Morgunblaðið - 09.07.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2007 33
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
LIVE Earth-tónleikarnir fóru fram hinn 07.07. ’07 en þá stigu fleiri en 150 af
vinsælustu hljómsveitum og listamönnum heims á svið um víða veröld.
Markmið viðburðarins var að vekja fólk til umhugsunar um gróðurhúsa-
áhrifin og hlýnun jarðar, auk þess að hvetja til „grænna“ lífs, orkusparnaðar,
endurvinnslu og tillitssemi við náttúruna; með öðrum orðum – „að lækna
plánetuna“.
Fjölmargar gagnrýnisraddir hafa þó risið í kjölfar þessara markmiðsyf-
irlýsinga, enda þykir ekki sérlega vistvænt að stórstjörnur fljúgi heims-
horna á milli í einkaþotum og haldi tónleika þar sem áhorfendur skilja eftir
þúsundir ruslumbúða og gosflaskna að skemmtun lokinni. Duran Duran hóf
til að mynda sinn leik á viðeigandi lagi, „Planet Earth“, og söngvarinn
rumdi: „Allir þeir sem ekki mættu í einkaþotu rétti upp hönd!“ og seildist
svo sjálfur eftir himninum.
Einnig þykir ýmsum ákveðinn tvískinnungur í því fólginn þegar ríkasta
fólk jarðar segir: „Hey, við þurfum bara aðeins að minnka við okkur í neyslu,
það er nú lítið mál.“ En auðvitað er það þó ásetningur aðstandenda hljóm-
leikanna sem hér skiptir máli, og fyrir þeim vakir gott eitt.
„Hoppið ef þið viljið bjarga jörðinni!“
Ótal stjórstjörnur komu fram, ýmist sem kynnar eða skemmtikraftar. Ber
þar kannski helst að nefna að gullgrúppan The Police, sem átti sitt blóma-
skeið á fyrri hluta níunda áratugarins, kom saman á nýjaleik og lokaði
hljómleikunum í New Jersey. Einnig vakti endurkoma Genesis athygli, en
sú sveit, með Phil Collins í fararbroddi, var meðal hinna fyrstu til að leika á
Wembley-leikvanginum. Madonna endaði svo hljómleikana í Lundúnum.
Æpti hún að áhorfendum: „Hoppið ef þið viljið bjarga jörðinni!“
Aðrir tónlistarmenn gáfu heldur betri ráð, til að mynda sagði japanska
söngkonan Ayaka: „Við getum hjálpað með því að gera eitthvert smáræði.
Ég hóf að bera á mér minn eigin eco-plastpoka svo ég þurfi ekki að nota inn-
kaupapoka úr plasti. Þá brúka ég mína eigin prjóna í stað einnota.“
„Orka í hjörtum okkar“
Áætlað er að ríflega tveir milljarðar manna hafi fylgst með útsendingum
frá viðburðinum eða verið á einhverjum hljómleikastaðanna. Live Earth er
því einn stærsti viðburður í sögu mannkyns. Tónleikar fóru fram í öllum
heimsálfunum sjö, og í samtals ellefu borgum, en leikið var í Jóhann-
esarborg, New Jersey, Washington, Rio de Janeiro, Chiba, Kyoto,
Shanghai, Sydney, Lundúnum, Hamborg og Rothera-rannsóknarstöðinni á
Suðurskautslandinu.
Undir lok hljómleikanna ávarpaði Al Gore, fyrrverandi varaforseti Banda-
ríkjanna og einn helsti skipuleggjandi Live Earth, áhorfendur og sagði:
„Kærar þakkir fyrir að koma á Live Earth. Setjið nú alla þessa orku í
hjörtu ykkar og hjálpið okkur að leysa loftslagsvandann.“
Reuters
Tilkomumikið Horft yfir leikvanginn í East Rutherford, New Jersey.
Reuters
Shanghai Mystísk stemning sveif yfir vötnum er á leið kvöld í Kína.
Sting Hápunkturinn í huga margra var örugglega lokaatriði
tónleikanna í New Jersey, endurkoma The Police.
Ljúfur heimur Dave Matthews Band hóf leik sinn á hinu lag-
inu „One Sweet World“.
Melissa Etheridge Söngkonan hélt innblásna og tilfinninga-
þrungna ræðu meðan á flutningi hennar stóð.
Metallica Robert Trujillio, bassaleikari Metallicu, setur upp
einkennissvipinn.
Söngvís Yusuf Islam, áður þekktur sem Cat Stevens og kall-
aður Köttur Stefáns af íslenskum gárungum, lék á Wembley.
Djarfar Stúlkurnar í The Pussycat Dolls voru að vanda ekki
feimnar við að láta skína í bert hold.
„Plánetan læknuð“
Madonna Söngkonan heillaði áhorfendur á
Wembley-leikvanginum í London upp úr skón-
um.
Al Gore Fyrrum varaforset-
inn er einn helsti hugmynda-
smiður og skipuleggjandi
Live Earth.
Reuters
Rio de Janeiro Það var mikilfenglegt útsýnið yfir Copacabana ströndina er sól
var hnigin.
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
13/7 kl. 20 uppselt,14/7 kl 15 laus sæti,
14/7 kl. 20 uppselt, 11/8 kl. 20 laus sæti,
12/8 kl. 20 laus sæti, 18/8 kl. 20 laus sæti,
19/8 kl. 20 laus sæti, 25/8 kl. 20 laus sæti,
26/8 kl. 20, 30/8 kl. 20 laus sæti,
31/8 kl. 20 laus sæti
Miðaverð kr. 2900 - ATH! Staðfesta þarf
miða með greiðslu viku fyrir sýningu
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
Laugardagur 7. júlí
Kl. 14:00
Erindi í Skálholtsskóla: Hvað er Apocrypha?
Kl. 14:55
Tónlistarsmiðja fyrir börn og unglinga
Kl. 15:00
Tónadómínó
Verk eftir J. Rosenmüller, F. Couperin, T.
Merula, C. Simpson, F. Durante og C. Tessarini
Barokksveitin Nordic Affect
Kl. 17:00
Hugi Guðmundsson: APOCRYPHA
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran
Barokksveitin Nordic Affect
Daníel Bjarnason stjórnandi
Sunnudagur 8. júlí
Kl. 15:00
Hugi Guðmundsson: APOCRYPHA
endurtekið frá laugardeginum
Kl. 17:00
Guðsþjónusta
Tónlist í flutningi Nordic Affect
Ókeypis aðgangur
www.sumartonleikar.is