Morgunblaðið - 09.07.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2007 29
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30.
Hjúkrunarfræðingur með viðtalstíma frá kl. 9-11.
Boccia kl. 10. Félagsvist kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Félagsvist kl. 13.30. Pútt-
völlurinn kl. 10-16.
Dalbraut 18-20 | Brids alla mánudaga í sumar frá
kl. 13 í félagsmiðstöðinni á Dalbraut 18-20.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofa FEBK
Gullsmára 9 og Gjábakka verður lokuð vegna sum-
arleyfa 1.-31. júlí. Hægt er að hafa samband, ef þörf
krefur, við Kristjönu í 897-4566, Guðmund í 848-
5426 og Kristmund í 895-0200. Félagsvist er spil-
uð í Gullsmára á mánud. kl. 20.30, en í Gjábakka á
miðvikud. kl. 13 og á föstud. kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin
og heitt á könnunni og heimabakað meðlæti til kl.
16. Hádegisverður kl. 11.40. Lomber kl. 13.15. Félags-
heimilið Gjábakka er opið alla virka daga frá kl. 9.
Upplagt að líta inn, kíkja í blöðin, taka í spil eða
spjalla.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 postulíns-
málun og ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 20.30
félagsvist FEBK. Blöðin, kaffi og heimabakað.
Furugerði 1, félagsstarf | Norðurbr. 1, Furug. 1,
Hæðarg. 31 og Dalbr. 14-20. 12. júlí verður farið Ux-
ahryggi að Fossatúni. Kaffiveitingar. Lagt af stað
frá Norðurbrún 1, kl. 12.30 og síðan teknir aðrir far-
þegar. Skrán. í Norðurbr. í s. 568-6960, á Dalbr. í s.
588-9533, á Hæðarg. í s. 568-3132 og í Furug. í s.
553-6040.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og dagblöðin, kl.
10 bænastund, kl. 12 matur, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Hádegisverður kl. 11.30. Frjáls
spilamennska kl. 13-16. Fótaaðgerðir 588-2320.
Blöðin liggja frammi.
Hæðargarður 31 | Opið 9-16 alla daga. Síðdegis-
ferð á Þingvelli 12. júlí. Félagsvist alla mánudaga kl.
13.30. Gönguferðir alla morgna kl. 9 nema laugard.
kl. 10. Listasmiðjan alltaf opin. Kíktu við í morgun-
kaffi og kynntu þér dagskrána enn frekar. S. 568-
3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia, Sigurrós
(júní). Kl. 11-12 leikfimi, Janick (júní-ágúst). Kl. 11.45-
12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handavinnustofan opin í
dag, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar,
frjáls spilamennska frá kl. 13-16.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858-7282.
Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir.
Áskirkja | Velkomin í göngu frá Áskirkju kl. 10.30.
Næstsíðasta gangan á þessu sumri. Andakt og
hressing.
Hlutavelta | Nokkrir hressir
krakkar, þau Ásgerður, Ari,
Halldór, Þórarinn og Kol-
beinn, komu í sólskinsskapi í
heimsókn í Rauða krossinn,
Efstaleiti 9 og afhentu 1.057
krónur sem þau höfðu safnað
til styrktar bágstöddum börn-
um í Afríku.
Rauði kross Íslands þakkar
þeim kærlega fyrir.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
dagbók
Í dag er mánudagur 9. júlí, 190. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I.Kor. 8, 2.)
