggja inn- kaup og gera áætlanir um mat- seld viku fram í tímann til að spara peninga. » 18 fjármál Þegar fólk er í sumarbústöðum er oft hægt að fara út og klippa krydd á borð við blóðberg, eini, skarfakál eða birki. » 19 matur Starrinn Óliver býr í gælu- dýraverslun í Kópavoginum og er bæði þrælskemmtilegur og afar hreinlegur. » 17 gæludýr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.