Boðið verður upp á námsbraut írússnesku við Háskóla Ís-lands næsta vetur. RebekkaÞráinsdóttir er aðjúnkt í
rússnesku við skor þýsku og Norður-
landamála: „Hætt var að bjóða upp á
nám í rússnesku við Háskólann fyrir
um hálfum áratug, en vegna styrks
Samsonarsamsteypunnar er nú hægt
að bjóða upp á námið að nýju,“ segir
Rebekka, en styrktarsamningur Sam-
sonar og Háskólans er til þriggja ára og
var unninn með aðstoð rússneska sendi-
ráðsins í Reykjavík: „Samningurinn fel-
ur í sér samstarf við Moskvuháskóla,
sem sendir hingað til lands dr. Olgu
Korotkovu sem starfa mun sem sendi-
kennari við námsbrautina. Jafnframt
hefur verið komið á skiptinámssamn-
ingi við Moskvuháskóla, sem gerir nem-
endum kleift að stunda hluta námsins
erlendis ef þeir óska þess.“
Við Háskóla Íslands verður hægt að
stunda nám í rússnesku sem aðalgrein
til 60 eininga, eða sem aukagrein til 30
eininga: „Þeir sem vilja ljúka fullri
gráðu, til 90 eininga, í rússnesku ein-
göngu hafa kost á að stunda þriðja
námsárið í Rússlandi,“ útskýrir
Rebekka.
Í náminu verður lögð jöfn áhersla á
málfræði og hagnýta málnotkun:
„Einnig verða menningu, sögu og bók-
menntum Rússlands gerð góð skil, og
nemendur hafa meira svigrúm í vali á
námskeiðum en áður hefur verið,“ segir
Rebekka. „Rússneskan er margslungin
en e.t.v. ekki jafn framandi tungumál og
ætla mætti í fyrstu. Gerðar verða ríkar
kröfur til nemenda, en að sama skapi
má lofa því að námið verður gefandi og
opnar ótalmargar dyr.“
Um það bil hundrað og fimmtíu millj-
ónir manna hafa rússnesku að móður-
máli: „Margir gera sér ekki grein fyrir
hversu útbreitt tungumál rússneskan
er, og hversu miklir möguleikar standa
þeim til boða sem hafa rússnesku á sínu
valdi. Þannig er rússneskan ekki aðeins
lykill að Rússlandi og fyrrverandi
sovétlýðveldum, heldur getur hún einn-
ig greitt fyrir samskiptum á skyldum
málum sem töluð eru víða um Austur-
Evrópu,“ segir Rebekka.
Finna má nánari upplýsingar um
rússneskunámið á heimasíðu hugvís-
indadeildar, www.hug.hi.is.
Menntun | Kennsla í rússnesku hefst að nýju við Háskóla Íslands í haust
Rússneskan opnar dyr
Rebekka Þráins-
dóttir fæddist á
Akureyri 1968.
Hún stundaði nám
við MA og MH,
lauk þroskaþjálfa-
námi frá Þroska-
þjálfaskóla Íslands
1993, BA-prófi í
rússnesku frá Há-
skóla Íslands 2001 og meistaragráðu í
rússnesku og rússneskum bókmennt-
um frá Ríkisháskólanum í Pétursborg
2003. Rebekka hefur starfað við
ferðaþjónustu og leiðsögn ásamt því
að sinna kennslustörfum. Hún er gift
Örlygi Benediktssyni tónlistarmanni.
Börn
Brúðubíllinn | Brúðubíllinn er nú
að hefja sína aðra umferð um
Reykjavík og sýnir leikritið
„Óþekktarormar“. 9. júlí er sýn-
ing í Fróðengi kl. 10 og í Frosta-
skjóli kl. 14. Dagskrána er að
finna á www.barnanet.is/
brudubillinn.
SPÆNSKI nautabaninn Salvador Vega ginnir hér nautgrip á nautaati í Estepona, nálægt
Malaga, á Suður-Spáni. Nautaat er gríðarlega umdeild íþrótt. Vinsældir þess á Spáni hafa
farið þverrandi undanfarin ár, hugsanlega vegna gagnrýnisradda dýraverndunarsinna.
Vinsældir nautaats fara dvínandi enda hættuleg og grimmileg íþrótt
Nautin höfð að háði og spotti
Reuters
FRÉTTIR
MIKIÐ var um dýrðir hjá
Boeing-verksmiðjunum í Eve-
rett í Bandaríkjunum gær þegar
hinn byltingarkenndi Draumfari
var frumsýndur að viðstöddum
meira en 15 þúsund gestum.
Hinn þekkti NBC-sjónvarps-
frétamaður Tom Brokaw var
kynnir hátíðarinnar, en tíu ár
eru liðin síðan Boeing kom síð-
ast fram með nýjungar í flug-
heiminum.
Prófanir á nýju vélinni munu
hefjast í næsta mánuði og munu
standa í um átta mánuði. Gert er
svo ráð fyrir að fyrsta vélin verði
afhent japanska flugfélaginu Air
Nippon vorið 2008. Nú þegar
hafa um 600 pantanir borist í
vélina.
Icelandair Group hefur nú
þegar gert samning um kaup á
fjórum Boeing 787 Dramliner-
breiðþotum og verða 2 þeirra af-
hentar vorið 2010 og aðrar tvær
vorið 2012. Vilyrði er svo fyrir
kaupum á 3 breiðþotum til við-
bótar af þessari gerð.
Tvöfalt stærri gluggar
Hönnun og framleiðsla
Boeing 787 Dreamliner-flugvél-
anna byggist á algjörlega nýrri
tækni og er vélin að mestu hönn-
uð úr plastefnum í stað áls. Hún
mun nota um 20% minna elds-
neyti en flugvélar dagsins í dag,
býður upp á 45% meira frakt-
rými, en munurinn á aðbúnaði
farþega mun eflaust vekja mesta
athygli. Innréttingar verða tölu-
vert frábrugðnar því sem nú
tíðkast, rakastig um borð verður
hærra og líkara því sem er á
jörðu niðri, sæti og gangar verða
breiðari, gluggar um tvöfalt
stærri en nú tíðkast og allur
tækni- og afþreyingarbúnaður
um borð verður fyrsta flokks, að
því er talsmenn Boeing stað-
hæfa.
Draumfari Boeing sýndur
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
ELDING, félag smábátaeigenda á Vestfjörðum, mótmælir óraun-
hæfum niðurskurði á þorskkvótanum í ályktun sem félagið hefur
sent frá sér. Þar segir að niðurskurðurinn drepi „útgerðir og
bæjarfélög og gerir ókleift að veiða aðrar tegundir og eyðileggur
fyrir Íslendingum á markaði erlendis. Reynsla sjómanna er sú að
þorskstofninn standi mjög vel um þessar mundir.
Þá mótmælir Elding því harðlega að auknu fé verði kastað á
glæ til aukinna rannsókna Hafrannsóknastofnunar, sem sýnilega
hafa engum árangri skilað. Hafró hefur leikið þann leik undan-
farin ár að stunda sömu formúlutrúarbrögð og reynd hafa verið
til þrautar með hörmulegum árangri í Kanada og haft alla gagn-
rýni að engu.
Elding leggur til að stórauknu fé verði varið í hafrannsóknir af
óháðum aðilum.
Tilvalið væri að miðstöð þeirrar rannsóknarstarfsemi á fisk-
stofnunum yrði á Ísafirði.
Við skorum á stjórnvöld að endurskoða þessa ákvörðun sína um
niðurskurð þorskkvótans“, segir í ályktuninni.
Mótmæla niðurskurði á kvóta
SPRON hefur tilkynnt vaxta-
hækkun íbúðalána í íslenskum
krónum um 0,2% eða úr 5,0% í
5,2%. Segir í tilkynningu að
vaxtahækkunin taki aðeins til
nýrra lána og gildi því ekki fyr-
ir þau lán sem þegar hafa verið
veitt. Vaxtahækkunin tekur
gildi frá og með mánudeginum
9. júlí.
Einnig segir í tilkynningu að
lántakendur hafi val þegar
kemur að samsetningu íbúða-
lána SPRON í íslenskri og er-
lendri mynt. Þau séu án
þvingandi skilyrða um banka-
viðskipti til allt að 40 ára.
SPRON bjóði einnig viðbótar-
lán í íslenskum krónum á lán
frá Íbúðalánasjóði og þau sé nú
einnig hægt að fá í erlendri
mynt. Skilvísir lántakendur fái
síðan árlega endurgreiðslu af
hluta greiddra vaxta af lán-
unum.
SPRON hækkar vexti
Morgunblaðið/Golli